Helgarpósturinn - 14.01.1983, Page 8

Helgarpósturinn - 14.01.1983, Page 8
Innlend gróska framan af en dofnaði seinni hluta árs Það er alltaf freistandi á áramótum að staldra við og líta yfir farinn veg. Líta yfir hvað helst hefur verið að gerast á nýliðnu ári og reyna að meta hvort þetta ár hafi nú verið gjöfult á góða hluti eða ekki. Þegar litið er aftur til ársins 1982 og hvað var að gerast í rokkheiminum, þá verður nú varla sagt að mikil stórvirki hafi verið fram- in. Hér á íslandi má þó segja að ýmislegt hafi gerst en bjartsýnin sem ríkjandi var fyrri hluta ársins, um að í aðsigi væru reglu- lega góðir hlutir,hefur dofnað eftir því sem á árið hefur liðið og ekki hafa þau blóm sem springa áttu út gert það að ncinu marki. Um páskana var frumsýnd kvikmyndin Rokk í Reykjavík og þóttust menn á mynd þeirri sjá mikia grósku í íslensku rokklífi en einhvern veginn hafa nú hlutirnir heldur koðnað niður eftir því sem liðið hefur á árið. Ótrúlega mikið var einnig gefið út af hljómplötum á árinu og raunar svo að segja má að markaðurinn hafi verið yfirkeyrður af drasli. Það hefur svo haft þau áhrif að •ðþær tiltölulega fáu góðu plötur sem út komu, hafa orðið undir. Plötur Egósins seldust þó vel og einnig mun Mezzoforte hafagert jsað nokkuð gott. Hins vegarseld- ist td. mjög frambærileg plata Baraflokks- ins heldur illa, að því er ég hef best frétt. Þegar ég legg mitt persónulega mat á það sem best hefur verið að gerast í landinu, hvað hljómplötuútgáfu varðar, verða það einkum fjórar plötur sem mér koma í hug. Tel ég þær hér upp í útgáfuröð án þess að leggja neitt frekara mat á hver þeirra sé best, enda eru þær í raun all ólíkar. Þursaflokkurinn - Það gæti eins verið Þessi plata er að mínu mati það lang besta sem komið hefur frá Þursaflokknum hingað til. Tónlistin er vel í takt við það sem hefur verið að gerast gott annars staðar í heimin- um en flokkurinn heldur þó sínum sér- einkennum í mörgu. Purrkur Pillnikk - No Time To Think Þessi fjögurra laga plata var svanasöngur einhverrar sérstæðustu hljómsveitar sem hér hefur starfað á undanförnum árum, og þó lengra væri leitað aftur í tímann. Þetta voru mennirnir sem framkvæmdu, gáfu út fjórar plötur á rúmu ári, spiluðu mikið hér heima, fóru í hljómleikaferð um England og hættu síðan. No Time To Think var þeirra besta plata. Þeyr - The Fourth Reich Það gekk mikið á hjá Þeysurum á árinu og um tíma leit út fyrir að hljómsveitin leystist upp. Platan As Above var endur- unnin, úr áður útkomnum lögum,og gefin út erlendis. The Fourth Reich er hins vegar nýtt og kraftmikið efni og er engin hrörnun- armerki að heyra á hljómsveitinni af lögum þessum. Engin ástæða er til annars en að ætla að Þeysarar starfi áfram um hríð og geri góða hluti sem hingað til. Stuðmenn Platan með tónlistinni úr myndinni Með allt á hreinu er einhver besta skemmtiplata sem hér hefur komið út um árabil. A erlendum vetvangi gerðust nú svo sem engin stórmerki. Tónlistarsmekkur Banda- ríkjamanna hélst að mestu jafn lélegur og verið hefur undanfarin ár, með heiðar- legum undantekningum þó. I Bretlandi kom Iítið nýtt og markvert fram. Diskóið vann á og ýmsir vel klæddir