Helgarpósturinn - 05.03.1982, Blaðsíða 28

Helgarpósturinn - 05.03.1982, Blaðsíða 28
ÚTVEGSBANKANS ÞÚ SAFNAR OG BANKINN BÆTIR VIÐ • Miklar hræringar eru núna i veitinga- og skemmtistaðabrans- anum. Allir gömlu skemmtistað- irnir hafa fundið meira og minna fyrir tilkomu Broadway á mark- aðinn, enda sætaframboðið á reykviskum skemmtistöðum yfir eina helgi orðið um 55 þúsund manns, sem verður að teljast meira en svo að ekki stærri byggð en Reykjavik standi undir sli'ku. Við heyrum aö býsna hart sé orð- iðíári t.d.hjá HótelSöguog l-oft- leiðuin eftir allt umrótiö I þessum bransa siðustu mánuði og orð- rómur er uppi að jafnvel sé á döf- inni að hætta rekstri Klúbbsins... ® t baksölum pólitikurinnarer nú mesttalaö um að veruleg ókyrrö sé farin að færast i allaballana i stjomarsamstarfinu. Gera menn þvi jafnvei skóna, aö verði Al- þýðubandalagið fyrir fylgistapi i komandi sveitastjórnakosning- um,einsog ýmislegtbendirnú til, séþess að vænta einhvern tima á sumarmánuöum, að allaballar gripi fyrsta tækifæri sem gefst, — Alusuisse-málið eða eitthvað af þvi taginu — til að enda lifdaga núverandi stjórnar... • Við heyrum að Félagsstofnun Stúdenta hafi gengið frá leigu á einni hæð Hótel Esju næsta vetur, þar sem eigi að vera alls 32 her- bergi fyrir stúdenta til að leysa bráðasta húsnæöisvanda þeirra. Jafnframt hefur verið tekin ákvöröun um að ráðast i annan áfanga hjónagarða með alls 60 - 70 ibúðum á sömu lóð og fyrsti hjónagarðurinn stendur á i Grimsstaðaholtinu. • Einhverjir hafa verið að henda að þvi gaman, að það hafi verið dálitið sérstakt andrúmsloft þegar f jármálaráðherrann okkar, Kagnar Arnalds, var að undir- rita stóra lánið (og sumir segja vonda lániðiúti i London á dögun- um. Þarna hafi komminn okkar verið i félagsskap fulltrúa helstu stórkapitalstofnana hins vest- ræna heims og mátt lýsa þvi yfir að hann væri „delighted” yfir þvi að vera i þessu kompanii. Þetta var að visu ekki annað en hefð- bundið skálaræöu-orðatiltæki is- lensks fjármálaráðherra við áþekk tækifæri.en kom samt ýms- um spánskt fyrir ,,eyru” úr munni Ragnars... • Það er oft tilviljunum háð, hvernig stjörnur fæöast i lista- heiminum. Fyrir tveimur árum var ung kona norður á Húsavik og hafði gengiðá tónlistarskóla þar. Hún stundaði tónlistarkennslu og fékkst við undirleik. Svo kom að þvi, að hana langaöi til að betr- umbæta píanóleik sinn, brá sér til Reykjavikur haustið 1980 og ætl- aði i' planótima. Til að nota tim- ann fyrir sunnan, tók hún söng- tima ileiðinni — en hafði ekki far- ið i marga slika, þegar söng- kennarar hennar töldu hana rif- andi ef ni og hvöttu til að fara utan til söngnáms. 1 fyrravor sótti hún svo um inngöngu á Musik Kons- ervatoriet i Stokkhólmi, en þar er ekki heiglum hent aö komast að. Konan, sem heitir Katrin Sigurð- ardóttir ( Hallmarssonar leikara), komst inn og stundar nú söngnám ytra. Hún er reyndar komin heim í bili, þvi hún á að syngja eitt að- alhlutverkanna i' Meyjarskemm- unni i Þjóðleikhúsinu undir vor- iö... Föstudaqur 5. mars 1982 I^QlCJdrpOStLirÍnr) • Félag kvikmyndahúsaeigenda mun áfundi i vikunnihafa ákveð- ið að sameinast um eina mynd- bandaleigu fyrir öll kvikmynda- húsin undir hatti vídeóleigu Uegnbogans i hinum nýju húsa- kynnum á Hverfisgötu. Jafn- framt heyrum við að videóleiga Regnbogans sé i þann mund að ganga frá samningum við mynd- bandafyrirtækið Video-son um aö leigan sjái myndbandafyrirtæk- inu eftirleiðis fyrir kvikmyndum tilsýninga ikerfum þess.þarsem öllum ákvæðum höfundarréttar er fullnægt,en myndabandakerf- unum hefur einmitt mjög verið legið á hálsi fyrir brot gegn höf- undarrétti. Má þvi segja að skammt sé stórra högga á milli hjá Video-son, þvi að fyrirtækið hefur einmitt nýverið látið gera fyrirsig fyrsta Islenska skemmti- þáttinn, sem gerður er hérá landi fyrir myndbandakerfi, jafnframt þvi sem að eigendaskipti hafa orðið á Video-son. Hefur Frjáls fjölmiðlun, útgáfufyrirtæki Dag- blaðsins og Visis keypt meiri- hluta I Video-son... • Það er engin tilviljun, að sama dag og samgönguráöuneyt- ið veitir Arnarflugi flugleyfi til Dússeldorf og Zíirich er ákveöiö að Arnarflug kaupi lscargo. Steingrimur Hermannsson sam- gönguráðherra gerði það einmitt aö skilyrðifyrir leyfisveitingunni, að þessi kaup gengju I gegn, og þetta makk mun hafa ráðiö mestu um þá töf sem varð á leyfisveit- ingunni. En ekki eru öll kurl þar með komin til grafar. Það var ekki sist baksamningur um, að Sambandið legði Arnarflugi til fjármagn, sem gerði það að verk- um aö af þessum kaupum verður. Og Sambandiö á svo sannarlega hagsmuna að gæta i Arnarflugi, þvi meðal verkefna flugfélagsins er fhitningur farþega á vegum Samvinnuferða-Landsýnar. Fylgir það og sögunni að Sam- bandið hafi skuldbundið sig til að bera tap Arnarflugs að einhverju leyti næstu 3 árin meðan félagið er að komast yfir þá erfiðleika sem yfirtökunni á Iscargo fylgir. En meöanþessu fer fram heyrum við að mikill kurr sé meðal margra annarra hluthafa i Arn- arflugi, sem telji ófært aö stjórn félagsins láti neyða sig til yfirtök- unnar með þessum afarkostum samgönguráöuneytisins. Hefur einhver hópur hluthafa krafist hluthafafundar um málið og er jafnvel talið tvisýnt að yfirtakan muni hljóta samþykki a slfkum hluthafafundi... KEYPTIR ÞU BILI DAG? SEMDU ÞA NUNA UM PLUSLAN I ÚTVEGSBANKANUM! Þá áttu audvelt meö aö endurnýja eftir 2-3 ár. Til þess notfærir þú þér verötryggöu PLÚSLÁNIN. Þá er sparifé þitt verötryggt allan tímann meöan á sparnaöi stendur. Erekki Útvegsbankinn einmitt bankinn fyrirþig?

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.