Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 14.01.1983, Qupperneq 6

Helgarpósturinn - 14.01.1983, Qupperneq 6
6 Föstudagur 14. janúar 1983 irinn Dæmisaga úr íslensku viðskiptalífi „ÞENNAN MANNVERÐUR AÐ STOÐVA Fallnir víxlar, vangoldin laun, ógreiddir reikningar í verslunum, stefnur fyrir Bœjarþingi, útgáfa innistœðulausra ávísana. Pappírsfyrirtœki sem hefja lítillega starf- semi en gufa síðan upp og skilja eftir sig skuldahala: Sjávarvörur hf, Framtíðarhús hf., Íslensk-kanadíska verslunarfélagið hf. og fasteignasalan Húsamiðlun. Maðurinn á bak við allt þetta er Pétur Einarsson, daglegur gestur meðal fyrirmanna íkaffi við „borðið“ á Hótel Borg. En meðal almennings erfjöldi manna sem hefur farið illa út úr viðskiptum við hann. Pœr upphœðir sem þar um ræðir má telja í milljónum króna. En slóðin endar, í bili að minnstakosti, á Keflavíkurflugvelli. Fyrirfáum vikum hélt hann til London og var ekki kominn þaðan aftur þegar síðast fréttist. Hér heima er hinsvegar í undirbúningi kœra til Rannsóknarlögreglu ríkisins á hendur honum. Kœran hljóðar upp á fjárdrátt. Einn þeirra lögmanna sem hefur haft með höndum mál gegn Pétrí Einarssyni segir við Helgarpóstinn: „Það er mjög bagalegt að slíkir menn lciki lausum hala í þjóðfé- laginu og þá verður að stöðva. Hinsvegar er þetta ekkert einsdœmi. Hér er nokkur hópur manna sem á svipaðan feril og hann“. „Það er engin smáræðis vinna að kanna feril Péturs þessi 20 ár sem hann hefur verið á ferðinni í viðskiptunum", var haft eftir hæsta réttarlögmanni nokkrum eftir að það tók að spyrjast út að Helgarpósturinn væri að kanna fortíð hans. Og það reyndist rétt. Eftirtekjan af lestri yfirlits yfir áskorunarstefnur og dóma í víxla- og skuldamálum sem voru teknir fyrir í. Bæjarþingi Reykjavíkur síðastliðið ár var fimmtán málshöfðanir. Á aðeins einu ári. 15 stefnur á einu ári Kröfurnar í þessum 15 stefnum hljóða upp á 300 þúsund krónur samtals, en þær eru ýmist á Pétur sjálfan, Sjávarvörur, íslensk- kanadíska verslunarfélagið eða Framtíðar- hús. Flest málanna eru vegna víxla sem hafa failið á ýmsa sem Pétur hefur haft viðskipti við, en nokkur eru vegna úttekta úr verslun- um, sem hann hefur ekki greitt. í flestumi tilfellum eru það úttektir úr byggingavöru- verslunúm. En þar með eru ekki öll kurl komin til grafar. Á veðbókarvottorði íbúðar hans, sem er í húsinu Brúarland við Starhaga (líka nefndur Þormóðsstaðarvegur), eru hvorki meira né minna en 20 veð. Þau elstu eru tvær skuldir við Utvegsbankann frá árinu 1971, hvor upp á 5000 krónur - hálf milljón gamlar krónur, sem verður að teljast hafa verið talsverð upphæð fyrir tólf árum. Á veðbókarvottorðinu má ljóslega sjá að ýmsir hafa reynt til þrautar að rukka inn skuldir sínar. Þar eru skráð hvorki meira né minna en sjö fjárnám, samtals upp á nærri 700 þúsund krónur, eitt löghald sem nemur 310 þúsund krónum og lögtök Gjald- heimtunnar í Reykjavík vegna 150 þúsund) króna. „Það er ekki óalgengt, að menn séu með allt upp í 20 veð á eignum sínum. Þegar felldir eru fjárnámsdómar eru þeir færðir sjálfkrafa inn á veðbókarvottorðán tillits til verðmætis eignanna, og komi til