Helgarpósturinn - 11.12.1981, Qupperneq 4
32
Föstudagur 11. desember 1981 helgarpósturinn
Spjallað v/ð Hauk Morthens
....haldið mínu striki
— Söngferill binn snannar nú bráðum fjóra áratugi,
geturðu tekið út eitthvað ákveðið timabil sem hefur verið
þitt blómaskeið?
„Nei, ég hef ekki átt nein sérstök blómaskeið. Ef menn
eru alltaf að einblina á einhverja hápunkta, þá er svo erfitt
að detta niður af þeim, þannig að ég hef þara haldið minu
striki. Það var mjög skemmtilegt þegar ég stofnaði i
fyrsta skipti mina eigin hljómsveit, 1961. Þá skildist mér
fyrst hve mikils virði það er fyrir söngvara að hafa sina
eigin hljómsveit og geta ráðið þvi hvaða mönnum maður
starfar með og hvaða lög eru á prógramminu. Eins hefur
verið afskaplega skemmtilegt timabil undanfarin tvö ár,
að ég hef fengið tækifæri til að syngja með þessum ágætu
strákum i Mezzoforte, sem ég met mikils sem unga hljóð-
færaleikara.
Ég vil meina að mér hafi farnast vel i þessu starfi. Ég
hef gengið i gegnum mörg tiskutimabil og set ekkert öðru
ofar. Nú, ef maður fer að lita til baka og svo á það sem er
að gerast i dag, þá hlustar maður núna á Shakin’ Stevens
syngja lög sem maður söng á hljómleikum i Austurbæjar-
biói árið 1956. Dægurtónlistin virðist þannig ganga i
hringi, þó ytra borðið sé auðvitað sibreytilegt með nýjum
mönnum og nýrri tækni. í dag finnst mér allar tónlistar-
tegundir gilda, það er i rauninni ekkert merkilegra eða ó-
merkilegra en annað, það er bara smekkur hvers og eins
sem ræður.”
— Hefurðu einhvern tima haft það á tilfinningunni að þú
værir stjarna?
„Svo ég segi nú alveg eins og er þá hef ég aldrei filað
það. En hitt er það að fólkið hefur verið eins elskulegt og
hægt er að mínu mati. Ég vil oft á tiðum þakka það fyrst
og fremst fólkinu að ég skuli enn vera að. Og ég hef þakk-
að öll þau fallegu orð og bréf sem ég hef fengið, allt mér
mjög pósitift. Það iyftir manni i þvi sem maður er að gera,
en aö ég hafi nokkurn tima fengið það i hausinn, eða
hrygginn, að ég þyrfti að vera svo sperrtur yfir þvi, það er
af og frá. Hafi einhverjum fundist það, þá þvi mið-
ur , er það misskilningur. En einsog ég segi þá er ég mjög
þakklátur að hafá bara fengið að gera það sem ég hef ver-
ið að gera, vegna þess að mér hefur þótt vænt um það og
gaman aðþvi.”
...oft vond lykt af plötuskrifum
— Hvað finnst þér um plötugagnrýni?
„Ég man að ég undraðist ekkert þegar ég las fyrstu
gagnrýnina um sjálfan mig, mér fannst hún reyndar ekki
réttlát, en alltilagi. Og ég segi eins i dag og ég sagði þá, að
gagnrýnendur vita ekkert hvað þeir eru að tala um, svona
yfirleitt. Þeir byrja á þvi að tala um þá hluti sem eru að
gerast á plötunni, en fylgja þvi siðan ekkert eftir, þannig
að lesendur vita i rauninni sáralitið um plötuna þegar upp
er staðið. Og maöur sem segir kannski um ákveðna plötu
að þetta sé akkúrat tónlistin sem hann heldur mest uppá,
hann er búinn að ljóstra heilmiklu upp um sjálfan sig. Og
ætti að minum dómi ekki að skrifa um neitt annað eftir
það. En þetta snertir mig ekkert i sjálfu sér, og það er
betra að fá einhverja umsögn, þó hún sé litilfjörlega eða
ranglát, en enga. Það sem kannski er alvarlegast i sam-
bandi við gagnrýnina er að hún er oft pólitisk i sambandi
við sölu hljómplatna. Þá meina ég kannski ekki beinlinis
að menn séu keyptir til að koma ákveðnum plötum eða
tónlist á framfæri, en það er oft vond lykt af plötuskrifum.
Og fyrst við erum farnir að tala um pólitik i sambandi
við dægurtónlist, þá má það gjarna koma fram að það
hefur aldrei birst viðtal eða grein um mig I Mogganum á
öllum minum söngferli — sennilega vegna þess að ég er
yfirlýstur alþýðuflokksmaður en ekki sjálfstæðismaður.
