Helgarpósturinn - 22.04.1983, Blaðsíða 15

Helgarpósturinn - 22.04.1983, Blaðsíða 15
15 -JpjHgLf, ,rjnn Föstudagur 22. arpii 1983. vettvanqBr María Jóhanna Larusdottir Helstefna — lífsstefna íslendingar hafa ekki farið varhluta af því valdatafli sem ógnar nú mannkyninu. í austri og vestri sitja stórveldin tvö grá fyrir járnum. Þau hafa skipt heiminum bróðurlega á milli sín og fylgjast náið með að ekkert raski því valdajafnvægi sem þau hafa komið sér saman um. Þar eru leikreglurnar skýrar, heldur skal murkað lífið úr heilli þjóð en að á annan hvom aðilann hallist. Sjálfstæði, friður, frelsi eru hugtök sem hafa glatað merkingu sinni á taflborði þeirra. í Evrópu hlaðast upp vopn beggja vegna frá, vopn sem nægja tilað eyða þar öllu lífi mörgum sinnum, allt í nafni friðar, frelsis og öryggis. Og á meðan jörð- in brennur undir fótum Evrópubúa deila menn um hvort stóreldið sé hættulegra, og hvort sé vænlegra að ganga í vinstri eða hægri hring í leit að skjóli. I aldagamalli bókmenntaperlu íslendinga, Völuspá, greinir frá sköpun jarðar og upphafi lífsins, saklausum goðum í árdaga, gædd- um næmum skynfærum sem gáfu þeim mátt til að koma skipun á himintungl og stjörnun og til að sjá við yfirgangi nágranna sinna í austri, jötnum, sem ásældust ríki þeirra. Máttur þeirra og megin byggðist á meðfæddri skynjun og ólíkum eiginleikum þeirra hvers um sig. Ágirndin kom til þeirra í gervi Gollveigar og olli styrjöld, sem goðin sjálf hófu og töpuðu. Eftir það fóru atburðir að gerast hratt og hnignunarteikn blöstu hvarvetna við. Óðinn, æðstur goðanna, sá fram á tortímingu veraldarinnar allrar. Hann reyndi að sporna við fótum og gekk á vit jötna, höfuð- andstæðinga sinna, og seldi þeim auga sitt að veði fyrir viskuna, á sama hátt og Heimdallur fórnaði hinni næmu hlust sinni og fól hana undir sjálfu lífsins tré, Aski Yggdra- sils. En viskan og hin áunna þekk- ing bjargaði ekki goðunum frá tor- tímingu. Þegar Ragnarök nálguð- ust þá sá Óðinn ekki mistilteininn sem grandaði hinu góða og bjarta sem Baldur var fulltrúi fyrir og hin illu öfl gátu óhult hreiðrað um sig meðal goða. Á sama hátt heyrði Heimdallur ekki dyn jötnanna og aðvaraði því ekki goðin þegar mest lá við. Það sem blasir við manninum nú er eyðing lífs og náttúru. Sökin er hans sjálfs. Ágirndin sem hélt inn- reið sína forðum í saklausan heim ásanna hefur hreiðrað um sig í heimi mannanna og í kjölfar henn- ar styrjaldir, spilling og valda- græðgi. Skynjun hans, sjón og heyrn, er blinduð af trúnni á að ný þekking muni forða honum frá ör- lögum sínum. Daglega lesum við um ný tækniundur sem eiga að losa heimsbyggðina undan ánauð hung- urs, mengunar, auðlindaþurrðar og nú síðast: undan ógnvaldinum sjálfum, helsprengjunni. — Menn sem eitt sinn léku sér sem börn með heimasmíðuð tól að vopni til að klekkja á tilbúnum andstæðingi smíða nú og hanna gereyðingar- vopn með sömu leikgleði — hverfa síðan heim til fjölskyldna sinna að loknu dagsverki og gæta þess að börnin þeirra bursti vandlega í sér tennurnar fyrir svefninn. Hin kalda rökhugsun mannsins er slitin úr tengslum við þá tilfinningu að þau vopn er hann sjálfur smíðaði muni granda hans eigin lífi og barna hans. Þegar svo er komið eru grundvallarlögmál lífsins rofin. Engin áunnin þekking né viska get- ur komið í stað þeirrar tilfinningar að ala önn fyrir og viðhalda því lífi sem maðurinn elur af sér og sem varar hann við því þegar því lífi er ógnað. Konur ganga með börn og fæða þau. Þær varðveita tengsl manns og náttúru og eru því í stakk búnar að skynja þá hættu sem steðjar að mannkyninu, sú skynjun er dýr- mæt