Helgarpósturinn - 11.12.1981, Blaðsíða 1
HVAÐ
eftir Gunnar
Gunnarsson
Lögreglusagan er i
sjálfu sér ekki ómerkara
skáldskaparform en sonn-
etta. Innan þessarar bók-
menntagreinar rikja
ströng lög, flóknar reglur,
sem aöeins þeir hæf ustu og
æföustu í hópi reyfarahöf-
unda ráða við.
Reyfarahöfundar? —
Oröiö reyfari er afar vill-
andi i umfjöllun um lög-
reglusögur ellegar þá
tegund afþreyingarbóka,
sem á isiandi kallast
stundum glæpasögur.
Lögreglusaga, reyfari,
glæpasaga —öll þessi nöfn
ganga hér yfir þá tegund
bókmennta, sem fjallað er
um í grein hér á eftir. En á
islandi eru hugtök yfir lög-
reglusögur — þar sem gáta
er leyst — afarmikiö á
reiki og fæstum lesendum
kannski Ijóst, við hvað er
átt. Og flestir eru senni-
lega þeirrar skoöunar, aö
reyfari sé bara bull og geti
i besta lagi veriö soldiö
spennandi bull. Stundum
heyrir maöur gamal-
reynda lögreglumenn
fussa yfir lögreglusögum,
segja að þetta sé allt með
þeim ólíkindum að ekki sé
eyðandi á það tíma, þá sé
nú betra að lesa ævisögur.
En þar hafa þeir heldur
betur rangt fyrir sér. Það
viII nefnilega svo til, að
það eru akkúrat höfundar
lögreglusagna, sem hafa
skapað hina flóknu að-
ferðafræði lögreglurann-
sókna og búið til þau dæmi
sem notuð eru þegar ný-
liðum er kennt að hugsa
rökrétt. Nóg um það —
köfum nú i bókmenntirnar.
ER LÖGREGLUSAGA?
Fljótlega gerði kvikmyndaheimurinn sér mat úr sög-
unum um Sherlock Holmes og arftaka hans á sviði
lögreglusagna. Reyndar voru það ekki Bretar sem
byrjuðu að filma eftir sögum ACD, heldur voru það
Amerikanar. Fyrsta Holmes-myndin hét „Sherlock
Holmes baffled" og var. gerð 1903. Danir voru svo
fljótir til, en Nordisk film gerði „Sherlock Holmes in
deathly danger" árið 1908 með Holger Madsen í hlut-
verki Holmes. Síðan varð þróunin ör og Ameríkanar
áttu frumkvæðið. Humphrey Bogart varð hin mikla
hetja hvita tjaldsins ásamt mörgum fleiri. Hér til
hliðar er hann í „The maltese falcon" ásamt Green-
street og Peter Lorre. Með Bogartskeiðinu tala menn
ákveðið um evrópskan stíl og amerískan, þegar lög-
reglusögur og myndir eru annars vegar.
,, Baskervillehundurinn" nefndist ein frægasta saga
A. Conan Doyle um Sherlock Holmes og dr. Watson.
Hér er það Peter Cushing, sem er í hlutverki Holmes,
en margir f rægir leikarar áttu eftir að glíma við þann
merkilega einkaspæjara allra tíma.
Piparjómfrú Agöthu Christie, Miss
Marple, ersérstæður póstur í einka-
spæjarahópnum. Hún er þekktust á
hvíta tjaldinu í líki AAargareth
Rutherf ord sem hér sést ásamt Robert
Morley í myndinni Murder at the
Gallop.