Helgarpósturinn - 18.02.1983, Blaðsíða 9

Helgarpósturinn - 18.02.1983, Blaðsíða 9
jjÉstUrinn Föstuda9ur 18- íebrúar 1983 9 Strang/ers á óvart Black, þó það sé á heildina litið lélegasta plata hljómsveitar- innar. Petta stafar líklega af því að Stranglers hafa yfirleitt leitast við að gera eitthvað nýtt á hverri plötu, sem síðan hefur tekið nokkurn tíma að sætta sig við. Það var greinilegt á La Folie að tónlist Stranglers var mikið að ró- ast, þó vissulega hafi verið í lög- unum einhver sérstæður kraftur. Golden Brown minnti nú ekki mikið á fyrstu lög hljómsveitar- innar og þegar ég heyrði fyrst lagið Strange Little Girl, sem gef- ið var út á lítilli plötu í fyrrahaust, fannst mér það yfirþyrmandi ró- legt og afslappað. En égvissiekki hvað ég átti þá í vændum. Á nýrri plötu, sem þeir hafa nýverið sent frá sér og nefnist Feline, er hljómsveitin nær óþekkjanleg frá því sem áður var og þá jafnvel þó að Golden Brown og Strange Little Girl séu höfð í huga. Heildaryfirbragð Feline er al- veg einstaklega afslappað og fág- að og stundum allt að því fátæk- legt og satt best að segja veit ég ekki hvað ég á að láta mér finnast um plötu þessa. Ég er þó á því að hún sé nú bara nokkuð góð en hún hefði áreiðanlega getað orð- ið enn betri ef nokkrar breytingar hefðu verið gerðar á útsetning- um laganna. Til dæmis hef ég ekki fundið einn einasta tón í rafmagnsgítar á allri fyrstu hliið'inni. Þess í stað er þar að finna sérlega látlausan og allt að því daufan kassagítarleik. Það er rétt að lifni yfir gítarleiknum í tveimur síðustu lögunum á hlið- inni og í því síðara er hann bara ansi nettur og með spönsku yfir- bragði. Það er hins vegar hljóm- borðsleikur sem heldur lögunum oft á lífi, þó hann sé nú líka ró- legri og einfaldari en áður, ann- ars er þessi fyrri hlið plötunnar svo sem ágæt, ef undan er skilið fyrsta lagið. Síðari hliðin hefst á laginu Let’s Tango In Paris, sem raunar er nú alls enginn tangó heldur vals og ekki sérlega tilburðar- mikið. En úr því fer nú heldur að lifna yfir plötunni. Rafmagnið er komið á gítarinn í næsta lagi, þó eingöngu sé hann notaður þar sem hijómgítar. Þriðja lagið er All Roads Lead To Rome og er það í einskonar tölvupoppstíl (hver fann annars upp þetta hræðilega orð) og loks í næst síð- asta laginu fæ ég að heyra þokka- lega í rafmagnsgítarnum, þó Tdugh Cornwell hafi nú oft komið upp með skemmtilegri frasa. Síð- asta lagið er svo Never Say Good- bye og enn gætir nokkurra Miðjarðarhafsáhrifa, svo sem sumstaðar annars staðar á plöt- unni. Að mi'nu mati er þetta eitt besta lag plötunnar og ef þau hefðu öll verið í þessum gæða- flokki hefði ég ekki þurft að ef- ast, en ég get nú ekki neitað því að á heildina litið finnst mér eitthvað vanta, þrátt fyrir góða spretti inn á milli. Það er þó ekki nema bara fyrsta lagið sem ég get alls ekki fellt mig við og er það líklega vegna þess að texti þess er einungis talaður og útsetningin með daufara móti. Það má kannski sjá á þessum skrifum að ég er á báðum áttum en ég mæli þó með að fólk gefi Feline tækifæri. Það er jú alltaf hægt að mæla með Stranglers, en... / tilvistarkreppu Ómar Þ. Halldórsson: Þetta var nú í fylliríi. Skd/dsaga. Hinir og þessir, 1982. 