Helgarpósturinn - 22.04.1983, Blaðsíða 23

Helgarpósturinn - 22.04.1983, Blaðsíða 23
Helgai----- -Pösturinn 23 •STJORNU BC0NDUNARXÆKI frá Noregi Bnina A-línan T Sterk og endingargóð tæfei, sem setja nýtiskulegan svip á umhverfíð UTSOLUSTAÐIR Byggingavöruverslun Tryggva Hannessonar, Sidumúla 37, 105 Reykjavik Byggingavöruverslun Jón Loftsson hf., Hnngbraut 119, 107 Reykjavik Axel Sveinbjörnsson hf., Hafnarbraut, 300 Akranes Byggingavöruverslun Sigurjóns og Þorbergs, 300 Akranes Verslunin Vík sf., 625 Ólafsfjörður Kaupfélag Hvammsfjarðar, 370 Búðardal Jón Fr. Einarsson, Hafnarg./Aðalstr., 415 B.olungarvik Hiti sf., 600 Akureyri Kaupfélag Langnesinga, 680 Þórshöfn Kaupfélag Rangæinga, Rauðalæk Miðstöðin sf.. Faxastig 9, 900 Vestmannaeyjar Kaupfélag Suðurnesja, járn og skip, 230 Keflavík Stapafell hf., Hafnargötu 29, 230 Keflavík Lækjarkot, Lækjargötu 32, 220 Hafnarfjörður heiidversiun MarinóPétursson SUNDABORG 7. 124 REYKJAVÍK. SÍMI: 81044 STILLANLEGIR abriel höggdeyfar í flestar gerðir 75 ÁR Sendum í póstkröfu í fararbroddi — trygging fyrir gæöum Civarahlutir W Hamarshöfði 1 Reykiavík. Sími 3651C LOFTDEMPARAR Hlemmur 17 heimilið í Kópavogi, Unglinga- athvarfið, Sambýlið við Sólheima, Borgarsambýlið“. — Eru þau skemmd, þessi börn og unglingar? Er hægt að hjálpa þeim til að Iifa eðlilegu fjölskyldu- lífi þegar þau fara frá ykkur? „Því miður held ég að í mörgum tilfellum sé staðan sú, að þau geti ekki lifað eðlilegu lífi innan hefð- bundinnar fjölskyldu. Ástæðan er einföld: Þau hafa ekki öll kynnst þannig lífi og það gæti reynst þeim erfitt að miðla af reynslu, sem þau hafa ekki upplifað sjálf“. í meðferð En hvað er þá til ráða? Það hefur komið fram hér á undan að í raun- inni er ekki verið að tala um stóran hóp unglinga, kannski tuttugu af tuttugu þúsund. Trúlega þó nokkuð fleiri. Erlendur S. Baldursson, af- brotafræðingur hjá Skilorðseftirliti ríkisins, benti á í samtali við blaðið að í rauninni væri enginn staður til fyrir unglinga á þeim villigötum, sem hér hafa verið til umræðu. „Það er til dæmis engin geðdeild fyrir unglinga starfrækt“, sagði Erlendur, „þótt nú sé verið að ræða hvort og hvernig þannig deild ætti að vera“. Gísli Björnsson hjá fíkniefna- deild Iögreglunnar sér ljósglætu í myrkrinu: „Ég held að það sé eitt- hvað að aukast að ungt fólk sé að fara í meðferð til að leita sér hjálp- ar. Seint á síðasta ári fóru a.m.k. þrír, sem ég veit um, i meðferð á stofnanir vegna fíkniefnanotkunar annarrar en áfengis. Ég held að það sé eitthvað að aukast að fólk átti sig á því, að það getur þurft á hjálp að halda í þessum efnum. Það heyrist minna orðið af slagorðum eins og . „gróður jarðar" þegar talað er um hass. Fólk er ekki eins mikið að halda því fram að hass sé hættum- inna en áfengi. En jafnframt hefur annað gerst og það veldur ekki minni áhyggjum: neyslan færist stöðugt neðar í aldursstiganum. Ég held samt ekki að það hafi orðið nein stökkbreyting á neyslunni undanfarin ár - að minnsta kosti ekki síðan ég kom í þessa deild fyrir um tveimur árum“. Varasamar „pakka- lausnir“ Ýmsir af viðmælendum Helgar- póstsins létu í ljós efasemdir um ágæti og árangur af „pakkalausn- um“ og „ skyndiuppákomum" á borð við þær, sem nokkuð hafa ver- ið tíðkaðar á undanförnum misser- um og árum, m.a. af fyrrverandi alkóhólistum. Gísli Björnsson seg ist vera „skeptiskur á uppákomu- kennslu - þetta ætti vitaskuld að vera sjálfsagður hlutur af almennri kennslu í skólum“, sagði hann. Erlendur S. Baldursson tók undir þetta: „Pakkalausnirnar duga skammt. Fræðsla um fíkniefni og notkun þeirra ætti tvímælalaust að verða hluti af almennu námsefni. í Noregi, þar sem ég þekki nokkuð til, hafa verið gerðar athuganir á árangri skyndiupphlaupa af þessu tagi, þar sem þvegnir og stroknir fyrrverandi drykkjumenn og aðrir fíkniefnaneytendur koma skyndi- lega inn í skólana og segja hr^l- ingssögur. Niðurstaða þeirra í Noregi er sú, að í skólum þar sem þessir sérfræðingar hafa komið inn, hefur orðið aukning á notkun fíkniefna". Annar starfsmaður í félagsmála- apparati Reykjavíkurborgar, sem óskaði að láta nafns síns ekki getið, sagði í þessu sambandi: „Upp- ákomur SÁÁ hafa vakið hugsun- ina: Allt er gott sem endar vel. Krakkarnir sjá þessa menn birtast þvegna og strokna, menn í góðum stöðum og jafnvel í áhrifastöðum, og hugsa með sér: Jæja, þetta hlýt- ur að vera allt í lagi. Sama hvað