Helgarpósturinn - 15.04.1981, Qupperneq 8
AAiðvikudagur 15. apríl 1981
Jielgarpásturinn__
L-helgar—
pásturinrL.
Blað um'þjóðmál/ listir og
menningarmál
Utgefandi: Vitaðsgjaf: hf.
Framkvæmdastjóri: Bjarni P.
Magnússon
Ritstjórar: Árni Þórarinsson,
Björn Vignir Sigurpálsson.
Blaðamenn: Guðjón Arn-
grímsson, Guðlaugur Berg-
mundsson, Guðmundur Árni
Stef ánsson og Þorgrimur
. Gestsson.
utlit: Kristinn G. Harðarson.
Ljósmyndir: Jim Smart.
Auglýsinga- og sölustjóri:
Höskuldur Dungal.
Gjaldkeri: Halldóra Jóns-
dóttir.
Dreifingarstjóri: Sigurður
Steinarsson.
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Síðumúla 11, Reykjavik.
Simi 81866. Afgreiðsla að
Hverfisgötu 8—10. Símar:
81866, 81741, 14900 og 14906.
Prentun: Blaðaprent hf.
Er nokkuö
hinum
megin?
„Svo brýt ég og sjálfur bátinn
minn
og berst inn I gljúfra veginn.
Við förum þar ioksins allir inn.
En er nokkuð hinum megin?”
Þannig spyr Einar Kvaran i
einu ljóða sinna. Sennilega hefur
heldur engin hugsandi mannvera
ekki einhvern tima brotið heilann
um gátuna miklu — hvað tekur
við að loknu þessu lífi? Af ein-
hverjum ástæðum er þó islend-
ingum þessi spurning hugstæðari
en flestum öðrum, og þeir fara
ekki alltaf troðnar slóðir I leit af
svörum við henni.
Langflestir islendingar virðast
einnig hafa komist að þeirri
niðurstöðu að vafasamt sé að úti-
loka framhaldsiifið. t viðamikilli
könnun sem fram fór fyrir fáein-
um árum á trúarviðhorfum is-
lendinga sýndi það sig að aðeins
um 2% þeirra sem spuröir voru
töldu líf eftir þetta lif með öllu
óhugsandi en um tveir þriðju
þeirra sem spurðir voru gerðu
beinllnis ráð fyrir öðru lifi sér til
handa. Og vel að merkja — þetta
gerist á veldistima efnishyggju
visindanna, þegar býsna erfitt á
að vera að samrýma likan hugs-
unarhátt að þeirri heimsmynd
sem raunvisindin hafa verið að
draga upp fyrir okkur á liðnum
árum.
Aftur á móti er minna vitað um
það hvers konar hugmyndir fólk
hér gerir sér um þetta Hf sem
taka muni við þegar jarðvist hér
er lokið. Eru þessar hugmyndir i
anda hinnar kristnu kenningar,
sem afneitar tvihyggjunni og
segir likama og sál eitt, er muni
frelsast Isameiningu á efsta degi.
Eða standa þær nær lýsingum
t.a.m. spiritista, jafnvel guð-
spekisinna eða nýalsinna á öðrum
og æðri tilverustigum, sem sálin
leiti á handan grafar? t Helgar-
póstinum í dag eru þessar óliku
kenningar eða hugmyndir reif-
aðar litillega og aö þeim lestri
loknum ætti hver að reyna að
svara fyrir sig, enda e.t.v. við
hæfi nú þegar upprisuhátið
Jesú frá Nasaret er framundan.
Handa hinum sem eru þá enn á
báðum áttum, mætti e.t.v. visa á
heilræði prófessors Sigurðar
Nordal sem hann setti fram i
frægum hugleiðingum um lifið og
dauðann, þar sem hann réð
mönnum fremur að gera ráð fyrir
lifi að lokna þessu lifi og breyta
þannig sem þeir væru að búa sig
undir þetta annað lif. Hann sagði:
,,Úr því hliðsjónin af undirbún-
ingi annars Hfs reynist öruggasti
mælikvarðinn á þau gæði, sem
veita okkur mestan velfarnað
hérna megin grafar, bendir það
sterklega til að þetta annað lif sé
veruleiki. Það virðist fara
nákvæmlega saman, að takir þú
þá stefnu að reyna að gera þig
sem best við þvi búinn að flytja
héðan inn i aðra tilveru, eftir þvi
sem einlægasta hugsun þin vísar
þér til, — þá verður þú um leið
margfalt hæfari til þess að njóta
alls, sem þú vilt nýta, af
unaösemdum þessa heims, mæta
öllu andstreymi án þess að bugast
eða flýja og breyta þvi I dýrmætt
uppeldi, sem þú oft og einatt eftir
á sérð, að þú vildir ekki hafa fariö
á mis við”.
