Helgarpósturinn - 05.06.1981, Page 4

Helgarpósturinn - 05.06.1981, Page 4
4 V* i I* I í* 'í'.-ij */jV I iO * **r»r Föstudagur 5. júní 1981 Engin tungumála- vandræði á ítaliu ára gamall ttaliog leigirút hjól af ýmsum geröum. Venjuleg hjól, hjól fyrir tvo (tandem) fjögurra hjóla fótstignar tikur með þaki og skellinöðrur. Eins og hjá öðrum sem vinna i ferðama nnabransanum er sumarið ein törn hjá honum. Hann býr ásamt konu sinni og lit- illi döttur inn af afgreiðslunni sem hann hefur til umráða. Á vet- urna bda þau i heimabæ sinum um hundrað kilómetra frá Lignano, og hann dundar við mótorhjólaviðgerðir i róleg- heitunum. En á sumrin er hann alltaf við leigir Ut hjól frá morgni til mið- nættis alla daga. Og hann er i engum vandræðum með aö Ut- skýra leigukjörin fyrir islenskum viðskiptavinum. — Einn tima, borga á eftir, segirhann. Viltu svona hjól eöa skellinöðru? Sex girar og þarna er bremsan Það er allt á hreinu hjá Renato og enginn misskiln- ingur. „Askalavaskala trúlofa!” „Halló, clskan min! Askala- vaskala trUlofa! ”, hljómar á itölskum prUttm arkaði, og sölu- maðurinn sem þetta kallar er greinilega á þeim buxunum að eiga góð viðskipti við islendinga fyrir þessa Islens kukunnáttu Renato Bertoli hefur iært íslensku af krökkunum og gerir út um hjóla- leiguna til íslendinga á islensku. sína. En þarna á Utimarkaðnum nær islenskukunnáttan ekki lengra en i einstök orð og merkingarlausar hl jóðlíkingar. Fyrir islending sem aldrei fyrr hefur komið á „sólarstrandaslóðir islendinga” hljómar þetta dálitið einkenni- lega. Og hann rekur í rogastans þegar hann hefur keypt kjdkling á itölskum matsölustað og af- greiðslum aðurinn spyr á lýta- lausri islensku: „Franskar? Salat?” Eöa þegar málaruglingurinn er oröinn svo algjör að islendingur- inn man ekki hvernig á að biðja um eldspýtur á nokkru þeirra tungumála, sem hann kann hrafl I. Þegar hann hefur reynt að gera sig skiljanlegan með látbragði segir þolinmóð afgreiðslu- stUlkan á barnum: „Eld- spýtur?”. Eftir það undrast hann ekki þótt sama afgreiöslutUlka spyrji á islensku hvort hann vilji klaka. En fæstir kunna nema fáein orð, og geta að sjálfsögðu sagt bæði takk og bless. A einum stað i ibUðabyggingu þeirri á Lignano Sabbiadore þar sem Islendingar bUa er þó ungur maöur, sem getur haldið uppi einföldum sam- ræöum á islensku. Og það hefur hann lært af börnunum. Hann heitir Renato Bertoli, 28 Það hugsa liklega fáir um vinnu og sólarströnd í sömu andránni. En til þess að strandgestir geti notið líf sins og sólarinnar verður fjöldi manns að vinna myrkranna á milli. Lignano á Adríahafsströnd ítalíu er dæmigerður staður, þar'sem allt snýst um þjónustu við ferðamenn yf ir sumartímann. En á veturna er þar nánast ekkert um að véra. Þar búa ekki nema 5700 manns allt árið, gisti rými er fyrir 250 þúsund manns, og það er yf irleitt f ullt allt sumarið. Þá er ekki um frí að tala fyrir (talina. Þetta er þeirra vertíð, bæði heimamanna og þeirra sem koma að til að ná sér í góðar sumartekjur. Helgarpósturinn var á ferð í Lignano síðast í mai, þegar ,,vertíðin" var rétt að byrja og kynnti sér lítið eitt mannlíf iðþar. Helgarpósturinn á Ragnheiður Valsdóttir settist að á sólarströnd. Nú býr hún þar með manni sinum Tino Nardini og syni þeirra Beniditto Val. Settist að á sólarströnd Fjölskylduböndin sterkari heima segir Ragnheiður Valsdóttir á Lignano, ítaliu kosti eitt. Ragnheiður Valsdóttir frá Reykjavik byrjaöi á þvi að selja Þaö hefur sjálfsagt hvarflað að mörgum tslendingnum i frii á sólarströnd, að gaman væri að setjast þar að. Flestir snúa þó heim aftur, misjafnlega hressir eftir uthaldiö, eins og gengur. Þess eru þó dæmi, að litiö hafi oröiö Ur heimferð. Að minnsta- sólarlandaferðir hjá Ingólfi i Útsýn. Fyrir sex árum hélt hún til Lignano á italiu til sumar- vinnu. En fyrir