Helgarpósturinn - 22.04.1983, Blaðsíða 12

Helgarpósturinn - 22.04.1983, Blaðsíða 12
12 María Markan Östlund var búin að dekka upp borð með kaffi, bakkelsi og þeyttum rjóma þegar við komum. — Eg er alveg hætt að borða rjóma svo þú verður að 'gera það, góði minn, sagði hún og setti væna slettu á kökudiskinn minn. —- Hvernig er heilsan? spurði ég. ,,Eg er ágæt í dag og í gær líka. Eg verð að ganga — þótt ég sé með hann þennan“, svaraði hún og veifaði göngustaf. ,,Þó að ég hafi hnífa í hnjánum þá geng ég á hverjum degi eða syndi. Eg má til. Komdu hérna aðeins með mér“, sagði hún svo og leiddi mig inn í annað herbergi. Þar stóð þrekhjól útivið glugga. „Hjólreiðakona ársins, ha ha“, hló hún dátt. „Þjálfarinn í Hveragerði ráðlagði mér að fá mér þetta og ég hjóla hérna nokkrum sinn- um á dag“. — Hvað er það sem plagar þig? „Æ, eigurrr við nokkuð að vera að tala um það? Jæja, það er kannski best að segja það bara í eitt skipti fyrir öll. Það er hvort eð er allt- af verið að spyrja mig: — Ertu með gigt? Nei, það sem er að mér er brjóskeyðsla í hnjánum. Þar er bara bein í b'ein. Þess vegna varð ég að hætta með skólann fyrir þremur árum — ég þurfti oft að sitja svo lengi við kennsluna að ég gat þetta ekki lengur“. — Og ég sem ætlaði að byrja á að spyrja hvort þér, sem ert svo glettilega hress að sjá og heyra — og búin að gera svo margt og mikið — hvort þér hefði aldrei orðið almennilega misdægurt? „Misdægurt? Biddu fyrir þér! Ætlarðu að gista hér í nótt á meðan ég romsa þvúöllu upp úr mér? Þér er svo sem velkomið að liggja í flatsæng hér á gólfinu!“. María Markan iðar af lífi og fjöri, jafnvel þótt hún sé ekki áberandi snögg í hreyfingum. Hún hlær oft og hlær þá dátt. Gesturinn kemst ekki hjá því að láta smitast og hlátra- sköllin dynja um litlu íbúðina á Laugarnes- veginum. „Jú, góði minn. Mér hefur orðið mis- dægurt. Þegar ég var 24 ára í Beríin — þetta var fyrir stríð — þá fékk ég liðagigt. Og svo hefur eitt og annað komið fyrir síðan. En miðað við aldur — ég er orðin 77 ára — þá má ég ábyggilega þakka fyrir hvað ég er hraust“. Heyrbist mest íþeirri gömlu — Lentirðu ekki á spítala einhverntíma í vetur? „Ja, ég fór austur í Hveragerði í október og var í tæpa þrjá mánuði. Það var alveg yndis- legt að vera þar og margt gott fólk. Enda var ég miklu hressari þegar ég kom heim aftur. Fyrstu sex vikurnar var mér ekið um allt í hjólastó! — en ég vissi að ég var að verða betri þegar ég var farin að syngja með á kvöld- vökunum á fimmtudögum, þjóðsönginn og svoleiðis nokkuð, þannig að mest heyrðist í þeirri gömlu!“. — Þér hefur kannski leiðst að fara heim? „Ekki segi ég það nú. En þegar ég var að fara heim, var að pakka niður i herberginu mínu, þá var allt í einu barið að dyrum. Ég opnaði og þá var fyrir utan hópur af fólki, sem þarna hafði verið með mér. Þau voru með blóm og sumir karlarnir höfðu meira að segja ort kvæði handa mér í kveðjuskyni..