Eöa með öðrum orðum — allur
er varinn góöur, þó að gátunni
miklu sé eftir sem áður ósvarað.
Gleðilega páska.
Bubbi vorbodi
Þetta er skrifað á 5. sunnudegi i
föstu og ætti þvi að vera farið að
saxast á veturinn, en litið fer nú
fyrir vorinu blessuðu hér vestra
sem biður ólaufgað i kvistum, svo
maöur noti orð skáldsins. En
vorið býr lika ólaufgað i brjóstum
mannanna, það finnst á, þrátt
fyrir allt. Fyrsti farfuglinn sem
kemur hingað að Núpi i vor
veröur liklega Bubbi Morthens og
vonandi kemur hann með vorið að
sunnan undir þöndum vængjum
flugsveitar Sverris Þórodds-
sonar, þvi ekki dugir Bubba ein
flugvél undir náöarmeðulin.
Þetta minnir eiginlega á farteski
Billý Grahams hér um árið,
þegar fólk var látið iðrast synda
sinna skv. nýjustu tækni i Nes-
kirkju: Confiteor Deo
omnipótenti et vobis, fratres,
quia peccavi nimis cogitatióne,
verbo, ópere et omissióne fyrir
framan vfdeóið.
En Bubbi er timamótamaöur
hann hefur gengiö á hólm við goð-
sögnina um Ólaf sjómann og
„draum hins djarfa manns”. Sig-
urður sjómaður dansar ekki
lengur við dömurnar og er heldur
ekki alltaf upplagður úti að
skemmta sér. Bubbi er likast til
búinn að senda Sigga á Reykja-
lund eða Hátún 8 fyrir fullt og
fast, þvi nú er Siggi lamaður
hjólastólnum í. Hann varð undir
trollhlera þá tóg hann vildi burt-
skera, og þvi fór sem fór. Og geri
aðrir betur en Bubbi, eða verr.
Hefur nokkur gengið eins rösk-
lega fram i að fæla menn burt frá
sjósókn og sjómennsku, hefur at-
vinnulifið ekki einmitt þurft á
skáldum að halda á borð við
Núma Þorbergsson, Kristján frá
Djúpalæk eða þá Oddgeir
Kristjánsson og Ólaf Ragnarsson.
Hefur nokkur starfskynning náð
með tærnar þar sem eru hælspor
þessarar manna að kynna sjó-
mannslifið og sjómannsstarfið:
„Sjómannslif, sjómannslif ástir
og ævintýr fögnuð i faðmi býr
brimhljóð og veöragnýr”, býður
nokkur starfsgrein betur, nema ef
til vill flugstjóradjobbið — i faðmi
flugfreyjunnar á gullnum vængj-
um morgunroðans?
Ég veit ekki nema LIÚ ætti að
taka til athugunar að kippa
Bubba Morthens og Utangarðs-
mönnum alveg úr umferð, ellegar
að gera þá að málaliðsmönnum
með öfugum formerkjum einsog
vaninn hefur verið með litil skáld
og stór, hvers boðskapur hefur
gengið i berhögg við forræöi
valdastéttarinnar á hverjum
tima, einsog það heitir á marx-
isku fræðimáli. Kristján
Ragnarsson á margt ólært af
Pétri Þrihrossi, það er ljóst, úr
þvi hann gerir engar ráðstafanir,
og Utangarðsmenn fara um
landið einsog logi yfir akur og
brjóta i þúsund mola hina við-
teknu mynd sjdmannsgoða-
sagnarinnar i hverju einasta
þorpi. Minna má nú gagn gera, og
vafalaust ekki langt að biða þess,
aö mannskapinn þurfi að
sjanghæja um borð einsog gerðist
á efstum dögum siðutogaranna.
En einsog ævinlega vill til hlaupa
aðrir og raunsærri menn undir
bagga með útgerðinni svo sem
einsog Ómar Ragnarsson, al-
þýðuskáldið góða:
Ég er sjóari og sigli um haf
sem sorg og gleði mér gaf.
Og ég kyssi konurnar meðan að
flýturmittfley.
Út um allan heim á ég helling
af þeim
og ég er og verða mun sjóari
þartil égdey.
Þarna er að visu minnst á sorg-
ina til að hafa eitthvert mótvægi
eða kontrast, þvi að lifið gerist nú
eitt sinn i tveimur skautum, en
það sem einatt riður baggamun-
inn i ljóðagerð hirðskálda LÍÚ er
kvennafansinn sem ævinlega
biður á bryggjunni reiðubúinn að
vefja hetjur hafsins örmum.
