Helgarpósturinn - 14.07.1983, Page 9

Helgarpósturinn - 14.07.1983, Page 9
!jj$sturinn- Fimmtudagur 14. júlí 1983 Ó pú gráa borg Stúdentaleikhúsið: Reykjavikurblús: Samantekt: Magnea J. Matthíasdóttir og Benóný Ægisson. Leikstjórn: Pétur Einarsson. Tónlist: Kjartan Olafsson og Benóný Ægisson. Leikmynd: Guðný Björk Richardsdótt- ir. Flytjendur: Ari Matthíasson, Edda Arnjótsdóttir, Guðríður Ragnarsdóttir, Magnus Ragnarsson, Soffia Karlsdóttir og Stefdn Jónsson. Undirleikari: Kjartan Olafsson. Stúdentaleikhúsið lætur ekki deigan síga við að halda uppi líf- legu bæjarlífi yfir sumarmánuð- ina. Á laugardaginn í síðustu viku var þar á ferðinni enn ein frum- sýningin og í þetta sinn var það dagskrá um Reykjavík og lífið þar sem Magnea J. Matthíasdóttir og Benóný Ægisson hafa tekið sam- an og gefið nafnið Reykjavíkur- blús. Dagskráin er þannig gerð að ýmist er um frumsamið efni að ræða eða efni fengið að láni frá ýmsum höfundum, öllum af yngri kynslóð svo sem Einari Ólafssyni, Normu E. Samúelsdóttur, Birgi Svan og Sigurði Pálssyni. Er dag- skráin saman sett úr einum 22 at- riðum ef allt er talið, og gætir þar býsna mikillar fjölbreytni. Atrið- in eru leikin og mörg einnig sung- in þannig að úr verður einskonar kabarettsýning. Tónlistin hefur mjög miklu (£ef/e/f&/ hlutverki að gegna í þessari sýn- ingu og á Kjartan Ólafsson mest- an veg og vanda af henni. Hefur hann samið ekki færri en átta lög fyrir sýninguna og falla þau að mínu mati mjög vel að textunum um leið og þau eru gædd sérstök- um persónuleika. Kjartan spilar einnig undir í sýningunni á píanó og leysir það verk listavel af hendi. Hann er greinilega einn af athygl- isverðustu tónlistarmönnum yngstu kynslóðarinnar. Pétri Einarssyni hefur greini- lega tekist að virkja allar orku- lindir og hæfileika hinna ungu leikenda, því enginn þeirra er menntaður leikari heldur eru þetta krakkar sem hafa nýlega gert garðinn frægan í sýningum menntaskólanna. T.d. tóku þrír leikaranna þátt í síðustu upp- færslu herranætur á Prjónastof- unni Sólinni. Sýningin streymir fram af þrótti og Ieikgleði og ótrú- lega mikilli samhæfingu. Er það reyndar einkenni á sýningunni að það reynir nokkuð jafnt á flytj- endur og einnig að þeir eru tiltölu- lega jafnvígir að því er virðist. Það er svolítið athyglisvert að velta fyrir sér kynslóðum í sam- bandi við þessa sýningu. Það kemur nefnilega í ljós þegar betur er að gáð að höfundarnir eru allir (eða því sem næst) rétt um eða rétt rúmlega þrítugir en flytjendurnir svo til nákvæmlega tíu árum yngri eða rétt um tvítugt. Það má því segja að hér sé yngsta kynslóðin að flytja verk næstu kynslóðar á undan. Eða með öðrum orðum, höfundarnir eru komnir til þess þroska að geta ort bærilega vel um lífið í Reykjavík eins og þeir upplifa það, en það er einmitt sú Reykjavík sem blasir við augum flytjendanna og þau hafa ekki ennþá þroska til að tjá með orð- um en geta auðveldlega lifað sig inní leikrænan flutning þess sem kynslóðin á undan hefur ort. Þetta er trúlega skýringin á þeirri miklu leikgleði sem ein- kenndi sýninguna og á þeirri ótrú- lega góðu stemmningu sem flytj- endunum tókst að skapa í salnum. Það má með sanni segja að sýn- ingin hafi hitt í mark og hlotið góðar undirtektir og vakið skýr viðbrögð hjá áhorfendum. G.