Helgarpósturinn - 14.01.1983, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 14.01.1983, Blaðsíða 7
Listuppgjör 1 982 — Gagnrýnendur Helgarpóstsins meta stöðu listgreina á nýliðnu ári og velja helstu viðburði ársins Meira magn — spurning um gæðin Gríöarlegt framboð einkenndi kvik- myndaárið 1982 öðru fremur. Snemma á árinu opnaði Bíóhöllin sína fimm sali og nokkru seinna bætti Stjörnubíó öðrum sal við þann sem fyrir var. Að jafnaði eru nú sýndar 17 kvikmyndir á degi hverjum í Reykjavík, og um helgar, þegar Fjalakött- urinn, bíóin í Hafnarfirði, MÍR og fleiri slíkir aðilar eru einnig með sýningar fer fjöldinn uppí 22 til 25 kvikmyndir á dag. í ekki nema hundrað þúsund manna borg er slíkur fjöldi auðvitað yfirgengilegur. Og ekki nóg með það. Þegar við fjölgun kvikmyndasalanna bætist að heildarfjöldi kvikmyndum af litlum metnaði - ódýrar myndir sem þurfa litla útbreiðslu til að skila þeim hagnaði sem framleiðendur sækjast eftir. Slikar myndir eru nú farnar að berast hingað í mun meira mæli en áður, í því hallæri sem verður af minnkandi aðsókn. Um vídeóleigurnar og vídeókerfin, sem nú eru orðin verulegur póstur í kvikmynda- neyslu landsmanna, og hafa eflaust sín á- hrif á aðsókn kvikmyndahúsanna,gildir í aðalatriðum það sama: Obbinn eru afþrey- ingarmyndir heldur af lakara taginu, en inn á milli ágætar kvikmyndir. En það er svo sem ekki eingöngu við kvikmyndahúsgesta dregst nú nokkuð saman,þá fækkar sjálfkrafa áhorfendum á hverja mynd verulega. Sem hefur aftur þær afleiðingar að kvikmyndahúsin verða stöð- ugt að koma með nýjar og nýjar myndir því ekki dugar að sýna fyrir tómu húsi. Á síð- ustu tveimur árum eða svo hefur titlunum fjölgað um 30 prósent, eða þar um bil. Allt þetta gerir það að verkum að í kvik- myndahúsunum er nú boðið uppá myndir inn á milli sem telja verður afar slakar. Hjá öllum kvikmyndaþjóðum, ekki síst í Bandaríkjunum, þaðan sem langmest kem- ur hingað, eru framleidd kynstrin öll af 0» íslenska kvikmyndahúseigendur eða víde- ókónga að sakast. Vestræn kvikmyndagerð virðist því miður öðru fremur einkennast af hugmyndaskorti og deyfð um þessar mundir- sem sjálfsagt má svo rekja til fjár- hagserfiðleika - og þeirri kreppu sem sögð er vera í kvikmyndaiðnaðinum á vestur- löndum. Það segir þá kannski sína sögu að kvik- mynd ársins að mati okkar hér á Helgar- póstinum skuli vera Jámmaðurinn - mynd gerð í Austur-Evrópulandi þar sem allt er í upplausn og kreppu, af Pólverjanum And- rezei Wajda. Sú mynd spratt beint uppúr upplausninni og kreppunni, fjallaði um samtímann og það á sannfærandi og listræn- an hátt. Tvær af vinsælustu myndum síðasta árs, ævintýri Spielbergs, Raiders of the Lost Ark og E.T. sem báðar voru mjög vel heppn- aðar eru dæmi í hina áttina. Þær fjalla um eitthvað allt annað en samtímann og ein- kennast af bellibrögðum og hraða eins og svo margar aðrar nýjar vestrænar kvik- myndir. Fleiri ágætar myndir voru sýndar á árinu: Atlantic City, Chariots of Fire, Kagemus- ha, Ordinary People, On Golden Pond, The Stunt Man, Das Boot, Shining - svo