uppboða er kröfuhöf- um úthlutað eftir rétthæð hvers og eins“, segir Ólafur Sigurgeirsson fulltrúi hjá borg- arfógeta við Helgarpóstinn. Varðandi Pétur Einarsson segir Ólafur, að hann hafi haft gangandi uppboðsmál í mörg ár og enda þótt gamlar skuldir séu enn skráðar á veðbókarvottorð hans megi búast við því að einhverjar þeirra hafi verið greiddar eða málin felld niður. „Það er skuldarans að aflýsa greiddum lán- um. Hafi hann ekki gert það má vera að tilgangurinn sé að fæla menn frá því að fara þessa Ieið til að innheimtaaðrar skuldir þar sem það sé vonlaust verk“, segir Ólafur Sig- urgeirsson fógetafulltrúi við Helgarpóstinn. Útvegsbankinn kemur til skjalanna Skuldir Péturs við Útvegsbankann frá ár- inu 1971 eru frá svipuðum tíma og hann átti sjálfur í höggi við miður heiðarlegan kaupmann í London. Samkvæmt heimildum sem Helgarpóstur- inn telur áreiðanlegar flutti Pétur út fiskimjöl í nafni Sjávarvara. Eftir að pappírar vegna sendingarinnar komu til Hambro’s Bank í London skaut þar upp manni sem af óskiljan- legum ástæðum fékk pappírana lánaða. Hann sást svo ekki meir, en Pétur lenti í vondu máli hér heima. Kanadíska einingahúsið sem Framtíðar hús reistu í Mosfelissveit... Næsta hús var reist eftir íslenskum teikningum. Saga þessara húsa er sorg- arsaga fyrir kaupendurna. Pétur Einarsson fasteignasali, heildsali með meiru. Þeir sem hafa átt viðskipti við hann gegnum tíðina segja: „Þennan mann verður að stöðva". DV-mynd. 20 ára brasksögu Péturs Einarssonar, Sjávarvara, Framtíðarhúsa, íslensk- kanadíska verslunarfélags- ins og fasteignasölunnar Húsamiðlunar lýkur með sakamáli. Þar sem Útvegsbankinn er aðal viðskipta- banki Hambro’s var ákveðið að bjarga mál inu og var Pétri veitt fjárhagsleg fyrir- greiðsla. Síðan hittust fulltrúar bankanna og endirinn varð sá að Bretarnir tóku skaðann á sig. Upp frá þessu er sagt að Útvegsbankinn hafi haldið Pétri meira og minna uppi, enda var lítið lát á fjárkröfum á hendur honum. í aprfl síðastliðnum var svo komið, að yfir- dráttur á hlaupareikningi hans var orðinn um 700 þúsund krónur, og enn hélt hann áfram að aukast. í haust var yfirdrátturinn svo kom- inn hátt á aðra milljón. Þá var biðlund bankans þrotin og reikn- ingnum var lokað, en samkvæmt áreiðan- legum heimildum er langt frá því að Pétur hafi gert upp skuldir sínar við bankann. Og til að bæta gráu ofan á svart hélt Pétur áfram að gefa út ávísanir á reikning sinn. Innistæðuiausar ávísanir Þann 18. október gaf hann út 55 þúsund króna handhafaávísun, sem reyndist vera innistæðulaus þegar átti að leysa hana út í Útvegsbankanum. Það mál hefur nú verið lagt fyrirBæjarþing Reykjavíkur. Um svipað leyti var maður nokkur sem ári fyrr hafði selt húseign sína í gegnum Húsa- miðlun, fasteignasölu Péturs, með þrjár verðlausar ávísanir í höndunum. Ákveðið hafði verið, að fasteignasalan tæki við um 100 þúsund krónum frá kaupandanum meðan seljandinn væri erlendis. Þegar hann kom heim og fór að spyrjast fyrir um peningana gaf Pétur þau svör, að það stæði illa á hjá kaupandanum og hann hefði ekki greitt sér. En fljótlega kom í ljós, að kaupandinn hafði borgað sitt, og