Ást. Leiðinda myndbrengl urðu í við- tali við Guðrúnu Nielsen í síðasta Listapósti. Birt var mynd af þeim heiðursmönnum séra Arna Þórar- inssyni og Alfreð Andréssyni gam- anleikara í útskurði Guðrúnar, en með texta sem átti við þá mynd sem hér birtist. Textinn sem birtist var svohljóðandi: Nokkrar stein- fígúrur Guðrúnar. Lengst til vinstri er sláttumaðurinn slyngi, aftast „negrakelling“, til hægri munkur í kufli sínum, og í for- grunninum stinga kjaftakelling- arnar saman nefjum og segja eina mergjaða. Við biðjumst velvirðingar á mistökunum. ur eftir börnin. Gott framtak. Svo eru börnin norðlensk. Eru skáld þar? 10.35 Mér eru fornu minnin kær. Einar frá Hermundarfelli sér um þennan þátt eins og endranær. Hann er ó- tæmandi viskubrunnur hann Einar. 11.35 Sumarkveöja frá Stokkhólmi. - Jakob S. Jónsson, sá frómi maöur, sendir okkur hitabylgjur frá riki kvennakóngsins. 17.05 Af staö. Ragnheiöur Davíðsdóttir og Tryggvi Jakobsson búa fólkið undir ferðalag helgarinnar. Gleym- um stefnuljósunum ekki heima. 17.15 Upptaktur. Guðmundur Benedikts- son i uppsveifiu, eins og sagt er. 23.00 Náttfari. Doddi skræfa fylgir okkur inn i draumalandið. Þægilegur og skemmtilegur maður,“Gestur E. Jónasson. 01.10 Á næturvaktinni.Ásgeir Tómasson stendur sig eins og hetja. Laugardagur 16. júlí. 8.20 Morguntónleikar. Alls konar tón- list, en bara ekki það sem „fólkiö vill." 9.25 Feröagaman. Nú er Rafn Jónsson farinn að skipta sór af gönguferð- um. 10.25 Óskalög sjúklinga. Lóa kynnir. Búið aö klípa framan af þættinum hennar. Sorglegt. 11.20 Sumarsnældan. Solla Halldórs kann tökin á krökkunum. Góðir þættir. 15.10 Listapopp. Vonandi er Gunni Sal ekki að tala um list heldur lista (eins og innkaupalista). 17.15 Sfðdegistónleikar. í tveim liðum. Allt íslendingar. 19.35 Allt er ömurlegt f útvarpinu. Þó aðallega þetta. Loftur sfbyljan Jóns- son er bara ekki fyndinn. Því miöur. 20.30 Sumarvaka. Rauðurber þjóðinaog álfkonuna inn í Ijósmælin. Undar- legt. 24.00 Miðnæturrabb. Jón Ormur Halldórsson rabbar við okkur og leikur vonandi nokkur lög. Sunnudagur 17. júlí 10.25 Út og suöur. Þáttur Friöriks Páls Jónssonar, eins og þær segja svo hátíðlega á útvarpinu. 11.00 Hátfðarguðsþjónusta. Og þaö i sjálfu Finnlandi. I Ylöjarvi-kirkj- unni. Hvernig tekst guöi að finna hana? 13.30 Sporbrautin. Lunknir guttar Óli Torfa og Örn Ingi. Smellnir þættir og góöar gátur. 15.15 Söngvaseiður. Trausti og félagar meö stórskemmtilega þætti um ís- lenska sönglagahöfunda. Meira af þessu. Nú um Þorvald Blöndal. 16.25 Næturgalinn frá Wlttemberg. Bændaslátrarinn Lúter revisited. Önundur Björnsson og Gunnar Kristjánsson segja frá upphafs- manni siðbótarinnar. Hvilfk siðbót. 18.00 Það var og. Þráinn Bertelsson fer út um hvippinn og hvappinn og tjaldar f lautu i nótt. Ég las hrósið í blööunum og er því sammála. Góð rödd hann Þráinn. 19.35 Samtal á sunnudegi. Áslaug Ragnars talar við fólk um hitt og þetta. Best aö þegja á meöan. 21.40 Tónlist eftlr Gunnar Reynl. Gott skáld. Kolbeinn Bjarnason leikur á flautu og Gústaf Jóhannesson leik- ur á orgul. 23.00 Djass-Blús. Jón Múli og eilifðarga- gaiö. Skemmtilegir þættir. 