“ Hún tók dagbók ofan úr hillu og rétti mér handskrifuð blöð. Á einu var þessi vísa eftir Guðmund G. Halldórsson frá Húsavík — ort í kveðjuskyni við Maríu Markan á hressingar- hælinu í Hveragerði: „Dagarnir ókomnu vinir þér veri, veiti þér fortíðin unað og skjó). Hjartkærar þakkir nú blómin þér beri birtu og gleöi með hækkandi sól“. — Það er gaman að fá svona kveðjur, María. „Já, enda þótti mér svo vænt um þetta að ég fór bara að gráta. Og þá þótti mér ennþá vænna um að hafa getað glatt þetta fólk af og til með því að syngja fyrir það og með því. Það er skylda mín, finnst mér að nota röddina öðrum til gleði“. — Þú syngur alltaf talsvert, er það ekki? „Ég skal syngja fyrir þig“. Hún snaraðist að píanóinu og þá var ekki að sjá að það væri bein í bein í hnjánum á henni. „Ég skal nefni- lega segja þér alveg eins og er“, sagði hún þegar hún var sest, „að röddin er ennþá furðu góð. Ég kemst til að mynda hærra núna en ég gerði fyrir nokkrum árum. Og röddin klingir ennþá — kjarninn er þarna á sínum stað!“ Svo byrjaði hún að spila og syngja „Syngdu meðan sólin skín“. Og víst er röddin „furðu- góð“ og klingir eins og litlar silfurbjöllur á sumardegi. Satt að segja man þessi blaðamað- ur ekki eftir öllu indælli stund á sínum starfs- ferli en að sitja einn með Maríu Markan, ókrýndri drottningu íslenskrar sönglistar og hlusta á hana. Eða horfa á hana því hún og tónlistin runnu saman í eitt, augun í henni sindruðu eins og í barni á jólum og það var eins og stjörnurnar lýstu upp stofuna. / Ohollt fyrir sálina „Jæja“, sagði María þegar hún var sest aft- ur í hægindastól. „Um hvað viltu svo tala? Við skulum ekki vera að tala mikið um gamla daga og hvað ég gerði þarna eða þarna. Það er óttalega tilgangslaust — fólk getur lesið ævisöguna mína, sem kom að vísu allt of snemma út, eða flett upp í Who’s Who. Það er óhollt fyrir sálina að hugsa of mikið til baka“. — Mig langar nú samt að vita hvort það er ekki rétt að þú sért úr mikilli músíkfjöl- skyldu? Hvað voruð þið systkinin mörg? „Já, já, við vorum mörg. Við vorum sjö al- systkin og að auki einn hálfbróðir og einn uppeldisbróðir. Sá er reyndar jafnframt systursobur minn, Hörður Markan, en ég hef alltaf litið á hann sem bróður minn“. — Öll söngfólk? „Flest höfðum við meira og minna góðar raddir. Nú eru þau öll dáin nema við tvær systurnar, Elísabet og ég. Elísabet söng mjög ve! og var vel þekkt hér heima. Hún var líka miklu betri en ég að bródera. Ég held bara að hún hafi bróderað á milli fjörutíu og fimmtíu samfellur auk margs annars. Ég var reyndar sem unglingur í saumaklúbb sem hét „Saum- sprettan" og býst við að ég hafi átt met í að spretta upp! En áfram með systkinin: það muna allflestir vel eftir Einari bróður mínum, söngvara og tónskáldi, og líka Sigurði. er einnig söng vel. Elsta systir mín, Helga, hafði sömuleiðis fagra söngrödd“. Prjóna ekki — En hvað ertu svo að gera þessa dagana? „Ég er bara að lifa! Og ég hef svo mikið að gera, að stundum kemst ég ekki yfir nema helminginn af því, sem mér finnst að ég eigi að gera. Einu sinni í viku, eða þar um bil, tek ég þátt í „opnu húsi“ með jafnöldrum mínum og fleira fólki í Hallgrímskirkju, Laugarnes- kirkju og á Droplaugarstöðum. Fólkinu finnst gaman og mér finnst gaman líka. Þess vegna segi ég: Því skyldi ég ekki gera þetta úr því að mér finnst ég geta það? Maður verður að miðla af því, sem maður hefur. Það er ekki nóg að vera alltaf þiggjandi. Og þetta er stór- merkilegt starf hjá þeim, safnaðarsystrunum í kirkjunum. Hún bað mig um þetta fyrst hún Dómhildur safnaðarsystir, konan hans séra Péturs Ingjaldssonar — en ekki veit ég hvernig henni datt í hug að vera að biðja mig um að koma. Svo hef ég líka upp á síðkastið verið í Laugarneskirkju — safnaðarsystirin þar ein, Margrét Hróbjartsdóttir, hringdi til mín og bað mig um að vera með. Og svo dunda ég mér við músíkina. Ég hlusta mikið á tónlist, fer á tónleika eftir því sem ég get og er í sambandi við kunningja mína og vini. Heyrnin er sæmileg en ég set á mig heyrnartæki ef ég fer í leikhús og kirkju. Og það set ég á mig hvar sem er, ég er alveg ófeimin við það. Ég hef aldrei skilið að það þurfi að vera eitthvert pukur— ekki pukrast fólk þegar það setur á sig gleraugun! Mér finnst bara gaman að sýna að ég kann að nota heyrnartækið. Nú, nú, Ólafur Vignir, píanó- leikari, hann kemur til mín tvisvar og þrisvar í mánuði og þá spilum við nokkur Iög inn á kassettutækið mitt. það heldur manni gang- andi og getur orðið gainan að því einhvern- tíma. En ég prjóna ekki — eins og venjulegar sið- samar gamlar konur. Hinsvegar hefi ég bróderað talsvert ef ég kemst ekki út. Þessar myndir hér á veggjunum — þær bróderaði ég eitt árið þegar ég átti sérlega erfitt um gang“. Er ég nokkub eins og Billy Graham? — Er erfitt að draga sig í hlé frá skarkala heimsins eftir að hafa verið toppnúmer úti í hinum stóra heimi? Föstudagur 22. arpíl 1983 _J~feloai- -Pösturinn Hún hikaði andartak og leit snöggt til mín. „Já“. sagði hún svo. „Það getur verið það. Fyrst í stað. En það er um að gera að vinna á móti því — maður verður að forðast að verða bitur. Þegar maður hefur orðið betri tíma fyr- ir sjálfan sig og þarf ekki stöðugt að vera að æfa fyrir næsta konsert eða sýningu, þá getur ýmislegt gamalt og leiðinlegt rifjast upp. Allt slíkt verður maður að yfirvinna og þá líður manni auðvitað miklu betur. Sjáðu til, aðal- ..atriðið er að taka sjálfan sig ekki of hátíðlega. Mér dettur í hug visubrot, sem góð vinkona mín hafði eftir einhverjum kunningja sínum, er hafði ort erfiljóð: Dáið er Ijós, slokknað er Ijós á kerti. Merkilegu kerti — merkikerti. Ég man ekki meira af þessu en mér þykir þetta stórsniðugt, haha. Það er þetta sem ég á við“. — Hefurðu óttast það að þú gleymist? María varð aftur alvarleg. „Víst hefur það komið fyrir mig. Sérstaklega ef ég hef ekki komist út lengi. En allir sem eldast og búa ein- ir ganga í gegnum þetta. Og jafnvel fólk, sem á börn, það hefur stundum á tilfinningunni, að það sé að gleymast. Ég er líklega bara heppin, þótt ég eigi aðeins einn son og þótt hann búi langt í burtu. Ég hugsa að ég hafi jafnvel meira samband við hann en margir aðrir sem eiga fleiri börn í næsta nágrenni. Iss, það þýðir ekkert að vera að berja höfðinu við steininn. Ég tek því, sem ég verð að gegnum- ganga. Heyrðu“, bætti hún svo við, „Er ég nokkuð farin að hljóma eins og Billy Graham predikari?". Varstu eitthvab ab röfla? — Alls ekki. En segðu mér: Hvernig kanntu við þig í hlutverki Grand Dame íslensks óperulífs, íslenskrar óperusögu? Hún skellihló: „Hamingjan góða! Ég hugsa aldrei um sjálfa mig á þann hátt. Mig langar bara að vera þægileg manneskja. Og mér sýnist bara vera full time job að gera það! Ég hef alveg nóg fyrir stafni — ég reyni að vera vinur vina minna, taka eitthvað og gefa á móti, reyna að segja eitthvað glaðlegt þótt það sé