Helgarpósturinn - 14.07.1983, Page 3
ljnH%tl irinn Fimmtudagur 14. júlí 1983_________
Nýstárlegur minjagripur fyrir útlendinga:
Þorvaldur Óttar Guðlaugsson og flöskurnar með Geysisvatninu
Geysisvatn á flöskum
Viltu gleðja vin þinn eða við-
skiptamann í útlöndum? Sendu
honum Geysisvatn, átöppuðu í litl-
ar og handhægar flöskur. Þú fær
eintak væntanlega í næstu minja-
gripaverslun.
Ótrúlegt? En þannig er nú sann-
Ieikurinn stundum. Hugmyndina
að þessum óvenjulega minjagrip
eiga tveir ungir menn, Kristján E.
Karlsson auglýsingateiknari og
Þorvaldur Óttar Guðlaugsson nem-
andi í auglýsingadeild Myndlista-
og handíðaskóla íslands. Og allt
byrjaði þetta fyrir 3-4 mánuðum.
„Við vorum að ræða skondna
minjagripi fráýmsum löndum, eins
og t.d. Air de Paris (Parísarloft) á
niðursuðudósum, vatn sannleikans
og Iyginnar frá Delfí og sígarettu-
stubba og annað götudrasl frá New
York, pakkað inn í lofttæmt plast.
Þá var dregin fram gömul hug-
mynd, og raunar brandari, og eftir
nokkrar vangaveltur var ákveðið að
breyta brandaranum í alvöru“ sagði
Sælu-
vika á
Sauðár-
króki
Sumarsæluvika á Sauðárkróki
hefst laugardaginn 16. júlí og stend-
ur til sunnudags 24. júlí. Margt
verður til skemmtunar og fróðleiks
og hefst sæluvikan á fjölbreyttri
flugdagskrá á flugvelli Sauðár-
króks. Þessa viku verður haldið
frjálsíþróttamót, útitónleikar og
sýndir þjóðdansar. Þá verður opn-
aður stórmarkaður, knattspyrna
háð og bókmenntakvöld haldið í
Bifröst. Dansleikir og jasskvöld
verða einnig sum kvöld vikunnar.
Göngudagur fjölskyldunnar verður
á laugardag 23. júlí; farið að Ing-
veldarstöðum og gengið í Gler-
hallarvík. Þá verður bæjarkeppni í
sundlauginni (Sauðárkrókur, Borg-
arnes) haldið golfmót og götuleik-
húsið Svart og sykurlaust úr
Reykjavík sýnir. Einnig verða út-
sýnisferðir, bátsferðir til Drangeyj-
ar sumarsælukvöld og stangveiði-
mót haldið.
Þorvaldur Óttar í samtali við Helg-
arpóstinn.
Félagarnir hófu þá göngu sína í
gegnum kerfið. Þeir fengu einka-
leyfi á hugmyndinni í Iðnaðarráðu-
neytinu og fengu leyfi hjá Geysis-
nefnd til þess að hrinda þessu fyrir-
tæki af stað. Eins og vænta mátti
þótti ýmsum þetta fremur brosleg
hugmynd, en hún er orðin að veru-
leika.
„Við höfðum trú á hugmyndinni
og vildum koma henni á framfæri
hvað sem það kostaði" sagði Þor-
valdur.
Fyrstu flöskurnar með Geysis-
vatninu komu .á markaðinn í lok
síðustu viku og er þetta gert í til-
raunaskyni í sumar. Ef tilraunin
tekst vel er ætlunin að halda áfram
næsta sumar og fylgja þessu þá bet-
ur úr hlaði.
Geysisvatnið er á 150 ml. flösk-
um, sem félagarnir pöntuðu sér-
staklega frá Frakklandi, þar sem
ekki var hægt að fá hentungar um-
búðir hér á landi. Á flöskunni er
Feimiö fólk er
kvefsæknara en
aðrir
Það er ekki hægt að lækna kvef
enn þá og það þótt vísindamenn
hafi strögglað í ein 40 ár við að
finna meðal gegn nefrennslinu og
hóstanum og öllu því sem yfirleitt
fylgir þessari leiðindapest. Heil
rannsóknarstöð, sem gerir ekkert
annað en rannsaka þennan sjúk-
dóm og heitir The Commom Cold
Unit í Bretlandi, varpaði þó fram
umhugsunarverðri kenningu um
kvef á dögunum.