Stundum er hún þó ein, hin trygga
og trúfasta kona sbr. Sjómanna-
valsinn: En handan við kólguna
kaida, býr kona sem fagnar i nótt
o.s.frv., en miklu oftar er þetta
„indælis úrval af meyjum” og ,,út
um allan heim á ég helling af
þeim”, bókmenntarýnin mundi
liklega flokka þetta undir
absúrdisma, eða fáránleikastefnu
i ljóðagerö, slik veröur kvenhylli
þeirra manna sem leggja sjó-
mannsstarfið fyrir sig.
En almáttugur, ég sem ætlaði
að leggja út af vorinu I upphafi
pistils, og veit ekki betur en ég
hafi verið farinn að vitna i Snorra
Hjartarson og ranka svo við mér
kominn á kaf I hugleiðingar um
hina óhugnanlegu og órómantisku
böðla goðsagnarinnar. Utan-
garðsmenn, ásamt foringja
þeirra Bubba Morthens sem lik-
lega er verst skáld sem uppi hefur
verið á tslandi i samanlagðri
heiðni og kristni. En þrátt fyrir
hina algeru gengisfellingu ljóðs-
ins i barka slortrúbadorsins
Bubba M. er eitthvað það i sann-
færingu og krafti boðskaparins
sem fær menn til að missa trúna á
goðsögnina miklu. Liklega er
Bubbi og Co trúverðugri i ham
sinum en t.a.m. ólafur Ragnars-
son eða Númi Þorbergsson með
allri virðingu fyrir báðum.
Núpi, 5. apríl 1981
HÁKARL
Stælur á stjórnarheimilinu
Ólafur tekur stefnu
flokksins alvarlega
Vindasamt er á stjórnarheimil-
inu um þessar mundir. Upplýs-
ingarnar um leynisamning Gunn-
ars & Co. hafa komiö Framsókn-
armönnum illa og á nýafstöönum
miðstjórnarfundi lágu foryztu-
menn flokksins undir miklu á-
mæli frá fundarmönnum, sem
þótti sem allaballar væru nú bún-
ir að fá úrslitaaðstöðu i islenzkum
stjórnmálum. t þvi ljósi verður að
skoða samþykktina um flugstöðv-
arbygginguna og aðskilnað her-
lifs og þjóölifs.
En þegar ólafur flutti sam-
þykkt miðstjórnar sinnar inn á
rikisstjórnarfund böröu ráðherr-
ar allaballa i boröið. Þótt þeir
lýstu sig persónulega hlynnta
flugstöðvarbyggingunni, sögðust
þeir enga skoöanabræður eiga
innan þingflokksins og yrðu þeir
þvi meö tilvisun til stjórnarsátt-
málans að segja nei. Gunnar og
flokksbrot hans studdu allaballa
og sögðu að sérstaklega hefði ver-
ið samið um aðgerðarleysi i mál-
inu við stjornarmyndunina.
Þaö þykknaði i ólafi á rikis-
stjórnarfundi og kvaöst hann
staðráðinn i þvi aö hafa sitt fram
og láta ekki 11 þingmenn alla-
balla ráða stefnunni. Svavar
sagði þá að stjórnarslit lægju við.
Pukunum skemmt
Þegar að atkvæðagreiðslunni i
efri deild kom, hafði allaböllum
tekizt að berja alla þingmenn
Framsóknarmanna nema ólaf til
hlýðni. Tómas Arnason hafði gef-
ið út kotrosknar yfirlýsingar, en
bakkaði nú út eins og venjulega i
viðskiptum sinum við Alþýðu-
bandalagsmenn. Var i skyndi
sóttur óþekktur varamaður til
þess að taka sæti Tómasar á
þingi, svo aö hinn siðarnefndi
þyrfti ekki opinberlega að éta
stóryrði ofan I sig.
Fyrirvari Framsóknarþing-
mannanna var lika tóm vitleysa.
Byggingin er svo til tilbúin til út-
boös og strax og sú grundvallará-
kvörðun að byggja nýja flugstöð
ofan við Keflavíkurkaupstað er
tekin, er hægt að hefja jarövegs-
skipti undir akbrautir og flug-
vélaverkstæði, sem gerð verða á
kostnaö Bandarikjamanna.
Þingmenn stjórnarandstöðunn-
ar glottu eins og púkar, þegar
þeim tókst að sanna alþjóð að
enginn tæki stefnu Framsóknar-
flokksins alvarlega nema ólafur,
— ekki einu sinni þingmenn
flokksins.
