Helgarpósturinn - 06.02.1981, Síða 4

Helgarpósturinn - 06.02.1981, Síða 4
4 Föstudagur 6. febrúar 1981 H&lr]rirpn*turinn DAGBÓKIN Laugardagur 31. janúar Fór klukkan tvö upp i Fáksheimili til að hlusta á hesta- menn lýsa áhyggjum sinum vegna fyrirhugaðrar skipu- lagningar ibúðarhúsnæðis i næsta nágrenni þeirra. Málstaöur þeirra var mjög sannfærandi. Dellan og óreiðan i skipulags- málum þetta vinstristjórnarkjör- timabil eru óþolandi. Við sjálf- stæðismenn erum þó liklega búnir að koma i veg fyrir að þeir eyði- leggi öll bestu útivistarsvæðin þetta kjörtimabilið. Hagsmunir hestamanna eru nú i hættu og á borgarráðáfundi i gær kom fram, að nú á að far,a að þjarma að golf- mönnum i Grafarholti. Hvaö er svo næst? Þessi vika var róleg og þægileg. Sú næsta verður erilsamari. Þá verður borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðismanna með fundi i öllum hverfum borgarinnar. „Seinni partinn var flokksfundur. Viö ræddum holræsamál borgarinnar, sem eru i ólestri og ekki hafa þau batnað viö þaö aö vinstri Daviö Oddsson. flokkarnir hafa ekki framkvæmt áætlunina okkar frá 1977.” Málefni borgar, bæja og sveitarstjórna skipa ef til vill ekki þann sess ihugum manna sem þeim raunverulega ber, þegar þess er gætt hversu mikiu máii þau skipta almenning i dagiegu lifi hans. Daviö Oddsson er einn þeirra manna sem haslaö hafa sér völl á stjórnmálasviöinu meö afskiptum af málefnum Reykjavikurborgar. Hann er þó ekki aö öllu leyti dæmigeröur borgarfulltrúi. 1 fyrsta lagi var hann óvenju ungur kjörinn tii trúnaðarstarfa fyrir borg sina og jafnframt óvenju ungur þegarhonum var faliö oddvitasæti i minnihlutaflokki sjálfstæöismanna i borgarstjórn nú fyrir skömmu siöan. 1 ööru lagi hefur Daviö jafnan daöraö litiö eitt viö skáidskapargyöjuna, — aö visu meira i gamni en alvöru, en engu aö siður hlotiö þar nokkurn frama. Af dagbókarbrotum þeim sem hann héit fyrir Helgarpóstinn f sl. viku verður þó ekki ráöiö aö hann sé iila klofinn milli þessara tveggja áhugamála sinna — pólitikin á greinilega allan hans hug þessa stundina. Ekki þarf Helgarpósturinn að búast viö þvi, að þessi vikudag- bók mín verði nákvæmlega sú sama og færð er að kvöldi og læst i skúffu til þess að vera þar hundraö ár eftir að maður er allur. Slikum dagbókum, sem ætla aö vera þagmælskar i heila öld eða lengur, og kannski vera týndar þá og tröllum gefnar, get- ur maður sagt leyndarmál, með þokkalegri samvisku. Ég vil lfka taka fram, að mér finnst ekki eölilegt að skýra frá þvi, hvað gerist I minu daglega starfi, þar sem ég er bundinn trúnaði sem opinber embættismaður. Sunnudagur 25. janúar Verð að játa að fjölskyldan öll og kötturinn svaf út, og þótti gott. I gær var ég i viðtölum upp i Sjálfstæöishúsi og þurfti þvi aö fara yfir nótur og athugasemdir til að kanna hvaöa verkefni kæmu út úr þvi. Þegar margir koma I viðtöl við borgarfulltrúa eru þeir að moða úr miðunum meira og minna álla næstu vikuna. Oftast nær eru slíkir viðtalstimar ánægjulegir. Stundum ber þó við aö viömælandinn er ósanngjarn, ýtinn og frekur, einsog gengur. Verstir eru þeir sem fylgja kröf- um sinum eftir með þvi að horfa á mann þýðingarmiklu augnaráði um leið og þeir segja: „Kringum mig eru að minnsta kosti 40 atkvæði, og það get ég sagt þér, að þau skila sér ekki ef þetta gengur ekki.” (Þessir kappar eru nær alltaf með akkúrat 40 atkvæði sem sveiflast i takt við úrlausn þeirra erindis!). Þeir þurfa aö hafa óvenjulega góðan málstaö og sannfærandi rök til þess að maður hreyfi litla fingur i þeirra þágu og atkvæðanna 40. Urn kvöldið kom vinur minn og sam- herji i kaffi og við ræddum flokks- mál og landsmál einsog a'byrgðin á öllum þeim málum lægi ekki annars staðar en á okkar herðum. Fórum meira að segja með allár þær