Helgarpósturinn - 18.02.1983, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 18.02.1983, Blaðsíða 7
Gerry Mulligan kemur í mars Fyrst er það draumurinn. „Það er einn af stóru draumum Jazzvakningar að fá Gerry Mul- ligan hingað til tónleikahalds'", segir Vernharður Linnet formaður félagsins. Síðan rætist draumurinn. „Okkur hefur tekist að ná samn- ingum við Gerry Mulligan og held- ur hann tónleika með kvartett sín- um í Háskólabíói þann 15. mars“, heldur Vernharður áfram, og bætir því við, að með þessum tónleikum ætli Jazzvakning að snúa vörn í sókn, þar sem tap hefði orðið á fjórum síðustu tónleikunum með erlendum listamönnum. Gerry Mulligan er eitt af stærstu nöfnum djassins í dag og í samfleytt tuttugu ár hefur hann verið kjörinn besti barítonsöxuður heimsins. „Mulligan er einn af upphafs- mönnum cool-djassins og hann skrifaði fyrir Miles Davis árið 1949 á plötuna Birth of the Cool. Tónlist hans er mjög melódísk og Mulligan sándið er einstætt". segir Vern- harður. Það var töluverður barningur að ná samningum við Mulligan um að koma hingað og mun þetta vera í fjórða skiptið, sem það er reynt. Jazzvakning hefur reynt tvisvar sinnum áður, og nú síðast tókst ekki að fá hann til að leika á Lista- hátíð. Kappinn verður á tónleika- ferð um Evrópu um þetta leyti og þarf að sækja hann sérstaklega þangað vegna tónleikanna hér, en venjulega koma listamennirnir hér við á leið yfir Atlantshafið. „Við verðum að fylla Háskóla- bíó til þess að tónleikarnir standi undir sér, og ef Gerry Mulligan fyllir ekki tónleika hér, gerir það enginn", segir Vernharður enn- fremur. Fjárhagsstaða Jazzvakningar er nokkuð erfið um þessar mundir og er félagið skuldugt. En menn láta það ekki aftra sér. „Ef fólk hefur áhuga, erum við tilbúnir til að vinna", segir Vernharður Linnet. Gránufjelagið frumsýnir Fröken Júlíu: f/Reynum að finna listamenn í þessu — segir Kári Halldór leikstjóri „Við erum að leita að sameigin- legum persónuleika okkar í vinn- unni og reyna að finna okkur sem listamenn í þessu verki.” Listamennirnir eru Gránufjc- lagið, verkið er Fröken Júlía eftir Agúst Strindberg, og sá sem mælir þessi orð er Kári Halldór leikstjóri. Tilefnið er frumsýning Gránufje- lagsins á Fröken Júlíu í Hafnarbíói á mánudagskvöld kl. 20.30. Reyndar er forsvning á verkinu á sunnudag kl. 14 og verður selt inn á hana. Þá er það ætlunin að hafa eftirmið- dagssýningar á verkinu á laugar- dögum. Kári I lalldór sagði, að við undir- búning sýningarinnar hefði verið reynt að skapa þannig' vinnu- aöstöðu að nota mætti leikarana sem skapandi aðiia. „Viö höfum farið til fundar við Strindberg og Fröken Júlíu. Við höfum ekki túlkað verkiö beint, eins og oft er gert, heldur hvernig við upplifum þaö og skiljum. Við höldum textanum, en leikum hann ekki beint út", sagði Kári. Gránufjelagsmenn hafa verið að spinna í kringum verkið frá því í desember, en það er ekki fyrr en á síðustu tveim vikum að sýningin hefur tekið á sig endanlega mynd. „Þaö hefur gengið vel að vinna verkið, þegar viö höfum getað, en við erum öll bundin í störfum ann- ars staðar, og höfum því þurft að taka frítíma okkar í þetta", sagði Kári. okkur sem verki" Titilhlutverkiö er í höndum Ragnheiöar Arnardóttur, en meö önnur hlutverk fara Guöjón Ped- ersen, Kristín Krist jánsdótt ir, Gunnar Rafn Guömundsson og Þröstur Guðbjartsson. Leikmynd, búningar og veggspjald eru eftir Jennýju Guðmundsdóttur og lýs- ingu annast Ingvar Björnsson. Gránufjelagið er með tvær aðrar sýningar í bígerö og hefjast æfingar í mars, en verkin vetða ekki frum- sýnd t'yrr en á hausti komanda. Fyrra verkið er um milifstríösárin, en hið síðara um sjöunda áratug- inn. Að öðru leyti vildi Kári I lall- dór ekki tjá sig um efni þeirra. „Við tökum verk, sem liggja l'yrir, en vinnum mikla leiksmiðju- vinnu í kringum þau", sagði Kári 1 lalldór leikstjóri hjá Gránufje- laginu. hjá Sinfóníunni Guðjón Pedersen og Ragnheiður Arnardóttir í átökum í Fröken Júlíu Gerry Mulligan hefur verið heimsins besti barítonleikari í tuttugu ár. Við fáum að sjá hann í næsta mánuði. Alþýðuleikhúsið út úr híðinu: FASSBINDER Á VERKEFNASKRÁNNI „Fyrra misserið gekk mjiig vel og það spáir góðu um áframhaldið. Við erum ánægðir með árangur- inn”, sagði Sigurður Björnsson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljóm- sveitar Islands í samtali við Helg- arpóstinn. Hann sagði, að cndurnýjun á- skriltarskírteina helði gengið mjtig vel og allt útlit væri fyrir, að um aukningu áskrifcnda yrði að ræða. Fyrstu áskriftartónleikar síðara misseris voru haldnir í gærkvöldi