Helgarpósturinn - 15.04.1981, Page 13
12
13
Vinnustofa Valtýs Péturssonar
likist tæplega vinnustofu málara,
eins og flestir imynda sér lfklega
aö þær séu, þar sem allt er á rúi
og stúi. Aö visu eru málverk upp
viö alla veggi og á, hjá Valtý, en
aö ööru ieyti iikist vinnustofan
hans miklu fremur stássstofu,
með gljáfægt parketið þægilegan
sófa og stóla og hljómflutnings-
tæki af fullkomnustu gerö. En
skýringin var ekki langt undan.
Hann haföi nefnilega nýlega tekiö
sig til og hent öllu lauslegu, sem
hann haföi safnað aö sér i þau tæp
þrjátiu ár, sem hann hefur haft
samastaö þarna.fyrstsem ibúö og
vinnustofa, en nú aðeins til vinnu.
,,Ég henti meira aö segja gömlu
kaffibollunum", sagöi hann. Viö
fengum okkur þvi nesara úr
splunkunýju leirtaui og Valtýr
var fyrst spuröur aö þvi hvernær
hann hafi fyrst farið aö fást viö
málaralist.
„Siöan ég man eftir mér, en ég
fór ekki að mála i alvöru fyrr en
upp úr 1940. Hitt er annað mál, aö
ég þykist hafa reynt eins og ég gat
að verða ekki málari.”
— Hvað olli þvi að þú fórst út i
málverkið?
,,Ég veit það ekki alminlega, en
ég held, að ég hafi ákveðiö að
einbeita mér aö málverkinu fyrir
framan mynd eftir Van Gogh, i
New York. Hins vegar, þó aö ég
sé kominn á sjötugs aldur, liður
mér vel eftir að vera búinn að
mála i tvær til þrjár klukkustund-
ir, hvort sem resúltatið er gott
eða vont. Þetta er eins konar út-
rás.”
— Þú segist hafa reynt eins og
þú gast að verða ekki málari.
Hvað meinarðu með þvi?
,,Ég reyndi ýmislegt annað,
áður en ég féll, ef ég get komist
svo að orði, en ég iðrast ekki þess
falls.
Ég var þvi mjög andvigur, en
það sótti alltaf á mig einhver
árátta, sem steypti mér á stokk-
inn fyrir rest.”
— Hvers vegna?
,,Þaö skaltu ekki spyrja mig
um, þvi ég hef ekki hugmynd um
það. Það er kannski réttara að
segja árátta til að skapa eitthvað,
þvi þegar ég var unglingur, skrif-
aði ég mikiö af smásögum, sem
hafa ekki birst, til allrar guðs
lukku.
Þaö var alltaf i þá átt, sem
krókurinn beygöist.”
— Var kannski einhvern tima
togstreita milli rithöfundarins og
máiarans i þér?
„Ekki segi ég það nú alveg.
Mér finnst ég hafa meira aö segja
i málverkinu en meö penna. Ég
hefði sjálfsagt oröið afar slæmur
rithöfundur, jafnvel verri heldur
en málari.”
— Hvar lærðirðu málaralist-
ina?
„Ég byrjaöi hér heima hjá
Birni Björnssyni teiknikennara,
sem var fðöurbróöir Björns Th.
Björnssonar. Siðan lá leiöin mjög
viöa, t.d. til Ameriku á striðsár-
unum, og siðan til Italiu og Frans.
Ég er búinn að vera mikið á ferð
og flugi, út um hvippinn og
hvappinn.”
— Hvaö var að gerast hér i
listalifinu um 1940, þegar þú
ákvaðst aðsnúa þér aö málara-
listinni?
„Það var ýmislegt aö ske. Það
voru stórar samsýningar i græn-
metisskálanum við Túngötu.
Kjarval kynntist ég mjög
snemma, sem smástrákur. Ég
seldi honum Visi og varð fljótlega
heimagangur hjá honum.
Það var lengi til mynd eftir
mig, sem ég gerði sex ára gamall,
eftir ferðalag til Grimseyjar. Hún
var strik og punktar, natúralisk
abstraksjón af fuglabjargi.”