strákar slógu í gegn. Meginlandshljómsveitir fóru að láta meira á sér kræla og Spliff ku vera einhver allra vinsælasta hljómsveitin þar nú. Hér á eftir fer listi minn yfir þær tíu er- lendar plötur sem mér finnst bestar hafa komið út á nýliðnu ári. Dexy’s Midnight Runners-Too Rye Ay Tónlist Dexy’s er sérstæð blanda. Grunn- urinn er þó soultónlist, sem svo er krydduð með hinum margvíslegu tónlistarstefnum. Eftirtektarverð eru t.d. áhrif keltneskrar tónlistar í nokkrum laganna. Lagið Come On Eileen er líka gull. Defunkt - Thermonuclear Sweat Fönkið hefur verið nokkuð áberandi á árinu og líklega leika það engir betur en Joe Bowie og félagar hans í Defunkt. Tónlist þeirra hefur til að bera kraftmikinn hljóðfæraleik og óhætt er að segja að þar fái flestir að njóta sín til fullnustu. Elvis Costello - Imperial Bedroom Enn sem komið er hefur Costello ekki sent frá sér plötu sem ekki getur talist góð; með Imerial Bedroom varð heldur engin breyting þar á, því hún er fyrsta flokks. Ornette Coleman - Of Human Feelings Hver hefði trúað því að gamli free-- jassarinn Ornette Coieman ætti eftir að leika fönk. Það er þó einmitt það sem hann er að fást við á þessari plötu og það með skínandi árangri. Við hverju var svo sem öðru að búast. Síouxie & the Banshees - A Kiss In The Dream House Svei mér þá ef þetta er bara ekki besta plata Siouxie til þessa og það eru sannar- Íega stór orð. Þau halda ótrauð áfram á sinni braut, alveg burt séð frá því hvað aðrir eru að gera og alltaf virka þau jafn fersk. Van Morrison - Beautiful Vision Ég held sannarlega að þessi írski söngv- ari, sem alla tíð hefur verið hálfgerður ein- fari í tónlistinni, hljóti að vera einhver besti hvíti soulsöngvari sem uppi hefur verið. Be- autiful Vision er stórgóð plata frá manni sem áður hefur sent frá sér nokkur meistara verk, sem allt of fáir hafa viljað vita af. Yazoo - Upstairs At Erics Don’t Go og Only You eru áreiðanlega meðal bestu laga ársins. Vincent Clarke veit hvernig góð popptónlist á að hljóma og víst er að ekki hefur lengi komið fram skemmtilegri söngkona en Moyet. Associates - Sulk Tónlist Associates er hvort tveggja í senn nokkuð seintekin og poppuð. Plata þessi fer fremur þunglamalega af stað en undir lokin gefur að heyra jafn ágæt lög og Party Fears Two og Club Country. Simple Minds - New Gold Dream Simple Minds hafa nú loksins slegið í gegn og var það með Iögunum Promised You A Miracle og Glittering Price. Þessir skosku strákar hafa lengi staðið nálægt stóra vinningnum og það undrar mann ekki að þeir skuli nú loks hafa slegið í gegn, begar hlustað er á New Gold Dream. ABC - Lexicon of Love Nokkrar nýjar góöar popphljómsveitir komu fram á árinu og var ABC þar einna fremst í flokki. Það er mikill glans yfir tónlist þeirra, þótt ekki séu allir á eitt sáttir um gæði hennar. Sumir segja hana bara vellu, aðrir diskó, en ég er þeirrar skoðunar að hér sé um gott og vel unnið þopp að ræða. sÝiiiiiflsir&silii* Mokka: Danski listamaðurinn David Plum, sem jaln- framt er kennari við listaakademíuna í Kaup- mannahöfn, sýnir olíumyndir, teikningar og krítarmyndir. Listasafn ASÍ: Á laugardag opnar sýningin World Press