Höfundur kenningarinnar heitir
dr. Richard Totman og er geðlækn-
ir. Hann heldur því fram að vissar
manntegundir hafi ríkari tilhneig-
ingu til að fá kvef en aðrar. Feimið
fólk og dulið er kvefsæknara en op-
ið og ófeimið fólk t.d. Stressað fólk
sömuleiðis, hinir afslöppuðu og ró-
lyndu virðast hafa krók á móti
bragði. Einnig geta snögg umskipti
í lífinu valdið kvefsækni, svo sem
ný vinna, nýr skóli, nýr maki. Fólk
sem rekið hefur verið úr vinnu
leggst oft i rúmið með kvefpest.
Þó lýst vísindamönnum ekkert á
að meðal sé í vændum — það eru
víst of margir vírusar í taflinu til að
nokkuð eitt móteitur gagni til.
Mestar vonir eru bundnar við lyfið
Interferon en það er ekki enn á
markaðnum og verður ekki um ára-
bil enn, því rannsóknir standa enn
yfir. Svo við verðum að láta okkur
nægja sítrónuvatn með kandís,
fallegur merkimiði í gamla stílnum,
þar sem nafn vörunnar, The Great
Geysir Souvenir Water er í kringum
mynd af hvernum i fullu fjöri. Á
miðanum eru einnig sögulegar upp-
Iýsingar um þennan frægasta gos-
hver heims, stutt lýsing á því, sem
gerist við gos, svo og tafla sem sýnir
efnainnihald Geysisvatnsins og er
taflan fengin hjá Orkustofnun.
Þeir sem vilja nálgast þennan ný-
stárlega minjagrip, geta fengið
hann í söluskálanum við Geysi, í
Eden í Hveragerði, Fríhöfninni á
Keflavíkurflugvelli og væntanlega í
minjagripaverslunum í Reykjavík.
Þorvaldur Óttar var að lokum
spurður að því hvort þeir væru með
fleiri hugmyndir, svipaðar þessari.
„Við höfum margar hugmyndir,
en tíminn verður að leiða í ljós hvort
við framkvæmum þær. Ástandið í
kringum okkur sýnir, að það er
þörf á nýjum og ferskum hugmynd-
um, smáum og stórumý sagði Þor-
valdur Óttar Guðlaugsson að lok-
um. -GB
edik, ullarnærföt, lýsi, og hvað það
nú allt saman er, sem fólk gerir við
kvefið sitt.
Drykkjusýki
Og enn úr heimi læknavísind-
anna; Algengasta fýkniefnið er
ekki nikotín, hass eða alkohól,
heldur kaffein. Kaffeinistar eru
þeir sem ekki geta án þess verið að
þamba kaffi, kók, pepsí eða aðra
kaffeinríka drykki daginn út og
inn. Diet-drykkirnir eru ekki sist
valdir að veikinni.
Bandarískt læknatímarit fjallaði
fyrir skemmstu um þennan sjúk-
dóm og benti á að ofstækismegrun
eða sjálfsvelti (anorexia) hafi í för
með sér að fólk lifir á svörtu kaffi
eða diet-drykkjunum og veikist fyr-
ir bragðið. Dæmi var nefnt um 16
ára sjálfsveltissjúkling, stúlku, sem
drakk allt uppí fimm lítra af diet-
cola eftir morguntrimmið sitt.
Annað dæmi var tekið af þrítugri
konu, sem fór í strangan megrunar-
kúr eftir barnseign og drakk 12—20
bolla af svörtu kaffi og diet-cola í
stað þess að neyta matar.