— Var mikið fjör á þessum
tima?
„Þó nokkuð, þegar maöur tekur
með i reikninginn, að þetta var ný
listgrein hér, þvi fyrsta mynd-
listarsýningin var haldin i
Reykjavik árið 1903 eða 1905. En
það var ekki mikiö miðað við það,
sem siðar varð. Þá var ekki nokk-
ur maður, sem haföi farið til
náms i list i tuttugu ár, frá þvi að
„Þar stóöu nokkrir góöborgarar upp viö vegg, og „Einn kritíker dús viö minar myndir og þaö er Valtýr Pétursson.”
þegar ég fór inn, heyröi ég aö þeir sögöu: Þar fer einn
Moggakom minn.”
Miðvikudagur 15. apríl 1981 irinn f-fpl^rpnc^ti trinn Miðvikudagur 15. apríl 1981
leyti, en að öðru leyti ekki. Það er
min skoðun, að fáir geti skrifaö
um málaralist, nema þeir máli
sjálfir. Þó menn séu vel lesnir i
listasögu, er það annað en að sjá
og finna fyrir myndlist.
Ég er búinn að skrifa ,um mynd-
list i hartnær þrjátiu ár og hef lent
i mörgu, sem er auöskilið i svona
litlu og þröngu þjóðfélagi, og oft
hafa sjö dagarnir ekki veriö sælir.
Sjálfsagt hefur manni oft á tiöum
skjátlast eitthvað, en hafi
eitthvert smágagn veriö af þvi,
þá er Valtýr Pétursson einnig dús
viö þær skriftir.”
— sjö dagarnir ekki sælir!
Segöu meira frá þvi.
„Maöur hefur lent i orra-
hriðum, sérstaklega fyrr á árum.
Þá var þetta eilift skriftastrið frá
upphafi til enda. Menn risu upp og
skrifuðu ef kunningjar áttu i hlut.
Þetta eru ekkert annað en vaxta-
verkir i litlu þjóðfélagi. Það er
ekkert að standa i þessu i dag. Þá
skiptust menn i tvo hópa, eins og i
fornsögunum, en það vantaði
bara atgeirinn Gunnars.”
— Var ekkert erfitt að skrifa
um kollegana, þvi nú má gera ráð
fyrir að þú hafir þekkt þá alla?
„Afskaplega erfitt, og ég veit
eiginlega ekki hvernig maður fór
að þvi. Ég hef heldur aldrei fariö
dult meö minar skoðanir, og það
hefur ýmislegt komið uppá. Þar
að auki tók ég mikinn þátt i
félagsstörfum islenskra
myndlistarmanna i þrjátiu ár, en
er til allrar guðs lukku kominn út
úr þvi. Þaö var kómiskt i gamla
daga, þegar ég var aö leigja
mönnum Listamannaskálann
fyrir sýningar. Ég skrifaöi
skammir um sýninguna, en kom
siðan að rukka húsaleiguna, en
einhvern veginn slampaðist það.
Það þurfti góðar taugar og mik-
inn húmör.
Meiri iiégómí
— Urðu aldrei vinslit vegna
þessara skrifa þinna?
ur. Þá var ég skammaður fyrir
framúrstefnu, en nú fyrir Ihald-
semi. En aldrei linnir skömmun-
um, til guðs lukku. Þaö veröur
hver doggur að hafa sinn dag.”
— Má skilja það af oröum þin-
um, að þér finnist of mikið um
myndlistarsýningar i dag?
„Já, þaö finnst mér. Mér finnst
mikiö af þessum sýningum, sem
boðiö er uppá i dag miklu óvand-
aðri. Margir viröast kallaðir, en
fáir útvaldir. Uppúr 1950—60 voru
kannski 10—15 sýningar á ári, en
núna eru þær á annað hundrað, og
ekki hefur þjóðinni fjölgað þessi
lifandis ósköp, þrátt fyrir mikinn
dugnað.
