Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 18.02.1983, Qupperneq 4

Helgarpósturinn - 18.02.1983, Qupperneq 4
4 Föstudagur 18. febrúar 1983 -pffi%turinn KONUR SEM ELSÍ Hommar og lesbíur - samkynhneigt fólk - er minnihluta- hópur á íslandi á leið út úr myrkrinu. Samtök þeirra, Samtök ’78, hafa í nokkur ár barist fyrir hagsmunamálum félaganna og vöktu á sér verulega athygli í vetur þegar efnt var til aðgerða við Alþingishúsið. Þar var fullyrt á borðum og kröfuspjöldum, að fjölmargir einstaklingar, sem hneigjast til sama kyns, séu enn „í felum“. Vaxandi umræða um þessi málefni hér á undanförnum árum hefur opnað augu æ fleiri fyrir því, að svokallaðir „homosexu- alistar" eru ekki endilega kynferðislega brenglaðir ruglukoll- ar, heldur venjulegt fólk. í nýjasta hefti blaðsins „Úr felum“, sem samtök homosexualista gefa út, er fullyrt að í öllum starfsgreinum og á flestum vinnustöðum séu einstaklingar, sem hafi uppgötvað að eðii þeirra sé annað en ráð sé fyrir gert í samfélaginu. Og vafalaust er það rétt, sem haldið er fram á sama vettvangi, að samkynhneigt fólk hafi alitaf verið til á íslandi - ekkert síður en úti í hinum stóra heimi. Fram til þessa hafa það einkum verið karlmennirnir, hommarnir, sem hafa borið hitann og þungann af baráttu homosexualista. I dag verður breyting á með viðtölum Helgarpóstsins við fjórar konur, sem eru yfirlýstar „lesbíur" - jafnvel þótt þær kjósi ekki allar að nota þau orð. Tvær þeirra brjóta ísinn til fulls og koma fram undir fullu nafni. Hinar tvær kjósa að láta ekki nafna sinna getið - þau nöfn, sem þær ganga undir í viðtölunum hér á opnunni, eru skáldverk blaðamanns. (ti\ vinstri) og T,ár Þungamiðjan er í tilfinningasambandinu - segja Lára og Lilja, sem hafa lifað saman i þrjú ár Það byrjaði allt í tíma í trúarbragðasögu í Menntaskólamim við Sund fyrir þremur árum. Kennarinn var að tala um egypsku guðina og lét orð falla íþá átt, að fólk þar um slóðir hefði trúað á alla skapaða hluti, mögulega og ómögulega, meira að segja pöddur og önnur skorkvikindi og stöðugt gengið með sópa á undan sér. Tvær stúlkur í bekknum skelltu upp úr. Þœr horfðust augnablik í augu - og fóru saman í kaffi að tímanum loknum. Þœr urðu samstundis góðar vinkonur og um sumarið fóru þœr að búa saman í litlu bakhúsi í austurborginni. í sumar hafa þœr Lára Marteinsdóttir og Lilja Steingrímsdóttir búið sarnan í þrjú ár - jafnlengi hafa þœr viðurkennt sjálfar sig sem lesbíur. Hinar fyrstu á íslandi sem það viðurkenna opinberlega, eins og gert er í þessum línum. Það var gaman að koma í heimsókn tii þeirra. Það var þægileg stemmning - eins og hjá hverjum öðrum skólastúlkum að sjá, bækur um margvísleg málefni í hillum (tals- vert bar á kvennabókmenntum), plata með Grace Jones á plötuspilaranum og þær buðu upp á rótsterkt expressokaffi, sem hélt okkur vakandi fram eftir nóttu. Píanó stendur á gólfinu miðju, „enda er þetta menningar- heimili," sagði Lára. En hvenær áttuðu þær sig á því, að þær höfðu kynhneigð hvor til annarrar? „Það var eiginlega um leið og við kynnt- umst," sagði Lilja. Hún erárinu eldri, verður 23 ára í ár, og vinnur hálfan daginn á skrif- stofu. „Og þó," bætti hún við. „Það var nátt- úrlega annað að segja hlutinn en að hafa óljósar tilfinningar, sem maður þekkir ekki. Möguleikinn á aðég, konan, gæti