150 bls. Þeim sem á annað borð leyfir sér að hafa tilfinningar og taka af- leiðingunum af því hlýtur oft að líða illa í grimmum heimi. Stund- um er talað um einhverskonar til- vistarkreppu nútímamannsins: við vitum ekki hver við erum, ekki til hvers við erum, að hverju við stefnum, getum ekki áttað okkur á markmiði né leiðum. Þótt þetta sé síður en svo ný kreppa, má leiða að því rök að hún hafi orðið æ ágengari og erfiðari eftir því sem liðið hefur á þessa öld. Eða með öðrum orðum: Hún var erfið í upphafi aldarinnar, síðan hefur engin lausn fengist. Það er mér mikið fagnaðarefni að sjá ungan rithöfund takast skilmálalaust á við þessa kreppu, leggja sig heiðarlega í framkróka um að lýsa henni, ég tala nú ekki um ef manni finnst lýsingin heppnast. Ömar Þ. Halldórsson gaf út tvær bækur kornungur maður (Horfin ský 1970 og Hversdags- leikur 1973). í næstum áratug hef- ur ekkert heyrst frá honum í þessu efni en nú kemur hann fram sem þroskaður og alvarlegur rithöf- undur með skáldsögunni Þetta var nú í fylliríi. í raun eru þetta þrjár sögur. Ein er rammi utan um hinar tvær, hrakningssaga í þjóðsagnastíl, þar sem segir frá manni sem lendir í villum og baráttu við höfuð- skepnur. Bókinni lýkur þar sem hann dregst heim að bæ og hefur sigrað í sinni baráttu. — Megin- sagan greinir frá hópi fólks sem sumt þekkist lítið sem ekkert en hefur tekið sig saman til að eyða jólum á eyðibýli eða í sumarbú- stað austan Fjalls. Þetta eru laus- tengd pör — og eins og gefur að skilja verður sambúð þeirra býsna erfið yfir jólahátíðina. Þriðju söguna má svo lesa úr endurminningum eða „flash- backs” söguhetjunnar, Urriða, og í þeirri sögu er að finna ýmsar skýringar á því sem gerist í megin- sögu. Þótt þetta hljómi dálítið flókið tekst Ómari að flétta sögur sínar eðlilega og skýrlega saman, svo að lesandi er aldrei í minnstu vand- ræðum af þeim sökum. Söguhetjan, Urriði, er í tilvist- arkreppu, í hrakningi og villum nákvæmlega á sama hátt og maðurinn á heiðinni í rammasög- unni, en sá er munur þeirra að Urriði sigrar ekki. Sömu höfuð- skepnur og hinn berst við ger- ast einhverskonar handbendi ör- laganna og fullkomna það verk sem villugjörn tilvera hafði byrjað. Mér dettur ekki í hug að halda því fram að allt sé jafn vel heppn- að í sögu Ómars. Sumt finnst mér t.d. ótrúlegt (þ.