Helgarpósturinn - 14.01.1983, Síða 24
24
Föstudagur 14. janúar 1983 sípésturinn.
Prófkjörsbarátta krata í
/ J Reykjaneskjördæmi fer senn
að hefjast og er framboðs-
frestur útrunninn. Formaður
flokksins, Kjartan Jóhannsson,
Karl Steinar Guðnason alþingis-
maður, Gunnlaugur Stefánsson,
fyrrum alþingismaður, og Ásgeir
Jóhannesson, forstjóri úr Kópa-
vogi, gefa kost á sér í öll fjögur
fyrstu sætin en Kristín Tryggva-
dóttir, starfsmaður fræðsludeildar
BSRB,í 2. - 4. sætið. Kjartan er
talinn nokkuð öruggur í fyrsta sæt-
ið en hörku barátta getur orðið
milli hinna tveggja um 2. sætið.
Vígi Karls Steinars hefur löngum
staðið traust á Suðurnesjum en
Gunnlaugur hyggst nú sækja að því
í gegnum tengsl sín við sjómenn
þar um slóðir en Gunnlaugur hefur
meira og minna stundað sjó-
mennsku á togurum frá því að hann
féll af þingi 1979, ásamt því sem
hann hefur lokið guðfræðiprófi frá
Háskólanum. Heimavöllur Gunn-
laugs er Hafnarfjörður, líkt og
formannsins. Ásgeir er hins vegar
með höfuðbækistöðvar sínar í
Kópavoginum, þar sem Alþýðu-
flokkurinn hefur sótt stöðugt í sig
veðrið á síðustu árum, og kemur að
auki vafalaust til með að njóta for-
ustustarfs síns og frumkvæðis fyrir
Erum að rýma til
fyrir nýjum plötum.
Magnað úrval: Reggi,
rokk, fjútjúr,
nýrómantík, ska og
ég veit ekki hvað
og hvað.
Kond’ í STUÐ, þú
finnur eitthvaö fyrir þig!
Laugavegi20 Sími27670
BÍLALEIGA
Mesta úrvalið.
Besta þjónustan.
Skeifan 9, 108 Reykjavik s. 91-86915
Tryggvabraut 14, 600 Akureyri
s. 96-23515
byggingu dvalarheimilis aldraðra
þar í bæ, sem reist hefur verið með
frjálsum framlögum bæjarbúa að
meira og minna leyti. Sem sagt
hörkuslagur krata í þessu kjör-
dæmi...
Vangaveltur eru uppi urn það
{ J í íslenskum kúltúrheimi hvar
y Svein Einarsson, fráfarandi
þjóðleikhússtjóra,beri niður þegar
starfi hans hjá Þjóðleikhúsinu lýk-
ur. Er mönnum starsýnt á að nú eru
tvær yfirmannsstöður lausar hjá
Norrænu menningarmálastofnun-
rnni í Kaupmannahöfn, það er for-
stjórastaðan og deildarstjórastaða,
og hefur Sveinn umsvifalaust verið
orðaður við aðra hvora þeirra...
^«4 Við heyrum að Ellert B.
/“ JSchram muni láta af ritstjóra-
starfi hjá DV hinn 15. febrúar
nk. og taka þá til við að undirbúa
endurkomu sína í sali Alþingis.
Reykjaprentsparturinn af Frjálsri
fjölmiðlun, útgáfufyrirtæki DV, á
að fá ritstjórastól Ellerts í sinn hlut
og þegar eru menn farnir að brjóta
heilann um það hver verði dubb-
aður upp í ritstjóra. Ýmsir eru
nefndir, svo sem Markús Örn Ant-
onsson, sem þykir þó ólíklegur
vegna anna við störf sín fyrir borg-
arstjórnarmeirihlutann, Geir Ha-
arde, hagfræðingur hjá Seðlabank-
anum, formaður SUS um þessar
mundir og fyrrum blaðamaður á
Mogganum, og Pétur J. Eiríksson,
fyrrum framkvæmdastjóri Frjáls
framtaks (en einnig með blaða-
mannsskólun af Mogganum) og
núverandi allsherjar „troublesho-
oter“ Flugleiða. Einnig Haraldur
Blöndal lögfræðingur, sem
löngum hefur verið þeim
Reykjaprentsmönnum innan
handar. Nema sjálfan stjórnar-
formann Reykjaprents, Indriða G.
Þorsteinsson, langi aftur í rit-
stjórastól sem er þó talið heldur
ólíklegt...
í framhaldi af þessu má geta
/ Jum þá tilgátu, að Jónas Guð-
S mundsson stýrimaður verði
ritstjóri blaðsins en hann er þegar
farinn að skrifa í það-skrifaði m.a.
hressilegt viðtal við sjálfan sig um
brottför sína af Tímanum. Þar hélt
Jónas því fram að brottför sín væri
af pólitískum rótum runnin en
heimildarmenn okkar fullyrða, að
ástæðan hafi einfaldlega verið sú
að Jónas hafi ekki viljað fallast á
breytt vinnufyrirkomulag og hafn-
að ýmsum kostum, sem honum
hafi verið boðnir. Auk þess hafi
blaðstjórnin og ritstjórnin verið
hundleiðar á skrifum hans...
