Helgarpósturinn - 14.07.1983, Page 14

Helgarpósturinn - 14.07.1983, Page 14
14 _Helgai----------- pösturinn Blað um þjóðmál listir og menning- armál. Ritstjórar: Árni Þórarinsson og Björn Vignir Sigurpálsson Blaðamenn: Guðlaugur Berg- mundsson, Hallgrímur Thorsteins- son, Ingólfur Margeirsson, Magda- lena Schram, Þröstur Haraldsson. Útlit: Kristinn G. Harðarson Ljósmyndir: Jim Smart Útgefandi: Vitaðsgjafi hf. Framkvæmdastjóri: Guömundur H. Jóhannesson Auglýsingar: Áslaug G. Nielsen Dreifingarstjóri: Ingvar Halldórsson Innheimta: Helma B. Jóhannesdóttir Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir Lausasöluverð kr. 25 Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Reykjavík, sími 81866. Afgreiðsla og skrifstofa eru að Ármúla 38. Símar 81866 og 81741. Setning og umbrot: Alprent hf. Prentun: Blaðaprent hf. Þar stend- ur hnífur- inn í kúnni Ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar lofaöi I stefnuyfirlýs- ingu sinni aö bæta skipulag stjórn- kerfisins og peninga- og lána- stofnana. I stefnuyfirlýsingunni segir um endurskipulagningu á þessum sviöum m.a. „Markmið slíkra stjórnkerfisbreytinga er aö einfalda opinbera stjórnsýslu, bæta hagstjórn og samræma á- kvarðanir I opinberri fjárfestingu, draga úr ríkisumsvifum og efla eftirlit löggjafarvaldsins meö fram- kvæmdavaldinu". Ríkisstjórnin lofar þannig nýrri löggjöf um stjórnarráöiö, þ.e. ráöu- neytin og undirstofnanir þeirra. Hún lofar nýrri löggjöf um bankakerfið, og endurskoðun laga um Framkvæmdastofnun. Ríkisstjórnin hefur þegar hafið starf sem miöar aö því að staðið verði viö loforðarununa í stefnuyf- irlýsingunni. Þetta starf er nú fjór- skipt. Tveir þættir þess eru arfur frá fyrri ríkisstjórnum. Her er um aö ræöa athugun Alberts Guð- mundssonar, fjármálaráöherra á sölu ríkisfyrirtækja og hlutaeign þess í nokkrum í viöbót, og endur- skoðun bankakerfisins. Tveir þætt- ir þeirrar atlögu sem viröist hafin gegn ríkiskerfinu eru frumkvæði þessarar ríkisstjórnar. Matthías Bjarnason, heilbrigöis- og trygg- ingaráðherra ætlar aö láta kanna hugsanleg útboö á rekstrarþáttum ríkisspítalanna og skipulagsbreyt- ingar í tryggingakerfinu og Stein- grímur Hermannsson, forsætis- ráöherra, er aö skipa nefnd til að endurskoða stjórnarráöiö. Sú nefnd verður í fylkingarbrjósti þeirrar atlögu sem ríkisstjórnin segist nú ætla aö leggja til við kerfið. Veröi einhver niöurskuröur í rík- iskerfinu, þá veröur hann fram- kvæmdur samkvæmt tillögum þessarar nefndar. Hún á aö gera tillögur um skipulagsbreytingar á öllu stjómkerfinu, breytingar sem eiga að skila okkur einfaldara og ódýrara kerfi. Núverandi skipulag stjórnkerfis- ins komst til framkvæmda meö lögum sem sett voru 1969. Þjóöfé- lagsgerðin hefur tekiö stórfelldum breytingum á þessum 14 árum en kerfið hefur setiö eftir í sama far- inu. Þaö hefur ekki fylgt eftir breyt- ingunum. Til þess hefur þaö ekki verið nægilega sveigjanlegt. Kerf- ið hefur þanist út og staðnað. Dæmi eru um aö átta ráðuneyti hafi afskipti af sama málaflokkn- um. Nýjar stofnanir hafa séö dags- ins Ijós og úreltum stofnunum haldiö uppi. Þessu þarf aö