ekki alltaf hágáfulegt. Það er alltaf eitthvað, sem ég get glaðst yfir. Það kemur til dæmis margt skemmtilegt fyrir mig á leiðinni í sundlaugarnar. Ég skal segja þér... ég á nefnilega til að tala hástöfum við sjálfa mig, hvort sem ég er úti eða inni. Einu sinni var ég á leið heim úr laugunum og var að tala við sjálfa mig. Nú heyrir maður engin skóhljóð orðið Iengur því allir eru á gúmmí- sólum en það gerðist þennan dag, að allt í einu gekk fram úr mér maður —líklega einhvers- konar útigangsmaður, mér fannst hann vera þannig — í þann mund sem ég er að segja eitt- hvað. Þá snýr hann sér við og segir við mig: — Varstu eitthvað að röfla? — Nei, nei, sagði ég. — Ég var bara að tala við sjálfa mig. Af hverju ertu að því, spurði hann. - Mér þykir gott að fá almennileg svör stöku sinnum!“. Eins og skothvellur Ljósmyndarinn hafði lokið sér af og María fylgdi honum til dyra. í stigaganginum eru nokkrar myndir af henni í frægum óperuhlut- verkum — annað vísar ekki á að þarna búi söngvari með svo glæstan feril að baki, ef frá er talið píanóið, sem skipar heiðurssess í stofunni. „Það er orðið langt síðan ég hef verið til I að láta eiga við mig viðtal", sagði María þegar hún var sest aftur. „Ég er líka miklu opnari núna en ég var áður. Ég var óskaplega lengi að losa mig við allar hömlur — hvað ég leið fyrir að þurfa að standa frammi fyrir fólki og syngja, drottinn minn. Því trúir áreiðanlega enginn. Hjartað fór upp i háls, ég missti and- ann og röddin titraði margfalt meira en eðli- legt var. Þetta var einna verst í skólanum í þá daga — kennarinn minn, hún var orðin alveg örvingluð. — Þú verður að syngja sem mest, sagði hún við mig. — Það er frumskilyrði fyr- ir því að þú getir þjálfað sjálfa þig og röddina. Nú nú, ég var búin að koma fram einu sinni í Hornemann-salnum með úrvali úr skólan- um. Svo ætlaði hún að halda annað söng- kvöld með öðrum nemendum, sem ekki komust í úrvalið og hún vildi endilega hafa mig með svo ég gæti æft mig. Jæja, það var ákveðið að ég myndi byrja á laginu En dröm eftir Grieg, sem reyndar varð seinna eitt af mínum glansnúmerum. Þarna um kvöldið átti ég að syngja á eftir konu, frú Zimmer- mann, sem var nú aldrei sérstaklega góð, enda var hún gift og að þessu meira að gamni sínu. Á meðan hún var að syngja beið ég í stiganum og hugsaði með mér: Jæja, þú getur þó huggað þig við að þú kemur á eftir henni frú Zimmermann. Þú verður aldrei verri en hún! En þegar ég var komin fram á sviðið og undir- leikarinn hafði lokið forspilinu, þá kom ég bara ekki upp nokkru hljóði. Ó, þetta var skelfing vandræðalegt. Og ég skellti hendinni upp á vangann — og þá fórú áheyrendur í salnum að hlæja. Ég fór að hlæja með þeim, svona smávegis, og hugsaði um leið: Nú hlýtur þetta að koma. En dröm byrjar mjög mjúk- lega og blítt — en þegar ég gat byrjað kom fyrsta nótan eins og skothvellur! Svo gekk allt vel eftir það. En svona var ég í þá daga!