Helgarpósturinn - 06.02.1981, Side 14
Svanbjörg, Ólöf og Jóhanna viö leöurvinnuna.
MÓTA HIMIN OG
JÖRÐ(LEÐUR
Litið inn að Norðurbrún 1
„Þetta er vandasöm þolin-
mæöisvinna, en hún er skemmti-
leg — að minnsta kosti þegar
hluturinn er tilbúinn”, sagöi Jö-
hanna Björnsdóttir, ein fjögurra
kvenna, sem Helgarpósturinn
hitti aö Norðurbrún 1, þar sem
ellilifeyrisþegar eiga kost á ýmiss
konar handavinnukennslu.
Konurnar fjórar, dóhanna, Ólöf
Guömundsdóttir, Svanbjörg
Einarsdóttir og Þorbjörg Lýös-
dóttir eru allar að læra leður-
vinnu. Þær hafa stundað þetta
mismunandi lengi. Svanbjörg er
nýbyrjuð en hinar hafa verið i
þessu 2-3 ár.
Kennari þeirra er Lára Sigur-
björnsdóttir og hefur hún umsjón
með lúffusaumi og lampa-
skermasaumi auk leðurvinnunn-
ar. Hún sagði að leðurvinnan væri
allsráðandi um þessar mundir, en
i haust hefði fólk saumað mikið af
lúffum.
„Ég hef saumað alls 24 lúffur á
þrem árum”, sagði Ólöf, ,,og
gefið þær allar, nema eitt par,
sem ég á sjálf.”
Og það eru ekki aðeins lúffurn-
ar, sem konurnar gefa. Þær hafa
búið til ótal bókamerki, skæra-
hulstur, seðlaveski, lyklaveski og
þess háttar leöurmuni og gefið i
jólagjafir. Það er heldur enginn
svikinn af þessum hlutum, þvi
þeir eru afar fallegir. Konurnar
hafa mötað hin'margvislegustu
munstur i leðrið með sérstökum
tækjum og upphafsstafir og
fæðingardagar viðtakandans eru
yfirleitt lika greypt i munina.
Ýmsa stærri hluti hafa þær lika
gert. Þannig gerði Ólöf heila
veggmynd i leður, með rósabekk,
stökkvandi hreindýrum, trjám,
fjalli og fleiru. Auk þess bjó hún
handa syni sinum til skrifmöppu
með stöfunum hans i, rúnaletri og
fleiri skreytingum. Eitt stærsta
verk Jóhönnu var hlustur utan
um bibliuna sina. Hún hefur
einnig sött tima hjá Gunnari
Klængssyni i útskurði, þar sem
hún bjö m.a. til platta með gamla
bænum á Stóra-Gili i Húnavatns-
sýslu og fleiri bæjum.
Þessar hressu konur létu vel af
sér við vinnuna og sögðu að úr
leðri mættigera allt, sem á annað
borð væri hægt að búa til úr efni.
En það er boðið upp á ýmislegt
fleira i félagsstarfi eldri borgar-
anna i Reykjavik en leðurvinnu
og útskurð. Þarna er lika leir-
munagerð, smeltivinna, teiknun
og málun, enskukennsla og skák-
kennsla svonokkuðsénefnt. Og á
fimmtudögum er svokallað opið
hús. Þá er spilaö og dansaö af
krafti og þá dagana er húsnæöiö
að Norðurbrún 1 troðfullt út úr
dyrum.
Föstudagur 6. febrúar 1981
he/garpósturínn
SKÍÐI
Skíðamaður á öðrum f æti
Rætt við Hörð Barðdal um sérkennilega skíðatækni
„Mér finnst þetta alveg rosa-
lega gaman,” sagöi Höröur
Barðdal endurskoðandi og
eflaust einn óvenjulegasti skiða-
maður landsins. Blaðamaður
Helgarpóstsins hitti hann i Skála-
felli á dögunum, þar sem hann
renndi sér niður brekkuna af mik-
illi kúnst — á aðeins einu skfði.
