Helgarpósturinn - 06.02.1981, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 06.02.1981, Blaðsíða 24
® Noröurlandaráösþing hefst i Kaupmannahöfn á næstunni og að vanda fer þangað friður flokkur frá Alþingi Islendinga — þ.e.a.s. sex þingmenn auk 3-4 ráðherra ef að likum lætur. Á göngum þings- ins heyrum við að það hafi vakið athygli, að alþýðubandalags- menn leggja mikla áherslu á að i þetta skiptið verði einnig sendir allir varamenn aðalmannanna eöa sex þingmenn til viðbótar. Þegar betur hefur verið að gáð kemur i ljós að varamaður Stefáns Jónssonar aðalfulltrúa þeirra Allaballa er Guörún Helgadóttirþá hafa menn óhjá- kvæmilega tengt það Gervasoni- málinu með einum eða öðrum hætti og þóst sjá fram á að hún vilji taka upp mál hans á þinginu. Ýmsum þykir kyndugt að Al- þýðubandalagið sem i orði hefur viljað berjast fyrir aðhaldi i fjár- málum rikisins, skuli leggja slika áherslu á að kostuð verði för sex þingmanna til viðbótar i veislu- höldin i Kaupmannahöfn, og al- mennt er talið innan þingsins að bæði sjálfstæðismenn og kratar muni standa gegn þvi að svona verði staðið aö málum.... ®Annars kemur Guðrún Helga- dóttir viðar við sögu. Fyrr i vik- unni komu málefni Listahátiðar fyrir i borgarráði þvi að nú er að þvi komið að borgin taki við odd- vitasætinu i framkvæmdastjórn Listahátiðar af rikinu, sem átti formanninn á siðustu Listahátið. Iborgarráði kom fram tillaga um Guðrúnu Helgadóttur sem full- trúa borgarinnar i framkvæmda- stjórnina og hefði hún þá sjálf- krafa orðið formaður fram- kvæmdastjórnarinnar. Sjáif- stæðismennirnir i minnihlutanum i borgarráði fengu það hins vegar i gegn að ákveðið var að iáta málið koma til kasta borgar- stjórnar i gærkvöldi. Hefur i þessu sambandi verið bent á, að næsta listahátið árið 1982 ber upp á um sama leyti og borgar- stjórnarkosningarnar i Reykja- vik fara fram og Guðrún Helga- dóttir hefði þar al leiðandi vegna stöðu sinnar I framkvæmdastjórn Listahátiðar verið mikið i sviðs- ljósinuog fengið góða auglýsingu. Þykjastmenn sjá að sjálfstæðis- menn hafi með þessu viljað láta á það reyna hvort fulltrúar hinna meirihlutaflokkanna og þá kannski einkanlega Sjöfn Sigur- björnsdóttir, séu tilbúnir til að færa Guðrúnu þetta forskot á silfurbakka i miðjum kosninga- slagnum. Sjöfn hefði ekki þurft nema að sitja hjá til að fella Guðrún á jöfnum atkvæðum. En þvi miður — við vitum ekki úr- slitin þvi að borgarstjórnar- fundur stóð enn þegar blaðið fór i prentun... ® Innan úr borgarkerfinu heyrum við lika að svonefnt fulltrúaráð Listahátiðar þar sem aðild eiga hin ýmsu samtök listamanna auk rikis og borgar hafi komið saman til fundar i vikunni. Þar voru kjörnir þrir fulltrúar úr röðum listamanna i framkvæmdastjórn- ina. Enginn þeirra þriggja full- trúa sem sátu i siðustu fram- kvæmdastjórn þeir Atli Heimir Thor Vilhjálmsson og Sveinn Einarson-gáfu kost á sér. Varð- andi hinn siðastnefnda er þess að geta að það hefur verið hefð að i þau skipti sem borgin veitir lista- hátið forustu, þá sitji leikhús- stjóri Leikfélags Reykjavikur i framkvæmdanefnd en Þjóðleik- hússtjóri I þau skipti sem rikið á formanninn, svo að hingað til hafa þauskipst á um sætið Vigdis Finnbogadóttirog Sveinn Einars- son.A fulltrúaráðsfundinum