Þá var málverkasýning meiri
viðbúröur en i dag, og i þessu
dæmi kemur fram þjóðfélags-
breyting, sem ég er ekki viss um
aö sé til hins betra. En það er einn
hlutur, sem hefur mikið breyst.
Það var viðburöur ef maöur sá
erlenda listamenn sýna, en núna
er það daglegt brauð, og sérstak-
lega á Norræna húsinu þakkir
skildar fyrir það. Þaö hefur haft
gifurleg áhrif á framvinduna i
þessum efnum.”
— En hinn almenni áhugi
tslendinga á myndlist, hvernig
skýrir þú hann?
„Ég veit ekki hvernig á að
skýra það, en hann er sérstakur.
Hér er það almenningur allur,
sem eignast myndir og tekur þátt
i framvindu myndlistarinnar.
Þetta er hvergi eins I heiminum.
Ég er sjaldan eins montinn og
þegar ég segi útlendingum að þaö
sé tvennt, sem hann finni á
islenskum heimilum. Málverk,
hvort sem það er gott eöa vont, og
bók.
Ég held að það sé eitt aöals-
merki þessarar litlu þjóðar, hvað
hún hefur mikinn áhuga á
myndlist.” Ef til vill er það arf-
leifö frá fyrri timum, sem okkur
er ekki alveg ljós. tslendinga-
sögurnar voru mjög myndrænar.
út i aöra sálma en Þingvelli og
þar fram eftir götunum. Hún var
tekin sem árás og bylting, sem
hún og var. Við vorum á kafi i þvi,
sem var að gerast i Ameriku og
Evrópu. Yngra fólkið var allt
nýkomiö frá námi, eöa lengri dvöl
erlendis. Eftir fjórar sýningar
tvistraðist hópurinn, og nokkrir
fóru erlendis. Og þá var fiskaö á
öörum slóðum en á striðsárunum,
i Evrópu.
Núna slðustu árin hefur partur
af þessum hóp tekið sig saman
aftur sem Septem, en sumir af
stofnendunum eru látnir, Snorri
Arinbjarnar, Gunnlaugur
Scheving, Nina Tryggvadóttir. Ef
það verður sýning i haust, verður
þaö tiunda sýningin á þeim
basis.”
— Hvað var aö gerast i
Ameriku á þeim árum, er þú
varst þar?
„Það var nú ýmislegt aö
gerast. Ég var heppinn aö komast
i samband við ágætis listafólk og
komst inn i hringiöuna i gegnum
þaö. New York var á þessum tima
full af flóttalistamönnum frá
Evrópu, Frökkum, Þjóðverjum
og listamönnum frá Miö-Evrópu.
Til þess að gefa dæmi um hve
þetta var furöulegt, þá kom ég
einu sinni I galleri, þar sem voru
hundrað teikningar eftir Paul
Klee, og ég man ekki hvort nokkr-
ar teikninganna væru dýrari en
eitt hundrað dalir. Núna væri ekki
hægt að fá litla teikningu eftir
Klee fyrir ibúöarverð á tslandi,
eða jafnvel einbýlishús.”
— Var mikil gerjun þarna
vestra á þessum árum?
.Gerjunin byrjar ekki fyrr en
eftir striö. Þá var eins og vatni
væri hellt yfir plöntuna. Það
bendir til þess, aö fólkið hafi mik-
iö til verið undir jöröinni á meðan
á striöinu stóö.
Þegar ég var i Paris 1947—48,
var mesta sjokkið gengið hjá og
þá rak hver stórsýningin aðra.
Maður fékk stóran dósis af þessu
öllu saman.”
— Hvaö varstu lengi i Paris?
„Ég var þar tvö ár i einu, en
viðloöandi i nokkur ár á eftir, allt-
af nokkra mánuöi á ári.
Þar voru margir menn og erfitt
að gera upp á milli þeirra.
Geómetriska kúnstin var hátt
skrifuð á þessum árum. Picasso
var i fullu fjöri, Matisse og Léger.
Þessir menn voru sýnandi og
þetta voru þeirra bestu ár.