eftir talsvert málavafstur greiddi Pétur upphæðina í þessum þremur ávísunum - sem síðan reyndust innistæðu- lausar. Verðlausir pappírssneplar. Kaupand- inn fór þegar á fund Péturs og tókst eftir mikla fyrirhöfn að ná út andvirði einnar ávís- unarinnar. Eftir standa 65 þúsund krónur, og að mati Arnmundar Backman lögmanns selj- anda eignarinnar er þarna um grófan fjár- drátt að ræða sem nú hefur verið kærður til RLR. En það er af Pétri að segja, að hann skrapp í vikuferð til London! Kanadísku húsin Eitt af því sem Pétur Einarsson hefur tekið sér fyrir hendur er að flytja inn einingahús frá Kanada. Líklegt er, að í fyrstu hafi íslensk - k anadíska verslunarfélagið staðið í þeim við- skiptum. Það var stofnað árið 1975, stofn- endur Pétur, Kristín B. Sveinsdóttir og þrjár dætur þeirra. í stjórn fyrirtækisins eru þau hjónin og ein af dætrunum, Unnur P. Grant, sem mun vera búsett í Kanada. Að því er Helgarpósturinn kemst næst var fljótlega pantað til Iandsins hið fyrsta af kan- adísku einingahúsunum. Síðan gerðist lengi vel lítið sem ekkert, nema Pétur keypti land- skika af Þórði Guðmundssyni á Reykjum í Mosfellssveit. „Ég fékk þessa lóð greidda að fullu að lokum haustið 1981“, segir Þórður við Helg- arpóstinn um þessi viðskipti sín við Pétur. Lokagreiðsluna fékk hann daginn sem kana- díska húsið var vígt. Þá var drátturinn á greiðslunni fyrir landið orðinn slíkur, að Þórður neitaði að selja Pétri lóðir undir fleiri hús. En þennan septemberdag árið 1981 voru staddir í húsinu þrír smiðir, sem höfðu lagt nótt við dag að ljúka húsinu í tæka tíð. Pétur hafði áður greitt þeim laun vikulega í þrjár myndir: Jim Smart Ml' #W' r || ^ T’ Pm u * 11. 1 : • f Aðalaðsetur Péturs Einarssonar og fyrir tækja hans að Templarasundi 3. mj siÉt ■ B? Pétur á hálft þetta hús, Brúarenda við Starhaga enda þótt það sé veðsett í bak og fyrir. eftir Þorgrím Gestsson vikur, en nú virtist hann ekki geta meir og smiðirnir eru komnir í mál. Kröfur þeirra eru samtals um 80 þúsund krónur. „Þá vorum við farnir að sjá hvernig hann er og að allt sem við höfum heyrt um hann væri satt, svo við fórum beint í lögfræðing", segir Jón Sandholt, einn þessara smiða við Helg- arpóstinn. Þegar þarna var komið sögu hafði Pétur stofnað fyrirtækið Framtíðarhús ásamt eigin- konu sinni og Hermanni Kjartanssyni, sem jafnframt sitja í stjórn fyrirtækisins, og tveimur öðrum. Framtíðarhús voru stofnuð í september 1981 og það var við það fyrirtæki sem þeir áttu síðan skipti, sem ákváðu að kaupa kanadísk einingahús eftir að hafa skoðað fyrsta húsið, húsið að Reykjabyggð 7 í Mosfellssveit. Næsta hús reis ekki í landi Reykja eins og Pétur hafði áformað - eins og fyrr segir vildi Þórður á Reykjum ekki selja honum fleiri lóðir. Þess í stað reis það við Hagaland í Mosfellssveit. Að vísu var það ekki kana- dískt. Fyrsta húsið reyndist ekki eins gott og búist var við svo teikningarnar voru endur- skoðaðar og endirinn varð sá að húsið var reist eins og hvert annað íslenskt timburhús. „Ekki steinn yfir steini“ Eigandi hússins vill ekki láta nafns síns getið, „en til að stuðla að því að vara fólk við að eiga viðskipti