Helgarpósturinn - 14.01.1983, Side 11

Helgarpósturinn - 14.01.1983, Side 11
11 .Jpfisturinn, Föstudagur 14. janúar 1983 - Gagnrýnendur Helgarpóstsins meta stöðu listgreina á nýliðnu ári og velja helstu viðburði ársins Uppskera bók- menntaársins 1982 F>að er fullsnemmt að ætla sér að gera tæmandi grein fyrir heildaruppskeru bók- menntaársins 1982. Til þess að meta hana þarf meiri fjarlægð við aðaluppskerutím- ann og betra yfirlit yfir útkomnar bækur en unnt er að fá núna. Með þessum fyrirvara verður þó reynt að segja nokkur deili á því helsta sem gerst hefur á þessu sviði og reynt að draga fram nokkur einkenni bókmennt- anna á liðnu ári. Rétt væri að taka fram að einungis er miðað við frumsamin skáld- verk. Ekki liggja ennþá fyrir neinar heildartöl- ur um bókaútgáfu á liðnu ári. Flestum ber þó saman um að útgefnir titlar séu töluvert fleiri en á árinu þar á undan og hef ég heyrt nefnda töluna 30-40% aukningu, en ekki tek ég neina ábyrgð á henni. Einnig hefur því heyrst fleygt að heildarsala bóka sé tölu- ekki áreiðanlegar, en þær gefa engu að síð- ur vísbendingu um eitt af einkennum skáld- verkaútgáfu á síðasta ári. Hér er um það einkenni að ræða að tiltölulega margar frumsmíðar eru á ferðinni og stór hluti þeirra eftir ungt fólk en hinsvegar koma út tiltölulega frá skáldverk eftir eldri og reyndari höfunda, viðurkennda höfunda ef svo má að orði komast. (Innan sviga má skjóta því að, að svo virðist sem margir þeirra hafi gefist upp á alvarlegum skáld- skap og snúið sér að annarskonar bók- menntaiðju sem meira er í takt við kröfur markaðarins.) Frumsmíðar Ef litið er á þær frumsmíðar sem fram komu á síðasta ári kennir þar margra grasa. Fyrst ætla ég þar að nefna tvær sögur eftir 'j$ó/wnenn/t\ eftir Gunnlaug Astgeirssor. og Sigurð Svavarsson vert minni en áður, jafnvel svo að nemi tugum prósenta. Þetta eru slæm tíðindi ef rétt er, en það á eftir að koma betur í ljós. Mér sýnist að meginfjölgun íslenskra bóka eigi sér stað á öðrum sviðum en fagur- bókmenntum. Er þar fyrst og fremst um að ræða bækur sem stundum eru kallaðar skyndisölubækur. Eru það bækur sem samdar eru og gefnar út í því augnamiði að seljast í einum rykk í krafti auglýsinga og umtals. Margar þessar bækur eru einhvers- konar afbrigði blaðamennsku, augnabliks- bækur sem ekki er fyrirhugað lengra líf. í fljótu bragði virðist mér að frumsamin prósaverk séu nærri því að vera fimmtíu á síðasta ári. Er hér reiknað með skáldsögum og smásögum. Af þessum verkum lætur nærri að tæplega tuttugu séu frumsmíðar eðau.þ.b. 40%. Þessar tölur eru að vísu alls unga höfunda sem báðir hafa áður getið sér gott orð sem ljóðskáld en það eru Riddarar hringstigans eftir Einar Má Guðmundsson og Vinur vors og blóma eftir Anton Helga Jónsson. Efnislega eru þessar sögur ólíkar. Sú fyrri er byggð á bernskuminningum höf undar úr Reykjavíkfrá því fyrir u.