á m. það að hópur- inn ætli að halda jól saman), ann- að finnst mér ofljóst (þar má nefna Herkúlesarþrautina að sofa í turninum, þar sem turninn verð- ur ofnotað tákn og karlmennsku- Ómar Þ. Halldórsson kemur nú fram sem þroskaður og alvarlegur höfundur. raunin slíkt hið sama að mínu mati). En meginstyrkur sögunnar verður miskunnarleysi og alvara höfundarins: að reyna aldrei að leysa á einfaldan hátt það sem i verunni er flókið; að skjóta sér ekki undan því að ræða tilvistar- vandann eða sýna hann — þó svo hann sé viðkvæmum karlmanni eins og Urriða hrein ofraun. Persónur bókarinnar eru misvel gerðar enda samúð sögumanns og andúð stundum fullljósar. Þessa geldur einkum fulltrúinn, en aftur á móti nýtur besta kvenlýsing sög- unnar, lýsing Sigrúnar, samúðar- innar. Hún verður býsna sannfær- andi manneskja, skilur án þess að geta hjálpað til fullnustu en er þó heil og sönn. Forsaga Urriða og þar með skýring á persónugerð hans er mjög brotakennd og lesandinn verður sjálfur að ráða í hvað hefur leitt hann í villuna. Ósjálfrátt sættir maður sig þó við brotin vegna þess hve alvarlega er reynt að takast á við spurningar um til- vist okkar og tilvistarkreppu. Það er gaman að sjá metnaðar- fullan höfund glíma við vanda. Ég mun verða í þeim hópi sem bíður spenntur eftir næstu bók Ómars Þ. Halldórssonar. HP ★ ★ ★ framúrskarandl ★ ★ ★ ág«t ★ ★ góð ★ þolanleg 0 léleg liíóin Laugarásbíó: ★★★ E.T. Bandarisk kvikmynd, árgerS 1982. Leikendur: Henry Thomas, Francis Copp- ola. Leikstjóri: Steven Spielberg. Stórkostleg ævintýramynd fyrir börn á öllum aldri. Háskólabíó: Sankti Helens, eldfjallið springur (St. He- lens). Bandarisk, árgerð 1981. Leikendur: Art Carney, David Hutfman, Cassie Yates. Leikstjóri: Ernest Pintoff. Hver man ekki ettir eldgosinu? Hér er sagt frá því og aðdraganda þess, er ungur jarðtræð- ingur reyndi að fá fólk til að yfirgefa hættu- svæðið, en . ★ Með allt á hreinu, íslensk kvikmynd, árgerð 1982. Handrit: Ágúst Guðmundsson og Stuðmenn, Leikendur: Stuðmenn, Grýlur, Eggert Porleifsson, Sif Ragnhildardóttir. Leikstjori: Ágúst Guðmundsson. Hin viðfræga islenska söngva- og gleðimynd gengur enn tyrir fullu husi áhodenda. íslensk skemmtun fyrir allan heiminn. Bíóhöllin: Gauragangur á ströndinni (Malibu Beach). Bandarísk kvikmynd. Leikendur: Kim Lankford, James Daughton, Susan Player Jarreau. Leikstjori: Robert J. Rosenthal. Hressir og lífsglaðir unglingar stunda strandlífið og verða ástfangnir. Hvern deymir ekki um það? ★ ★ ★ Fjórir vinir (Four Friends). Bandarísk, árgerð 1982. Handrit: Steven Tesich. Leikendur: Craig Wasson, Jody Thel- en, Michael Huddteston, Jim Metzler. Leikstjóri: Arthur Penn. Penn og handritshöfundurinn Tesich sýna i forgrunni hvernig fjögur urigmenni eldast og þroskast og glata æskublóm- anum, en í bakgrunninum glittir á sams konar örlög bandarisku þjóðarinnar. Petta er vel leikin mynd, persónurnar aru sannfærandi flestar hverjar, og myndin í heild gengur ágætlega upp. -GA Flóttinn (Pursuit). Bandarisk kvikmynd, árgerð 1981. Leikendur: Robert Duvall, Treat Wil- liams, Kathryn Harrold. Leikstjóri: Roger Spott- iswoode. Maður heitir J.R. Meade. Hann sleppur undan lögreglu á hreint alveg ævintýralegan hátt. Myndin greinir Irá þessum flótta og er hun byggð á sannsögulegum heimildum. Litli lávarðurinn (Little Lord Fauntleroy). Bandarisk kvikmynd. Leikendur: Alec Gu- inness, Rický