Paris var á þessum árum
einasta heimssentrið I myndlist.
Svo færðist það til New York, og
Paris er ekki búin aö ná sér enn,
þó að hún hafi fengiö Pomidou-
listasafnið. Það er ekki sami
vigorinn og áður. Maöur gat setið
þrjátiu klukkustundir yfir bjór-
glasi og diskúterað kúnst af
eldmóði.”
siórir hallar
— Voru margir Islendingar
þarna á þessum tima?
„A þessum árum voru þeir
margir, en það var nokkuð
breytilegt. tsland hafði afskap-
lega gott af þessari kynningu.
Eftir striöiö fór stór hópur af
m y n d 1 i s t a r n e m u m til
Noröurlanda, til Kaupmanna-
hafnar, en það var ekki eins
fjörugt. Aö visu komu góöir menn
úr þeim hóp, en ég held, aö Paris
haf i borið höfuð og herðar yfir allt
saman.
tslendingar sýndu mikið i
Paris. Hörður Agústsson, ég,
Gerður Helgadóttir og Nina
Tryggvadóttir héldum öll einka-
sýningar. Siöan sýndum viö
saman, fimm tslendingar, og eft-
ir það fengum við boö um aö sýna
á Salon de Mai, en þar voru
stórkallar, eins og Picasso. Við
vorum sko ekkert lágir i loftinu.”
— En þiö, þessir ungu lista-
menn, sem voruö i Paris á þess-
um árum, ætluðuð þið siöan aö
koma heim og bylta öllu?
„Ég held aö það hafi aldrei
hvarflað aö okkur. Nei, ég held,
að við höfum ekki haft neinar
fastar ideur um það. September
sýningin hafði sjokkerað það
mikið. En við höfum kannski ætl-
að að breyta veröldinni, eins og
oft vill verða.”
— A árunum 1950—60 varst þú i
fararbroddi þeirra sem böröust
hér fyrir framúrstefnulist...
„Það er mikiö til i þvi.”
—... Hvaö var framúrstefnulist
þess tima?
„Þaö var þaö, sem kallaö var
geómetrisk abstraksjón.”
— Hvers virði var hún þér þessi
framúrstefnulist?
„Hún hefur verið mér afar
mikils virði...”
Og nú sýnir Valtýr mér hvernig
áhrifa frá þessu tímabili gætir i
málverki, sem hann var aö leggja
siöustu hönd á, málverk, sem
leikmaöurinn myndi i fljótu
bragði alla vega telja eiga litið
skylt viö geómetriska abstrak-
sjón, heldur lita á sem venjulegt
stillubein. Og Valtýr heldur
áfram:
„... þó ég hafi snúið baki viö
þessari stefnu, þvi ég get ekki
hjakkaö i sama farinu alla tiö.
Geómetriska abstraksjónin
hafði mikil áhrif á aö koma röö á
hlutina. Ég sé mikil áhrif af þvi i
minum verkum, en það eru ekki
allir sammála. Listin væri einskis
viröi, ef ekki væri umræöa um
hana. Þaö er umræöan, sem gerir
hana að bitbeini i þvi samfélagi,
sem hún skýtur rótum. Ef allir
væru sammála, væri það eins og
hallelújakór, sem fengi á sig
þreytu timans, áður en langt um
liði.”
— Finnst þér kannski of litiö
um listumræðu hér á landi?
„Þaö er mikil umræöa hjá okk-
ur um list i augnablikinu. Þetta,
sem heitir nýlist, hefur rótaö upp
i fólkinu. Hún hefur sjálfsagt
hlutverk, sem ég kann ekki aö
meta eða skilja, en ef hún skipar
fólki i flokka, nær hún tilgangi
sinum.
Það er ótrúlegt, ef litiö er til
baka, hvað hefur valdiö hneyksl-
un, veriö talið óalandi og óferj-
andi, hlutir, sem taldir eru
sjálfsagöir i dag.
