Helgarpósturinn - 14.01.1983, Blaðsíða 12

Helgarpósturinn - 14.01.1983, Blaðsíða 12
12 í desember síðastliðnum var sett nýtt heimsmet í tónleikahaldi í Tónabæ. Þá léku 46 hljómsveitir dögum saman á hljóðfæri sín. Ein tók við af annarri, þannig að aldrei slitnaði keðjan. Auðvitað var þetta óttalega tilgangslaus heimsmetstilraun á yfirborðinu. Enda var tilgangurinn ekki eingöngu að spila lengi. Þessir tónleikar voru mikil lyftistöng fyrir SATT - Samtök alþýðutónskálda og tónlistarmanna - sem að þeim stóðu. Á þeim gekk fjöldi manns í samtökin og tónlistarmennirnir fundu áþreifanlega fyrir þeim. SATT var semsagt ekki bara nafnið eitt. Föstudagur 14, janúar 1983 Jpi$sturinn Á sama tíma stóð SATT síðan fyrir „Músíktilraunum“ í Tónabæ og á þeim tónleikum léku tugir hljómsveita einnig. Og allt var þetta í tengslum við byggingarhappdrætti samtakanna, sem dregið verður í 23. febrúar næstkomandi. Aðalmaðurinn í SATT hefur frá upphafi verið Jóhann G. Jóhannsson. Það var því kannski ekki undarlegt að honum yrði tíðrætt um þau samtök þegar Helgarpósturinn hitti hann í Hafnarfirðinum, þar sem hann skröltir nú einn í gömlu einbýlishúsi.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.