Fleiri átakamál
En það eru fleiri átakamál milli
Framsóknarmanna og allaballa.
Steingrimur vill gera viðbót við
efnahagsráðstafanir vetrarins og
segir miklar verðhækkanir vera
framundan eöa „i pipunum” eins
og það mun orðað á Ströndum.
Allaballar segja þvert nei og
beita neitundarvaldinu sem þeir
hafa skv. leynisamningnum.
Gunnar hefur engan áhuga á
málinu.
Helguvikurmálið á eftir að
koma upp á rikisstjórnarfundum.
Útlit er fyrir aö Alþingi samþykki
þingsály ktunartillögu jákvæða
byggingu nýrra oliugeyma i
Helguvik og Ólafur mun lita svo
á, að þar með þurfi hann ekki að
spyrja meðráðherra sina frekar
um framgang málsins. Allaballar
visa til leynisamningsins og hóta
enn stjórnarslitum. Gunnar styð-
ur þá.
Loks eru átök um Jan-Mayen
málið framundan með stjórnar-
flokkunum. ólafur og embættis-
menn hans telja sig nú geta náð -
samningum við Norðmenn, sem
endanlega kveði á um skiptingu
hafsvæðis og auðlinda milli Jan-
Mayen og Islands. Telur ólafur
sig mundu þar með ná fram mikl-
um sigri sem tryggði honum og
stefnu hans veröugan sess i ts-
landssögunni. Allaballar hafa
hins vegar hafnað öllum sam-
komulagshugmyndum Ólafs og
mun málið endanlega strandað i
rikisstjórninni og ekki ná fram að
ganga nema Ólafur semji viö
stjórnarandstöðuþingmenn um
framgang þess, en ekkert er vitað
um afstöðu þeirra.
Virkjunarmálin
Iönaðarráðherra hefur reynst
minnstur afkastamaður i rikis-
stjórn siðan Magnús Torfi sat i
ráðherrastóli. 1 óþolinmæði yfir
ákvörðunarleysi i virkjunarmál-
um hótuöu nokkrir af þingmönn-
um Eramsóknarmanna þvi i vetr-
arbyrjun að ganga i lið með
stjórnarandstöðunni og sam-
þykkja nýja löggjöf um virkjun-
armál. Iðnaöarráðherra bað þá
um frest til marzloka og fékk
hann. Siðan fór hann fram á
framhaldsfrest til páska og var sá
frestur veittur af mikilli tregðu.
Frumvarp ráðherrans er nú
loks tilbúið, en virðist lika endan-
lega strandað i rikisstjórn og
þingflokki allaballa.
t stuttu máli gengur frumvarp-
iðút á það, aö veittar eru heimild-
ir til virkjunar Jökulsár i Fljóts-
dals 1. og 2. áfanga, til virkjunar
Blöndu og til ýmissa veitu- og
stifluframkvæmda á Þjórsár-
svæöinu, sem auka framleiðslu-
getu þeirra virkjana, sem þar eru
og leggja grundvöll að bygg-
ingu fleiri orkuvera þar á næsta
áratug. Varðandi virkjanaröðina,
hyggst ráðherra byrja á virkjun
Jökulsár i Fljótsdal og er hann i
þvi sambandi reiðubúinn að
leggja fram frumvarp um bygg-
ingu iðjuvers á Austfjörðum, sem
nýti hluta af raforkuframleiðslu
Fljótdalsvirk junar.
t rikisstjórninni segjast Ragnar
og Pálmi ekki geta staðið að þvi,
að taka Fljótdalsvirkjun fram
yfir Blönduvirkjun. Njóta sjón-
armið þeirra stuönings þeirra Ól-
afs og Gunnars.
t þingflokki allaballa segjast
nokkrir þingmenn alfarið vera á
móti orkufrekum iðnaði á Austur-
landi, þar sem slikt muni óhjá-
kvæmilega hafa I sér samstarf
við erlenda auðhringi.
Vilja reka að sér slyðru-
orðið
Framsóknarþingmenn hafa nú
ákveðiö að reka af sér slyðruorðið
og eru reiðubúnir að láta stjórn-
ina fjúka, ef allaballar standi við
hótanir sinar. Mun nú nær full-
gert frumvarpsgerð, sem þeir á-
samt stjórnarandstöðuþingmönn-
um geta sameinast um og mun
þetta koma fram sem breytingar-
tillögur við þegar framlögð frum-
vörp Alþýðu- og Sjálfstæðis-
flokksmanna.
Hjörleifur verður þvi að gera
úrslitatilraun til að afla virkjun-
arhugmyndum sinum fylgis um
páskadagana. Hákarl.