Ég var einn af þeim, sem mest
mæddi á meö framúrstefnulistina
uppúr 1950. Ég fékk mínar gusur
og mér fyndist ómögulegt, ef ekki
yrði rifist um minar myndir i dag,
sem er og gert. Ég held, að þaö sé
einn kritiker, sem er dús viö
myndir minar i dag, og þaö er
Valtýr Pétursson. Og ég er afar
ánægður með þaö.”
— Þannig að þú kannt vel við
þig i miðri orrahriöinni?
„Maður er búinn aö hafa þaö
mikiö á móti, eins og sjómennirn-
ir segja, að ég kann aldrei viö aö
hafa logn. En ég hef ekki yfir
neinu að kvarta, þvi þaö er margt
fólk, sem hefur gaman af minum
myndum.
Allur minn karrier sem málari
hefur veriö að kasta mér fyrir
björg, þvi ég hef aldrei verið
ánægöur meö þaö, sem ég hef
gert.”
Picasso
konservaiívur
— En ef viö snúm okkur aö
nýlistinni, er þaö ekki undarlegt,
að þú, sem áður fyrr varst i far-
arbroddi framúrstefnulista-
manna, kunnir ekki að meta
framúrstefnuna i dag?
„Það er algengur fyrirgangs-
máti. Fólk fær sjálfsagt útrás i
þessari nýlist, en mér er ómögu-
legt, að tengja hana viö myndlist.
Ég væri ósköp ánægöur ef þessir
ungu menn lýstu þvi yfir, aö þeir
væru að fremja ballett.
Að gera gott listaverk er að
gera ósköpin öll af vitleysum, sjá
þær og útrýma þeim, þvi ef það er
ekki vogun vinnur vogun tapar, er
maður fortabt.
Maður meö minnar kynslóðar
uppeldi, getur ekki bitiö á þessa
nýlist, og ég er ekkert hræddur
við aö segja það. Picasso málaði
aldrei abstrakt mynd. Þó var
hann framúrstefnumaöur. Þegar
ég var á minum sokkabandsár-
um, fannst manni Picasso
konservativur.”
— Helduröu aö þaö hafi
kannski verið sama afstaöa hjá
þeim, sem hneyksluöust á
September-sýningunni á sinum
tima?
„Þaö gæti vel verið, ég yröi
ekki hissa á þvi. Það er lika til
hópur manna, sem vill alltaf vera
framúrstefnufólk, hampar þvi,
sem þaö sér, en botnar ekki i. En
það er óheiöarlegt aö hampa þvi,
sem gefur þér ekkert. Þaö er jafn
heimskulegt aö snobba fyrir þvi,
sem maöur ekki skilur, og skrúfa
sig upp á móti þvi af einskærum
heimóttaskap.”
— Teluröu aö nýlistin veröi list
framtiöarinnar?
,,Ég er handviss um að hún
verði þaö ekki, þvi hún rann sitt
skeiö um 1920, þó hún hafi veriö
endurvakin á siöustu árum. Þaö
er ekki framtíðin. Þaö eru allt
aörir hlutir og þaö er ekki hægt aö
spá neinu um þaö.
Þaö getur enginn sagt hver
heimsmyndin veröur eftir 10—20
ár, og listin er hlutur, sem fylgir
heimsmyndinni stift eftir, eöa er
undanfari hennar. En það verður
alltaf til myndlistsem hefur sömu
eiginleika og gömlu meistararnir,
sem á sér engan tima og enga
aðra stoð en mannlegt eðli.
Þó að þessi myndlist, sem verið
er að bera á borð fyrir okkur i
dag, segi mér ekki neitt, og ég get
ómögulega tengt viö myndlist, þá
hefur hún ábyggilega sitt hlut-
verk og sina þýðingu. En hún er
ekkert endanlegt, og ekki, aö
minum dómi, nógu spennandi til
að geta staðist.”
— Ertu kannski aö gerast
ihaldssamari meö árunum?
„Það getur vel verið, en ég
mundi nú heldur segja, aö ég hafi
breyst I þá veru, að hafa meiri
áhuga á aö leita aö innri sann-
leika myndlistar, en hvaö þaö er,
get ég ekki tjáð I orðum.”
