Helgarpósturinn - 06.02.1981, Síða 8

Helgarpósturinn - 06.02.1981, Síða 8
Föstudagur 6. febrúar 1981 ho/rjr^rpn^ti irinn _____neigar— pósturinn— utgefandi: Blaðaútgáfan Vitaðsgjafi, sem er dótturf yrirtæki Alþýðu- blaðsins, en með sjálfstæða stjórn. Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guð- mundsson. Ritstjórar: Arni Þórarinsson, Björn Vignir Siqurpálsson. Blaðamenn: Guðjón Arngrimsson, Guðlaugur Bergmundsson, Guðmund- ur Arni Stefánsson og Þorgrimur Gestsson. utlit: Kristinn G. Harðarson. Ljósmyndir: Jim Smart. Auglýsinga- og sölustjóri: Höskuldur Dungal. Auglýsingar: Þóra Hafsteinsdóttir. Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir. Dreifingarstjóri: Sigurður Steinars- son. Ritstjórn og auglýsingar eru að Siðumúla 11, Reykjavik. Simi 81866. Afgreiðsla að Hverf isgötu 8—10. Sím- ar: 81866, 81741, 14900 og 14906. Prentun: Blaðaprent hf. Askrift (með Alþýðublaðinu) er nýkr. 70,00 (gkr. 7000) á mánuði. Verð í lausasölu er nýkr. 6,00 (600) eintakið. Þingmenn og aukastörfin Laun þingmanna hafa jafnan veriö ágreiningsefni manna f millum og hart deilt. Flestir eru sammála þvi, aö eölilegt sé aö þingmenn hafi rífleg laun fyrir sina vinnu og þurfi þar af leiðandi ekki aö vera upp á aöra komnir til aö komast af. Þeir þurfi stööu sinnar vegna aö vera fjárhags- lega sjálfstæöir. Þetta atriöi skrifa flestir undir. Hitt greinir svo menn á um, hvaö skuli teljast sanngjörn laun og rffleg og sennilega komast menn seint aö samkomulagi i þeim efnum. Ljóst er þó, aö flestir launamenn myndu gera sig til- tölulega ánægöa meö fastalaun þingmanna sem eru i grunnlaun 12 þúsund krónur, en geta I sum- um tilfellum þegar ýmsar auka- greiöslur leggjast á, fariö upp I tæpar 17 þdsund krónur. Kjarni þessa máls, er þó ekki þingfararkaupiö sjálft. Staö- reyndin er nefnilega sií, aö minni- hluti þingmanna dregur fram Iff sitt á þinglaununum einum. Hinn hópurinnn er stærri sem þiggja peninga víöar aö. Fyrst skal netna þá þingmenn sem jafn- framt gegna ráöherrastörfum, en samanlögö laun þeirra eru þó- nokkuö yfir 20 þúsund krónur. Þá eru þeir og ekki fáir sem hafa ýmis aukastörf á hendi og þiggja umtalsverö laun fyrir. í þvi sambandi má nefna aukastörf eins og setu I borgarstjórn og nefndum horgarinnar, hjá Framkvæmdastofnun, viö kennslu og fleira og fleira. Þá eru ótaldir þeir sem reka eigin fyrir- tæki. Þeir eru ófáir bændurnir á þingi og þrátt fyrir misgóöa af- komu bænda, er ljóst aö af þeim rekstri leggjast þessum mönnum til dágóöar viöbótarfjárhæðir viö þingfararkaupiö. Siöast en ekki sist, sitja á þingi menn sem eru hluthafar I stórfyrirtækjarekstri og hafa af góöan pening. Langflestir þingmenn fá einnig aukatekjur fyrirsetu sina I hinum og þessum nefndum og ráöum innan stjórnkerfisins, þó I fæstum tilfellum liggi þar upphæöir sem sköpum skipta varöandi lffsaf- komu einstaklinga. Aö þessu samanlögöu er þó full- Ijóst, aö öll umræöa um lífsaf- komu þingmanna, kaup þeirra og kjör, í beinu samhengi viö þing- fararkaupiö sjálft, er um margt villandi. Sú umræöa á ekki viö nema hluta þingliösins. Þaö ligg- ur þvi fyrir, aö launabiliö á Alþingi milli þingmanna, er á stundum ekkert minna en milli hinna ýmsu stétta þjóðfélagsins. t beinu framhaldi af þessu, má velta þvi fyrir sér hvort bein tengsl geti verið milli hinna fjölmörgu aukastarfa þingmanna og oft á tiðum lélegrar þingsetu á þingfundum. Vist er þaö, aö þing- menn sinna ýmsum störfum inn- an þinghúss öörum en þeim aö sitja á þingfundum, en þvi verður þó ekki neitaö, að