V
■f
Við nefndum nokkra hugsan-
lega kandídata um embætti
flugmálastjóra í síðasta blaði.
Nú bætist einn í hópinn: Gunnar
Finnsson heitir hann og hefur til
skammstímastarfaðhjá ICAO, al-
þjóða flugmálastofnuninni...
Um prófkjör Frammaranna í
höfuðborginni heyrum við
' annars að eftirmál verði þau
helst eftir það prófkjör, að
Steinunn Finnbogadóttir muni lýsa
því yfir að hún gefi ekki kost á sér á
framboðslista flokksins í Reykja-
vík og beri við bæði óánægju með
persónulegan árangur sinn í próf-
kjörinu og með árangur kvenna al-
mennt...
r»-T Enn um Framsókn. í IJafnar-
/ J firði verður hart barist um
S helgina í skoðanakönnun á
kjördæmisráðsfundi flokksins. Par
er Jóhann Einvarðsson, núverandi
þingmaður kjördæmisins, sjálf-
kjörinn í fyrsta sætið en hins vegar
verður hörkubarátta um 2. sætið.
Talið var til skamms tíma að Mark-
ús Á. Einarsson, sem var í öðru
sætinu síðast, myndi ekki gefa kost
á sér á ný en hins vegar voru bæði
Helgi H. Jónsson fréttamaður og
Arnþrúður Karlsdóttir komin á
hörkuferð. Öllum á óvart dembdi
Markús sér svo aftur í baráttuna
rétt áður en framboðsfrestur rann
út og það er talið munu hafa þau
áhrif að Arnþrúður detti út úr
myndinni í slag þeirra Markúsar og
Helga H.,en enginn treystir sér
með góðu móti til að spá um hvort
þeirra hefur sigur að lokum. Helgi
Nú er rétti tíminn til að fá sér:
Litlu vogina með stóru möguleikana
Björn í Kjötbúð Suðurvers vissi hvað hann gerði, er hann valdi sér Ishida
Cosmic-tölvu og
við bendum sérstaklega á eftirfarandi eiginleika:
★ Vatnsvariö takkaborö .................. =
★ Vog og prentari sambyggt .............. =
★ Hægt aö setja inn 5 föst einingaverð .... =
★ Margföldun og samlagning .............. =
★ Prentun meö föstu heildarveröi ........ =
★ Sjálfvirk eöa handvirk prentun ........ =
★ Fljótlegt aö skipta um miöarúllu
★ Hægt aö taka út summu (tótal) alls
sem vigtaö er yfir daginn eöa
hvenær sem er
★ Tvær dagsetningar, pökkunardagur og síðasti söludagur.
Nýjar og eldri pantanir óskast staðfestar
Minni bilanatíöni
Minni bilanatíöni
Fljótari afgreiösla
Fljótari afgreiösla
Fljótari afgreiösla
Hentar hvort sem er
viö afgreiöslu eöa
viö pökkun, bakatil
í verslunum.
Þessir eiginleikar hafa í för
með sér að Ishida Cosmic
passar jafnt fyrir uppvigtun og
afgreiðslu í stórmörkuðum
sem í smærri verslunum og
viö verksmiðjupökkun.
sjávarfiskur
'f
MELABRAUT17 HAFNARFIRÐI S. 51779
ÞÖKKUM VIDSKIPTIN
rvl I
Vörumarkaðunnn hl.afrn
HAGKAUP
tfOGOtÍER
35390
1
Jlí
MATVÖRUMARKAÐU R
^KJÖRBÚÐIR
$ K.S.K. GRINDAVÍK
Það er komin 5 ára reynsla af
ISHIDA — tölvuvogum
og ekki síðri reynsla af
þjónustu PlnsÚMI
ISHIDA tölvuvogir
_. . r _ NÁKVÆMNI — HRADI — ÓRYGGI
AUar gerðir töivuvoga fyrir verksmiðjur og verslanii
NÁKVÆMNI — HRADI — ÖRYGGI
Plmtnskr Sími: 82655
hefur þó töluvert forskot í kosninga
starfinu ogþaðgætinýsthonum...
Á borði ríkissaksóknara
/ i liggur síðan uni jól rannsókn
Rannsóknarlögreglu ríkisins á
brunanunt í Heydalakirkju 17. júní
í sumar. Rannsóknin mun ekki
hafa leitt óyggjandi sönnur á orsök
brunans en eins og menn muna var
þann sama dag handtekinn maður í
Heydölum og hann grunaður um
að hafa kveikt í kirkjunni. Maður
þessi er Helgi Hóseasson trésmiður,
sem urn langt árabil hefur barist
fyrir ógildingu á skírnarsáttmála
sínum, og notað til þess ýmsar
harla óvenjulegar aðferðir. Yfir-
heyrslur yfir Helga voru tilgangs-
lausar, því hann neitar alfarið að
svara spurningum lögreglumanna
og notfærir sér út í æsar rétt sinn til
að svara ekki spurningunum. Ekki
er talið víst, að um framhaldsrann-
sókn á málinu verði að ræða - né
heldur nokkurt sérstakt annað
framhald.«'
Helgarpósturinn
hækkar úr 15 krónum
í 20 krónur frá og með
þessu tölublaði.