Helgarpósturinn - 14.01.1983, Qupperneq 17
^piSsturinn.- Föstudagur 14. janúar 1983
Bókmenntir 15
árum.
En nú bregður svo við að stærsti hluti
þessara bóka eru safnverk eftir ýmsa góða
menn og konur sem lagt hafa stund á ljóða-
gerð fyrir skrifborðsskúffuna um ævina en
finnst nú kominn tími til að gefa þetta góss
út. í þessum bókum er margt haganlega
gert, en yfirleitt skortir höfunda skáldlegan
metnað og listræna ögun sem til þarf svo að
úr verði lífvænlegur skáldskapur.
Fram undir þetta hefur hlutur yngstu
skálda verið stærstur ef titlafjöldinn er tal-
inn og er flest af því fjölritaðar útgáfur. Mér
virðist að þessum útgáfum hafi fækkað stór-
lega og er illt til þess að vita, þó þessi verk
hafi ekki alltaf verið snilldarverk er oft í
þeim að finna góðan vísi einhvers sem hefur
vaxtarmöguleika. En því miður hefur fjöl-
ritaútgáfan á síðasta ári ekki skilað veru-
lega eftirtektarverðum verkum.
Ef litíð er til útgáfu hinna hefðbundnu
forlaga sýnist mér að marktækar ljóðabæk-
ur séu ekki sérlega margar, en trúlega eru
þær ekki að ráði færri en á undanförnum
árum.
Af frumsmíðum á sviði ljóðagerðar
langar mig að nefna tvær bækur. Eru það
Þriggja orða nafn eftir ísak Harðarson og
Þegar þú ert ekki eftir Guðrúnu Svövu
Svavarsdóttur. Bók ísaks Harðarsonar
hlaut í vor viðurkenningu í bókmenntasam-
keppni Almenna bókafélagsins. Er hér á
ferðinni óvenjulega viðamikil og efnismikil
fyrsta ljóðabók ungs höfundar sem lýsir
vandvirkni og fjölhæfni í meðferð ljóð-
formsins. í bókinni er markvisst fjallað um
leit ungs manns að lífsgildum og tilgangi í
lífinu.
Bók Guðrúnar Svövu er óvenjufallegt
listaverk þar sem orðlist og myndlist fara
saman í einlægni og nærgöngulli tilfinninga-
tjáningu.
Af þeim ljóðskáldum sem vöktu athygli á
sér á síðasta áratug er varla nema einn sem
sendi frá sér góða ljóðabók á síðasta ári. En
sú bók stendur fyllilega fyrir sínu og er
reyndar ein besta ljóðabókin frá árinu. Er
hér um að ræða Ljóð vega gerð eftir Sigurð
Pálsson. Þessi bók er tvímælalaust besta
ljóðabók Sigurðar og staðfestir hann með
henni að hann er í hópi fremstu skálda
þjóðarinnar.
Þorsteinn frá Hamri gaf út áttundu ljóða-
bók sína Spjótalög á spegil. Ljóðin eru í
beinu framhaldi af fyrri ljóðum Þorsteins,
án þess þó að um neina stöðnun sé að ræða í
yrkingum hans. í þessari bók eru ljóðin enn
samþjappaðri en áður, en um leið dýpri og
skarpari. Spjótalög á spegil er mjög vönduð
og vel unnin bók, agaður skáldskapur af
besta tagi.
Svartur hestur í myrkrinu heitir fimmta
ljóðabók Nínu Bjarkar Árnadóttur og er
hún býsna góð, einkum fyrri hluti bókar-
innar, en í honum eru ljóð sem borin eru
uppi af fjörugu ímyndurnarafli og mynd-
auðgi en eru öguð í fremur knappt form og
láta ekki allt uppi við fyrstu sýn. í seinni
hlutanum eru fremur „opin ljóð“ sem lýsa
lífsreynslu kvenna sem á vegi höfundar hafa
orðið.
Önnur kona, Norma Samúelsdóttir,yrkir
einnig „opin lífsreynsluljóð“ úr eigin
reynslu í bókinni Tréð fyrir utan gluggann
minn. Er ýmislegt haganlega gert í þeirri
bók en ekki finnst mér ljóðin þar rista sér-
lega djúpt sem skáldskapur.
Ljóðabók Erlends Jónssonar um Heitu
árin er ljóðaflokkur byggður á endurminn-
ingum frá stríðsárunum. Ljóðin í þessum
flokki eru opin og fremur átakalítil. í þeim
er að finna nokkrar fallegar og haganlega
gerðar myndir, en að mínu áliti er textinn
eins og oft vill verða í opnum ljóðum, ein-
um of laus í reipunum.