margir kysu aö ýmsir þingmenn okkar væru til muna starfsamari á þingi. t grein Helgarpóstsins I dag veltir m.a. einn þingmaöur þvi fyrir sér, hvort ekki geti uin bein orsaka- tengsl veriö aö ræöa á milli lé- legrar þingsetu og hinna fjölda- mörgu aukastarfa ýmissa þingmanna. Það hefur jafnan veriö gagn- röksemd þeirra þingmanna sem I aukastörfum vasast, aö þaö sé æskilegt aö þingmenn séu I bein- um tengslum viö atvinnulifið i landinu og komi á þann hátt I veg fyrir að einangrast. Þessi rökeru góösvolangt sem þau ná. En þeg- ar þingmaður er ef til vill farinn aö taka hærri laun utan þings en innan, þá hefur hlutverkum veriö snúiö viö. Alþingismenn hafa oft og einatt veriö gagnrýndir fyrir seinagang og illa skipulögö vinnubrögö. Varla er aö búast viö breytingu til batnaöar á þvi sviöi, meðan fjöldi þingmanna er meira og minna upptekinn af öörum áhugamálum sinum og auka- störfum. Á humarveiðum í Costa Rica „Vetrarhitinn” vakti mig i lOOasta skipti hér á Costa Rica og þó var nóvembermánuður aö renna upp á dágatalinu. Dagurinn byrjaöi eins og venju- lega á morgunveröi sem saman- stendur aöallega af hrisgrjónum og nýrnabaunum, en eftir aö hafa Ferðapóstur f rá Valdimar Flygenring drukkiö bolla af heimsins besta kaffi er maöur til I allt. Það er ekki aö undra aö hér skuli kaffi- rækt vera aðalatvinnugreinin. Ég bý hér hjá fjölskyldu báts- eigenda nokkurs og ætlunin var aö halda til humarveiöa þennan dag. Eftir um 20. minútna bilferð, sem undir venjulegum kring- umstæöum tekur um klukku- stund, erum viö komnir til Puntarenas, sem er einn helsti hafnarbærinn við Kyrrahafs- ströndina hér i landi. Stressaður bátseigandinn var greinilega aö flýta sér. Þarna liggur Dona Julita viö bryggju, dæmigerður costa- ricanskur humarbátur, nýkom- inn úr klössun. Ég kem mér fyrir i einni kojunni meöan áhöfnin tinistum borö og að lokum kemur akfeitur skipstjórinn, stingur marghleypunni undir rúmið, skiptist á nokkrum orðum viö áhöfnina, og lagar svo Jesúmyndina yfir höföalaginu. Viö kveðjum eigandann, og svo er lagt upp i 14. klukkustunda siglingu noröur eftir, þar sem áð er viö fallega sólarströnd Playa Panama, rétt viö landamæri Nicaragua. Veiöarnar fara þannig fram, aö veitt er yfir nóttina, rétt upp viö landsteina, en legiö viö akkeri úti fyrir ströndinni yfir daginn. Eftir svo sem mánuö er svo haldiö heim til Puntarenas meö fullan bát af frystum humri, ekkert ósvipaö þessum venjulega islenska humri, sem var aö gera mig vit- lausan hérna á Hornafiröi um áriö. Skúli sjómaöur þætti liklega heldur betur ruglaður, ef hann stykki út á dekk um hánótt á miöjum vetri — þvi hér er vetur frá júli fram I janúar — til þess aö hifa, svo gott sem alsber. En þannig er þvi farið hér, þar sem yfir nóttina er frá 15—20 gráöu hiti, svo að föðurlandiö okkar viöfræga væri blátt áfram hlægi- legt. Humarinn er veiddur á 30—40 faöma dýpi og yfir nóttina veiðist um 80 til 150 kg. Skipstjórinn segir mér aö ef veiðist meira, sé alltaf togaö án ljósa, þvi annars komi hinir skipstjórarnir og klári það sem er aö fá. Ég landkrabbinn spuröi skipstjórann hvort þetta væri ekki hættulegt. „Nei, nei, sé bátur alveg rétt viö kveiki ég alltaf ljósin,” svaraöi hann. Já, til aö sjá áreksturinn, hugsaöi ég meö sjáifum mér, sjálfsagt i einfeldni minni og um leiö rifjuöust upp fyrir mér hryllilegustu atriöin úr Jaws-myndinni, sem var vist að hluta tekin hér á Costa Rica enda nóg af hákarli. Ekki batnaði sjó- veikin viö þá tilhugsun. Lifiö um borö er rólegt, enda eru humarveiöar kannski