þ.b. tutt- ugu árum og hefur að markmiði að lýsa veröld 6 ára stráka á þeim tíma og því hvernig alvara lífsins heldur innreið sína í líf þeirra. Seinni sagan er hinsvegar samtíma- saga úr Reykjavík sem lýsir ráðvilltum og tilfinningalega vanþroskuðum manni á fert- ugsaldri sem á erfitt með að finna sér stað í tilverunni. Sögurnar eiga hinsvegar sam- eiginlegt að höfundar þeirra leggja sig veru- lega fram um að skrifa vandaðan og lifandi stíl og njóta þeir báðir þar ljóðagerðar sinn- ar. Að því er tekur til þessa þáttar, meðferðar stíls og úrvinnslu efnis, bera sögur þessar af öðrum eftir unga höfunda. f þessu sambandi mætti einnig nefna ágæta sögu Páls Pálssonar um Hallærisplanið. Hún er reyndar ekki eins veigamikil og hin- ar en höfundi tekst vel að skapa andrúms- loft nútímaunglinga og ræður stíllinn þar ekki litlu. Tveir höfundar sem nú koma úr nokkuð óvæntri átt inn í rithöfundastétt hafa vakið nokkra athygli. Eru það verk Jóns Óttars Ragnarssonar Strengjabrúður og Jóns Orms Halldórssonar Spámaður í föður- landi. Með nokkurri einföldun má segja að þeir sitji báðir uppi með harla gott söguefni en takist ekki að vinna úr því sem skyldi. Jón Óttar vegna þess að hann sker of mikið niður, skrifar of knappan og harðan stíl til þess að ná til lesenda en Jón Ormur vegna þess að hann sker ekki nóg, er of langorður og endurtekningasamur í stílnum. I þessu kristallast sá vandi sem herjar á marga unga höfunda, og ekki bara unga, en það er að þeir gefa sér ekki tíma eða hafa ekki tæki- færi til (hvað sem hæfileikum líður) að vinna stíl verka sinna eins og nauðsyn krefur. Tveir höfundar senda frá sér frum- smíðar, sem eru athyglisverðar, eru tengdir bókmenntum fyrir. Eru það Árni Berg- mann ritstjóri og gagnrýnandi og Álfrún Gunnlaugsdóttir dósent í almennum bók- menntum við HÍ. Skáldsaga Árna Berg- mann, Geirfuglar, gerist í þorpi suður með sjó og er að einhverju leyti byggð á minn- ingum höfundar og bernskureynslu, segir sumpart þroskasögu og frá lífi í sjávarþorpi um miðja öldina en fjallar urn leið um víg- búnaðarkapphlaup og hugsanleg örlög Is- lendinga vegna þess. Álfrún sendir hinsveg- ar frá sér smásagnasafn, Af manna völdum. í því eru níu sögur sem eru athyglisverðar bæði vegna efnisins, en þær fjalla allar með nokkrum hætti um fólk sem er á flótta í tilverunni og ekki síður vegna forms og efn- istaka sem eru óvenjuleg og vand- virknisleg. Annað smásagnasafn sem er vel unnið og athyglisvert eru Andvökuskýrslurnar eftir Birgi Engilberts, sem eru frumraun hans í sagnagerð, en þar birtist óvenju svört lífssýn. Yngri höfundar Fjórir höfundar sem vöktu athygli á síð- asta áratug með sínum fyrstu bókum senda frá sér bækur á síðasta ári. Eru það Egill Egilsson, Olga Guðrún Árnadóttir, Auður Haralds og Pétur Gunnarsson. Bækur þeirra Egils og Olgu Guðrúnar eru báðar einskonar skýrslusögur úr raun- ve'ruleikanum. Saga Egils, Pabbadrengir, fjallar um reynslu hjóna af að ganga með og eignast tvíbura. í henni eru ekki sérlega mikil skáldleg tilþrif en höfundur lýsir þess- ari reynslu á nokkuð ágengan hátt og leiðir þá sem ekki þekkja inn í nýja reynslu og rifjar upp fyrir þeim sem þekkja hluti sem þeim hættir við að gleyma. Saga Olgu Guðrúnar fjallar um barn sem er fórnarlamb í skilnaðarmáli. Tekur hún mjög eindregið málstað barnsins og sýnir á áhrifaríkan hátt réttleysi þess og virðingar- leysi kerfisins fyrir tilfinningum þess. Sagan er í nokkuð hefðbundnu episku formi en efni þess er nýlunda og er sagan að mínu áliti vel unnin, einkum