Ég held að ljóðaunnendur megi vel una
við uppskeru síðasta árs. Því það er ekki
alltaf sem hægt er að halda því fram með
góðri samvisku að rúmlega hálfur tugur
verulega góðra ljóðabóka hafi komið út á
síðasta ári.
G.Ást.
P.S. í næsta blaði kemur grein um
barnabókaútgáfu á síðasta ári. G.Ást.
Vettvangur 21
Alþýðublaðsins. Á meðan talaði
Jón Baldvin við blaðamann Tím-
ans og sagðist vinna þetta 16 síðna
blað algerlega einn og óstuddur, og
þar með hefði hann nú reyndar
slegið heimsmet. (Sjá Tímann 15.
ágúst 1982). Látum nú svo vera.
En þessi ósannindaáróður í
flokksþingsblaðinu nægði Jóni
Baldvin ekki. Eftir flokksþingið
sannfrétti ég, að Jón Baldvin hefði
í hyggju að stefna mér, en Guð-
mundur Árni hefði viljað fá hann
ofan af því. En fyrir hvað og til
hvers vildi Jón stefna mér? Sakar-
efni hefðu ekki einu sinni verið
nein, þótt ósannindin í hinni um-
ræddu athugasemd hefðu verið
sönn.Þetta eetur hvaða lögfræðing-
ur sem er vottað. Grein mfn var
þegar birt, efni hennar var full-
komlega löglegt, og hún hafði ekki
valdið blaðinu fjárhagslegu tjóni.
Jón Baldvin vildi í reiði sinni ein-
faldlega hefna sín á mér.
Ég hlýt að vona, að Jón Baldvin
Hannibalsson og Guðmundur Árni
sjái að sér. Mér þykir óneitanlega
leitt að sjá, hvernig Guðmundur
hefur látið hafa sig út í það að ger-
ast leppur Jóns í þessu máli. Ég tel
viðeigandi að lokum að óska hin-
um nýja ritstjóra allra heilla og
láta í ljósi þá von, að störf hans
verði jafnaðarstefnunni og ís-
lenskri alþýðu til framdráttar.
14. desember 1982
Kjartan Ottósson
AUp'ÝDU
SKOLIIMINI
í REYKJAVÍK
HVERFISGÖTU106A 3HÆÐ SÍMI29244
STJÓRNMÁLANÁMSKEIÐ
Almennt námskeið um jafnaðarstefnuna, Alþýðuflokkinn og
starf hans fyrr og nú.
Þjóðkunnir stjórnmálamenn munu flytja erindi og lögð verð-
ur áherzla á að kryfja viðfangsefni til mergjar. Námskeiðið
fer fram 22. og 23. janúar kl. 10-17. Leiðbeinandi verður
Jón Baldvin Hannibalsson, alþm. Innritun fer fram í síma
29244 til 22. jan. nk.
LEIKLISTARNÁMSKEIÐ
Almennt námskeið þar sem kennd verða grundvallaratriði
leikrænnar tjáningar og stefnt að myndun leikhóps í lok
þess, er síðan setji leikrit á laggirnar í samvinnu við
leiðbeinanda. Námskeiðið hefst í byrjun febrúar. Tímasetn-
ing verður ákveðin í samráði við þátttakendur. Leiðbeinandi
verður þjóðkunnur leikari og leikstjóri Innritun stendur yfir til
jan.loka í síma: 29244.
Tölvuritari:
Fasteignamat ríkisins óskar aö ráöa tölvu-
ritara, sem gæti hafið störf sem fyrst.
Skriflegar umsóknir er greini menntun og
fyrri störf sendist stofnuninni fyrir 26. þ.m.
Upplýsingar veittar næstu daga á milli kl.
13:00 og 15:00 í síma 84648.
SFasteignamal ríkisins
UTSOLURNAR
STANDAST
EKKI
SAMKEPPNI
q jð. Föstud. kl. 10-22_
P ‘ Laugard. kl. 10-19
LAGERINN
Smiðjuvegi 54 sími 79900.
Nú er tíminn
fyrir Multi-tabs
-tilöryggis!
Hver tafla inniheldur 11 mismunandi fjörefni,
járn og önnur steinefni.
Fæst aöeins í lyfjabúðum.
G’Olafsson h/f
Grensásvegi 8,
125 Reykjavik