elskað aðra konu, var alla tíð mjög óljós. Þangað til... Það er nefnilega þannig, að manni er rnjög óljúft að skynja, að maðurætlar ekki aðfeta í fótspor allra hinna. Þetta var eilíft ströggl - og þessi viðurkenning mín kom ekki eins og uppljómun einn daginn." Lára: „Ég hef verið eðli mínu trú. Fólk elskast allt í kringum mann og hefur gert alla tíð. Ég var þátttakandi í því - á minn hátt." Lilja: „Það er ekkert til að auðvelda manni uppgjör við sínar tilfinningar. Það er eilíf barátta að fara aðra leið en múgurinn. En við erum betur settar en eldri kynslóðin, sem ekki hafði styrk til að fara þá leið, sem margir hefðu eflaust kosið að fara - og þess vegna verður aldrei hægt að festa tölu á fjölda fólks með samkynhneigð á íslandi. Versti óvinur- inn er þögnin. Þess vegna erum við að tala hér í kvöld. Við höfum í sjálfu sér engan áhuga á að trana okkur fram - og í rauninni mælir ýmislegt á móti því. En við viljum sýna fólki - og margir eiga í þeirri baráttu, sem við erum búnar að ganga í gegnum - að okkar lífsmáti er einn valkostur, sem er fyrir hendi." Lára: „Það er kannski svolítið kaldhæðnis- legt rniðað við alla fordómana, sem samkyn- hneigt fólk á íslandi verður að búa við, en við höfum aldrei farið leynt með okkar samband. Við höfum alltaf verið eins og við erum. Og það er líklega þess vegna, sem við höfum ekki sætt sömu fordómum og sumir aðrir. Einkum hommarnir - þeir eru á ýmsan hátt örvænt- ingarfyllri, þeirra barátta er að mörgu leyti erfiðari. En þeir hafa líka verið duglegri við að koma úr felum. Nú erum við líklega að brjóta ísinn fyrir margar aðrar konur..." Lilja: „Þögnin er verri en neikvæða um- ræðan og fordómarnir. Maður veit ekki hvernig á að svara þögninni." - Hvers vegna teljið þið að konur, lesbíur, séu meira í felurn en hommarnir? Lilja: „Ég held að það sé hægt að leita skýringa á því í kúgun kvenna yfirleitt. Það er ekki nóg með að lesbíurnar séu lesbíur, held- ur eru þær líka konur. Kúgunin verður tví- þætt. Það er því ekkert undarleg't þótt starfs- hópar lesbía hafi oft sprottið upp úr kvenréttinda- og rauðsokkahópum. Lesbían er fyrst og fremst kona. Allt, sem konum kemur við, kemur henni við líka - en svo bætist meira við." - Þótt þið séuð enn ungar voruð þið þó vaxnar úr grasi þegar leiðir ykkar lágu saman. Voru engir karimenn í spilinu áður? Bára: „Jújú, auðvitað fór maður í gegnum það allt saman. En okkar samband hófst mjög eðlilega - eins eðlilega og þegar blóm vex úr jarðvegi. Þú mátt ekki skilja það svo, að ég - eða við - sé haldin einhverri óbeit á karlmönnunt. Síður en svo. En ég kýs að elska konu. A þessum Venusarárum, þegar maður var unglingur, þá var enginn grund- völlur til að elska konur. Þær voru í leyni! Og þær eru þar mestmegnis ennþá. Ef jarðvegur hér væri frjósamari á þessu sviði, þá væri áreiðanlega miklu minna af taugaveikluðu fólki í leyni.“ Lilja: „Ég held nú að fæstir séu algjörlega heterosexual; margar konur myndu koma úr felum ef hægt væri að skafa burtu það, sem manni hefur verið kennt að sé rétt og sið- legt." Lára: „Eðli kvenna er slíkt, að þær þurfa mikinn tíma til að uppgötva eigin tilfinningar - tíma til að geta skilgreint sig sjálfar, í stað þess að vera alltaf skilgreindar af öðrum - það er körlunum. Eftir að ég varð sjálfri mér trú hef ég orðið vör við að margar konur hafa verið að opnast - bæði fyrir sjálfum sér og eins mér, ef leiðir okkar liggja saman. En þær þurfa tíma. Þær hafa falið tilfinningar sínar svo vel, að þær finna þær ekki sjálfar.