9 llíóili ★ ★ ★ ★ fframúrskarandi' ★ ★ ★ ágat ★ ★ góð ★ þolanleg 0 léleg Nýja bíó: Karatemeistarinn (Kill and Klll again). Bandarfsk kvikmynd. Hand- rit: John Crother. Leikendur: James Ryan, Annelfne Kriel, Michael Mayer, Blll Flynn. Leíkstjóri: Ivan Hall. Skúrkur vill ná heimsyfirráöum meö vilja uppleysandi efni. Bardagahetjan hjálpar til við aö leysa málið og tekst það aö lokum, en ekki fyrr en eftir skemmtileg slagsmál. Bæjarbíó: Besta lltla „Gleðihúsiö" i Texas. (The Best Little Whorehouse in Texas) Aðalhlutverk: Burt Reynolds Dolly Parton, Charles Durring, Dom Deluise og Jfm Nabors. Þetta er skemmtimynd, með hinum þokkafyllstu stórleikurum. Bíóhöllin: Merry Christmas Mr. Lawrence. Japönsk-bandarisk, árgerð 1983. Handrit Nagisa Oshima og Paul Meyersberg eftir skáldsögu Slr Laurens var der Post. Aðalhlutverk: David Bowie, Tom Conti, Ryuichi Sakomoto, Takeshi, Jack Thomp- son. Leikstjóri: Nagisa Oshima. „Þaö er Japaninn Oshima sem gerir myndina og finnst mér hann halla full- mikiö á sina eigin landsmenn og finnst mér það varla nægja sem skýr- ing, að myndin byggist á vestrænni bók... Óskandi væri aö Oshima og félagar hans fengju að gera ekta jap- anskar myndir í Japan en þangaö til er gott að þeir fái að æfa sig á mynd- um klæöskerasaumuöum fyrir vest- rænan markað". — LÝÓ. Staðgengillinn (The Stunt Man). Aðalhlutverk: Peter O’Toole, Steve Railsback, Barbara Horshey. Endursýnd. Svartskeggur (Blackbeard’s Ghost) Bandarfsk. Aðaihlutverk: Peter Ustlnov, Dean Jones, Suzanne Pleshette, Elsa Lanchester. Grinmynd um sjóræningjann Svart- skegg, sem skýtur upp kollinum eftir 200 ára dvala. Atlantic City. Bandarfsk kvikmynd, árgerð 1981. Leikendur: Burt Lancaster, Susan Sarandon. Leik- stjóri: Louis Malle. *** Regnboginn: Hlaupið í skarðið (Just a Gigolo) Bresk kvikmynd. Leikendur: David Bowie, Kim Novak, Kurt Jurgens. Leikstjórl: David Hemmings. Bowie léttir til með eldri konum. sem eiga engan manninn. Mjúkar hvilur — mikið strið (Soft Bed and Hard Battles.) Bandarísk kvikmynd. Lelkendur: Peter Sellers (f sex hlutverkum), Lila Kedrova, Kurt Jurgens. Stjóri: Roy Boulting. Njósnir f hóruhúsi í stríðinu. Töluvert gaman og nokkur hlátur. Junkman. Leikstjórn og handrit: H.B. Halicki. Aðalhlutverk: H.B. Hallckl. Og vitiði hver H.B. Halicki er? Það er sá sami og gerði myndina Horfinn á 60 sekúndum. Sumsé gifurlega spennandi. f greipum dauðans. (First Blood). Bandarfsk, árgerð 1982. Handrlt: Stallone og fleirl. Lelkendur: Sylv- ester Stallone, Brian Dennehy, Richard Crenna, Jack Starrett. Leikstjóri: Ted Kotcheff. Hver er moröinginn eða: Tfu lltlir negrastrákar eftir Agöthu Christie. Leikstjóri: Peter Collingson. Aðal- hlutverk: Oliver Reed, Rlchard Att- enborough, Elke Sommer, Herbert Long. Þessi Kristi mynd er ofboðslega spennandi. Var áöur sýnd fyrir nokkr- um árum i Austurbæjarbió. Svo hefur leikritiö llka veriö sýnt I Fellaskóla. Bíóbær: Bermuda þrfhyrningurinn (The Ber- muda Triangle). Bandarísk kvikmynd, byggð á met- sölubók Charles Berlitz, sem kom út í íslenskri þýðingu fyrir síðustu jól. Grunsamleg skipa- og flugvélahvörf. Hver er skýringin? Þú færö hana kannski í bfó. Magnús Bjarnfreðsson er þulur. Sýnd kl. 