Helgarpósturinn - 22.04.1983, Blaðsíða 18

Helgarpósturinn - 22.04.1983, Blaðsíða 18
18 Föstudagur 22. arpíl 1983 -'n, 'sturinri Af vettvangi dómsmálanna Höfum nú það sem sannara reynist, en ekki það sem ég blaðra út úr mér af fá- fræði og bjánaskap, nefni- lega í þessu tilfelli um inn- heimtu sjónvarpsleyfis- gjalda, en um þau fór ég ein- hverjum ógætilegum orðum fyrir ekki margt löngu, akk- úrat hér á þessum virðulega vettvangi. Það er að vísu rétt, að ríkisútvarpið hér hefur ekki innheimtudeild, því að Póstur og sími annast inn- heimtu gjaldanna, svo og það að sjónvarpstæki eru ekki skráð. En það er safnað afritum af sjónvarpsleyfum, og fólki er send áminning þegar það fer að nálgast að þau renni út. Þá áminningu er svo í rólegheitunum hægt að hafa að engu — hún er ekki rukkun — og láta leyfin renna út, en eftir það má bara ekki láta sannast á sig að maður eigi og noti sjón- varp. Upplýsingar um þetta allt saman eru á snepli sem ég sníkti niðri á pósthúsi núna í vikunni. Þar segir m.a.: Yður ber skylda til að leyfa, á hverjum sanngjörn- um tíma sem þess er krafist, að starfsmenn Póststjórnar- innar eða Simastofnunar- innar kanni sjónvarpsleyfi yðar og sjónvarpsbúnað, en ekki verðið þér skyldaðir til að veita þeim aðgang að heimili yðar. etta er víst svo að skilja, að þessir eftirlitsmenn geti heimtað að maður beri sjón- varpið til þeirra út á gang- stétt og sýni þeim þar sjón- varpsleyfið, en mér er ekki alveg ljóst hvernig þeir eiga að snúa sér, þegar maður kemur til þeirra tómhentur út á gangstétt.umsnýr vösum sínum og segist ekkert sjón- varp eiga annað en vasaklút- inn sinn. Þeir vita auðvitað betur, búnir að miða mann út með einhverjum elektrón- ískum bellibrögðum, en hvernig eiga þeir að sanna sökina? Þetta minnir mig á sögu, en hún kallar aftur á ýmsa útúrdúra. að er merkilegt við út- varpið hérna, BBC-hljóð- varp, hve margir þættirnir þar eiga sér auðþekktar hlið- stæður í íslenska útvarpinu sem greinilega hefur margt af enskinum iært, og svo veit maður kannski ekki hvað heimamenn hafa lært af Páli Heiðari meðan hann bjó hérna. Samt er svona ein- staka fyrirbæri í útvarpinu heima sem alls ekki þekkist hér, eins og Dagurinnogveg- urinn, eða jólakveðjulestur- inn (sem nýja, fjórða sjón- varpsrásin er samt búin að á- kveða að taka upp núna um jólin og selur 20 sekúndur á 100 pund). Og þátturinn Á vettvangi dómsmálanna (eða Hæstaréttarmál eða hvað fólk getur sérviskast við að skíra hann upp) er hér ekki í útvarpinu, heldur í Times á laugardögum. í gær var Times t.d. að rekja lög- bannsmál Savoy-hótelsins gegn sjónvarpinu, og var staðfest lögbann við því að sjónvarpið sýndi mynd sem tekin var án leyfis og á iaun af þeim sögulega viðburði að löggildingarstofan hankaði Savoy 'fyrir að svindla á sjússmælunum, og var sjón- varpið í samsæri við lög- gildingarstofuna um að festa svindlið á filmu. Nú væri freistandi að fara út í frekari útúrdúra um það, hvað ríkisútvarpið hérna er ósvífið við alls kyns skálka og skelma sem svindla á fólki, að taka við kvörtun- um, láta rannsóknarblaða- mennina sína rannsóknar- blaðamennskast í málum þeirra, elta þá og yfirheyra, hríðast í yfirvöldunum um hvort ekki eigi að taka þá og kæra, og útvarpa öllu sam- an. En ég ætla að sitja á mér um svoleiðis sögur; snúa heldur aftur að umræðuefn- inu, nefnilega því hvað heim- ilishelgin er hér mikils metin og ekki talið viðeigandi að rjúfa hana með húsleitar- heimildum eða sliku vegna minni háttar afbrota. Mann, sem grunaður er um ölvun við akstur, má t.d. þvinga til að gefa blóðprufu, en það má ekki sækja hann til þess inn á heimili nema húsráð- andi Ieyfi; til þess skörtir sér- staka heimild í lögunum um ölvun við akstur, og hafa menn nokkrum sinnum ver- ið sýknaðir vegna ólöglega fenginna sönnunargagna, þegar