Helgarpósturinn - 05.06.1981, Blaðsíða 15

Helgarpósturinn - 05.06.1981, Blaðsíða 15
ineztl irinn Föstudagur 5. júní 1981 15 Furöufiskurinn ..Surtla” ljósmynd Valdís óskarsdóttir Furðufiskurinn Surtla Skrýmslafræðingur Helgar- póstsins fregnaði að einhver tor- kennilegur furðufiskur hefði veiðst he'r við land, nánar tiltekið fyrir norðan á Skagagrunni. Fiskurinn varsendur rakleiðis i hendur starfsmanna Náttúru- fræðistofnunarinnar og grand- skoðuðu þeir þessa fiskitegund sem aldrei hefur sést hérna áður. Ævar Petersen starfsmaður á NáttUrufræðistofnun sagði að fiskur þessi væri djúpsjávar fisk- ur af svokallaðri „Surtlu grein”. „Surtlan er afar sjaldséð hér um slóðir og eru ekki til nema 8 - 10 eintök af honum sem veiðst hafa í N-Atlantshafi. Ævar sagði að Surtla hefði veiðst nær heil og óskemmd upp úr sjónum og þvi mjög fallegt eintak af þessum sjaldgæfa furðufiski. En sam- kvæmt fegurðarsmekk flestra telst hann víst ekki mikið augna- yndi. — EG Löggiltur skjalapappir ljósmynd Valdis óskarsdóttir rétt til þess aö endar nái saman. Engu fé væri hins vegar veitt til auglýsinga, og er þaö mjög slæmt vegna þess, að erfitter, aö kynna starfsemina fyrir vinnuaflskaup- aidum án auglýsinga. Þessifjárskortur bitnar illa á þeim námsmönnum sem sumir hverjir þurfa að lifa af tekjum sumarsins allt árið um kring. — EG Löggiltur pappir úrelt fyrirbæri! Löggiltur skjalapappir. Hvað er nú það? Hvernig er hann frá- brugðin öðrum pappír og til hvers erhann notaður? Til að forvitnast örlitið um þessimál hringdum við i Agnar GUstafsson hrl. og spurð- um hann þessara spurninga. Agnar sagði að þetta væri sér- stakur pappir sem hefði verið og væri notaöur við þinglýsingar. A honum er vatnsmerki og stimpill sem á stendur „löggiltur skjala- pappir”, og i miðjunni „ísland”. Hér áður fyrr voru öll veðmála- bréf bundin inn i bók og þurftu allar þinglýstar eignir að vera á þessum sérstaka pappir sem kall- aðist löggiltur. Agnar sagði að nú væri þessi siður mikið til aflagður og gegndi þvi þessi skjalapappir ekki eins miklu hlutverki i nútim- anum, nema þegar eignir eru þinglýstar. Hægt er aö taka afrit eða ljósrit af samningum á skjalapappim- um löggilta og telst það fullkom- lega löglegt en Agnar sagöi að einmitt þetta atriði vefðist oft fyr- irfólki. Þannig að eitthvað virðist ljósritunarvélin og tölvuvæðingin hafa rýrt gildi skjalapappirsins. — EG Atvinna óskast — Atvinnuleysi meöal námsmanna Atvinnumál skólafólks hafa verið til umræðu að undanförnu, og dttast menn að nokkurs at- vinnuleysis komi til með að gæta I sumar. Um 750 manns eru nú á skrá hjá þeim tveim atvinnumiðl- unum sem starfræktar eru i borg- inni: Ráðningarskrifstofu Reykjavikurborgar og Atvinnu- nokkurra daga vinnu upp i þriggja mánaöa tima. Þó eiga flest tilboðin þaö sameiginlegt, að um er að ræða þau störf sem lægst eru launuð i þjóðfélaginu. Það sem háir atvinnumiðlun- inni mest er fjármagnsskortur. Við höfum fengið loforð um rikis- styrk, sagði Einar, en hann dugir miðlun námsmanna. Er þetta nokkuð meiri f jöldi en var á skrá á sama tíma I fyrra. Fyrir atvinnumiölun náms- manna standa mennta- og fjöl- brautaskólanemar, námsmenn erlendis og námsmenn i Háskól- anum. Einar Birgir Steinþórsson, starfsmaður á atvinnumiðluninni sagði að nú væru rúmlega fjögur hundruðmannsbúniraö láta skrá sig, og þar af væru um hundrað og fjörutiu þegar búnir að fá vinnu, ýmist i gegnum miðlunina eða eftir öðrum leiðum. Töluvert fleiri hafa skráð sig hjá miölun- inni núna miðað við sama tima i fyrra. Spurningin er þvi nú hvort eitthvaö eigi eftir aö rætast úr. Þvi þótt fjöldi manna á skrá hafi aukist þá hefur atvinnutilboðun- um ekki fjölgað að sama skapi. Atvinnumiðlunin tók til starfa i maíbyrjun, og að sögn Einars hefur gengið treglega að útvega fólki vinnu það sem af er. Þau atvinnutilboð sem berast eru misjöfn, allt frá tilboðum um Einar Birgir Steinþórsson, starfs- maður atvinnumiðlunarinnar. Ljósmynd: Valdis óskarsdóttir Samtök veitinga- og gistihúseigenda: Sumarmatseðill út um allt land Samtök veitinga- og gistihúsa- eigenda hafa ákveðið að taka upp þá nýbreytni er „Sumarmat- seðill” nefnist, eða „Tourist menu”. Munu 26 hótel og veitingastaðir, út um ailt land, hafa þennan matseðil á boðstólum. MatseöiUinn verður fjölbreyttur og ódýr, t.d. kostar tvíréttuð fiskmáltlö kr. 52, og kjötrétturinn mun kosta kr. 61. Börn 12 áraog yngri borga hálft verö og börn yngri en 5 ára fá ókeypis að borða af þessum sumarseðli. Fyrirmyndin er skandinavlsk og hefur alls staðar mælst vel fyr- ir, þar sem þessi siöur hefur verið tekinn upp. íslendingar, og útlendingar, eiga þvi að geta interRent car rental Bílaleiga Akureyri yrar Reykjavik TRYGGVABRAUT 14 S.21715 23515 SKElFAN 9 S.31615 86915 Mesta úrvallð, besta þjónustan. Við útvegum yður afslátt k. á bilalelgubilum erlendls. 