breyta. Helgar- pósturinn byrjar aö fylgjast með at- lögunni gegn ríkisvaldinu í dag, og í næstu blöðum kannar blaöið þá staði þar sem líkur eru á aö beita þurfi hnífnum og færa í betra horf. Þessir staðir finnast víöa í kerfinu. Allt of víða. Fimmtudagur 14. júlí 1983 _Helgai-. ■■■/ ‘ -pústurinn Tölum betur saman, kom- umst hjá sólsting Samdmttorinn i sófarlaodaferóuin: Sólstingur ferðaskrifstofanna Grein Helgarpóstsins 7.7. um samdráttinn í sólarlandaferðum var all-ánægjuleg tilbreyting frá þeirri fjölmiðlaumræðu sem birst hefur í sumar um þessi mál. Greinin var þó ekki alveg laus við þann anda sem hefur einkennt umræðuna allt of mikið. Það er nefnilega eins og fjöl- miðlar hafi reynt að þrýsta fram allsherjar kreppuástandi og deyfð, sem alls ekkert er víst að sé ríkjandi í þjóðfélaginu. í þessu sambandi er ég sérstaklega hissa á stjórnarblöð- unum, einkum Tímanum. í grein Helgarpóstsins voru margir góðir póstar sem skýrðu það hvað þessi atvinnugrein hefur átt í höggi við í sumar. Eg held að ferðaskrifstofurnar komi til með að líta raunhæfara á málin fyrir næsta sumar. Það sem hefur gerst í sumar sýnir fram á nauðsyn þess að einstakar ferða- skrifstofur endurskoði gerð bæk- linga hjá sér og að ferðaskrifstof- urnar tali fyrr saman á næsta ári um sætaframboð og geri það vandlega áður en farið er í það að prenta bæklinga. Ég held til dæmis að ekki þýði að bjóða nýjan sólarlandastað fyrir næsta sumar. Reynslan í sumar rétt- lætir ekki slíka bjartsýni. Steinn Lárusson, formaður Sambands íslenskra ferðaskrifstofa Sunnudags- grein um Pálma Kæri Helgarpóstur! Einhvern veginn finnst mér að það eigi að vera heilög skylda hvers blaðamanns að reyna að halda geð- heilsu lesenda sinna í sæmilegu lagi, að minnsta kosti rétt á meðan þeir renna augunum yfir blöðin. Ef til vill má kenna veðrinu um hluta af þeirri lágkúru, sem birst hefur und- anfarið. Blöðin eru nefnilega speg- ilmynd af „ástandinu“ eins og þekktur ritstjóri var vanur að segja nokkuð oft. Ef svo er, — þá er ástandið hræðilegt! Efni dagblaðanna okkar hefur, sem sagt, auðkennst af andlega nið- urdrepandi snakki um pólitiskar varnir gegn verðbólgu, kreppu, at- vinnuleysi og allsleysi. Meira að segja sunnudagsblöðin hafa verið stútfull af misjafnlega þýddum greinum, sennilega meira eða minna til þess að vega upp á móti auglýsingum um fasteignir til sölu, sólarlandaferðir og nauðungarupp- boð. Helgarpósturinn hefur verið síst betri en önnur blöð. að vísu hefur pólitíska snakkið ekki verið nema „undir rós“ en samt sem áður hefur blaðið ekki notfært sér ástandið (eins og Guðlaugur i Karnabæ og danskir bjartsýnisverðlaunamenn) og haldið áfram að hjakka í sama farinu, bæði hvað varðar útlit, um- brot og efni. Jafnvel „kjaftadálk- arnir“ eru farnir að taka á sig ein- hvern miðlungsblæ. Ég er hættur að nenna að lesa nema feita letrið í þeim. Það er sennilega þess vegna, að ég tek mig til eins og „Kona úr Vest- urbænum“ og skrifa þessar línur. Ég tók nefnilega sjálfan mig á því að lesa greinina um Pálma í Hag- kaupum frá upphafi til enda. Þetta var létt og læsileg grein. Sannkölluð sunnudagsgrein. Höfundur