og áður en yfir lýkur. verða þeir orðnir átta. Siguröur var spurður hvort hann vildi nefna einhverja tónleika, sem honum þættu kannski merkilegri en aðrir. „Ef ég má, vil ég nefna óperuna Tosca, sem flutt verður í konsert- formi miövikudaginn 2. mars, og9. sinfóníu Beethovens, sem verður flutt 2. júní”, sagði Siguröur. Einsöngvarar íTosca verða Sieg- linde Kahmann, Kristján Jóhanns- son. Robcrt Beekcr og fleiri, og Söngsveitin Fílharmonía tekur einnig þátt í flutningnum, svo og í 9. sinfóníunni. Tvö íslcnsk tónskáld eiga verk á síðara misserinu. Friðarkall heitir verk eftir Sigurð Garðarsson, sem verður flutt þann 28. apríl, og Choralis eftir Jón Nordal veröur flutt 19. maí. Guðný Guömundsdóttir lék ein- leik á fyrstu tónleikunum, en ef undanskildir eru söngvarar, vcrður aöeins einn íslenskur einleikari enn, cn það er Sigríður Guð- Stúdentaleikhúsiö: Sýningar gengu vel, en tap á fyrirtækinu Fjörkippir eru að færast í Al- þýðuleikhúsið eftir nokkuð langan dvala. „Við ætlum að halda áfram starfseminni, sent hefur reyndar aidrei verið hætt, þótt engin ný sýn- ing hafi verið sett upp“, sagði Tinna Gunnlaugsdóttir lcikkonu, sem sæti á í stjörn leikhússins, í samtali við HP. Úr uppsetningu Fassbinders á verki sínu Frelsið í Bremen, sem Alþýðuleikhúsið mun setja upp á næstunni. Hún sagði, að tvö verk færu aö öllum líkindum í æfingu á næst- unni, en þó ætti eftir að ganga frá ýmsu í því sambandi. Verk þessi eru „Bremer Freiheit" eða Frelsið í Bremen eftir Rainer Werner Fass- binder, og „Neöanjarðarbrautin" eftir bandaríska rithöfundinn Le Roy Jones. Leikrit Fassbinders er byggt á sannsögulegum atburðum og er um konu, sem eitraði fyrir fjölda manns áður en laganna verðir náðu að klófesta hana. Verk Jones er samtal tveggja manna í neðanjarð- arlest og er menningsvertingja stór þáttur í því. Fjárhagsstaða Alþýðuleikhúss- ins er erfið um þessar mundir, þar sem á því hvíla miklar skuldir, sem þarf að greiða niður, jafnframt sem halda þarf starfseminni áfram. Leikhúsið hefur haft Hafnarbíó á leigu, en hefur nú framleigt það til Revíuleikhússins og Gránufjelags- ins. Enn er því óvíst hvort Alþýðu- leikhúsmenn verða með sýningar sínar þar. Hvað sem öðru líður, er þó mest um vert að vera ekki dauður. „Sýningarnar voru mjög vel sóttar og leikritið fékk góða dóma, en fjárhagslega erum við skuldum vaf- in vegna mikils auglýsingakostn- aðar og ýmiss óvænts kostnaðar”, sagði Guðbjörg Guðmundsdóttir hjá Stúdentaleikhúsinu, þegar Helgarpósturinn spurði hana hvernig uppsetningin á leikritinu Bent hefði gengið. Stúdentaleikhússmenn hafa ver- ið að funda um framtíðina í þessari viku og voru skipulagsmálin efst á baugi. Tuttugu manna hópur hefur sótt fundi þessa og ætlar að halda starfseminni áfram. Guðbjörg sagði. að það væri stefna stúdentaleikhússins, að sem flestir háskólastúdentar og aðrir, sem vildu leggja fram vinnu sína endurgjaldslaust, gætu miðlað hugmyndum sínum og reynslu í nafni Stúdentaleikhússins. Ilún sagði, að framtíðarmarkmið leikhússins væri að tengja það kennslu í leikbókmenntum, þannig að nemendur fengju vinnu sína við leikhúsiö metna. „Við viljum reyna aökomaStúd- entaleikhúsinu meira inn í há- skólann og gera stúdcntaráð að ábyrgum aðila, þannig að einn maður þurfi ekki að ganga í ábyrgð fyrir öllum skuldum", sagði Guðbjörg Stúdentaleikhúsið er að ræða ýrnis verkefni, en engar ákvarðanir hafa enn verið teknar. Hins vegar má geta þess, aö efnt verður til samkeppni meðal leikritahöfunda og annarra áhugamanna um leikrit og er skilafrestur til maíloka. mundsdóttir óbóleikari, sem kem- ur franl 28. apríl. Auk ftistra stjórnenda hljóm- sveitarinnar, þeirra Jean-Pierre Jacquillat og Páls P. Pálssonar, verða tveir gestastjórnendur fram á vor og skal þar fyrstan telja Guð- mund Emilsson þann 14. apríl, og síöan Nicoliis Braithwaite, sem stjórnar sérstökum enskum tón- leikum 24. rnars. Erlendir einleikarar eru einnig tveir, bandarískur trompetleikari af norsk-íslenskum ættum, Rolf Smedvig, sem kemur frant 10. mars, og píanóleikarinn Gabriel Tacchino 19. maí. Sinfóníuhljómsveitin áformar að fara í tónleikaferðir út á land, og verða fyrstu tónleikarnir þann 24. febrúar í Njálsbúð og syngur Krist- ján Jóhannsson einsöng með hljómsveitinni. Óperan Tosca verður svo flutt á Akureyri 12. mars og 7. apríl verða tónleikar í Keflavík, þar sem Sieglinde Kah- mann syngur einsöng og Unnur Pálsdóttir leikur einleik. Dagana 8.-15. júní verður svo farið í tón- leikaferð um Vesturland og Vest- firöi.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.