Schroder, Eric Porter. Leik- stjóri: Jack Gold. Hugguleg fjölskyldumynd um litinn lávarð og annan stærri. Jólamyndin i ár. ★ ★★ Fram i sviðsljósið (Being There). Bandarisk, árgerð 1981. Handrit Jerzy Kosinski, eftir eiginskáldsögu.Leikendur: Peter Sellers, Melvyn Douglas, Shirley MacLaine. Leik- stjóri: Hal Ashby. Regnboginn: ★ * Leikfang dauðans (The Domino Princ- iple). Bresk-bandarisk kvikmynd. Leikendur: Gene Hackman, Candice Bergen, Richard Widmark. Leikstjóri: Stanley Kramer. Harðsoðið og samansaumuð lið fjallar hér um njósnir og undirferli. Sæmilegasta skemmtan tryggð. ★ ★ ★ Late Show (Hallar undan fæti). Bandarísk kvikmynd, árgerð 1977. Leikendur: Art Carney, Lily Tomlin, Howard Duff. Leik- stjóri: Robert Benton. Art Carney leikur á sínn frábæra hátt einka- spæjara, sem þrátt fyrir magasýrur og aðra óáran reynir að ráða fram ur stórmáli. Frum- raun Benfons og bara mjög góð mynd. ★ ★ Étum Raoul (Eating Raoul). Bandarísk kvikmynd, árgerð 1982. Leikendur: Paul Bartel, Mary Woronov. Handrit og stjórn: Paul Bartel. Blanda af absúrd satíru og svartri kómedíu, þar sem hjón drepa gesti sína til að ræna þá síðan, og éta. Étum Raoul er skemmtileg, en ekki nægilega skemmtileg. Og börnin í bíósal Regnbogans virtusl ekki sérstaklega upprifin vegna mannátsins og allra steikarapönnnu- drápanna á ameriskum kynlífssjúklingum. Pau hafa trúlega ekki misst af Cannibal Holo- caust. Swenney 2. Bresk kvikmynd. Leikendur: John Thaw, Dennis Waterman. Spennu- mynd um Skotlaridsjardinn og sérsveitir hans. Blóðbönd ••• (Die Bleierne Zeit). Þýsk, ár- gerð 1981. Leikendur: Jutte Lampe, Barbara Sukowa. Leikstjóri: Margarethe von Trotta. Sú sögulega sjállsrýni sem nú brýst fram í þý- skri kvikmyndagerð fær vart betri úrvinnslu um þessar mundir en hjá Margarethe von Trotta. Stjúpi (Beau-pere). Frönsk, árgerð 1980. Leikendur: Patrick Dewaere. Handrit og stjórn: Bertrand Tavernier. ★★★ Ástarsamband þrítugs manns við 14 ára sýúp- dóttur sína. Mynd, sem helur vakið athygli. Stjörnubíó: Dularfullur fjársjóður (Who find a friend, finds a treasure). Bandarisk kvikmynd. Leikendur: Bud Spencer, Terence Hill. Leik- stjóri: Sergio Corbucci. Tviburabræðurnir feiti og mjói lenda i ævintýr- um er þeir leita að týndum fjársjóði á eyðieyju. En er eyjan i eyði? ★ ★ Snargeggjað (Stir Crazy). Bandarisk, árgerð 1981. Handrit: Bruce Jay Friedman. Leikendur: Gene Wilder, Richard Pryor. Leikstjóri: Sidney Poitier. Þeir Wilder og Pryor eru bráðskemmtilegt par i þessari „snargeggjuðu" sögu um tvo náunga frá New York, sem freista gæfunnar i Kaliforniu en lenda i fangelsi i staöinn. Frammistaða aðal- leikaranna er reyndar mun betri en efni standa til. handritið og leikstjórnin missa dampinn ettir miðbik myndarinnar, en þeir Pryor og Wilder eru í stuði allt til loka. -AP Allt á fullu með Cheech og Chong (Nice Dreams). Bandarisk kvikmynd. Leikendur: Thomas Chong, Cheech Marin, Stacey Keach. Leikstjóri: Thomas Chong. Hver kannast