hennar fær fyrstu einkunn fyrir undirbún- ingsvinnu og framsetningu. Og þá er komið að kjarna máls- ins: Bestu þakkir fyrir greinina um Pálma.Hristið nú af ykkur slenið, krakkar mínir, og leyfið okkur að sjá fleiri sunnudagsgreinar í Helg- arpóstinum framvegis. Kœr kveðja, Ólafur Stephensen, auglýsingastjóri Hagkaup — skilgetiö af- kvæmi Viðreisnarinnar „Nærmyndin" um Pálma Jóns- son í Hagkaupum vakti mig til um- hugsunar um hversu fáfengilegt er að halda því fram að einhver ákveð- in rekstrarform fyrirtækja tryggi hag þjóðfélagsborgaranna fremur en önnur. Frjálsræði í vali á rekstr- arformum er auðvitað sjálfsagt. Hér á íslandi höfum við í gegnum tíðina kynnst m.a. erlendum einka- fyrirtækjum; einkafyrirtækjum í eigu íslenskra manna og samvinnu- fyrirtækjum og svo ríkisfyrirtækj- um. Tilhneigingin til einokunar og stöðnunar liggur í öllum þessum tegundum rekstrar. Hag neytenda er ekki borgið á neinn hátt með því að halda sig alfarið við eina tegund- ina fremur en aðrar. Annað er athyglisvert, þegar rætt er um Hagkaup og Pálma. Það er að framgangur hans er skilgetið af- kvæmi þeirrar stefnu, sem Við- reisnarstjórn Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks tók upp árið 1960. Þessi stjórn.sem nú er rægð og illa umtöluð af mörgum í skjóli gleymsku og fáfræði,var sú fvrsta og að líkindum þ.m. sú eina frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar, sem stefndi að því að stjórna eins og ríkisstjórnir eiga að stjórna. Viðreisnarstjórnin gerði sér grein fyrir því að efnahagsmálum þjóðar verður ekki stjórnað með boðum og bönnum heldur verður að gefa fólkinu i landinu tækifæri til að starfa innan settra reglna. Pálmi Jónsson, glæsilegur rekst- ur hans og uppbygging á Hagkaup- um á því eðlilegt upphaf sitt, jafn- hliða því að „Viðreisnin" sigldi með okkur inn i nútímann og út úr hafta og skömmtunarmyrkrinu, sem hér ríkti frá því á krepputímum fjórða áratugarins. Hlutur Pálma Jónssonar í vel- sæld og uppbyggingu á íslandi síð- ari ára er stór og vafalaust er rétt hjá verkalýðsleiðtogunum að hann sé velgerðarmaður láglaunafólks fremur en nokkur annar. Pálmi hefur þurft að berjast við allar tegundir einokunar og sigrað á öllum vígstöðvum. Vonandi eign- umst við sem flesta hans líka í fram- tíðinni. Við skulum einnig vona, að ísland fái sem fyrst ríkisstjórn, sem starfar í takt við tímann eins og Viðreisnarstjórnin gerði á fyrstu ár- um starfsferils síns. Ólafur Geirsson, viðskiptafrœðingur Hagnar A. Porsson anum með þrælalögum. Bráða- birgðalögin sem tóku gildi I. júní s.l. munu skerða laun um minnst 30% á næstu vikum og mánuðum. Þessar kjaraskerðingar munu leiða til eignahruns hjá fjölskyldum og verkefnaskorts hjá iðnfyrirtækjum og verktökum. Afleiðingar s.k. efnahagsað- gerða ríkisstjórnarinnar hafa þegar komið fram í rýrnum kaupmáttar, minnkandi eftirspurn og auknu at- vinnuleysi. Þar á ofan bætist stöðug kaupmáttarskerðing vegna óða- verðbólunnar sem ríkisstjórnin ræður ekkert við frekar en annað. Það eina sem ríkisstjórnin hefur króna lán erlendis til að fjármagna skip sem engin þörf er á, síst af öllu