Astæðan er sú, að Hörður hefur
verið lamaður á öðrum fæti siðan
hann var drengur og getur hann
þvi ekki nýtt sér venjulega skiða-
tækni. Reyndar kemur niest á
óvart að hann skuli yfirleitt láta
sér detta i hug að reyna að stunda
skiðaiþróttina.
„Okkur eru nánast engin tak-
mörk sett ef viljinn er fyrir
hendi,” sagði hann. „En hug-
myndin kom þannig, að Iþrótta-
sambandi fatlaðra var boðið að
taka þátt i vetrarólympiuleikum
fatlaðra i Geilo i Noregi i fyrra.
Hér vissi þá enginn neitt um
vetrariþróttir fatlaðra, svo við
gátum engan þátttakanda sent.
Hins vegar var ákveðið að senda
út tvo þjálfara, einn frá Akureyri
og einn frá Reykjavik, og tvo
félaga i Iþróttasambandi fatlaðra
til að kynna sér þetta.
Þarna voru einfættir menn að
renna sér niöur sömu brekkurnar
og aðrir skiðamenn. Það var
hreint ótrúlegt að sjá þetta og
reyndar enginn munur á þeim og
öðrum.
Ég hafði aldrei farið á skiði, en
fékk mikla uppörvun þarna úti.
Mér hafði veriðsagt að þetta væri
ekki fyrir menn með lömun og
reyndar geta ennþá aðeins
einfættir menn tekið þátt i keppn-
um i Evrópu og á Ólympiuleikum.
En ég hitti Bandarikjamann i
Geilo, sem var lamaður á öðrum
fæti, og hann sagði mér að það
tæki einn til þrjá tima að ná tök-
um á þessu.
Þegar við komum heim reynd-
um við að útvega þann búnað sem
til þurfti og létum smiða skiða-
stafi úr gömlum skiðabrotum og
göngustöfum. I Skátabúðinni fékk
ég skó og bindingar fyrir litið og
tJtilif lét mig hafa eitt skiði, sem
Þetta er ekki fyrsta iþróttin,
sem Hörður stundar, þvi hann
hefur leikið golf á sumrin og sund
hefur hann stundað lengi. Nú hafa
skiðin bæst við. Og fjölskyldan fer
lika til fjalla. Eiginkona Harðar
fer á gönguskiði og sonurinn
reynir sig á svigskiðum. Hann
var reyndar byrjaður á undan
föður sinum.
En fylgir þvi ekki meiri áhætta
fyrir einfættan mann að fara á
skiði en hinn sem getur notaö
báða fætur jafnt*
„Það held ég ekki,” sagði
Hörður. „Það er hægt að brjóta
sig og drepa alls staðar og flestir
deyja jú i rúminu. Ég held að
hættan á skaða sé hverfandi litil.
Það sem helst getur amað að
mönnum er að þeir fá harðsperr-
ur til að byrja með, en i staðinn fá
þeir bétra geð og betri heilsu.”
þarhafði verið skilið eftir. Otbún-
aðurinn kostaði mig þvi aðallega
þann tima sem tók að koma þessu
saman.
Ég fór svo i fyrsta sinn á skiði i
april, en með litlum árangri. Það
var ekki fyrr en þjálfari fór með
mérað þetta small saman. 1 ár er
ég búinn að fara tvisvar og nú
virðist þetta vera að lukkast.”
Hörður kvaðst aðeins vita um
einn mann annan, sem hefði reynt
að skiða á einu skiði hér, en mein-
ingin væri að reyna að ná til
þeirra manna sem misst hafa
annan fótinn og koma þeim til að
stunda skiðaiþróttina.
