Helgarpósturinn - 22.04.1983, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 22.04.1983, Blaðsíða 2
Kjörfundur í Kópavogi Kjörfundur 'í Kópavogi vegna alþingiskosninganna laugardaginn 23. apríl 1983 hefst kl. 9.00 og lýkur kl. 23.00 Kjörstaðir veröa tveir. í Kársnesskóla fyrir kjósendur sem samkvæmt kjörskrá eru búsettir vestan Hafnar- fjaröarvegar og í Víghólaskóla fyrir kjósendur sem samkvæmt kjörskrá eru búsettir austan Hafnarfjarð- arvegar. Aösetur kjörstjórnar veröur í Víghólaskóla. Vakin er athygli á því aö kjörstjórn getur krafist þess aö kjósandi sanni hver hann er meö því aö framvísa nafnskírteini eða á annan fullnægjandi hátt. Kjörstjórnin í Kópavogi Bjarni P. Jónasson Ingólfur Hjartarson Snorri Karlsson Föstudagur 22. arpíl 1983., íp'ósturinn Vísis Hér er ein, sem við seljum ekki dýrar en við keyptum: Þrír fyrrverandi ritstjórar og DV, Gunnar G. Schram, Þorsteinn Pálsson og Ellert B. Schram, verða væntanlega þing- menn um helgina. Sömuleiðis Kristín Halldórsdóttir, kona fjórða ritstjórans, Jónasar Kristjánssonar. Útgáfustjórar DV, Sveinn R. Eyj- ólfsson og Hörður Einarsson, voru að ræða þetta á leið út úr húsinu í vikunni. Sáu þeir þá hvar róni mé utan í húsið. — Þú skalt ekki gera þetta maður, á Sveinn að hafa sagt. — Þú gætir endaö á þingi... Þótt skipstjórinn á Einari Ben. sé vígreifur þessa dagana þykir það ekkert grín lálið á hendur honum í Sakadómi Reykjavíkur fyrir að hafa „platað“ Steingrím Hermannsson þegar tog- arinn var keyptur til landsins. Málið höfðaði ríkissaksóknari á grund- velli rannsóknar RLR en hvatamað- urinn að rannsókninni var Tómas Árnason viðskiptaráðherra._ Málið er höfðað á hendur Níelsi Ársæls- ÞESSA KONU MEGUM VIÐ EKKI MISSA ÚT AF ÞINGI Jóhanna Sigurðardóttir Metiöhanaafverkum hennar Hún hefurfluttlagafrumvörpogtillöguráAlþingi m.a. um: • Jafnrétti kvenna og karla til stööuveitinga og launa og úttekt á ranglátri tekjuskiptingu í þjóö- félaginu. Samþykkt 1980. • Aö tryggja réttarstööu fólks í óvígöri sambúö. Samþykkt 1980. • Aö lánskjaravísitala hækki aldrei greiöslubyröi lána umfram hækkun launa. • Aö veitt veröi lán til byggingar dagvistarheimila. Samþykkt 1979. • Framkvæmdasjóö, sem fjármagnar byggingar í þágu öryrkja og þroskaheftra. Samþykkt á Alþingi 1979. • Aö komið veröi á samræmdu verðtryggðu lífeyr- iskerfi fyrir alla landsmenn. • Eftirlit meö ráðuneytum, bönkum og rikisstofn- unum varöandi risnu7 bifreiöa- og ferðakostnað, og aukafjárveitingum. Samþykkt 1982 og er aö koma til framkvæmda. Jóhanna hefur verið afkastamikiil fulltrúi kvenþjóðarinnar á Alþingi Nú vantar herslumuninn til að tryggja áframhaldandi starf Jóhönnu á Alþingi LOKAÁTAKIÐ ER EFTIR Eitt atkvœði — t.d. þitt getur ráðið úrslitum XA r syni skipstjóra og Ólafi Ingimars- syni stýrimanni en þeir eru helstu eigendur skipsins. Þegar TÓmas krafðist rannsóknarinnar lofaði hann að segja skýrt og greinilega frá öllu málinu þegar hann fengi rannsóknina í hendur. Þar sem Ní- els fullyrti við rannsóknina að bæði Tómas og Steingrímur hefðu vitað nákvæmlega hvernig í