Helgarpósturinn - 06.02.1981, Side 22

Helgarpósturinn - 06.02.1981, Side 22
22 Föstudagur 6. febrúar 1981 Jie/garpósturinn^ Slbastli&ið þri&judagskvöld voru haldnir tónieikar á Kjar- valsstööum. Það voru þau John A. Speight, og Sigrún V. Gests- döttir söngvarar, ásamt Svein- björgu Vilhjálmsdóttur pianó- leikara, sem sáu um tónlistar- fiutninginn. Þau John og Svein- björg hafa haldið fjöldamarga tónleika si&an þau komu hingað frá námi erlendis 1972, en Sigrún hefur ekki sungið fyrr á slíkum tónieikum. Hún hefur þó sungið einsöngshlutverk I oratorium. öll kenna þau i Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Stuttu fyrir tónleikana brá ég mér í gervi blaðamanns (enn einu sinni) og tróö mér inná æfingu hjá þremenningunum. Þegar hús- vörður Kjarvalsstaða opnaði fyrir mér streymdu á móti mér Ijúfir tónar. Það var greinilegt að hér voru engir nýgræðingar á ferðinni, heldur vanir menn. og á fleiri stöðum. Einhverju sinni var ég valinn úr skólanum tilaö fara i tónleikaferöalag til N- írlands. Ég kom svo hingaö til ís- lands ásamt Sveinbjörgu konu minni 1972”. Sveinbjörg: „Þegar ég var 9 ára hóf ég pianóleik á Siglufirði hjá Hauki Guölaugssyni. Ég var forfallin tónlistarneytandi frá upphafi. Ég stundaði siðan nám i Tónlistarskólanum i Reykjavik. Þar var ég hjá Jóni Nordal i pianóleik og tók tónmennta- kennaradeildina meö. í Guildhall nam ég hjá ungverskum pianó- leikara, Thomas Rajna auk þess sem ég lagöi stund á söng. I Eng- Sveinbjörg: „Mér finnst t.d. of mikið vera gert af þvi aö spila dægurlög I útvarpinu”. John: „Já, og talandi um góöa og slæma tónlist, þaö veröur aö sjálfsögöu aö bjóða útvarpshlust- endum uppá þaö besta sem völ er á, i hvaða tegund tónlistar sem er”. Sigrún: „Ég held aö þetta sé nú aðeins að breytast til batnaðar. Ég heyri ekki betur en hann Jónas spili bæði sigilda tónlist og dægurlagatónlist jöfnum höndum á föstudögum. Sigild tónlist er ekki lengur þessi sjaldséði hviti hrafn sem hún hefur verið”. Allir fái tækifæri. Sveinbjörg: „En útvarpið ætti menninganna mætti halda að ég heföi sagt eitthvað hræöilegt. Sigrún: „Púff! Ekki segja óperusöngvari. Ég er ekki óperu- söngvari. Ég væri þaö ef ég hefði atvinnu af þvi aö syngja i óperu. Annars er svo erfitt aö segja ég er þetta eöa ég er hitt. Söngur og kennsla er eitthvað sem ég er að fást við. Það vill svo til að ég er inni þessum málum. Nú, ég syng lika i kór hjá Sigursveini manni minum og það finnst mér mjög skemmtilegt. Maður upplifir sönginn allt öðru visi þegar maður syngur i kór heldur en þegar maður syngur einn. John: „Það er mikill misskiln- ingur að kalla þá óperusöngvara sem syngja kannski i mesta lagi einu sinni á ári i óperu. Fólk tekur ekki beina ákvörðun um að gerast söngvari held ég, en þetta er eitt- hvað sem ágerist smátt og smátt. okkar. Það léttir undir hjá okkur”. Sigrún: „Já, mér þykir erfitt að sjá um svona tónleika. Það væri náttúrulega best að þurfa ekki að koma nálægt öllu þessu stússi”. Sveinbjörg: „Það er brýn nauð- syn að fá góðan óhlutdrægan skipuleggjanda”. John: „Já, engan klikuskap, það er vist nóg af honum fyrir." — Hvað tekur langan tima að æfa fyrir svona tónleika? Sveinbjörg: „Það er kannski hægt að segja að maður hafi æft sig alvarlega i 4 vikur, annars er erfitt að reikna það út”. John: „Maður er lika að kenna með þessu og getur þvi ekki stundað eingöngu æfingar. Það er þvi ekki hægt að svara spurning- unni með ákveðinni tölu”. (konur= menn). Að vera tónlistarmaður krefst baráttuþreks — rabbað við John A. Speight, Sigrúnu V. Gestsdóttur og Sveinbjörgu Vilhjálmsdóttur - eftir Jóhönnu Þórhallsdóttur —'Hvenær hefjið þiö ykkar tón- listarnám? Sigrún: „Ég byrjaði á 8 eða 9 ára aldri austur i Hveragerði að læra á pianó hjá Guðlaugu Björnsdóttur. En til Reykjavikur kom ég 16 ára gömul og fór i Tón- menntakennaradeild Tónlistar- skóla Reykjavikur. Þar lærði ég á pianó hjá Herminu Kristjánsson og söng hjá þeim Guðrúnu Sveinsdóttur og Engel Lund. Þær voru mér allar mjög dýrmætar. Arið ’7l lauk ég tónmenntakenn- aradeildinni og dreif mig til Eng- lands ásamt eiginmanni minum, Sigursveini Magnússyni. Ég var i söngnámi og pianónámi i Royal Academy og Music i 3 ár og læröi sönginn hjá Marjorie Thomas. Siðan varég i Ameriku um tima og fór i nokkra söngtima hjá Fay Smith”. John: „Einhvern tima á minum yngri árum