Photo 82, en það er úrval fréttamynda ársins 1982, um 150 talsins. Þetta er farandsýning og er hún nú hér í fyrsta sinn, og stendur hún til 6. febrúar. Norræna húsiö: Á laugardag opna tveir norskir Ijósmyndarar sýningu i kjallarasaí. Mennirnir heita Kjetil Berge og Göran Ohldieck og sýningin heitir Grímur. Þar eru andlitsmyndir, sem sýna fólk eins og það er undir grimunni, sem það setur upp. I anddyri heldur áfram sýning á verkefn- um arkitektanema frá Oslo, en verketni þeirra eru skipulag í Reykjavík. Ásgrímssafn: Vetrarsýning er opin sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 13.30-16. Ókeypis að- gangur. Árbæjarsafn: Opið samkvaemt umtali. Sími 84412 kl. 9-10. Listmunahúsið: Þórður Valdimarsson opnar sína fyrstu einkasýningu á laugardaginn. Djúpið: I kjallarasalnum stendur nú yfir sýning á veggspjöldum eftir þekkta erlenda listamenn og eru þau öll til sölu. Sýningarsalur þessi, sem er undir veitingahúsinu Horninu er opinn kl. 11-23. Listasafn íslands: Myndir i eigu safnsins verða til sýnis út janúar. Satnið er opið þriðjudaga, timmtudaga, laugar- daga og sunnudaga kl. 13.30-16. Nýlistasafnið: Danski myndlistarmaðurinn og Ijóðskáldið Jörgen múrari Hansen sýnir Ijóðverk eða Ijóðmyndir. Einnig sýnir þýska listakonan Dagmar Rhodius myndverk. Sýningunum lýkur 16. janúar. Höggmyndasafn Ásmundar Sveinssonar: Safnið er opið þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga kl. 14-16. Gallen' Langbrók: Langbrókarsýning á keramiki, gleri, tauþrykki og grafík. Sýningin er opin virka daga kl. 12 -18. Skemmtilegir og gífurlega fallegir hlutir. Og ódýrir. Kjarvalsstaðir: Norræna vefjarlistarsýningin heldur áfram í öllu húsinu og stendur hún til 30. janúar. tólllist Bústaðakirkja: Gunnar Kvaran sellóleikari heldur tónleika á sunnudag kl. 20.30. Á efnisskránni eru verk eftir Bach og Hans Werner Henze. leiklnis Þjóöleikhúsið: Föstudagur: Dagleiðin langa inn í nótt eftir O'Neill. Sýning kl. 19.30 Laugardagur: Jómfrú Ragnheiður eftir Guðmund Kamban. Sunnudagur: Garðveisla eftir Guðmund Steinsson. Litla sviðið: Tvíleikur eftir Tom Kempinski. Sýning á sunnudag kl. 20.30. Leikfélag Reykjavíkur Föstudagur: Forsetaheimsóknin eftir Régo og Bruneau. Laugardagur: Skilnaður eftir Kjartan Ragn- arsson. Sunnudagur: Jói eftir Kjartan Ragnarsson. Síðasta sinn. Austurbæjarbió: Hassið hennar mömmu eftir Dario Fo. Sýn- ing á laugardag kl. 23.30. íslenska óperan Töf raf lautan eftir Mozart. Sýningar á laugar- dag og sunnudag kl. 20. Stúdentaleikhúsið: Bent eftir Martin Sherman. Sýning i Tjarnar- bíói á föstudag kl. 21. Leikfélag Akureyrar: Siggi var úti eftir Signýju Pálsdóttur. Sýn- ingar á laugardag og sunnudag kl. 15 og á þriðjudag og fimmtudag kl. 18. Revíuleikhúsið: Karlinn í kassanum eftir Arnold og Bach. Sýningar i Hafnarbíói á sunnudag og fimmtu- dag kl. 20.30. Hér er um að ræða fyrrverandi Garðaleikhúsið, sem hefur nú breytt um nafn og er komið i betra húsnæði. Leikfélag Kópavogs: Gamanleikurinn Hlauptu af þér hornin eftir Neil Simon verður sýndur í Vestmannaeyj- um á föstudag og laugardag. Nánari upþlýs- ingar á staðnum.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.