byröir i biltúr til aö fjölskyldan og kisa gætu horft á Landnemana i sjónvarpinu án þess að þjakast af okkur. Þriðjudagur 27. janúar Borgarráðsfundur hófst kl. 11.30. Fjörtiu og eitt mál tekið fyrir á þessum 3487.fundi ráðsins. Við borgarráösmenn erum 5 og til viðbótar sitja heldur fleiri embættismenn fundina. Að þessu sinni eyddum við 4 og 1/2 minútu að meðtaltali á hvert mál. Sum þeirra tóku æði langan tima, svo önnur hafa bersýnilega hlotið skemmri skirn. Borgarráö er Miðvikudagur 28. janúar Hádegið var laust, svo ég brá mér ásamt Sveini H. Skúlasyni á vinnustaðafund. Að þessu sinni i mötuneyti Sjóvá og Skeljungs inn við Suðurlandsbraut. Ég hef gaman af þessum fundum. En ekki get ég imyndað mér aö Sveinn skemmti sér að hlusta á mig hundrað sinnum með sömu eða svipaða prédikun. Honum hlýtur að létta þegar spurn- Fimmtudagur 29. janúar Stjórnkerfisnefndarfundur hófst fyrir hádegiö. Hvaö er nú þaö spyrð þú? Jú, það er nefnd sem vinstriflokkarnir komu á til aö endurskoða stjórnkerfi borgarinnar ári áður en aö þeirra kjörtimabili lýkur. Þeir ætla sér að fjölga borgarfulltrúum. Það var helst þörfin á þvi! Þeir hugsa sér lika aö auka vald pólitikusanna verulega, og eru Daviö Oddson lýsir viku í lifi borgarmálamanns: „Kringum mig eru amk. 40 atkvæði../’ helst að bræða með sér að koma á einhvers konar kerfi 5 eða 7 borgarstjóra. Kannski verða þeir nú kallaðir eitthvað annað. En enn eru þetta aðeins hugmyndir, en fljótlega hlýtur að koma á daginn fyrir alvöru hvað fyrir þeim vakir. Um kvöldið fór ég á ágætan fund með umdæma- fulltrúum úr Lauganeshverfi og ræddi borgarmál. Var kominn heim um miðnætti. Föstudagur 30. janúar Borgarráösfundur var i dag. Aðeins 21 mál á dagskrá. Það var svo sem vel sloppið, en þvi meir rifist um hvert mál. Upp úr 5 fór ég i bækistöðvar SVR við Kirkjusand aö fagna nýjum strætisvagni frá Volvo og Nýju- bilasmiðjunni. Sigurjón forseti skálaði fyrir þvi sérstaka ánægjuefni, að með þvi að fá það verkefni aö smíða yfir 20 strætis- vagna ykjust störf við islenskan iðnað. Það þyrfti einhver að minna hann á blessaðan, að hann baröist fyrir þvi einsog ljón með kommunum sinum, aö i staðinn fyrir að ýta undir innlendan iönað þá yrðu keyptir 20 vagnar af Ikarus gerð, framleiddir einhvers staðar i austantjaldbúðum. Mánudagur26. janúar Dagurinn gekk sinn góða vana- gang. Eftir vinnu skaust ég upp i Sjálfstæöishús til þess að hitta menn vegna undirbúnings hverfafunda okkar Sjálfstæöis- manna. Bridgeið átti kvöldið. Jón Steinar spilaði söguleg 7 grönd dobluö af Eiriki Tómassyni og Skarphéðni Þórissyni, meðan Arni Kolbeinsson horföi á, með álika áhyggjusvip og hann væri að skoða þingmannsfrumvarp um skattamál. Gott spil — gott kvöld, takk fyrir. afar sérstætt og valdamikiö stjórnvald. Það vasast i smáu og stóru I borgarrekstrinum, rétt einsog gert var hér áöur meöan að Reykjavik var litill bær. Hér hlýtur að mega breyta. Um hálf sex var ég kominn upp i Sjálfstæðishús, þar sem bækur segja að valdataflið hafi verið og sé kannski enn. Þar voru nokkrir áhugasamir fulltrúar úr Hliða- og Holtahverfi og við ræddum borgarmál. Fremur fámennt en góðmennt. Jónas Eliasson for- maður þessarar hverfisstjórnar er forkur einsog þeir gerast bestir. ingarnar byrja. Ég kveiö þessum fundum dálítið fyrst. Fannst ég vera aö ryðjast inn á tima sem fólkiö á sjálft. En viðtökurnar hafa fyrir löngu bægt þeim kviða burt. Flestir hafa orð á þvi að gaman sé að stjórnmálamenn skuli lita inn þótt ekki séu kosn- ingar iaugsýn. Seinni partinn var flokksfundur. Við ræddum holræsamál borgarinnar, sem eru i ólestri og ekki hafa þau batnað við það að vinstriflokkarnir hafa ekki framkvæmt áætlunina okkar frá 1977.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.