— Hvernig feröu að þvi aö
leita?
„Það er nú þaö. Þaö er eitthvaö
I málverki, sem talar til manns á
mjög mismunandi hátt, eftir þvi
hvernig litir og form eru notuð.
Eitthvað, sem er siungt, sigilt,
sannindi sem erfitt er að skýra,
eitthvað, sem maöur finnur, og
oftast skilur maður þaö ekki fyrr
en löngu eftirá. Það siast inn
mann hlutir, sem ekki liggja á
glámbekk.”
sælan 09
dagarnír sjö
— Þú sagðir áöan, aö þaö væri
aöeins einn gagnrýnandi, sem
væri dús við málverk þin, og að
þaö værir þú sjálfur. Hvernig fer
þaö saman aö vera gagnrýnandi
og málari?
„Þaö fer vel saman aö mörgu
vaiigr Pélursson f neigarpósisviðiaii
„Þá var ég skammaður fyrir framúrstefnu og nú fyrir ihaldsemi.”
„Það var einu sinni ungur
maður á ferðinni. Ég var ekki
alveg ánægður meö hans myndir
og hann ekki ánægöur meö min
skrif. Hann fór i faðm Bakkusar
eitt kvöld, og um nóttina kom
hnullungur inn um gluggann
minn og orðsending um að ég
skyldi ekki sjá sólina risa þann
dag.
Það var miklu meiri herkja i
hlutunum hér áöur fyrr, og ég
held, að islensk myndlist hafi haft
gott af þvi, hvort sem menn höfðu
rétt eða rangt fyrir sér. Þaö verk-
aði sem hemill á hlutina, og
örfandi á hinnbóginn”.
Ég held^það megi bera þetta
saman við pólitikina. Aöur var
meiri persónuleg herkja á milli
manna, en þetta er allt liöin tiö.”
— Af hverju?
„Ég veit það ekki. Þaö eru aö
mörgu leyti geröar minni kröfur
i dag. Fólk sýnir öll ósköpin af
myndlist og allir halda aö þeir séu
með það eina rétta. Þaö er miklu
meiri hégómi á ferðinni i dag. Svo
getur vel veriö, aö viö þessir ó-
róaseggir, séum farnir aö hafa
rólegra um okkur.”
— Hafa þá engir tekiö viö af
ykkur?
„Það þarf mikiö til aö standa I
þessu. Þettavar ansi harður leik-
Mynðir: Jim Sinarl
„Umnóttina kom hnullungur inn
um gluggann minn, og orösending
um að ég skvldi ekki sjá sólina
risa þann dag."
„Ég heföi sjálfsagt oröiö afar slæmur rithöfundur, jafnvel verri heldur
en mátari”.
Siguröur málari dó.
Svo um 1946 eöa 7 kom ég heim
frá Ameriku. Þá var stofnuö sú
fræga September-sýning, og
þar var brotið mikiö blaö og
þágekká ýmsu. Þá gat
maöur ekki gengiö um
götu, án þess aö á eftir
manni væru göluö vel
valin orö.”
— Eins og...?
„Ég held, aö viö höfum
veriö stimplaöir kommúnistar.
Uppúr 1952-3 var ég byrjaður
aö skrifa i Moggann. Ég var
eitt sinn staddur niöri I Aust-
urstræti, á leiö i Otvegs-
bankann. Þarstóöu nokkrir
góöborgarar upp viö vegg,
og þegar ég fór inn, heyröi
ég aö þeir sögöu: Þar fer
einn Moggakomminn.
Við vorum optimistar og
létum ekkert á okkur fá, þó
blési á móti.”
Mnyvallðsðlmar
— Hvaö var þaö, sem
hneyksiaöi svo á þessari Stepem-
bersýningu?
„Þaö var eingöngu þaö, aö
venjan var brotin. Það var fariö
„Maöur gat setiö þrjátiu
klukkustundir yfir bjórglasi og
diskúteraö kdnst af eldmóöi.”
„eeynm ýmisiegi aour en eg leir
ViDlal: GuOlauyur Bergmundsson