Einkenni kaffeinisma eru vöðva-
spenna, kláði og fjörfiskar, brjóst-
sviði, niðurgangur, svefnleysi og
skjálfti. Kaffeinistar upplifa slæm
fráhvarfseinkenni, þegar þeir reyna
að draga úr neyslunni, en það er
þeim þó eindregið ráðlagt að gera
og þá með því að drekka ávaxtasafa
eða vatn í stað kaffeinríku drykkj-
anna en fara þó hægt í sakirnar,
þegar þannig er dregið úr fýkninni.
3
— Hlakkar þú til að
birtast á skjánum,
Ingólfur Hannes-
son?
„Þetta er nú einum of persónu- sonar? Átt þú fyrst og fremst
lega spurt! Það wæri nær að að sinna almenningsíþróttum
spyrja hvort ég væri nervösl' meðan Bjarni er í stjörnun-
— Ertu nervös við að birt- um?
ast á skerminum? „Nei, það var þannig í fyrra. Þá
„Já, að einhverju leyti, en það á Var Steingrímur Sigfússon ráðinn
eftir að minnka smám saman eftir eingöngu til að sinna almennings-
að ég kynnist miðlinum og vinnu- íþróttum. Ég er hins vegar ráðinn
brögðunum betur!1 _ _ í fullt starf og stend vaktir á móti
_ ■ Hvenær fáum við að sjá Bjarna. Það fer svo kannski eftir
þig á skjánum? áhugasviðum okkar hverjar á-
„Það verður ekki fyrr en í herslurnar verða“
næstu viku, kannski á mánudag- — Og hver eru þín áhuga-
inn en örugglega á laugardaginn svið?
kemur. Ég er rétt að byrja, kom til eru ýmisleg. Ég hef gam-
starfa í byrjun síðustu viku!‘ _ an af boltaíþróttum og ekki síður
—- Hefurðu stundað ein- frjálsum íþróttum. Ég var í Nor-
hverjar íþróttir? egi á dögunum og fór þá á Bislett-
„Já, ég var í handbolta og fót- mótið. Það var stórkostleg upplif-
bolta og frjálsum íþróttum þegar un, á við marga fótboltaleiki!*
ég var strákur. Svo trimma ég
núna, skokka og syndi. Ég held að — Hvernig líst þér svo á
ég hafi verið mjög dæmigerður starfið?
unglingur í íþróttum, einn af þeim „Vel, það eru margir möguleik-
mörgu sein hætta um það leyti ar; þessu starfi. Þetta er ekki ólíkt
sem farið er að velja afreksmenn- þvj að vera á blöðunum að þvi
ina úr hópnum!' íeyti að við erum allt í öllu, það
_ En hver er reynslan af þarf að velja erlenda þætti, sinna
sjónvarpi? ýmsum stjórnunarstörfum og
„Engin. Þess vegna er ég á- pappirsvinnu. Það er ekki bara að
nægður með að fá nokkurn tíma skrifa texta og lesa hann upp. 'Svo
til að setja mig inn í hlutina áður er þetta gefandi starf að því leyti
en ég fer í útsendingu. Þegar ég að maður sér árangur af því mjög
byrjaði á Þjóðviljanum var ég fljótt og fær viðbrögð. Gagnrýnin
ráðinn á föstudegi og átti að skila er mjög mikilvæg, hvort sem hún
2-3 síðum á mánudegi!1 er jákvæð eða neikvæð, bara að
' — Hvernig verður verka- hún sé uppbyggileg!*
skipting ykkar Bjarna Felix- — ÞH
Ingólfur Hannesson er 30 ára, Borgfirðingur að ætt en hefur
lengst af búið í Reykjavík. Hann tók próf frá íþróttakennara-
skólanum á Laugarvatni og vann síðan á Þjóðviljanum sem í-
þróttafréttamaður í þrjú ár. Undanfarin.ár hefur hann verið í
framhaldsnámi í uppeldis- og félagsfræði í Osló og átkammt
eftir í cand. mag. próf. Hann er nýráðinn iþróttafréttamaður
sjónvarpsins.