löggan hefur ekki haft á hreinu leyfi húsráðanda þar sem ökubyttan var gripin til sýnistöku. XJm slíkt mál var fjallað í Times fyrir nokkrum vikum. Maður ók heim a.f pöbb, ó- umdeilanlega kengfullur. Var veitt eftirför, en komst heim til mömmu sinnar, þar sem hann bjó, og slagaði inn áður en lögreglan kæmi vörnum við. Löggan beið í korter, hringdi svo bjöllunni. Sá fulli var nógu fullur til að koma sjálfur til dyra. Lögg- an segir ekkert. Sá fulli nógu fullur til að halla sér út til að heyra það sem ekkert var. Löggan snögg að gera það sem er svona lögfræðilegt jafngildi „klukk-klukk- klukk“, sem sé að snerta manninn og segjast taka hann fastan í nafni drottn- ingarinnar. Og bar lögreglu- þjónunum tveim saman um það, að sá sem gerði klukkið hafi staðið báðum fótum utan við heimilishelgina og líklega snert öxlina á þeim fulla rétt í flútt við þröskuldinn. En þegar lögg- an var rétt að byrja að segja „Ég tek...“, þá bakkar sá fulli, hleypur upp og felur sig undir súð. Var í þeim svifum hús- ráðandi sjálfur, þe. móðir hins rykaða, komin á vett- vang, og fyrirbýður vörðum laganna að setja sína skítugu skó inn fyrir sínar dyr. Þeir hika, horfa hvor á annan, en ryðjast svo inn, og upp, og draga með sér delinkventinn þangað sem hið óræka sönn- unargagn var úr æðum hans dregið. Átti hann þá einu vörn fyrir dómi, að hins á- fenga sönnunargagns hefði verið aflað með ólögmætri eftirför. En þar sem lög- gæslumaður var ekki búinn að rjúfa heimilishelgina neitt að ráði, eða i hæsta lagi að- eins með annarri hendinni, þegar hann hafði náð að klukka kauða og segja nógu mikið í nafni drottningar- innar til að vera alveg greini- lega byrjaður að taka hann fastan, þá var löggan ekki lengur, að mati áfrýjunar- réttar, að elta labbakútinn fyrir að aka fullur, heldur i rauninni að elta hann sem strokufanga, og þar með alls ekki að elta hann samkvæmt umferðarlögunum, heldur samkvæmt lögunum um lög- gæslumenn, sem eru einmitt hafnir yfir heimilishelgi þeg- ar þeir elta strokufanga. Og þar sem ökubyttan breyttist á svo þénanlegu augnabliki úr ökubyttu í strokufanga, dæmdist hún réttelt inn fyrir þröskuld móður sinnar, jafnvel gegn ótvíræðu banni téðrar móður, og réttdræg undan sinni eigin súð, og réttræk í hvern þann stað sem lögreglunni þóknaðist að nota til að láta sjúga úr henni sönnunargögn. Lausn á síðustu krosssátu L 'fí S 3 K fí S fí 7 fí Q L 'fí m P Æ /< / L L / N N U R T U m • ‘o L fí F U R ' ‘fí N N R 3 fí N N 5 £ T T u R fí R fí N 6 U R ' fí u ‘H L F / fí N - fí T R £ /V N fí N fí F fí R T ‘fí L fí U m > fí N <S fí R fí U N R 0 K fí 5 fí T m 'O r /) L u R <3 <7 L 'fí T / 3 fí V t V T £ P R U L £ 6 fí H 'fí 5 fí /V 5 N / D G fí F> fí • R fí K a L fí U s r N '3 V • 5 K fí R P U R R fí /n fí N ' fí u m U R E 1 5 Æ L U - T R o 5 • N fí U T / -Ð u N N ' 5 7“ O R u R /< K > N N i N fí H 6 fí ! ' 5 L fí F fí R R 'O L £ 6 fí ■ fí K fí R fí T fí R \ l'/P 50/?- f HNflPp Ut7 SKRiÐ 7?ý/? ""S— flbVKfl BfíTflP FU6U KLflrnP r/flrnfl BL-JKfl v L VRflú K/STflN MENH a, K'flF VB/T/R T/ON /flÖNp ULL KHUPF. £NL>- 1 7 / SfímiT '9TÓLP/ KuoVfík yxjfl! \ y • mYNT '/ HUHVi fíTT f 5 k£nri /vt/KLp þl&U MARK M/P/t> 0 BoN VOi/Úfl FoKfíiÐ/ pFsm flRfl. 6 Ru/ FoRSK 'OLGfí- ITEf« UR í. SnmST þuKLfí t SKAT-r Ptn SKflPfí -s-M 'flTT jFTDTi UR f Y£PSN fík SP/JSH TomM élfEPfl F£Lfí6 SKlHN SBP/ R'flS/R /VflR úKKo/n VJARF fl/? í PúKWf) RN/fl- TflfíUST £ND. HF, STTKfj 6£P£>/ HflH/ G'oKfí l-ýKUli UPP K/NDVr V£RK FÆR/ t MfíL/f) /AYKbll T/'±>flt/ UPP r/flrfl VLNJU liu/VD uf? T/T/LL k£yf3>/ KoNfl rumfí PLTGjfí fi/RTfl SP/LDU TÚTTfí Höcjfí - KTJ>- /NQ ^ flcrru SNfíF/ T/JvJ b! ‘ > ( MKjfí SPo/k t V HOP Y/N/Ð * VflOP/ ~F fl RB/m ’osom) HftPP/Ð ! RH.'Ofl RUúLfl £>//? ; • L 1 * 1 3 £/US /ÐKfí- 2>/ 5om/

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.