einhverjar séu nefndar. Að auki var svo haldin vel þokkaleg kvik- myndahátíð hér í fyrravetur, og aðrar minni uppákomur í þá veru. Fjórar íslenskar kvikmyndir voru frum- sýndar á árinu og það er ekki lítið: Rokk í Reykjavík, Sóley, Okkar á milli og Með allt á hreinu. Ólíkar kvikmyndir og misjafnar, þannig að kvikmyndaárið verður að teljast nokkuð þokkalegt þegar á allt er litið - og ekki síst að komist var hjá mjög verulegum fjárhagslegum skakkaföllum við gerð þeirra. Þótt Okkar á milli hafi um margt verið metnaðarmikið verk í íslenskri kvik- ntyndagerð tókst ekki sem skyldi að koma efninu, firringu miðaldra manns og þjóðfé- lags,til skila. Sú mynd sem meirihluti okkar sem skrifar um kvikmyndir hér í Helgar- póstinum telur best hafa valdið sínu verkefni, er sú sem nýjust er, Stuðmannamyndin Með allt á hreinu. Þar er tilgangurinn að skemmta og létta lundina. Þeim tilgangi er náð refjalaust með skemmtilegri blöndu af agaðri fagmennsku og lausbeisluðum húm- or. Hún telst því innlend mynd ársins að mati HP, þótt Rokk í Reykjavík hafi sannarlega gert sínu viðfangsefni verðug skil fyrr á árinu. ÓLÍKT HÖFUMST V/Ð AÐ Gróskan í tónlistarlífinu á íslandi jókst enn á þessu ári. Kom góður bati, hefðu menn kannski sagt í gömlum annálum. Á það bæði við um samningu nýrra verka, fjöldahljómleika, flytjenda og nýrra flytj- endahópa, svo að notað sé steingelt stofn- anaorðafar. Og fæst af þessu magni var á kostnað gæðanna. Það er einhver munur á þessurn hljóm eða horjarminum og eymdarvælinu annars- staðar í þjóðlífinu. Þar segjast allir atvinnu- vegir reknir með bullandi tapi, sjávarútveg- ur, landbúnaður og iðnaður, allt nema eftir Árna Björnsson bankar og kannski verslun. Enda eru verslunar- og bankamenn smámsaman að verða fjölmennasta starfstétt landsmanna. Það mætti því halda, að mesta þjóðráð væri að leggja allan þennan áðurnefnda tap- rekstur niður og snúa sér einvörðungu að verslunar- eða bankastarfsemi. Svo myndu allir versla hver hjá öðrum og lána hver öðrum og enginn þurfa lengur að fórna sér fyrir hugsjón taprekstrarins. Armæðutónninn er líka látinn stafa af því, að við höfum fengið eitthvað minni sjávarafla en síðustu ár og viðskiptakjör versnað nokkuð. (Meðan ég skrifa þetta, er Páll Heiðar að tala við Jóhannes Nordal í útvarpinu, og má vart milli heyra, hvor er þungbúnari). Og svo reka menn upp þessa líka píkuskræki í blöðum, þótt við fáum dálítið veðrafjúk um hávetur. Einsog allt þetta sé einhver nýlunda hjá okkur? Ein- mitt þess vegna erum við það sem við erum, þ.e. flestum þjóðum skárri, að við höfum sífellt þurft að sigrast á tímabundnum erfiö- leikum af þessu tagi og oftast rniklu alvar- legri Og það er gaman að því. Það er heldur engin þörf að kvarta, með- an músíkin og aðrar listgreinar blómstra. Því að auk foldarinnar sjálfrar og sögunnar verður aldrei um eilífð til neitt Island utan það ísland, sem geymist í listmenningararfi þess. Ekki í vídeótækjum eða örbylgju- ofnum. Áðurnefnda grósku má vafalaust að miklu leyti rekja til stóraukinnar tónlistar- kennslu síðustu