“ Súrt og sœtt — Óperur fjalla flestar — ef ekki allar — um ást og hatur, heitar ástríður og tilfinninga- leg tilþrif. Er hægt að tala á sama hátt um einkalíf óperusöngvara? „Nei, það er auðvitað engin regla til um það frekar en hjá öðru fólki. Einkalíf söngvara er eins og allt annað — mjög persónubundið". — Hvað með þitt einkalíf? Var t.d. hjóna- band ykkar Georgs heitins Östlund storma- samt og átakamikið? María hikaði og horfði til skiptis á mig og út um gluggann. „Við Georg vorum mjög staðföst“, svaraði hún loks. „Okkur gekk best fyrstu árin, enda vorum við þá í góðum efn- um. Síðan komu nokkur óheppnisár... ég deildi þó bæði súru og sætu með honum og aldrei datt mér í hug að fara frá honum þótt sitthvað blési í móti. Hann dó 1960 og ég hef alla tíð verið ánægð með að hafa breytt eins og ég gerði. Það þýðir ekki að ganga í hjónaband og búast við eintómri sælu. Þannig er það hvergi. Það fá allir sitt — og þá, eins og alltaf, skiptir ekki meginmáli hvað maður reynir heldur hvernig maður tekur því“. — Segðu mér meira frá þessu... „Æ, ég veit það ekki. Það er þó kannski best að segja hverja sögu eins og hún gerðist. Auðvitað var okkar hjónaband stormasamt. Við gengum í gegnum mikla erfiðleika. Hann glaptist á það, blessaður maðurinn, að leggja allt sem við áttum í tunnuverksmiðju í Kanada og þá fluttum við til Quebec. Það var líklega versti tími, sem ég hef lifað... ég vil helst hugsa sem minnst um það. Nema hvað, þessi verksmiðja var sett upp í Three Rivers og átti að vera mjög arðbært fyrirtæki enda mikið skóglendi þarna í kring. En þegar verksmiðjan var komin í gang hentaði viður- inn ekki í tunnustafina betur en svo, að það var ekki nema á að giska tíundi hver stafur sem dugði. Svo þetta fór allt á höfuðið. Ég vildi ekki ganga í gegnum þetta aftur... Við seldum svo allt okkar og fórum heim til íslands“. Alltaf ab fela — Var ekki Georg Svíi? „Jú — og þó taldi hann sig alltaf vera íslending. Hann átti sænskan föður, séra Davíð Östlund, og norska móður. Faðir hans var trúboði á Seyðisfirði og þar fæddist Georg og bjó til sextán ára aldurs. En hann var bandarískur þegn þegar við kynntumst í New York og það hjálpaði mikið til þegar við fluttumst heim frá Kanada, þá fékk hann ágætt starf á Keflavíkurflugvelli, enda talaði hann alltaf góða íslensku, sem og ensku“. Hún hikaði aftur. Brosið var horfið úr aug- um hennar. „Aðalvandinn varð sá, að hann gerðist háð- ur drykkju“, sagði hún svo. „Það hefur kannski haft áhrif í Kanada, ráðið einhverju um hvernig allt fór. En hann fór alltaf vel með sína drykkju — hann var alltaf sami séntil- maðurinn. Og auðvitað reiknaði ég aldrei með þessu þegar ég giftist honum. Þess vegna er ég mikið á móti þessari svokölluðu hófdrykkju — hún er alltaf upphafið. Þegar við kynntumst var Georg fyrsti sölustjóri hjá Consolidated Edison orkufyrirtækinu í New York. Þar vann hann sig vel upp. Því fylgdu náttúrlega margir „lönsar" og kokkteilar með forstjórum og viðskiptavinum og það hefur vafalaust ráðið miklu um hvernig fór. En hann vissi of seint hvernig komið var og ég líka. Á þeim tíma var ekki mikla hjálp að fá fyrir áfengissjúklinga. Viðhorfið var allt annað en það er í dag — hann blygðaðist sín fyrir hvern- ig komið var fyrir honum. Og alltaf var ég að reyna að fela drykkjuna með honum... Ég veit ekki hvort það er rétt af mér að vera að tala um þetta. Þetta var svo skelfilegt leyndarmál í þá daga — en það er líklega rétt, að nú eru viðhorfin allt önnur. Við skulum láta koma vel fram, að hann var góður maður,

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.