maður sekkur djúpt, það er hægt að rífa sig upp. Og það sama má segja um kvikmyndir eins og Dýragarðsbörnin og bækur eins og lífsreynslusögur Samhjálpar um Nicky Cruz og Carinu". Ekkert mál? í vandaðri og yfirgripsmikilli skýrslu, sem tveir námsstjórar í menntamálaráðuneytinu skrifuðu um kynnisferð sína til Bretlands á fyrra ári, er mjög tekið í sama streng. Allir viðmælendur náms- stjóranna Sigurðar Pálssonar og Ingvars Sigurgeirssonar vöruðu við árlegum uppákomum og sjokker- andi myndasýningum. Þeir taka m.a. upp í skýrslu sinni leiðbeining- ar úr nýsjálenskri skýrslu um þessi mál, þar sem segir m.a.: „Fyrrverandi fíkniefnaneytendur, sem þó hafa afmörkuðu hlutverki að gegna í fíkniefnafræðslu, ættu ekki að tala við ungt fólk um þessi mál. Með veru sinni gefa þeir óbeint í skyn, að ekki sé erfitt að fá bót meina sinna. Fyrrverandi fíkniefnaneytendur er oft fólk gætt ríkum persónutöfrum, sem gæti haft þau áhrif á einstaklinga að þeir greindu tengsl milli þessara per- sónueiginleika og fyrri fíkniefna- neyslu“. Þeir Sigurður og Ingvar hafa sem einskonar einkunnarorð skýrslu sinnar þetta: „Það er til lausn á sér- hverjum vanda: skjótvirk, einföld og röng“. í niðurlagi skýrslunnar setja námsstjórarnir fram nokkrar tillög- ur en segja áður: „Ofneysla ávana- og fíkniefna er flókinn vandi. Viðbrögð við þeim vanda hljóta því að vera margvísleg og snerta ólík svið þjóðlífsins. Fræðsla, hvort sem hún fer fram innan skóla eða utan, nær skammt ein sér. Heilbrigðisþjónusta, lög- gæsla, tómstunda- og æskulýðs- starf, skipulag íbúðahverfa og skólastærð eru aðeins nokkrir af fjölmörgum þáttum, sem huga þarf að. Sem dæmi um atriði, sem í fljótu bragði virðist ekki koma þessu máli við sérstaklega, en gerir það þegar betur er að gáð, má nefna niðurstöður úr könnun sem gerð var í Bandaríkjunum og grein er gerð fyrir í riti Helen Nowlis, Drugs Demystified (UNESCO 2975). Þar segir m.a.: „Fylgni milli skólastærð- ar og fíkniefnaneyslu var eitt af því sem skýrast kom fram: því stærri skóli, þeim mun meiri fíkniefna- neysla, og skipti þá engu hvort skól- inn var í stórri borg eða lítilli". Það er því ljóst, að eigi árangur að nást þurfa fjölmargir aðilar að vinna saman og efla þarf vitund allra, sem hlut eiga að máli um að þessi vandi verður ekki leystur með einföldum aðgerðum. Af þessum sökum leyfum við okkur að leggja áherslu á að unníð verði að heild- stæðri stefnumörkun að frum- kvæði opinberra aðila. Nú þegar er margt gert í þessum málum af ýms- um aðilum og til þessa starfs er að líkindum varið ærnu fé og mikilli vinnu. Æskilegt væri að samræma og samhæfa þessar aðgerðir þannig að fjármunir og mannafli nýtist sem best. Ákveðnar tillögur Að því er varðar skólastarf sér staklega leggjum við til eftirfar- andi: 1. Bæklingurinn „Drugs Demysti- fied“ eftir Helen Nowlis verði þýddur og gefinn út. Hann myndi koma að miklum notum í menntun og endurmenntun kennara, auk þess sem hann er upplýsandi fyrir alla þá, sem að þessum málum vinna og á enda erindi til alls almennings. 2. Lögð verði áhersla á að þætta fræðslu um ávana- og fíkniefni inn í sem flesta þætti skólastarfs, bæði á grunnskóla- og ekki síður á framhaldsskólastigi. Lögð verði áhersla á að fræðslan verði sniðin að þeim hópum, sem henni er beint að hverju sinni. 3. Gert verði átak í menntun og endurmenntun kennara á þessu sviði. 4. Unnið verði að því í samvinnu við Námsgagnastofnun að koma á fót hugmynda- og gagnasafni um fíkniefnafræðslu. 5. Ráðinn verði tímabundið að skólarannsóknadeild mennta- málaráðuneytisins starfsmaður til að sinna þessum málum innan skólakerfisins. Hér er átt við ráðningu í fullt starf“. Og hver hafa svo viðbrögð hins pólitíska valds gagnvart þessum til- lögum orðið - tillögum, sem allif viðmælendur Helgarpóstsins við vinnslu þessarar greinar tóku undir og töldu merkar? Starfsmaður hefur verið ráðinn i hálft starf til að sinna fíkniefna- fræðslu og undirbúningi fræðsl- unnar í skólakerfinu. Að sögn Sigurðar Pálssonar er verksvið starfsmannsins aðallega bundið við 3. grein tillagna þeirra Ingvars, þ.e. átak í menntunarmálum kennara á þessu sviði, en einnig skal hann vinna að því að koma á fót hug- mynda- og gagnasafni um fíkni- efnafræðslu. En skyldi það duga til að koma honum Sigga, sem rætt er við og um á bls. 4-5, til einhverrar aðstoðar?

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.