tvo áratugi,fyrst á höfuð- borgarsvæðinu og nú seinustu árin um land allt. Hvað sem öðrum athöfnum líður, eiga þeir Gylfi Þ., Magnús Torfi og Vilhjálmur á Brekku þakkir skildar fyrir að hafa stuðlað að þessari þróun á ráðherratíð sinni. Þessi þjóð tekur nefnilega merkilega fljótt og vel við sér - ekki bara því lakara. Stórt og smátt Einn stærsti viðburður ársins hlýtur að teljast opnun Islensku óperunnar, sem þeg- ar hefur sýnt þrjú verk og nú síðast Töfra- flautu Mozarts, sem mestur metnaður felst í. Annað stórfyrirbæri var stofnun Islensku hljómsveitarinnar, sem virðist eiga sér starfsgrundvöll til hliðar við sjálfa Sinfóníu- sveitina, þótt enn sé hún einsog á stuttbux- um. Vonandi helgast þessar stofnanir ekki einvörðungu af metþorskafla árin 1980 og 1981, og vissulega mættu einhver þarfminni fyrirtæki fara á hausinn á undan þessum tveim, ef ekki nægir, að fiskafli sé í meðal- lagi. Þá telst það til mikilla tíðinda, að ís- lenskt óperustykki var frumsýnt á Listahá- tíð, Silkitromman eftir Atla Heimi Sveins- son. Af öðrurn atriðum á þeirri hátíð verða eftirminnilegastir fiðlutónleikar Gidons Kremers og söngur Borisar Kristof'f. Af einstökum tónleikum hlýtur heildar- flutningur Pólýfónkórsins o.fl. á Mattheus- arpassíu J.S. Bachs að teljast mikilfengleg- astur. Nú hefur verið hnykkt á þessu stór- virki með því að gefa það út á plötum, og ku frágangur þeirrar útgáfu vera í samræmi við listræna kröfugerð stjórnandans, Ingólfs Guðbrandssonar. Annar heildarflutningur á Bach-verki fór fram í árslok, en það var Jólaóratorían öll og var skipt á tvö kvöld sakir lengdar, en ætti helst að skiptast á 6 kvöld, ef flytendur og áheyrendur kæmu því við í jólabakstrin- um. Þar var að verki Kór Langholtskirkju undir stjórn Jóns Stefánssonar. Sami kór flutti fyrr í vetur Sálumessu Mozarts. Öll þessi fimbulverk eru svo umkringd fjölmörgum smærri og stærri viðburðum, sem ýmist eru hefðbundnir eða nýjabrum. íslenska óperan - stofnun hennar og Islensku hljómsveitarinnar voru tveir helstu tónlistarviðburðir ársins. Að öðru ólöstuðu skal þrennt nefnt til sög- unnar, og kemur þá fyrst flutningur Zukof- skynemenda á Vorblóti Stravinskís. En ís- lendingar höfðu víst ekki treyst sér til þess arna fyrr, og eru það undur. Af minni hópurn er sérstök ástæða til að nefna Musica Antiqua, sem einkum sækir næringu sína til 16., 17. og fram til miðrar 18. aldar, eða þess sem kallað er renaiss- ance og barokk. Reynt er eftir föngum að nota eftirlíkingar hljóðfæra frá sömu öldum, og verður af hin þægilegasta skemmtun. Og að lokunt skal bent á tónleikaform, sem enn um sinn hlýtur langtum minni að- sókn en maklegt er. Hér er átt við blásara- hópinn, sem nú kallar sig víst Blásarakvint- ett Reykjavíkur. Flutningur þeirra á kvint- ettum Carls Nielsens, Pauls Hindemith og Jóns Ásgeirssonar er með því skemmti- legra, sem upp úr stendur frá síðasta ári. Erlend mynd ársins: Járnmaðurinn eftir Wajda. Innlend mynd ársins: Með allt á hreinu eftir Ágúst Guðmundsson.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.