kom lika fram tillaga um Þorstein Gunnarsson, leihússtjóra i Iðnó i framkvæmdastjórnina og auk þess um þau Ann Sandelin frá Norræna husinu, Njörð P. Njarö- vik, Rögnvald Sigurjónson, Niels Hafstein auk Hrafns Gunn- laugssonar, sem ekki gaf kost á sér. Svo fór að Ann Sandelin fékk 13atkv.en þeir Njörður og Rögn- valdur 12 og voru þau þrjú kjörin, Föstudagur 6. febrúar 1981 -tl&lQdrpOSturinrL- Philco ersparneytin á vatn og orku. Hún tekur inn á sig bæði heitt og kalt vatn og sparar þannig tíma og rafmagn sem annarsfæri í upphitun vatnsins. Að auki þvær hún jafnvel erfiðustu þvotta með einstöku jafnaðargeði dag eftir dag, - skólaföt, vinnuföt, spariföt og hvers konar þvott, jafnt grófan sem fínan. Philco - ein af fjölskyldunni heimilistæki hf HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655 Ein í þessari fjölskyldu er Við eigum auðvitað við Philco, - vegna þess að Philco þvottavélarnar hafa unnið sér þýðingar- mikinn sess í fleiri þúsund íslenskum fjölskyld- um. Þess vegna er Philco talin til fjölskyldunnar. tökubarn svo fulltrúi Leikfélagsins datt út úr framkvæmdastjórninni i þetta skiptið. Athygli vakti hins vegar við atkvæðagreiðsluna að i þetta sinn neyttu allir fjórir full- trúar rikis og borgar, þ.e. þau Guðrún Helgadóttir, Njörður P. Njarðvik, borgarstjóri og menntamálaráðherra atkvæðis réttar sins en venjan hefur verið að þessir fulltrúar sitji hjá við at- kvæðagreiðsluna og láti fulltrúa listamanna sjálfa kljást um sætin þrjú i framkvæmdastjórninni. Þykir þetta benda til þess að menntamálaráðherra Ingvar Gislason ætli að tilnefna mann úr sinum flokksröðum i fram- kvæmdastjóninaistaðNjarðar P. Njarðvik sem kom inn sem full- trúi rikisins i menntamálaráð- herratið Ragnars Arnalds og Njörður P. Njarðvik hafi með þessum hætti tryggt áframhald- andi veru sina i framkvæmda- stjórninni — þetta sinn sem full- trúi listamanna... #Á borgarráðsfundi i vikunni var samþykkt að veita Landssmiðj- unni leyfi til að reisa töluvert háhýsi inn við Sundin blá. Biða menn nú spenntir eftir þvi hvort Magnús óskarsson .embættis- maður hjá borginni ■ og fylgis- menn hans lir Sundasam- tökunum munu ekki aftur risa upp á afturfæturna og endurtaka leikinn frá þvii sumar, þegar SIS varð að hopa af hólmi af Sunda- ströndinni og inn á mitt fasta- landið. Gallinn er bara sá að Landsmiðjan ætlar að fást við skipaviðgerðir og smiðarog getur þvi ekki með góðu móti verið jafn langtfrá sjó og Sambandið. ®Nú liggja i loftinu talsverðar breytingar i toppstöðum i menntamálaráðuneytinu. Þar á bæ er altalað, að Indriöi H. Þorláksson deildarstjóri bygg- ingadeildar muni taka við stöðu Guðmundar Karls Jónssonarsem deildarstjóri launadeildar fjár- málaráðuney tisins, en Guð- mundur var nýverið skipaður for- stjóri Frihafnarinnar á Kefla- vikurflugvelli. Ekki er ljóst hver tekur við af Indriða... 9Þá eru menn famir að velta þvi fyrir sér hver muni taka við stöðu ráðuneytisstjóra menntamála- ráðuneytisins, en Birgir Thorlaciuser nú farinn að nálgast þann aldur, aö hann láti af em- bætti. Helst er rætt um, aö arftaki hans verði Arni Gunnars- son sem nú er deildarstjóri alþjóða- og háskóladeildar. Aðrir benda á, að sé

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.