vegna meðferðar höfundar á raunverulegum gögnum í slíku máli. Auður Haralds sendir frá sér söguna Hlustið þér á Mózart? sem fjallar um hug- farir vel stæðrar heimangöngbkonu í Laugarásnum. f sögunni eru nokkrir góðir sprettir, en hún nær ekki að hanga saman sem samfelld heild eða mannlýsing og bætir litlu við hróður höfundar. Pétur Gunnarsson sendi frá sér þriðju bókina um Andra og er hann nú á mennta- skólaaldri. Andri gengur með þá grillu að hann sé skáld og lifir að verulegu leyti í hugmyndaheimi verka Halldórs Laxness og Hemmingways. Þessi bók er að mínu áliti ein besta bókin á síðasta ári og er hrein unun að lesa hana. Stíll Péturs er hér ennþá vandaðri og betur unninn en í fyrri sögum, hófstilltari en um leið agaðri, fullur af skír- skotunum í allar áttir, en þó einkum til verka höfundanna sem að framan voru nefndir. Get ég með góðri samvisku tekið undir með Heimi Pálssyni sem segir í um- sögn um bókina hér í blaðinu að Pétur hafi García Marquez og Heinesen Þýdd skáldrit Árið 1982 var svipað árunum næstu á undan hvað snertir útgáfu þýddra skáld- verka; þó er ég ekki frá því að afrakstrurinn sé drýgri nú en oft áður. Mörg þessara verka kaffærðust algerlega í flóðinu mikla og því líklegt að þau hafi farið fram hjá mörgum. Erlendar afþreyingarbókmenntir flæddu yfir eins og venjulega og þeim höf- undum fjölgar stöðugt sem öðlast fastan sess á íslenskum bókamarkaði og eru að verða hefðarhelgaður liður í jólahaldi ís- lendinga. Alistair MacLean varð söluhæst- ur að þessu sinni eins og svo oft áður. En nú skal vikið að þeim verkum sem undirritaður telur verulegan feng í. Kiassískir höfundar og verk: Það hefur lengi verið undirrituðum um- hugsunarefni hversu lítið kemur á markað af verkum sígildra höfunda erlendra. Ástæðan er e.t.v. sú að markaðurinn sé of lítill en erfitt er að leggja trúnað á slíkt, nema goðsagan um bókmenntaþjóðina miklu sé uppspuni frá rótum? Hægt væri að telja upp tugi rithöfunda og verka sem hvarvetna eru fáanlegir nema hér. Ég læt mér nægja að nefna Rússana frægu, Gorkí, Dostoyevskí, Tolstoj. Enginh þessara höf- unda er fáanlegur á íslensku. Er það virki- lega vegna þess að enginn hefur áhuga? Er staðreyndin kannski einfaldlega sú að þeir standast ekki samanburð við MacLean, Bo- dil Forsberg, Theresu Charles og Ken Fol- lett?! En þess skal getið sem gott er og víst hafa nokkrir höfundar sem talist geta sígildir fengið að fljóta með að þessu sinni. Þar vil ég nefna: James Joyce og smásagnasafn hans í Dyflinni sem Sigurður A. Magnús- son þýddi, Thomas Mann og skáldsöguna frábæru um Felix Krull, Simone de Beauvoir með skáldsöguna Allir menn eru dauðlegir. Mikill fengur er aðJtessum bókum. Dublin- ers er aðgengilegasta verk James Joyce og reyndar eru þeir margir sem komast aldrei lengra og leggja ekki í stórvirkin Ulysses og Finnegans Wake. Simone de Beauvoir er einn virtasti fulltrúi frönsku tilvistarstefn- unnar og góðkunningi Sartres. Allir menn eru dauðlegir er heppilegt verk fyrir þá sem vilja kynnast existensíalismanum. Nýir höfundar úr Norðrinu Norðurlandabókmenntir eiga mun auð- veldar uppdráttar á íslandi en aðrar bók- menntir og er ekkert nema gott unr það að segja. Á