Helgarpósturinn - 05.06.1981, Síða 3
3
helgarpósfurinnFastuda9ur 5; ■II1.!!!
og Sjálfstæðisflokkur
höfðu meirihluta i borgarstjórn
ekki kannast við, að nein tengsl
væru á milli framlags Armanns-
fells og nefndrar lóðar. Lyktir
urðu þær, að Sjálfstæðisflokkur-
inn hélt milljóninni og Armanns-
fell lóðinni og á þeirri lóð standa i
dag fjöldi raðhúsa.
Alþýðubandalagið enga
húseign og þó..
„Alþyðubandalagið sem slikt á
enga fasteign,” sagði ölafur
Jónsson framkvæmdastjóri
bandalagsins i samtali. „Hins
vegar á Alþýðubandalagið hluta-
bréf i Miðgarði h/h, sem er eig-
andi Þjóðviljahússins i SiðumUl-
anum. Sömuleiðis á bandalagið
hlutafé i SamtUni h/f, sem á sin-
um tima var byggt upp i kringum
minningarstjóð SigfUsar Sigur-
hjartarsonar. SamtUn á hUseign-
ina, Grettisgata 3, en bandalagið
leigir siðan hUsnæðið af SamtUni
undir flokksstarfsemina”, sagði
Ólafur.
Minningarsjóður SigfUsar mun
hafa haft á sinni hendi hUseignina
við Tjarnargötu 20, en þegar fest
voru kaup á Grettisgötu 3, var
stofnað hlutafélag um þau við-
skipti. Hlutafjáreign Alþýðu-
bandalagsins I SamtUni er 2% og i
Miðgarði 42%. Sömuleiðis á Al-
þýðubandalagið hlut i prent-
smiðju Þjóðviljans.
Samkvæmt brunabótamati er
Grettisgatan metin á 2.202.793
nýkrónur (220 gamlar milljónir).
Beinn eignarhluti bandalagsins
er þvi 4.4 gamlar miljónir.
HUseignin SiðumUli 6, hUsnæði
Þjóðviljans er samkvæmt bruna-
bótamati verðlagt á 3.003.229
nýkrónur (300 gamlar milljónir).
Beinn eignarhluti Alþýðubanda-
lagsins samkvæmt hlutaf járeign
36. gamlar miljónir.
Ljóst er, að þrátt fyrir þetta
eignarform á hUsnæði Alþýðu-
bandalagsins og Þjóðviljans þá
eru fyrirtæki eins og SamtUn og
Miðgarður fyrirtæki Alþýðu-
bandalagsmanna og engra ann-
arra og þeirra markmið fyrst og
fremst að efla vöxt og viðgang Al-
iþýðubandalagsins. Bandalagið
lilýtur þar með að teljast óbeinn
eigandi þessara hUseigna.
Það skilur ekki mikið á milli
hlutafélaganna, SamtUns og Mið-
garðs og aftur Alþýðubandalags-
ins. Hluthafar eru nær undan-
tekningarlaust Alþýðubandalags-
menn og i stjórn þessara hluta-
félaga sitja þekktir Alþýðubanda-
lagsmenn, i efstu lögum valda-
piramida flokksins.
I stjórn SamtUns, sem er eig-
andi Grettisgötunnar sitja eftir-
taldir: Formaður Guðmundur
Hjartarson bankastjóri i
Seðlabankanum og með honum i
stjórn sitja Stefán SigfUsson,
sonur SigfUsar Sigurhjartar-
sonar, en minningarsjóður á hans
nafni er langstærsti hluthafinn i
SamtUni og loks situr þar Ingi R.
Helgason lögfræðingur, sem
gegnirfjölda trUnaðarstarfa fyrir
Alþýðubandalagið.
Stjórn Miðgarös er þannig skip-
uð, en félagið á ÞjóðviljahUsið við
SiðumUla: Formaður Haraldur
Steinþórsson framkvæmdastjóri
BSRB. Aörir i stjórn eru, Arn-
mundur Backman lögfræðingur,
aöstoðarmaður Svavars Gests-
sonar félagsmálaráðherra og for-
manns Alþýðubandalagsins og
Hilmar Ingólfsson bæjarfulltrUi
bandalagsins i Garðabæ. Vara-
maður i stjórninni er Sigurður
Armannsson.
Öfugsnúið eignarform
Hér að framan hefur verið
rennt yfir helstu fasteignir Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðubandalags.
Ljóst er að báðir þessir flokkar
standa allvel að vigi eignalega.