Hér er Hörður meö skiöaútbúnaöinn, sem eins og sjá má er nokkuö svo
óvenjulegur
Frá Snjólfi snillingi og félögum hans
Ég hitti vin minn Snjóif snill-
ing nýlega. Hann sagöi mér að
hann kæmi oft i spilaklúbbinn
„Fjórir kóngar”. Þar væri mik-
ið fjör i spilamennskunni og
gengi á ýmsu. Þegar ég spurði
hann hvort hann gæti sýnt mér
eitthvert skemmtilegt spil,
sýndi hann mér þetta:
Suður gefur, allir utan hættu.
Kári
kennari
SDG97
H 32
T 106
L D10864
Gvendur
glanni
S A104
H D764
T 9854
LK5
Runki
röflan
S 6
H KG10985
T Á2
L 9732
Snill-
ingurinn
S K8532
H A
T KDG73
LAG
Snillingurinn sagði einn spaða
og Kári hækkaði i tvo spaöa.
Snillingurinn lokaði þá sögninni
með fjórum spöðum. Gvendur
glanni átti út og fékk þá hug-
dettu aö laufa kóngurinn væri
rétta útspilið, þvi svona myndi
meistari Garozzo örugglega
spila. Snillingnum var hlýtt til
glannans um leið og hann tók
meö ásnum. Litlu trompi spilaö
og glanninn tók á ásinn og lét
aftur lauf sem snillingurinn tók
á gosann. Trompi spilað tvisvar
og borðið inni. Tigultiunni
hleypt i gegn. Þegar enginn
vildi hana voru friu laufin tekin
og snillingurinn kastaði tigul
kóng, drottningu og gosa! Siðan
spilað trompi. Varð sjálfur inni
og tók fimmta trompið. Tekið á
hjarta ásinn og lét siðan tigul
sjöið. Austur og vestur höfðu
báðir kastað tiglunum og áttu
aðeins hjörtu. Sex i húsi. Runki
röflari hellti sér strax yfir
makker sinn, brigslaði honum
um glannaskap og aulahátt i
hvivetna. Konni kæni hafði stað-
ið fyrir aftan mig og horft á. Að
sptlinu loknu og brigslmælum
röflarans, hvisiaði hann að
mér: „Er ekki sanngjarnt að þú
gefir glannanum einn léttan út á
laufa kónginn?”
|Q| Skák: Guðmundur Arnlaugsson — Spll: Frlðrik Dungal — Söfnun: AAagni R. Magnússon — Bllar: Þorgrlmur Gestsson
Sp/7
1 dag skrifar Friðrik Dungal um spil
Lausn á spilaþrautinni
S 532
H 8765
T765432
L —
SKD4
H Á32
T DG1098
L G4
S G76
H KDG1094
T-----
L D1092
S Á1098
H-----
T ÁK
L AK 87653
Suður vinnur sex spaða. Vest-
ur lætur út hjarta áttu.
Norður gefur i borði og suður
trompar. Norðri spilað inn á
spaða kóng. Suður trompar hinn
hjarta hundinn með ásnum.
Trompi spilað tvisvar og austur
er inni á tromp gosa. Suður
kastar tigul kóng. Nú er sama
hvað austur lætur. Norður er
inni, spilar hjarta ás, losnar við
tigul ás suðurs og á það sem eft-
ir er.
Það vakti ánægju mina að sjá
aðallar lausnir sem bárust voru
réttar. En ánægjan hefði orðið
meiri hefðu þátttakendur verið
fleiri. Við aðstandendur Helgar-
pöstsins vorum i þeirri góðu trú,
að til væru margir hér á landi
sem ánægju hefðu af spilaþraut-
um um leið og slikt bréfasam-
band skapaði meiri tengsl milli
þáttarins og lesenda. Þvi ekki
að senda okkur hugdettur ykkar
og tillögur? Látið okkur vita
hvort þið viljið meira af
spilaþrautum eða hafið ein-
hverjar aðrar óskir fram að
færa.
Dregið hefur verið i sambandi
við spilaþrautina. Vinninginn
hlaut
Magnús Aðalbjörnsson
Asbyggð 18, Akureyri,
og verðlaunin, tvenn spil,send til
hans i pósti.