Helgarpósturinn - 14.01.1983, Síða 5

Helgarpósturinn - 14.01.1983, Síða 5
5 -fe/u rr/nn Föstudagur 14. janúar 1983 Viðtal: Ómar Valdimarsson Myndir: Jim Smart hyglisvert hversu mikið Hjörleifur Gutt- ormsson og Alþýðubandalagið hafa gert úr því, að ég hafi ekki haft samráð við þing- flokkinn, áður en ég sagði mig úr nefndinni. Ein af skyldum mínum sem þingmanns er að taka afstöðu eftir minni eigin sannfæringu. Það gerði ég. Ég var sannfærður um, að iðnaðarráðherra ætlar ekki að semja. Hann taldi það henta best áróðri og hagsmunum sínum og síns flokks, að beita einhliða aðgerðum. Við það vildi ég ekki sætta mig fyrr en samningaleiðin væri reynd til þrautar. - Fannst þér þú fá nógan stuðning í þing- flokknum eftir á? „Ég fékk algjöran stuðning og einhuga. Þar vantaði ekkert upp á.“ - Það hafa stundum sagt mér þingmenn, að mesta breytingin við að fara á þing hafi verið að þurfa að taka launalækkun. Nú eru verkfræðingar yfirleitt ekki á neinum sultar- launum. Skipti það máli þegar þú tókst þína ákvörðun? „Nei, það skipti ekki máli. í þessu sam- bandi. Ég held að það sé alveg Ijóst, að það er enginn í stjórnmálum launanna vegna. Sem þingmaður hef ég minni laun én sem verk- fræðingur og þarf að auki að vinna miklu meira. Stjórnmálastarf fer að talsverðu leyti fram á kvöldin og um helgar með fundahald- inu þá. En auðvitað hefur það allt sína ljósu punkta.“ - Kærir þú þig um að gefa þingmönnum almennt einkunn? „Mín reynsla er sú, að þingmenn eru yfir- leitt mjög hæfir menn. Enda held ég að eng- inn komist áfram í stjórnmálum án þess að hafa mikið til brunns að bera.“ Enginn Messíasarkomplex - Víkjum aftur að sannfæringunni og skyldunni. Getur ekki verið, að það sé beinlínis skylda þín að vera áfram á þingi? „Nei, það get ég ekki tekið undir. Það kemui maður í manns stað. Annars er það nú svo undarlegt, að það er fyrst núna að mér finnst ég vera orðinn fær um að fást við stjórnmál. Tíminn fram að þessu hefur farið í að kynnast innviðum kerfisins og gangi mála. En það er engin skylda mín að vera áfram. Ég er ekki þjakaður af neinum Messíasarkom- plexum um að bjarga mannkyninu.“ - En ertu hættur í eitt skipti fyrir öll? „Maður skal aldrei segja aldrei. Ég er ekki búinn að taka ákvörðun fyrir alla ævina. Ég er búinn að ákveða að hugsa málið núna. Ég treysti mér ekki til að svara því núna hvernig ég muni framvegis haga mínu lífi.“ - Það er verkfræðin, sem hefur yfirhönd- ina núna? „Ja, á sínum tíma fór ég út í langt ogstrangt nám í verkfræði. Sú grein hefur alla tíð höfðað til mín. Og nú, þegar staðan er sú sem ég hef lýst, þá vaknar spurningin: Er ég að gera rétt? Með því að fara út úr stjórnmálum gefst mér tækifæri til að íhuga það betur. Maðurinn er alltaf að leita, ýmist að sjálfum sér eða betra lífi. Ég er engin undantekning frá því. Ekkert sérframboð - Þú ert ákveðinn í að verða ekki í fram- boði nú fyrir Framsóknarflokkinn. Hvað með sérframboð, sem þú hefur verið orðaður við - einhverskonar samsláttur með þeim Vilmundi Gylfasyni og Dr. Gunnari Thor- oddsen? „Það hafa margir menn komið til mín hing- að á skrifstofuna og aðrir hringt í mig með hugmyndir af þessu tagi. Ég hef aldrei ljáð máls á því. Mér hefur aldrei dottið í hug að fara í framboð með Vilmundi og Gunnari Thoroddsen. Allar fréttir um það eru úr lausu lofti gripnar. Ég hef líka lesið nýverið að ég eigi að verða næsti flugmálastjóri. Fyrir nokkrum árum mátti ég bera af mér sögur um að ég yrði vegamálastjóri eða sæti um ýmis önnur embætti. Almenningur skemmtir sér greinilega við ýmsar hugmyndir, sem okkur, er stöndum í sviðsljósinu, kemur aldrei í hug. Það virðist sem menn álíti, að stjórnmálastarf snúist allt um að krækja sér í feitan bita. Og ég mótmæli því harðlega." - Eru það alveg hreinar línur, Guðmund- ur, að þú ætlar ekki fram í vor? „Alveg hreinar línur. Ég hef áhuga á að rifja svolítið upp verkfræðina, því auðvitað hef ég ekki fylgst nógu vel með í nýjungum á því sviði á sama tíma og ég hef verið að reyna að sýna samviskusemi í stjórnmálastarfi. En auðvitað verður maður að áskilja sér rétt til að endurskoða hlutina ef viðhorf manns breytast. Um það get ég ekkert sagt. Ekki frekar en Storm P., sem sagði að það væri svo erfitt að spá, og verst um framtíðina." Ötrúlegt úrval á Partner-verksmlðjuútsölunni AUGLÝSING — Það virðast allir, ungir sem aldnir, una sér vel á Partner-verksmiðjuút- sölunni sem haldin er um þessar mundir í Blossahúsinu, Ármúla 15. Þar má fá alls kyns fatnaö, gallað- an sem ógallaöan, á hinu prýðileg- asta verði sem afgreiðslumenn segja hið lægsta í bænum. Buxur í miklu úrvali frá 2ja ára upp í 100 cm mittis- mál. Skyrtur, boiir, peysur, úlpur — úrvalið er ótrúlega fjölbreytt. Þeim dettur margt sniðugt í hug, strákunum hjá Partner, og nú hafa þeir komið fyrir myndarlegu barna- homi þar sem yngsta kynslóöin getur lesið og leikið sér á meðan foreldrarnir máta fatnaðinn. Partner-verksmiðjuútsalan er opin kl. 10—22 í dag og á morgun, föstudag, laugardagkl. 10—19. Gaman f baraahominu. Líf og fjör á Partner- verksmiðju- útsölunni þú geturieki* bt/ fíkuregri og ski/aj> num i Reykjauik e'bcx. }t5Vo sei *9 *** ^ r a f/ug yel/ioum vorum sta'bnum seme /t og þdeyiiegt ekk/ so.xt / VW - 1303, VW - sendiferðabílar VW - Microbus - 9 sæta Opel Ascona, Mazda Toyota, Amigo, Lada Topas, Blazer Land Rover 7 og 9 manna Range Rover, Scout Bílaleiga Akureyrar Akureyri: Tryggvabraut 14 simar 21715 og 23515, box 510 Reykjavik: Siðumúla 33 slmi 86915

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.