Sjálfstæðisflokkurinn með höll
sina við Háaleitisbrautina og yrði
sU hUseign vafalaust metin á
langt yfir milljarð g. króna á
frjálsum markaði i dag.
Alþýðubandalagið stendur
sömuleiðis sterkt að vigi eigna-
lega, enda þdtt bandalagið sem
slikt sé ekki beinn aðaleigandi
hUseignanna við Grettísgötu 3 og
SiðumUla 6 ..heldur séu þær hús-
eignir á nafni tveggja fyrirtækja,
sem eru i höndum tryggra Al-
þýðubandalagsmanna. Vekur
nokkra athygli, að sá flokkur sem
talinn hefur verið lengst til vinstri
i islenskum stjórnmálum og
kenndur við miðstýringu framar
öðrum flokkum, skuli hafa þetta
eignarformá sinum hUseignum á
meðan Sjálfstæðisflokkurinn —
málssvari frelsisins og valddreif--
ingarinnar á sjálfur sinar hUs-
eignir, kvitt og klárt.
Leyndarmakk Sjálf-
stæðisflokks
Helgarpósturinn fór þess einnig
á leit við áðurnefnda flokka, að fá
ársreikninga þeirra til birtingar.
Sjálfstæðisflokkurinn, einn
flokka, vi'saði þeirri ósk frá. „Nei,
það geri ég ekki” var svar Kjart-
ans Gunnarssonar framkvæmda-
stjóra flokksins. Hann sagði
Grettisgata 3. Flokksskrifstofu Alþýðubandalagsins, en skráður
eigandi hússins er hlutafélagið Samtún h/f, en i þvi félagi sitja einungis
gallharðir Alþýðubandalagsmenn.
Hið nýja húsnæði Þjóðviljans við Siðumúla er metið á 300 milljónir
samkvæmt brunabótamati. Beinn eignarhluti Alþýðubandalagsins er
12%, en hlutafjáreign er öll á hendi traustra Alþýðubandalagsmanna.
reikninga Sjálfstæðisflokksins
lagða fyrir miðstjórn flokksins af
fjármálaráði, sem sæi um hinn
fjármálalega rekstur.
— Hvers vegna viltu ekki sýna
reikninga flokksins, Kjartan?
Vinnur Sjálfstæðisflokkurinn ekki
fyrir opnum tjöldum?
„JU, jtí og þeir flokksfélagar,
sem þurfa ákveðnar tölulegar
upplýsingar Ur reikningum
flokksins geta komið hingað á
flokksskrifstofuna til min og
fengið þær upplýsingar sem þeir
þarfnast.”
— Fá fulltrUar á landsfundi að
sjá reikninga flokksins?
„Nei, þannig hefur það ekki
verið síðustu fimmtíu árin. Helstu
upplýsingar hvað varðar fjár-
málalegar upplýsingar koma
náttUrlega fram i skýrslu fram-
kvæmdastjóra og ef landsfundar-
fulltrUar færu fram á viðbótar-
upplýsingar af þessu tagi, þá yrðu
þær væntanlega veittar. Ég man
hins vegar ekki til þess að spurn-
ingar f þessa átt hafi komið upp á
þeim landsfundum, sem ég hef
setíð.”
— A Sjálfstæðisfólk ekki sið-
ferðilegan rétt til upplýsinga af
þessu tagi? Flokksfólk leggur til
fé i flokksstarfiö er ekki eðlilegt
að það fái að vita nákvæmlega
hvernigþeim peningum er varið?
„Flokksfólk kýs fulltrUa á
landsfund. Þessir fulltrUar geta
spurt um þessi mái þar. Þá kýs
landsfundur f miðstjórn og þar
eru þessi mál krufin til mergjar.
Þetta er eðlileg leið.”
— Þetta er talsverður tröppu-
gangur og valdapiramidinn tals-
verður? Hvað tæki langan tima
fyrir Jón Jónsson fimmtiu ára
gamlan félaga i Sjálfstæðis-
flokknum, að fá aö sjá reikninga
flokksins? Hann er áhugasamur
um framgang flokksins og vill, að
flokksfé sé vel varið og því fylgj-
ast með gangi þeirra mála?
„Þessi Jón og aðrir gegnir
Sjálfstæðismenn eru velkomnir
hingað til min á skrifstofuna og ég
mun leysa Ur hans spurningum
eftirbestu getu. Hins vegar hefur
það enn ekki gerst að flokksfólk
hafi komið til min f slíkum
erindagjörðum.”
— Sættir þá flokksfólkið sig við
þetta leynimakk með fjármál
flokksins?