tveimur árum settist hún að þarna á sóiar- ströndinni og býr þar ásamt Tino Nardini, skrifstofust jóra Eurosun og fjögurra mánaða syni þeirra, Beneditto Val. — Ég kann ákaflega vel við mig hér, veðrið, fólkið, lifsstil- inn. Vil raunar nii eftir þessi tvö ár, frekar bda hér en heima, segir Ragnheiður, þegar Helg- arpósturinn hittir hana i ibúð þeirra, sem er á hæðinni fyrir ofan skrifstofu Eurosun, við eina af helstu verslunargötum Lignano, Pineta. — Þetta er nú engin dæmigerð itölsk ibUð, ég hef reynt að koma okkur fyrir hérna meira á þann máta sem tiðkast heima. Venju- lega eru allir veggir naktir, og þegar fólk sér til dæmis þetta teppi á veggnum spyr það gjarnan hvaða tilgangi það þjóni. Yfirleitt er fólk hérna ákaflega nægjusamt og leggur litla áherslu á hlutina sem það hefur i kringum sig. Tengdafor- eldrar minir, sem búa i Feneyj- um bUa t.d. i leiguhUsnæði, þótt þau séu I ágætum efnum. Allir fengu sæng — Mér finnst hUs á Islandi af- skaplega skemmtileg og hlýleg, og ég varð svo hrifinn þegar ég uppgötvaöi sængur, að nU á öll fjölskyldan sæng, segirTino —á ágætri islensku. En hann skellti sér I að lærg máliö þegar þau voru á tslandi i vetur, þegar Beneditto fæddist. Hann talar raunar fleiri tungumál, ensku, frönsku, þýsku og ferðast talsvert um Evrópu á vegum Eurosun meö ttaliukynningar. Fyrirtækið annast fyrirgreiðslu erlendra ferðamanna á Italiu, m.a. is- lenskra. — Fólkið hefur tekið mér ákaflega vel, sérstaklega fj(3- skylda Tinos og vinir hans. En ég hef ekki fundið þessi sterku fjölskyldubönd, sem oft er sagt að séu einkennandi fyrir ttalíu. Þau eru miklu sterkari heima. Og eftir þessi tvö ár hér I Lign- ano þekkjum við varla nokkurn mann. Á veturna er mannlifið i lágmarki, varla hræða útivið og veitingastaðirnir oftast tómir. ,,Ertu karlmaður?” En ég vek talsverða athygli hér, sker mig Ur. Ég er frekar há, ljóshærð og með slétt hár. ttalskar konur eru mjög ná- kvæmar með útlit sitt, fara vikulega i hárgreiðslu og mála sig daglega. Það geri ég ákaf- lega sjaldan, og ekki nema von, að krakki, sem ég hitti hér fyrir utan segði eftir að hafa horft á mig um stund: „Ertu karlmað- ur?”, segir Ragnheiður. — Það er einmitt þetta sem mér h'kar vel við fslenskt kven- fólk. Þaö er svo ferskt og eðli- legt. Næstum eins og saklausar sveitastulkur frá miðöldum — i jákvæðri merkingu. ttalskar konur hafamakað á sig meiki i 2000 ár og er orðið alveg gegn- sósa af því, skýtur Tino inn i. — Hvaö finnst þér svo um ts- land og tslendinga, Tino? — Þaö er kalt á Islandi, svar- ar Tino og setur i axlirnar. — En það sem ég hef kynnst líkarmérvel. Fólkið er hjartan- legt og tryggt. Hér er fólk opn- ara, en maður eignast fáa vini. Stundum hef ég lýst tslandi þannig, að þar mætist vestrið, norðurpóllinn og átjánda öldin. Mér líkar sd samsetning vel og gæti vel hugsað mér aö bUa á Is- landi. En það er erfitt að fá þar þá vinnu sem ég vil stunda, sér- staklega vegna þess að ég er enn ekki nógu fær i málinu. Sjónvarpsgláp Mér fannst lika þegar ég var á tslandi, að tslendingar séu yfir- leitt menntaðri og betur lesnir en Italir. Hér les varla nokkur maður bók, allir horfa á sjón- varpið. V ið höfum þrjár italskar rásir og eina frá JUgóslaviu, og það eru Utsendingar frá morgni tilkvölds. En það er bót i máli, að dagskráin er yfirleitt góð, segir Tino Nardini. Það er liklega eins gott, að sjónvarpsdagskráin er löng og góð. Eins og flestir aðrir LignanobUar vinnur Tino langan vinnudag um ferðamannatimann. En á veturna hefur hann nánast ekk- ert að gera. — A sumrin er enginn sunnu- dagur hjá mér, en á veturna eru bara sunnudagar. Þá er ekkert að gera nema fara i gönguferöir oghorfaá sjónvarpið. Og heim- sækja ættingja, bæði i Feneyj- um og á tslandi, segir Tino Nar- dini.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.