Ekki það að ég sakni þess, ég er miklu fremur stoltur af
þvi. Og eftir að ég fór til Moskvu ’58 var ég stimplaður
kommi og var ekki einusinni tekinn algerlega gjaldgengur
i minum félagahópi. En einsog ég sagöi einhvern tima i
blaðaviðtali, þá hefur söngur minn aldrei haft pólitiskt
takmark. Það skiptir ekki máli hvort ég syng i Rússlandi,
Bandarikjunum eða á Norðurlöndunum, — fólkið sem ég
syng fyrir er allt sama fólkið.
...er enginn fanatiker
— Nú er vinið stór þáttur i skemmtanamenningunni og
mikið notað af tónlistarmönnum, en þú ert þekktur fyrir
bindindissemi....
„Já, ég hef verið þaö sem kallað er reglumaður. Ég er i
Gútemplarareglunni,hef tilheyrt henni frá þvi eg var 19
ára, en hef ekki getað starfað þar að öðru leyti en þvi að ég
hef komið til þeirra annað slagið og skemmt. Og ég hef
hvorki reykt né drukkið vin, aldrei langað til þess. Hvort
það er eitthvað atriði sem beindi mér inná þá braut, þá
getur vel verið að þegar maður var svona 17-18 ára, og að
byrja að fara á böll, þá fannst manni kunningjarnir koma
oft ansi illa til reika i vinnu á mánudegi eða eftir helgina.
Og þegar maður spurði: Jæja, hvert fóruði? maður missti
bara alveg af ykkur? — þá var svarið: Já, blessaður ég
man ekkert, ég var svo fullur, ég man ekki neitt — og ég
hugsaði með mér: ef það er ánægjan af þvi að drekka vin,
að muna ekki hvar maður hefur verið eða hvað maður hef-
ur gert, þá getur það ekki verið i lagi. — En ég er enginn
fanatiker, siður en svo. Þá gæti ég aldrei hafa unnið með
og innan um þetta. Nú i dag er þetta sjálfsagt prinsip-
atriði, ég fer ekkert að drekka úr þessu. En segi náttúr-
lega um leið: aldrei að segja aldrei. Það getur oft skeð, ég
hef jafnvel horft á menn á minum aldri byrja að bragða
vin og gerast slæmir drykkjumenn. Og það gæti alveg eins
hent mig og hvern annan. En með þeirri reynslu sem mað-
ur hefur af þessu þá held ég að maður geri það ekki.”
— Hvað er framundan hjá þér núna?
„Maður reynir nú að fylgja jólaplötunni eitthvað eftir til
.að byrja með. Eftir áramót getur vel verið að maður fari á
dansleikjamarkaðinn nokkrar helgar. Það hefur lika verið
talað um að ég geri aðra plötu með Mezzoforte einhvern
tima á næsta ári. Og svo langar mig að fara eitthvað i
hljómleikaferð, og stendur reyndar ýmislegt til boða i þvi
sambandi, þó ég geti ekki tjáð mig nánar um það sem
stendur. Maður heldur allavega sinu striki”.
viðtal: Páll Pálssqn
„Já/ það kemur kannski sumum á óvart að
þetta skuli vera í annað skiptið sem ég syng
inná jólaplötu á mínum söngferli"/ sagði
Haukur Morthens þegar ég heimsótti hann
fyrir skömmu i tilefni þess að hann og Mezzo-
forte voru að senda frá sér Jólaboð, — og varð
hissa þegar fyrrnefnt kom í Ijós (hvað skyldi
Björgvin H. td. vera búinn að syngja inná
margar?). — //Fyrri platan kom út fyrir 17 ár-
um og vakti athygli fyrir að útsetningarnar
voru rokkaðar og djassaðar, en ýmsum þótíu
það nánast helgispjöll að klæða hin sigildu
jólalög í þesskonar tiskubúning. Piatan hlaut
þó mjög góðar viðtökur meðal almennings og
seldist gróflega vel. Síðan hef ég oft verið
hvattur til að gefa hana aftur út eða gera
aðra, en hef ekki látið verða af því fyrren nú
með strákunum i Mezzoforte. Og platan er
náttúrlega svolítið i þeirra anda, sem betur
fer, þó ég breyti auðvitað ekki mér eða rödd-
inni mikið. En ég kem sennilega ekki til með
að syngja inná f leiri jólapiötur, amk. er alveg
öruggt að ég syng þessi lög ekki aftur eftir 17
ár í þvi tempói sem verður i tísku þá."
myndir: Jim Smart
Fólkið sem ég
syrjgfyrir er
allt sama fólkið