og henni megum við ekki glata í öllum þeim bardagaleikjum sem háðir eru í nafni friðar og frelsis en leiða í raun til sundrungar og á- nauðar, þar sem markmiðið var aldrei annað í upphafi leiksins en að tryggja öðrum hvorum aðilanum völd. Á sama hátt og heimsveldin tvö tryggja sér valdajafnvægið í heiminum, tryggja íslenskir stjórn- málaflokkar sér kjósendur í kosn- ingum með þvi að skipta þeim í tvær stríðandi fylkingar þar sem deilt er um veru Islands í hernaðar- bandalagi og dvöl erlends hers hér á landi. Að kosningum loknum held- ur lífið áfram sinn vanagang eins og ekkert hafi í skorist. — Það virðist ekki skipta neinu máli hvor fylking- in situr i ríkisstjórn, engin breyting verður á utanríkismálum ís- lendinga. Við sem stöndum að Kvennalistanum teljum að vopn tryggi ekki frið. Þess vegna tökum við eindregna afstöðu gegn öllum herjum og hernaðarbandalögum. Okkur er ljós sú hætta sem stafar af vopnasöfnun í Evrópu og viljum tengjast þeim umræðum sem þar hafa farið fram um afvopnun og eru að stórum hluta bornar upp af konum. Evrópubúar verða samein- aðir að losa sig úr greipum stórveld- anna tveggja eigi þeir ekki að verða útrýmingu að bráð. Á sama hátt verða íslenskir kjósendur að losa sig úr viðjum stjórnmálaflokkanna fjögurra sem eru á góðri leið með að glata sjálfstæði Islendinga með því að gera þá efnahagslega ósjálf- stæða. Á þrettándu öld glötuðu ís- lendingar sjálfstæði sínu vegna inn- byrðis deilna og urðu háðir erlendu valdi hvað varðaði samgöngur og verslunarviðskipti. Það ófrelsi var dýru verði keypt og leiddi til sjö hundruð ára ánauðar. Við munum á Alþingi íslendinga beita okkur fyrir því að kanna hver séu hin raunverulegu tengsl íslensks efna- hagslífs og hernaðarhagsmuna. Við ölum ekki fremur en aðrar konur líf inn í þennan heim til að börn okkar verði fallbyssufóður fyrir annað hvort stórveldið og er okkur því nokkuð sama hvort sú hætta steðjar að úr austri eða vestri. Þess vegna viljum við raunveruleg- ar umræður um frið án þess að vera dregnar í hægri eða vinstri dilka, en þau hugtök virðast ekki aðeins vera einhver grundvallarlögmál allrar stjórnamálaumræðu hér á landi heldur jafnvel undirstaða sjálfrar tilverunnar. Ég vil minna á að margt gerðist í mannkynsögunni áður en þau hugtök urðu til og að frelsisbarátta þessarar þjóðar var ekki háð undir merki þeirra. Volg nýbökuð brauð á morgnana Já, ég vek athygli ykkar á nýju brauöunum sem koma ylvolg úr ofninum á hverjum morgni. Þá má ekki gleyma kökuúrvalinu, vínarbrauöunum, snúöunum og öllu hinu góögætinu sem alltaf er ferskt og fínt á hverjum degi. Svo á ég alltaf ilmandi kaffi á könnunni. OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 8—18. LAUGARDAGA KL. 8—16 OG SUNNUDAGA KL. 9—16. VERIÐ ÁVALLT VELKOMIN í BAKARÍIÐ BAKARÍ — KONDITORI — KAFFI GLEÐILEGT SUMAR Sumardaginn fyrsta opið kl. 9—16 Spemnxjöafeari ,GRENSASVEGI 48 ÍSÍMI 81618 gólfteppi á ótrú/ega hagstæðu verði. Vegna sérstaklega hag- stæðra magninnkaupa bjóðum við Berber ullarblöndu- og aiu/iarteppi /ýá aðeins kr. 310 pr. m2 Komið og skoðið eða hringið og við sendum sýnishorn. Berber 50% acryl + 50% ull kr. 310. Berber 50% acryl + 50% ull grófg. kr. 345. Berber 100% ull kr. 390. Staðgreiðsluafsláttur—greiðs/uskilmálar OPIÐ: MÁNUD.-FIMMTUD. 8-18, FÖSTUD. 8-19, LAUGARD. 9-12. HRINGBRAUT 120: Byggingavörur .. Góllteppadeild.... Simar: Timburdeild................. 28-604 .28-600 Málningarvörur og verklæri_____28-605 .28-603 Flisar ög hreinlætistaeki......28-430 'HRINGBRAUT 120 (Aökeyrsla frá Sólvallagötu>

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.