ekki þaö erfiöasta sem til er. Samræöur bátsverja snúast aöal- lega um miöhluta mannsins og hinar ýmsu aöferöir sem verða upphaf lifsins. Spænskan sem notuð er við lýsingarnar er vist örugglega ekki kennd i skólum. Og svo er lika Morgan Kane til á spænsku. A daginn drepa menn timann með þvi aö kikja á kvenfólkið, sem liggur á ströndinni og baöar sig i einhverri lækjarsprænunni eða þá að menn sofa. Máltiðir eru svona 6 til 10 yfir sólarhringinn, enda nóg aö boröa þvi aö alltaf slæöast nokkrar skjaldbökur i netin og þótt bannaö sé að veiöa skjaldbökurnar, þá þola sumar hverjar ekki hnjaskið I netunum og litið annaö hægt aö gera en að matreiða þær. Annars er þaö nú fremur dapurlegt, þvi þær veik- byggðustu, þ.e. þær sem koma upp dauðar, eru fullar af eggjum en hvaö um þaö — viö erum vist grimmasta skepna jaröarinnar. Kjötiö er á bragðið ekki ósvipaö nautakjöti en eggjunum er eigin- lega ómögulegt að lýsa nema þá helst sem nautakjötseggjum. Þau eru yfirleitt boröuö hrá meö sitrónu og eru meö þvi betra sem ég hef bragöað. Þegar komiö er til hafnar eftir mánaðar útivist, eins og áður sagöi, þá fá þessir sjómenn 2 daga fri og siöan er haldiö út aftur i 20 daga túr. Þannig liöur ævin hjá þessum costa-ricönsku humarveiöimönnum, sem fá greiddar um 2000 gkr. fyrir hver 50 kg. sem veiðast. Tryggingar og sjómannafélög þekkjast ekki og aö auki veröa þeir aö greiöa sem svarar um 1/3 launanna i fæöu þessa 20 daga. Þaö er þvi ekki mikiö eftir handa fjölskyldunum i landi sem eru mannmargar, liklega um 10 manns aö meöal- tali. En þaö er auðvitaö ódýrara aö lifa hér um slóðir og eitt er vist — þessir sjómenn eyöa ekki pen- ingunum i rándýrar sólarlanda- feröir. Það væri liklega þaö siðasta sem þeim dytti i hug. Eyjapósturinn varö of seinn i þetta blaö vegna samgöngu- erfiðleika, svo aö þess i staö var gripið til frásagnar ungs islensks skiptinema sem dvelst um þessar mundir i þvi fjarlæga landi Costa Rica og lét sig hafa þaö aö kynna sér þarlendan sjávarútveg. Gunnarsdýrkun Þjóðviijans Á sunnudaginn er eins árs af- mæli rikisstjórnarinnar. Þessa dagana fyrir ári, stóð þjóðin bók- staflega á öndinni yfir myndun þessarar rikisstjórnar, enda eng- in furða þar sem Gunnar Thoroddsen haföi svo óvænt stigið fram á sviöið og ekki vantaði að kastljósið beindist að honum, ein- um reyndasta og liklega slóttug- asta núlifandi stjórnmálamanni Islendinga. Hveitibrauðsdagar þessarar rikisstjórnar stóöu lengi, og alltaf hefur doktor Gunnar haft lag á þvi að leysa að- steöjandi „krisur” á sinn hátt. Skoöanakönnun Dagblaðsins um fylgi rikistjórnarinnar var einskonar afmælisgjöf þjóðar- innar til stjórnarinnar og þó eink- um og sér i lagi til forsætisráð- herrans. Margur hefur brosað siðan yfir þeirri Gunnarsdýrkun sem birst hefur á siöum Þjóðviljans. Einn dálkur i þvi blaði heitir „nafn vik- unnar” og er á baksiðu laugar- dags og sunnudagsblaðsins. Oft- ast reyna þeir Þjóöviljamenn að grafa upp einhverja Alþýöu- bandalagsmenn, til aö gefa þessa nafnbót, en ef þeir eru ekki til- tækir, þá eru kannski teknir ein- hverjir sem ekki eru beint brennimerktir neinum sérstökum flokki, en hafa á einn eöa annan hátt komiö mikiö viö sögu i fjöl- miölum, vikuna sem er að liða. A sunnudaginn var Gunnar Thoroddsen nafn vikunnar og þar segir dálkahöfundur meðal annars: „Enginn einn maður hefur átt jafn rikan þátt i að skapa þetta álit þjóöarinnar á rikisstjórninni og forsætisráð- herrann sjálfur. Framganga hans i fjölmiölum, fumlaus og yfir- veguð, hefur virkað vel á landsr