21. Gúlliver f Putalandl. Skemmtileg ævintýramynd fyrir börn á öllum aldri. Sýnd á laugardag og sunnudag kl. 14 og 16. Laugarásbíó: Þjófur á lausu (Bustin Loose). Bandarísk, árgerð 1981. Leikendur: Richard Pryor, Cecily Tyson, Angel Ramirez. Leikstjóri: Oz Scott. Ungur afbrotamaður er látinn laus upp á skilorð og fær það hlutverk að fara með krakka yfir Bandarikin í sumarbúðir. Hann stendur sig eins og hetja og lendir i ótal ævintýrum á leið- inni. Pryor er meö betri gamanleikur- um og þess vegna ætti myndin að vera ósvikin. Stjörnubíó: Leikfangið (The Toy). Bandarfsk kvikmynd, árgerð 1982. Leikendur: Richard Pryor, Jackie Gleason. Leikstjóri: Richard Pryor. Ríkisbubbasonur fær allt sem hann vill og loks kemur að þvi aö hann fær leikfang af holdi og blóði til að skemmta sér með. Frábært grin meö góðum gæjum. Tootsie. Bandarfsk kvikmynd, ár- gerð 1983. Leikendur: Dustin Hoff- man, Jessica Lange, Terry Garr, Charles Durning. Leikstjóri: Sidney Pollack. Dustin Hoffman fer á kostum i aðalhlutverkinu og sýnir afburða- takta sem gamanleikari. Tootsie er ó- svikin skemmtimynd. Maður hlær oft og hefur Iftiö gleöitár í auga þegar upp er staðið. * * * — LÝÓ Tónabíó: Rocky III. Bandarfsk, árgerð 1982. Leikstjóri: Sylvester Stallone. Aðal- hlutverk: Sylvester Stallone, Talla Shire, Burt Young, Mr. T. Þetta er þriöja myndin um hnefaleika- kappann og hefur hún átt ge i'pilegum vinsældum aö fagna I Bandarlkjun- um. Austurbæjarbíó: Stórislagur (The Big Brawl). Banda- rísk, árgerð 1980. Lelkendur: Jackie Chan, José Ferrer. Slagsmálahátið i Ameriku. Karate, grisk-rómversk glima og mikill hasar. Skemmtilegt stuð. Mannúlfarnir. Bandarfsk, byggö á skáldsögu Gary Brandner. Aðal- hlutverk: Dee Wallace og Patrick Macnee. Þetta er ein af þessum hrikalegu spennumyndum. Háskólabíó: Á elleftu stundu (10 to Midnlght) Leikstjóri: J. Lee Thompson. Hand- rit: William Roberts. Aðalhlutverk: Charles Bronson, Lisa Ellbacher, Andrew Stevens og Gene Davls. Myndin fjallar um baráttu einstak- lingsins gegn óréttlætinu. Skrýtið þegar einstaklingar fara i lögguleik og heldur betur vafasamt. fólllist Norræna húsið: Færeyska hljómsveitin Yggdrasill leik- ur frjálsan djass á sunnudag kl. 20.30. Aðeins þessir einu tónleikar. Færey- ingar eru glúrnir i djassinum og þess vegna ætti enginn að láta þetta fram- hjá sér fara. Árbæjarsafn: Blásaraoktett Guöna Franssonar leikur úti viðásunnudag kl. 16, ef veð- ur leyfir. Við skulum vona það, þvi Guöni er efnilegur og þá væntanlega hans menn lika. viólmróir íslenska óperan: Kvikmyndasýningar fyrir erlenda ferðamenn alla daga nema miðviku- daga kl. 21. Frábær tónlistarkvöld á föstudag og laugardag kl. 18. Jón Þorsteinsson og Svala Nielsen syngja einsöng og kór óperunnar syngur lika. Þá verður kvikmyndasýn- ing og að sjálfsögðu er myndlistar- sýningin alltaf i gangi. Svo er hægt að fá sér kaffi og rjómapönnukökur. Til- valin stund með erlendum vinum sfn- um. Tekur af ykkur margt ómakið. Norræna húsið: Unnur Guðjónsdóttir heldur fyrirlest- ur um Island á sænsku fyrir norður- landaferðamenn á laugardag kl. 17. Komið með vinum ykkar og drekkið síöan með þeim kaffi.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.