pottinn var búið þegar leyfi var veitt til skipa- kaupanna, fengu báðir ráðherrarn- ir í hendur afrit skýrslunnar til um- sagnar fyrir útgáfu ákærunnar. Eftir það ákvað Tómas að segja ekki neitt. Báðir hafa ákveðið hafn- að þessari fullyrðingu skipstjórans. — Við rannsókn málsins kom í ljós, að af hálfu viðskiptaráðuneytisins hafði engin alvarleg tilraun verið gerð til að sannreyna orð Níelsar og Ólafs um eignarhald þeirra á til- teknum skipum. í ráðuneytinu voru t.d. ekki til grundvallargögn úr veð- málabókum. Fleiri mál munu vera í gangi á hendur útgerð skipsins, m.a. ásökun um að um borð séu notuð veiðarfæri sem séu ekki í eigu útgerðarinnar og enginn man eftir að hafa lánað. Þá hefur ríkissak- söknari áfrýjað dóminum úr Vest- mannaeyjum, þar sem Níels var sýknaður af fiskveiðilagabroti þar sem vélarstærð var mæld vera önn- ur en framleiðslustærð... Stjórnmálamenn hafa auð- vitað mikið velt fyrir sér niðurstöðum þeirra skoðana- kannana sem birst hafa um fylgi framboða í kosningunum um helg- ina. Og ekki síst með tilliti til þess hvort viðkomandi þingmaður sé dottinn út af þingi eða ekki. Hafa ýmsir núverandi þingmenn óttast mjög um sinn hag. Þannig voru frambjóðendur í Austurlandskjör- dæmi að velta fyrir sér þessum nið- urstöðum á kosningaleiðangri fyrir austan. Þá sagði Egill Jónsson, al- þingismaður Sjálfstæðisflokksins um útkomu síns flokks: „Ja, þeir ná ekki að fá 24—5 þingmenn nema ég fái að koma með..“ PTl Jökull Jakobsson hefði f' \ orðið fimmtugur næsta haust nánar tiltekið 14. september. Vafalaust verður minningu hans sýndur sómi með ýmsum hætti þeg- ar þar að kemur og m.a. heyrum við að Leikfélag Reykjavíkur, sem Jök- ull skrifaði fyrir sín fyrstu leikrit, stefni að því að setja upp það verk hans sem fyrst sló í gegn.Hart í bak. Gert er ráð fyrir að leikstjóri verði Hallmar Sigurðsson... Þá er að hefjast undirbúning- ur að gerð kvikmyndar eftir skáldsögu Jökuls Jakobsson- ar. Skilaboð til Söndru. Þar hefur nú verið frágengið að kvikmynda- tökumaður verði Einar Bjarnason sem um árabil hefur starfað við það fag í Svíþjóð en er nýfluttur hingað til lands. r'l Brenglun varð í fyrirsögn f'1 á fréttaklausu um billjardmeistaramótið í síðasta blaði. Orðið „Eigum“ breyttist í „Ekki“ þannig að haft var þar eftir Ágúst Agústssyni að ís- lenskir billjardmenn ættu ekki góða möguleika gagnvart útlend- ingum. Agúst telur þvert á móti að okkar menn eigi góða möguleika, eins og kemur fram í klausunni aft- arlega. Þetta leiðréttist hér með. — ÓV. r' l Herra ritstjóri. f J Mig langar að gera örlitla y athugasemd við meðfylgj- andi klausu en hún birtist í síðasta tölublaði Helgarpóstsins. Ég hef ekki sótt um stöðu deild- arstjóra við RÁS 2 hjá Ríkisútvarp- inu og ætla mér heldur ekki að gera það, þar sem ég hef ekki sérstakan áhuga á umræddu starfi. Hins veg- ar getur vel verið að mig langi til að hafa umsjón með einhverjum músíkþáttum á RÁS 2 - en það er önnur saga. Virðingarfyllst, Þorsteinn Eggertsson, Ránargötu 36, 101 Reykjavík.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.