„Þetta er ekkert leynimakk.
Annars reikna ég með þvi að
flokksfólk treysti þvi að vel sé
fariðmeð féog eignir flokksins og
þess vegna ekki komið upp spurn-
ingar I þessa veru,” sagði Kjart-
an Gunnarsson.
Kjartan var einnig ófáanlegur
til að upplýsa um heildarveltufé
Sjálfstæðisiflokksins á ársgrund-
velli. „Það eru háar tölur,” sagði
hann aðeins.
1 Valhöll starfa fimm fastir
starfsmenn á skrifstofu mið-
stjórnar, tveir starfa hjá fulltrUa-
ráði Sjálfstæðisflokksfélaganna I
Reykjavik og einn hjá verkalýös-
ráði. Þaö er þvi ljóst aö launa-
greiðslur til þessara starfsmanna
nema tugum gamalla milljóna á
ári. Óhætterþvi aö fullyrða að fé-
sýsla flokksins séu meiri i sniðum
en hjá öörum flokkum, enda um
að ræða stærsta flokkinn hvað
höfðatölu snertir.
Kjartan sagði flokkinn eiga við
fjárhagsvanda aö striða. „Tiðar
kosningar á siðustu árum eru
kostnaðarsamar og þótt flokkur-
inn standi vel eignalega, þá skort-
ir hann rekstrarfé,” sagði fram-
kvæmdastjórinn.
Ekkert leyndarmál h.iá
Alþýðubandalagi
Ólafur Jónsson framkvæmda-
stjóri Alþýðubandalagsins sagði
reikninga bandalagsins ekkert
leyndarmál. „Þetta eru hálfopin-
ber gögn,” sagði hanh, „enda
hafa reikningarnir verið birtir i
fréttabréfi Alþýðubandalagsins,
sem flestir flokksmenn sjá.”
Tekjur Alþýðubandalagsins ár-
ið 1980 voru rUmar 30 milljónir
gamalla króna, en kostnaður 28
gamlar milljónir, þannig að
rekstrarafgangur var á siðasta
ári. Helstu tekjur eru: skattar AB
félaga, 12,7 gamlar milljónir,
styrktarmannakerfi, 4,8 gamlar
milljónir, launuð trUnaðarstörf
AB félaga, sem renna til flokks-
ins, 2,7 milljónir og frá þingflokki
AB 9 milljónir.
Launakostnaður var stærsti Ut-
gjaldaliðurinn eða 13,5 milljónir
króna, en samtals eru greidd laun
2 1/2 starfsmanna, sem skiptist
niður á fjóra einstaklinga. Auk
þess voru greidd laun 1/2 starfs-
manns hjá Æskulýðsnefnd AB i
fjóra mánuði á siðasta ári. Um
aðra stóra Utgjaldaliði var ekki
að ræða, htísaleiga t.d. aðeins 675
þUsund gamalla króna árið 1980
og annar kostnaður var i kringum
starfsemina, viðhald hUsnæðis,
póstur, erindrekstur, auglýsing-
ar, fjölritun og prentun o.s.frv.
I fjárhagsáætlun Alþýðubanda-
lagsins fyrir árið 1981 kemur
fram, að engar stórbreytingar
eru áætlaðar á rekstri flokksins á
þessu ári og reiknað er með
svipaðri starfsemi og árið 1980.
Vegna verðbólgunnar hækka þó
niðurstöðutölur og reiknað er með
þvi að Alþýðubandalagið velti 37
milljónum á þessu ári, sam-
kvæmt þessari fjárhagsáætlun,
sem framkvæmdastjóri banda-
lagsins lét Helgarpóstinum I té.
eftir: Guðmund Árna Stefánsson
myndir: Valdis Óskarsdóttir
ttbVuUf^nðúr, he0
AUGLÝSINGASTOFA SAMBANDSINS
léttD^Y pV0:^qóo^, ne'
Lustur’ B^ður a in a
^r ,,i t>V^ oftööru0
terð^ tf\\, w' rttatl0
nna 9° . KOrt"ð
ma'- rue
9r'n0,’i nióV'
nv®
SPa
»i«>u
ati»',’ini
otKU-
«6 Pa<
m
0rP'
um rn'°°'eK^
uát‘ó .-vKKur \aa'"r
(KUW a
•^•’lrt,ere0.ull í orKU srna
op'P'
e'P1
fá6a
$>»***'
$ ViLADEILD SAMBANDSINS
Armúla 3 Reykjavík
(HALLAR
MÚLAMEGIN
Sími38 900