Helgarpósturinn - 14.07.1983, Blaðsíða 16
Hljómsveitin DRON (Oanshljómsveit Reykja-
víkur og nágrennis) ætti að hljóma kunnuglega
í eyrum fólks. A.m.k. vegna þess að hún hlaut
fyrstu verðlaun í Satt-keppninni sem haldin var
í Tónabæ I desember á síðasta ári. En þá kom
hljómsveitin fram I fyrsta skipti eftir þrælstif-
ar æfingar í bílskúr I hálft ár.
Hljómsveitina Dron skipa: Máni Svavarsson
hljómborðsleikari, Björn Gunnarsson bassa-
leikari, Bragi Ragnarsson söngvari, Einar Þor-
valdsson gítarleikari og Óskar Þorvaldsson
trommuleikari. Það skal tekið fram vegna mis-
skilnings að Einar og Óskar eru ekki bræður.
Strákarnir vinna allir hörðum höndum í sumar
og reyndist Stuðaranum erfitt að ná þeim öll-
um saman og lét nægja að tala við Mána,
Björn og Braga. Það var alltaf kvöld og helgar-
vinna hjá þeim Einari og Óskari. Ma ég minna
á að það er engum hollt að fara yfir um á
vinnuálagi. Takk fyrir.
Þeir Máni, Björn og
Bragi í DRON settust
góðfúslega í grasið (já
segjum grasið) fyrir
Stuðarann sem notaði
tækifærið og smellti af.
P.s. Máni og Bragi settu
blóm á bak við eyrun í
tilefni myndarinnar, en
daglig dags ganga þeir
ekki með blóm.
Crumpy Face
You’re just an old fool, scaring the nation
you think you ’re so cool,
but you're just a crumpy face
you’re no good for the human race.
With atom weapons and fast car
you think you are a great star.
Living in the white house,
just like a little mouse.
The world is like an ocean
one day this, one day that
there is only one man,
with a crumpy face and cowboyhat..-..
A leiðinni í stúdíó
ásamt fleirum
— Breyttist eitthvað við að ná
fyrsta sætinu í Satt-keppninni.
„Við fengum náttúriega aukið
sjálfstraust, þótt við vissum vel að
við værum ekkert lélegir. Svo spil-
uðum við oftar opinberlega. Spil-
uðum t.d. á Borginni, Garðaskóla
og á Rútstúni í Kópavogi"
— Eruði ekki á leiðinni í stúdíó
til að taka upp plötu? Mig rámar í
að þið fengjuð stúdíótíma í verð-
laun?
„Jú, við fengum 20 tíma í stúdíói
í verðlaun og það stendur til að fara
þangað bráðlega. Það gengur bara
hálf illa að komast þangað inn. En
það stendur til að Satt gefi út plötu
með þeim hljómsveitum er hrepptu
fyrstu sætin i keppninni"
A móti
hernaðarbrölti
— Hvernig tónlist spilar DRON?
„Það er alltaf erfitt að skilgreina
sína eigin tónlist en eigum við ekki
bara að segja að við spilum Dron-
tónlist.
— Textarnir?
„Það er nú bara hitt og þetta sem
við syngjum um. Einhver fær hug-
mynd sem síðan er útfærð"
Sama dag og viðtalið er tekið
kom Bush varaforseti Bandaríkj-
anna til landsins svo ekki er úr vegi
að kanna afstöðu Dron-pilta til
Reagan stjórnarinnar.
„Við höfum heldur betur deilt á
Reagan stjórnina!* segja þeir. „Við
erum á móti öllu hernaðarbrölti.
Sjáðu t.d. þennan texta, viltu
ekki bara birta hann? Hann er eftir
Braga og Mána.
— Hvað finnst ykkur um áhrif
bandarískrar menningar hérlendis?
Áhrifin eru allt of mikil, þau
mættu vera minni“
— Eru engin jákvæð áhrif?
„A.m.k. ekki þau sem koma i
gegnum herstöðinal'
Meðfæddir
hæfileikar
Við erum stödd í bílskúr einum í
Fossvoginum og snúum nú sam-
ræðunum yfir á aðrar brautir.
— Hafiði alltaf haft þessa góðu
aðstöðu?
„Já, en okkur vantar söngkerfi,
við höfum ekki haft efni á því enn-
þá.
— Hafiði lært á hljóðfærin?
„Nei, við erum allir sjálfmennt-
aðir. Þetta eru meðfæddir hæfileik-
ar!‘
— Er skemmtilegt að vera í
hljómsveit?
„Já. Þetta er baktería sem maður
losnar ekki við. Við höldum áfram
þangað til við fáum hundleið á
þessu.