ekl:i við ærslabelgina og háðlug- ana tvo með síða hárið og djointið i trantinum. Hér eru þeir komnir i nýrri mynd með nýjum ævintýrum, sem kitla taugarnar, hláturtaugarn- ar. Bíóbær: Að baki dauðans dyrum (Beoynd Dealh's Door). Bandarisk kvikmynd, byggð á metsölu- bók Dr. Maurice Rawlings. Leikendur: Tom Hallick, Melind Naud. Leikstjóri: Henning Schellerup. Myndin er byggð á frásögnum fólks, sem hefur séð handan dauðadyra. Ævar R. Kvaran flytur stutt erindi áður en sýningar helgarinnar hefj- ast. Flutningur Ævars hefst kl. 18.30 og kl. 21 á laugardag og sunnudag. Undrahundurinn. Ókeypis aðgangur fyrir börnin á laugardag og sunnudag kl. 14 og 16. Skemmtileg ævintýri hunds, sem getur meira en margur annar. Tónabíó: The Party (Glaumurinn). Bandarísk kvik- mynd. Leikendur: Peter Sellers, Claudine Longet. Leikstjóri: Blake Edwards. Sellers iéssinu sinu sem indverskur stórleikari, sem leggur öll kvikmyndaver heimsins i rúst. Tveir góðir saman: Sellers og Edwards. Nýja bíó: ★★ Pink Floyd - The Wafl. Bresk kvik- mynd, árgerð 1982. Handrit: Roger Waters. Leikendur: Bob Geldof. Leik- stjöri: Alan Parker. Myndin er mikið tækniundur og teiknimyndakaflarnir eru með því betra, sem ég hef séð. Austurbæjarbíó: Kraftaverkið (Helen Kellers Triumf). Bandarísk kvikmynd, árgerð 1980. Leikendur: Melissa Gilbert. Áhrifamikil mynd um ungu blindu stúlkuna Helen Keller, sem margir Islendingar kann- ast við. twnlist Kjarvalsstaöir: Á laugardag og sunnudag kl. 15 flytur Þór Elis Pálsson myndlistarmaður verk, sem hann hefur samið í samvinnu við Lárus Grímsson tónskáld. Verkið nelnist „Þá riðu hetjur um héruð..." og er samsett al tónlist, litskyggnuröðum og fleiru. Magnað verk og sérsfætt. Föstudag kl. 20:30: Nemar úr Tónlistarskóla Reykjavikur halda tónleika. Laugardag kl. 20:30: Tónleikar á vegum Mus- ika Nova. Sunnudag kl. 20:30. Nemar úr Tónlistarskóla Reykjavíkur halda tónleika. Norræna húsið: Frönsk kabarettsöngkona að nafni Andrea syngur á föstudags-og laugardagskvöld kl. 20:30. Rauða húsið, Akureyri: Oliver Kentish knéfiðluleikari heldur tónleika á sunnudag kl. 21 og mun hann leika Irumsamda tónlist. viéliuröir Norræna húsið: Rauði krossinn verður með málþing i efri sal um mannréttindi og mannúðarlög á laugar- dagkl. 13.15. Tónabær: Skemmtikvöld á þorranum lyrir unglinga borgarinnar. Dansað og duflað og dansað og ýmis skemmtíatriði. Skemmtilegt föstudags- kvöld í vændum. Skemmtidagskráin hefst um kl. 22. Borgartún 6: Jafnréttisráð gengst fyrir fundi um stjóm- málaþátttöku kvenna á laugardaginn og hefst hann kl. 9.30. Tilgangur fundarins er að vekja athygli á rýrri þátttöku kvenna í stjórn- málum (so what?) og ræða leiðir til úrbófa I þeim etnum. Ræður, umræður og bakkelsi. Allir velkomnir. Samtök um kvennaathvarf: Skrifstofa samtakanna er í Gnoðarvogi 44,2. hæð. Hún er opin alla virka daga kl. 14—16, simi 31575. Póstgirónúmer samtakanna er 4442-1.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.