fékk ég þessa músik- dellu. Ég var nú i menntaskóla- námi til ’64, en fór þá til London i söngnám i Guildhall School of Music and Drama. A sama tima var ég i tónsmfðum hjá Richard Rodney Bennett. A námsárum minum söng ég i oratorium sem ljóðasöngvari, bæði i London landi var ég i 7 ár. Þegar við John komum heim, ætluðum við að vera hér i stuttan tima, en einhvern veginn ilengdumst við og erum ekki ennþá farin”. — Hvað tók svo við þegar heim var komiö? Skipuleggjandi óskast! Sveinbjörg: „Hér fór maður beint i kennsluna. Það góða við Island er að maður getur haldið tónleika inná milli ef áhugi er fyrir hendi”. John: „Það er þó eitt sem vantar hér og það er umboðs- maður. 1 april þegar tónleika- flóðið byrjar, er oft erfitt fyrir tónlistamennina sjálfa að fylgjast með hvort það eru t.a.m. margir tónleikar á þeim degi sem þeir ætla aö hafa tónleikana á. Þaö kemur oft fyrir að það eru margir tónleikar einn daginn en svo kannski enginn daginn eftir”. Sveinbjörg: „Já, ef einhver góður skipuleggjandi væri hérna, mundi það auðvelda mjög fyrir manni”. John: „Það mætti lika skipu- leggja utanlandsferðir. Nú koma margir erlendir tónlistarmenn hingað til lands, en maður fréttir litið af innlendum tónlistarmönn- um i tónleikaferðum erlendis. — Annars vorum viðmjög heppin að fáhann Sigursvein Magnússon til þess að sjá um prógrammið — Nú er oft talaö um klassíska tónlist sem æðri tónlist, hvað finnst ykkur um þaö? Hvltur hrafn? Sveinbjörg: „Ég er alveg sam- mála”. En mér finnst mörg önnur tónlist góð lika”. John: „Ég get tekið undir þetta, en þaö er til tvenns konar tónlist, sama hvort um er að ræða klassik eða aðra tegund tónlistar: Annað hvort er hún góð . eða slæm”. Sigrún: „Þess vegna er erfitt að festasig i einhverri ákveðinni tegund tónlistar. Þar getur t.d. verðið alveg dýrölegt að setjast niður og hlusta á góðan djass”. John: „Eg hlusta mest á svo- kallaða klassiska tónlist, þ.e.a.s. bæði nútima tónlist og eldri tón- list”. Sveinbjörg: „Það er svo mikið spunnið i klassiska tónlist. Það er ekki nóg að hafa hana á bakvið sem dinnertónlist, það þarf virki- lega að einbeita sér að þvi að hlusta. En það þarf að kenna fólki að hlusta”. John: „Já, það eru allir orðnir svo stressaðir i dag að enginn gefur sér tima til að set jast niður og hlusta á góða tónlist”. að vera sá miðill sem kenndi fólki að hlusta á góða tónlist”. Sigrún: „Já, með þvi að gera dagskrána aðgengilegri, kynna verkin og tónskáldin.” Sveinbjörg: „1 Englandi var það talinn alveg sjálfsagður hlutur að kenna tónlist i almenn- um skólum”. Sigrún: „En hvernig var þá að- haldið þegar krakkarnir fengu ókeypis kennslu?”. Sveinbjörg: „Ég held að krakkar hugsi ekki um peninga og þess vegna skipti þaö engu máli”. — Hvernig finnst ykkur aö blanda saman mismunandi teg- und tónlistar? T.a.m. djass og klassik? John:,,Þessarnýjungar i popp- tónlist i dag finnst mér vera ein- faldaðar Utgáfur á þeirri samtimatónlist sem var i kring- um 1960. Mér finnst ekki fara saman að blanda klassik og djass”. Sigrún: „En það kom nú alveg nýtt sjónarhorn þegar strákarnir I Þursunum fóru að spila islensku þjóðlögin og sungu þau sem þjóð- lög. En þjóðlögin okkar eru nú svo sérstök”. Operu — hvað? — En segiði mér nú, er ekki erfið ákvörðun að ætla sér að ger- ast óperusöngvari? spyr ég nú ósköp sakleysislega. A svip þre- - myndir: Jim Smart En mér finnst ekki lengur gaman að syngja i kór, þvi eftir þvi sem ég læri meira verð ég alltaf að passa mig betur og betur á þvi að láta röddina ekki skerast útúr kórnum”. Sveinbjörg: „En það er mik- ill skellur að hætta að læra og þurfa að fara að vinna fyrir sér”. Sigrún: „En sem betur fer er maður alltaf að læra eitthvað nýtt”. John: „Maður þarf að vera mikill baráttumaður til að endast eitthvað i þessu”. Sigrún: „Annars held ég að það sé öðru visi þegar hjón eru bæði i tónlist. Það getur verið bæði gott og slæmt.” Sveinbjörg: „Æi, ég veit það ekki, þegar við erum að halda tónleika saman þá vill þetta kannski bitna á börnunum”. Það getur oft verið ansi erfitt.” — Eitthvað svona i restina....? Sigrún: „Ekki nema að mér finnst þetta göður liður i sam- starfinu að syngja saman”. — Og John og Sveinbjörg kinka kolli og jánka. Stuttu siðar kveð ég og svif á braut á vængjum söngsins.... tralalæ....

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.