við Pétur Einarsson get ég sagt, að í samskiptum okkar við þennan mann stóð ekki steinn yfir steini", segir þessi húseigandi. Samningurinn um húsið var undirritaður 17. október 1981 og það átti að vera tilbúið 1. maí árið eftir. Ekki var þó hægt að flytja inn fyrr en 12. október 1982, og það með því móti, að kaupendurnir tóku á sig að greiða bæði vinnu og efni sem Framtíðarhús höfðu skuldbundið sig til að greiða. Þriðja húsið átti að rísa við næstu götu og átti að'vera tilbúið um mánaðamótin ágúst/ september í haust. Það var þó ekki byrjað að grafa fyrir húsinu fyrr en í október, og það var kaupandinn, Róbert Örn Alfreðsson, sem sá um það - og borgaði brúsann. „Þetta byrjaði þannig, að ég seldi íbúðina mína - að sjálfsögðu gegnum fasteignasölu Péturs Einarssonar. Fyrsta greiðslan átti að renna beint í lóðina. Síðan kom í ljós, að sá sem seldi hana hafði aldrei borgað hana, en hinsvegar veðsett hana og lóðin fór á upp- boð. Ég lenti í miklum vandræðum útaf jsví, en þau mál eru öll leyst núna“, segir Róbert við Helgarpóstinn. Erfiðleikunum var þó ekki lokið þar með. Kaupandi íbúðar Róberts samþykkti fyrir beiðni Péturs víxla fyrir 350 þúsund krónum af kaupverði íbúðarinnar. Síðan tóku þessir víxlar að falla og kaupandinn þarf nú að standa bæði skil á þeim og sömu greiðslum til Róberts. „En nú hef ég rift verksamningnum við Framtíðarhús og lögfræðingurinn minn hefur í undirbúningi skaðabótamál á hendur Pétri. Húsið ætlaði ég hinsvegar að byggja sjálfur“, segir Róbert, en hann og fjölskylda hans búa nú í leiguhúsnæði. Fallinn víxill fyrir lóðagjöldum Enn eitt málið sem hefur spunnist út frá þessu ævintýri með kanadísku húsin er fjár- nám Mosfellshrepps hjá Pétri vegna vangold- inna lóðagjalda. Fjárnámið er upp á rúmar 38 þúsund krónur og Helgarpósturinn hefur á- reiðanlegar heimildir fyrir því að Pétur hafi fengið þessa upphæð í reiðufé hjá kaupend- um lóðanna og síðan ætlað að greiða hana hreppnum. Það gerði hann hinsvegar aldrei heldur samþykkti víxla fyrir upphæðinni - og þeir vfxlar féllu. Samkvæmt upplýsingum Páls Guðjónssonar sveitarstjóra í Mosfells- sveit er þessi upphæð enn í innheimtu hjá lögfræðingi hreppsins. Fjórða hús Framtíðarhúsa átti að rísa á Stokkseyri. Ottó Jónsson múrarameistari í Borgarnesi, sem átti að vera meistari að steypuvinnu þriðja hússins í Mosfellssveit. seldi Framtíðarhúsum steypumót til að nota við það hús. „Pétur borgaði í upphafi fjórðung af kaupverðinu en afganginn með víxlum, sam- tals 180 þúsund. Og nú eru víxlarnir farnir að falla“, segir Ottó við Helgarpóstinn um þessi viðskipti sín við Pétur, en honum er stefnt ásamt Pétri til að greiða þann fyrsta þeirra. Víxillupp á 600 þúsund krónur er þegar kominn fyrir Bæjarþing Reykjavíkur, en Ottó heldur að Pétur hafi jafnvel gert á ein- hvern hátt upp að minnstakosti annan hinna sem eftir standa. En það er af húsinu á Stokkseyri að segja, að búið er að steypa grunninn og slá upp grindinni. Það átti að vera tilbúið í haust, en kaupandinn missti húsnæði sitt v á Stokkseyri og er kominn 23) í vinnu í Þorlákshöfn. W

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.