þessu ári bættist enn í það safn og langar mig að geta nokkurra nýrra nafna í þeim hópi. Svíinn Sven Delblanc hlaut bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs á síðasta ári fyrir Samúels bók. Þetta er forvitnileg ætt- arsaga sem engan svíkur. Finnlands-sænski höfundurinn Henrik Tikkanen lýsir eigin bernsku í sögunni Brennuvegur 5. Þetta eru all hrikalegar endurminningar sem varla GARCÍA Marquez - Heinesen - í Svörtu- Frásögn um marg- kötlum eitt mesta boðað morð ómiss- stórvirki meistar- andi iesning- ans- láta nokkurn ósnortinn með öllu. Henrik þekkja íslenskir lesendur áður sem eigin- manninn er Márta Tikkanen orti um í Ást- arsögu aldarinnar, þar var honum í engu hlíft. Þegar Henrik hafði lesið handritið að bók konu sinnar, sagði hann með tárin í augunum: „Ég er glaður yfir því að vera tilefni stórfenglegs listaverks!" Danska skáldkonan Martha Cristensen er mjög vin- sæl í Danmörku um þessar mundir. Frídag- ur frú Larsen er fyrsta verk hennar á ís- lensku, einlæg og góð raunsæissaga. Að lokum langar mig að geta Svíans sem stend- ur á bak við höfundarnafnið Bo Baldersorh Krimmar hans eru fullir af kímni og jafn- framt mjög spennandi. Ráðherrann og dauðinn er geysilega skemmtileg saga, upp- lögð „nattebordslæsning". Ýmislegt annaö bitastætt: { stuttum pistli hlýtur margt að fara for- görðum. í framhjáhlaupi langar mig að geta tveggja ágætra verka. Sláturhús 5 eftir Bandaríkjamanninn Kurt Vonnegut hefur aflað höfundi sínum mikilla vinsælda austan hafs sem vestan, enda prýðisgott verk. Eftir Perúmanninn Manúel Scorza kom út bókin Hinn ósýnilegi. Þessi bók er úr sama sagnaflokki og sagan Rancas-þorp á heljarþröm sem kom út hjá löunni 1980. Hinn ósýnilegi byggir á"sönnum atburðum, bændauppreisn árið 1962,sem leidd var af manni sem hét Garabombo. Þetta er mjög frambærilegt verk og alltaf fengur í verkum frá S-Ameríku. Rúsínur í pyisuenda: Tvö verk úr nýafstöðnu bókaflóði veittu mér meira en nokkur önnur enda höfund- arnir báðir í miklu uppáhaldi. Þar á ég við Frásögn um margboðað morð eftir Nóbels- höfundinn Gabríel Garcia Marques og í Svörtukötlum eftir Færeyinginn William Heinesen. Fyrrnefnda verkið hef ég þegar tekið fyrir í ritdómi og ausið lofi, hef enda litlu við það að bæta. Þá bók verðið þið að lesa! í Svörtukötlum (Den sorte gryte) er sjötta bókin í sagnasafni Heinesens í þýð- ingu Þorgeirs Þorgeirssonar. Þessi bók er að líkindum eitt mesta stórvirki sagna- meistarans og á þar að auki sérstakt erindi við íslendinga. Þar segir frá stríðsárunum, sigl- ingum færeyskra sjómanna með fisk milli Islands og Bretlands. Á meðan sjómenn- irnir hættu lífi sínu sátu stríðsgróðamenn- irnir óhultir í landi og rökuðu saman fé. Þetta er nákvæm lýsing á lífinu í Svörtukötl- um, mannmörg saga sem greinir frá óhemju fjölbreyttu lífi þegar „styrjöldin andskot- aðist, tryllingsdagar fólsku og eyðileggingar voru runnir yfir heiminn“(22). Húman- istinn Heinesen er alvitur í sögunni, skyggnist í hug þeirra sem best henta honum hverju sinni og gerir þá sem minna mega sín að málpípum sínum. í Svörtukötl- um er heillandi skáldverk sem allir hafa gott af að lesa.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.