“ Lilja: „Konur hallast meira að tilfinninga- legum samböndum en karlar gera almennt. Konur eru niiklu minna fyrir það, sem er kallað „one-night-stand". Ætli þær búi ekki almennt við meira tilfinningalegt öryggi...“ Lára: „Miðjan í sambandi kvenna er alltaf tilfinningaleg. Hin kynferðislega kemur miklu seinna og af sjálfu sér. Það þarf ekki einu sinni að fara út í það. Kynferðislegí samband er þá framhald á tilfinningasam- bandinu og hluti af þeirri heild.“ - Hvernig gengur sambúðin? Lára: Hún gengur bara vel." - Hvernig er verkaskipting á heimilinu? Lára: „Verkaskipting? Það er engin verka- skipting. Við vinnum báðar hálfan daginn og erum í skóla - að klára menntaskóla í öld- ungadeildinni - svo það er ekki nein verka- skipting. Við erum frjálsir einstaklingar. Við lifum í dag - og það er fjandi gaman. Við eigum góða vini og það er gott fólk sem stendur að okkur. Þetta er hreint ekki húm- orslaust heldur.“ - Ekki sýnist okkur. Hvernig vildi það til, að þið fóruð að búa saman? Lilja: Skiptir öllu máli hvernig þetta gerð- ist í smáatriðum? Ég held að það hafi skipt máli fyrir okkur báðar, að við vildum báðar komast að heiman. Standa á eigin fótum.“ - Haldið þið að þessi sambúð eigi eftir að vara...ja, eigum við að segja næstu þrjátíu árin? Lára: „Segðu sextíu, væni. Já, mér þykir það allt eins líklegt. Það veit maður auðvitað aldrei - ekki frekar en þú VITIR að þú eigir eftir að vera giftur konunni þinni næstu þrjá- tíu eða sextíu árin. Eins og er vonum við það. Og fari það á einhvern annan veg, þá eigum við eftir að vera vinkonur í þúsund ár. Vinátt- an er númer eitt, tvö og þrjú.“ - Ert þú sammála þessu, Lilja? Lilja: Já, það er ég. Auðvitað er ekkert algjörlega fullvíst í þessum heimi - þegar fólk segist vera alveg visst um eitthvað, þá tek ég því alltaf með fyrirvara. En við erum báðar ungar og það kemur margt til greina. Við höfum til dæmis ekki nema óljósar hugmynd- ir um hvaða nám við getum hugsað okkur að fara út í þegar þar að kemur. Lífið stendur opið fyrir okkur. Og við erum opnar gagnvart lífinu.“ Lára: „Já, þú mátt láta það koma fram, að við erum mjög stabílar ungar konur, hehe.“ - Einhverntíma hafið þið vafalaust leitt hugann að því hvers vegna þið eruð lesbíur. Er maður fæddur þannig? Lára: „Já, af hverju ekki? Ég er það núna, ekki satt! Lilja: „Ég er ekki eins viss. Ég þykist þó vita, að ég hafi fæðst með valkostinn. Ég hallast helst að því, að fólk sé almennt bisex- ual - nema innsti kjarni manns, sem bara ER. Sjálf veit ég ekkert hvers vegna ég er svona en ekki einhvernveginn öðru vísi. Ég er svona og hef ekki áhuga á að vita hvers vegna. Maður á ekkert að þurfa sífellt að vera að svara fyrir hvers vegna maður er svona en ekki hinsegin." - Hvaða viðhorf höfðuð þið til homosex- ualista þegar þið voruð yngri - til dæmis á unglingsárum? Lára: „Maður vissi svo lítið. Ætli það hafi ekki verið hræðsla, sem voru fyrstu tilfinn- ingar á þessu sviði. Lesbíur voru gerðar að einhverskonar grýlum - ég hélt að þetta væri eithvað ljótt.“ Viðtöl: Ómar Valdimarsson

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.