menn. Hann þykir einnig hafa sýnt samningalipurð og forystu- hæfileika, þegar þurft hefur að sætta ólik sjónarmiö innan stjórnarliðsins”. Þetta var hluti af hóli Þjóðviljans um forsætis- ráðherra. Hver er ástæðan? Staksteinar Morgunblaösins upplýsa nú i vikunni að höfundur þessara oröa sé Baldur óskars- son, erindreki Alþýðubanda- lagsins, það er sem sagt ekki einn af föstum starfsmönnum blaðsins sem fær það verkefni i héndur aö skrifa hólið um Gunnar, heldur sjálfur erindreki Alþýöubanda- lagsins, og einn af fáum launuö- um starfsmönnum þess. Liklega minnast sumir þess, við lestur þessa Gunnarshóls i Þjóöviljanum aö þvi var hvislað manna á meöal, eftir aö rikis- stjórnin var mynduð, að ein af ástæöum þess að Alþýðubanda- lagið gekk til liös við Gunnar, var aö þaö sá sér leik á borði að kljúfa Sjálfstæðisflokkinn, eöa réttara sagt ýta á eftir klofningi hans. Þessu hafa Alþýðubandalags- menn heldur ekki gleymt, og nota nú hvert tækifæri sem þeim gefst aðhæla Gunnari Thoroddsen i há- stert, til að auka þannig vinsældir hans meðal þjóöarinnar. Þeir vita sem er, að senn verður byrjað að kjósa I flokksfélögum Sjálfstæðis- flokksins til landsfundarins sem allir biða eftir i vor. Þegar að þeirri kosningu kemur, er ekki ónýtt að vera kallaður vinsælasti maður þjóðarinnar, þótt Mogginn hæli honum að sjálfsögðu ekki. Skýring Mogga Staksteinar Morgunblaðsins hafa sina skýringu á þvi hvers- vegna Baldur Óskarsson skrifar svo lofsamlega um Gunnar Thoroddsen. Á Moggamáli heitir þetta, að Ólafur Ragnar Grims- son stjórni þessum skrifum, og vilji hann með þeim láta ráöherra Alþýöubandalagsins falla i skuggann af Gunnari Thorodd- sen, sjálfum sér til framdráttar. Það vita allir að Ólafur Ragnar er framgjarn maður, og þeir eru lika miklir mátar Baldur Óskars- son og hann, báðir búnir að vera i Framsókn, Þjóðvörn og nú i Al- þýöubandalaginu. Þeir eiga sina hatursmenn innan Alþýöubanda- lagsins, en eru „slagferdig” á fundum og eiga nú oröiö stóran hóp tryggra áhangenda innan flokksins. HÁKARL Flett aftur f timann Þegar flett er gömlum Þjóð- viljablöðum, þarf ekki að fara iangt, til aðfinna annan tón i garð Gunnars Thoroddsen en nú hljómar á siðum blaösins. Þegar Gunnar var iðnaöarráðherra i stjórn Geirs Hallgrimssonar árin 1974 til 1978 voru Þjóðviljamenn nú ekki par hrifnir af orkustefnu Gunnars. Magnús Kjartansson hafði þá áður haft með þessi mál að gera og i þinginu gerði hann hvað eftir annað haröa hrið að iönaðarráðherranum Gunnari Thoroddsen. Þá beitti Magnús Kjartansson ekki ósjaldan háðsk- um og beittum penna sinum að Gunnari Thoroddsen hér fyrr á árum, þegar Gunnar var fjár- málaráöherra og borgarstjóri. „Dyr óttans” voru þá á dagskrá, en það eru dyr sem Gunnar lét gera sem fjármálaráðherra á noröausturhliö Arnarhvols, svo hann heföi einskonar „privat” inngang i ráðuneytið en þyrfti ekki aö ganga út af skrifstofu sinni i gegnum biðstofuna, þar sem gjarnan sátu menn sem vildu ná tali af ráöherra. Nú er þetta breytt hjá Þjóðvilj- anum. I niðurlagi baksiðuviðtalsins i Þjóðviljanum um siðustu helgi segir svo Gunnar Thoroddsen:: „Ég held ég viti eins vel og lik- lega betur hver er stefna Sjálf- stæöisflokksins, eftir að hafa starfaö i honum i rúm 50 ár, heldurensumir þessirpiltar, sem nú þykjast boöberar sjálfstæðis- stefnunnar”. - Eru þessir piltar Geir Hall- grimsson, Matthias Á. Math- iesen og Ólafur G. Einarsson? Gaman væri ef Þjóðviljinn upp- lýsti þaö á ársafmælinu. Hákarl

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.