innfluttum. Á tímum aflabrests og samdrátt- ar í höfuðútflutningsgreinum okk- ar væri nær að draga úr offjárfest- ingum og innflutningi og hefjast handa við að efla innlendan iðnað og skapa nýjar atvinnugreinar. í staðinn er nú stefnt að auknu frjáls- ræði í gjaldeyrismálum og inn- flutningsverslun. Nú þegar ofveiði og minnkandi þjóðartekjur kalla á markvissa iðn- aðaruppbyggingu og fjölgun at- vinnutækifæra verkafólks, hefur hæstvirt ríkisstjórn ekkert annað Verður þingrof í haust? Ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar hefur leitt herlög yfir verkafólkið í landinu. Samnings- og verkfallsréttur er skertur með lögum og vísitöluhækkanir á laun bannaðar. Á sama tíma hækkar verð á vör- um og opinberri þjónustu og verð- bólgan veður áfram. Næsta verð- hækkunarskriða verður í haust, en þá hækkar allt nema kaupið. Aukið atvinnuleysi Ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar mun ekki takast að leiða þjóðina útúr efnahagsvand- afrekað á valdaferli sínum er að ráðast á kaup og kjör launafólks með boðum og bönnum. Óðaverð- bólga, viðskiptahalli við útlönd og óarðbærar fjárfestingar halda á- fram óáreittar og eru nú meiri en nokkru sinni fyrr. Erlendar skuldir hlaðast upp og fleiri lántökur eru á- formaðar. Fleiri skip Á næstu vikum bætast 9 skip í verkefnalausan „ofveiðaflota" ís- lendinga. Núna eru 5 skuttogarar í smíðum, þ.a. 4 erlendis. Ríkis- stjórnin verður að taka 500 milljón fram að færa en skattalækkanir á ferðamannagjaldeyri og tollalækk- anir á lúxúsbifreiðum. Slikar ráð- stafanir eru ekki til þess fallnar að treysta atvinnuöryggi landsmanna síst af öllu þeirra sem hafa treyst á fiskveiðar til þessa. Fleiri lán Engin ríkisstjórn á Islandi hefur framfylgt jafn siðlausri stefnu í at- vinnu- og launamálum og nú- verandi samsteypustjórn Fram- sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Stefna hennar í utanríkismálum er þó öllu verri svo ekki sé minnst á stefnuleysið í fjármálum. Til viðbótar erlendum lánum vegna nýrra skuttogara er áformað að taka erlend lán vegna vegagerðar í landi. Og í staðinn fyrir að rukka inn þær 200 milljónir sem Alusuisse hefur stungið undan sköttum hér á landi eru framkvæmdir Lands- virkjunar fjármagnaðar með er- lendum lánum. Landsvirkjun skuldar nú þegar rúma 5 milljarða erlendis og enn eru ný lán tekin. Á meðan kaupir ál- verið 50% af útseldri raforku Landsvirkjunar á tombóluprís og græðir á tá og fingri. Já það fara svo sannarlega „öðruvísi heiðurs- menn“ með völd þessa dagana. En ekki er allt upptalið enn. Óskabarn ríkisstjórnarinnar er risaflugstöð sem getur afgreitt 20 risaþotur á sólarhring og eina millj- ón farþega á ári. Þetta fáránlega mannvirki mun kosta okkur 550 milljónir í erlendum lánum. Á sama tíma skortir lendingaljós og bundið slitlag á flugvöllum úti á landi. Gjaldþrot framundan Erlendar skuldir og vextir af þeim stofna efnahagslegu sjálf- stæði þjóðarinnar í hættu. Þær er- lendu lántökur sem þar við bætast munu leggja efnahagslífið í rúst. Það er engin tilviljun að efnahags- Framhald. á næstu síðu

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.