1 gengið inn á matsölustaöi, fengið sér góðan mat, fyrir litið verð i allt sumar til septemberloka. —EG. Borða- pantanir Simi 86220 85660 Veitingahúsid í GLÆSIBÆ Maðurínn bakvið nafnið Ómar Valdimarsson „Mun beita mér fyrir þvi að BÍ eflist sem stéttarfélag” Ómar Valdimarsson, hinn ný- kjörni formaður Blaðantanna- félags tslands er blaðalesendum löngu kunnur. ómar er Reyk- vikingur, þrftugur að aldri, og á Iangt starf að baki sem blaða- maöur þótt ungur sé að árum. Helgarpósturinn hringdi l Ómar Vald. eins og hann oftast er kall- aöur til að forvitnast dálitið um hans hagi, og viðhorf til blaða- mennsku. Ómar sagðist þessa dagana eiga 12 ára starfsafmæli i „bransanum.”.i Ég hef unnið á Dagblaðinu frá stofnun þess, á Vikunni í 2 ár og á Alþýöublað- inu og Tímanum á milli þess sem ég var f skóla.” — Hefur þú þá einhver próf i þessum fræðum? „Nei, ekki er það nú. En þó hef ég verið á ýmsum kúrsum i blaðamennsku iSvíþjóðog Ameriku.ég var t.d. i þeim fræga skóla „Columbia Graduate School of Journal- ism” í New York, en hætti þar vegna þess að mér leiddist. — En hvernig finnst Ómari góður blaðamaður eigi að vera? Það kemur þögn. „Biddu, ég ætla að ná mér i kaffi og svo skalég svara þér”. Hann kemur að vörmu spori aftur og hefur svarið á reiöum höndum. „Góður blaðamaöur þarf að vera duglegur, ósérhlifmn, þol- inmóður og seigur. Hann þarf að vera vel upplýstur og fljótur að taka við sér. Og ekki sist með fréttanefið i lagi.” — Kemur það ekki með reynslunni? „Nei þaö held ég ekki, þetta þarf að vera blaðamanninum eðlislægt. Og eitt vil ég taka fram aö góður blaöamaður get- ur ekki átt marga vini. í svona litlu þjóðfélagi eins og okkar getur maöur alltaf átt á hættu að þurfa að skrifa um mál sem tengjast kunningjum, jafnvel vinum og ættingjum. Þetta eru hlutir sem allir blaðamenn verða að sætta sig við.” En nú vikjum við talinu að Blaöamannafélaginu sjálfu. — Hvers vegna gafstu kost á þér til formanns? „Nú þaö var vegna þrýstings frá kollegum minum, ég lét und- an eftir langa mæðu. Þeir sem ég taldi hæfasta til starfans, og þeir sem ég hefði viljað fá i þessa stöðu gáfuekki kost á sér. Mér fannst eins og fleirum, að i stöðuna þyrfti að veljast maður sem komið hefði nálægt stjórn- arstörfum . Ég hef verið ritari blaða- mannnafélagsins i þrjú ár, þetta félag hefur smá saman verið að breytast í raunverulegt stéttar- félag, og ég vona að núverandi stjórn takist að halda þeirri þró- un áfram og félagið eigieftiraö styrkjast sem slikt. Við þrjú sem vorum i fram- boði erum ekki á öndverðum meiði um þaö hverju stjórn blaöamannafélagsins á helst að beita sér fyrir, þvi það hlýtur að vera hagur allra innan stéttar- innar að félagið eflist að mun sem stéttarfélag og að þvi mun ég vinna af heilum hug.”— EG Ert þú á leið til Uppsala i sumar og vantar ibúð? Til leigu er rúmgóð 3ja herbergja ibúð m/húsgögnum, frá júli til septemberloka. Nánari upplýsingar i simum 18396 og 33959, eftir kl. 18.00. Húsnæði i Kaupmannahöfn 1 úthverfi Kaupmannahafnar (Bröndbystrand) bý ég ásamt strákunum minum þrem, i einbýlishúsi á tveim hæöum. Viö höfum stóran fallegan garö, strönd og lestar- stöð (17 min. det „Hovedbanen”) er svo aö segja viö húsdyrnar. Frá 1. júli viljum við gjarnan leigja einstakling(um) og eða litilli fjölskyldu hluta hússin í t.d. eitt ár. Leigukostnaður: fyrir einstakling kr. 1.000,-d.kr. (1 herb. og sameiginleg aðstaða). Fyrir litla fjölskyldu kr. 1500.- d.kr. Stórt herb. og sameiginleg aðstaöa). Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir aö skrifa sem fyrst til: Sigríðar Magnúsdóttur Monsunvej 4/ z660 Bröndbystrand Köbenhavn/ Danmark. Sími: 9045—2546662.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.