Helgarpósturinn - 14.07.1983, Page 17
17
Tsturinn.
Fimmtudagur 14. júlí 1983
’F'l Það hefur vakið athygli hve
f J hægripressan og þá ekki síst -
S Morgunblaðið hefur verið ó-
vægt í fréttaflutningi sínum af Vig-
dísi forseta og bókmenntaverðlaun-
unum umtöluðu. Fréttastíll Morg-
unblaðsins er samkvæmt hefð ekki
ýkja nærgöngull eða æsifregna-
kenndur og því hefur fréttaatlagan
gegn forsetanum vakið undrun
margra. Skýringin mun hins vegar
vera sú að forsetakosningar eru á
næsta ári og hægrimenn eru farnir
að undirbúa jarðveginn fyrir fram-
bjóðanda gegn Vigdísi. Sem að
sjálfsögðu verður vinsæll hægri-
líberal og karlmaður auðvitað....
Hið forboðna tölublað Speg-
/ Á ilsins er nú orðið eftirsótt
vara. Helgarpósturinn frétti
nýlega af safnara sem keypti eintak-
ið á 1500 krónur....
^Wt'-'iNokkurrar óþreyju ku nú
gæta meðal eigenda tísku-
verslana í Reykjavík út í
óprúttna kollega, sem gera sér leik
að því að stela hönnunarhugmynd-
um og selja ódýrar eftirlíkingar.
Mun það nokkuð stundað að
kaupa eintak af sér-hannaðri, er-
lendri framleiðslu frægra nafna
láta spretta henni upp og krækja
þannig í snið, sem notað er við gerð
kópíu úr ódýrari efnum. Sauma-
stofa Hagkaupa er oftast orðuð
sem framleiðslumiðstöð slíkra eft-
irlíkinga, en smærri verslanir við
Laugaveginn koma einnig við sög-
una og eru þær ekki að hafa fyrir
því að selja kópíurnar á vægara
verði. Viðskiptavinum er ráðlagt að
leita vel eftir vörumerki og leiðbein-
ingum um hreinsunaraðferð...
íslenskir fatahönnuðir en
/ J einkum þó textilhönnuðir
S eiga við sama vanda að etja,
mynstrum er rænt og þau notuð
annars staðar. Engin íslensk lög ná
yfir höfundarrétt á þessu sviði og er
nú í gangi starfshópur íslenska
Textilfélagsins, sem kannar hvernig
knýja megi á um slík lög og hvernig
þau gætu orðið. í starfshópnum eru
m.a. þær Hulda Jósepsdóttir fata-
hönnuður og Hulda Hákonardóttir
veflistarkona...
Mikið tap hefur verið á komu
Y 1 ýmissa erlendra skemmti-
y krafta til landsins á undan-
förnum vikum. Þannig höfum við
fyrir satt að kraftaverkamaðurinn
Amundi Ámundason hafi tapað
um áttatíu þúsund krónum á komu
Ray Charles. Ámundi er þó ekki af
baki dottinn og hyggst halda ó-
trauður áfram, enda hefur hann oft
komist í hann krappari...
Samræmdír Eurotékkar
og kort gílda nú
hérlendis nakvæmlega
eins og innlendar ávísanir
Þann 1. júlí síðastliðinn tóku gildi hérlendis svonefndir Eurotékk-
ar, sem erlendir ferðamenn geta gefið út í íslenskum krónum
hérlendis, til greiðslu á viðskiptum og þjónustu.
Eurotékkar gilda nákvæmlega eins og innlendar ávísanir, að
vísu með eftirfarandi takmörkunum:
1. Hver Eurotékki má ekki vera hærri en 3000,- krónur, en taka
má fleiri en einn tékka.
2. Framvísa verður korti við útgáfu Eurotékka á viðskipta-
stað, þannig að viðtakandi tékkans geti borið saman undir-
skrift, nafn, útgáfubanka og reikningsnúmer á korti óg tékka.
3. Útgáfudagur Eurotékka verður að vera innan gildistíma
kortsins.
4. Viðtakandi Eurotékka verður að skrifa númer kortsins á
bakhlið Eurotékkans, sem síðan er framvísað í næsta
viðskiptabanka eða sparisjóði eins og venjulegri ávísun.
Frekari upplýsingar um viðskipti með Eurotékkum fást hjá öllum
viðskiptabönkum og sparisjóðum, hjá Kaupmannasamtökunum,
sími 28811, og hjá Sambandi veitinga- og gistihúsa, sími 27410.
EUROTÉKKI og KORT
skulu vera eins og hér er
sýnt
NAFN BANKA
veröa aö vera samhljóða
bæði á Eurotékka og korti
NÚMER KORTSINS
skal skrifa á bakhlið
Eurotékkans.
ISK
verður alltaf að vera fyrir framan upphæðina.
HÁMARKSUPPHÆÐ
Isk. 3.000.- hver Eurotékki. Taka má fleiri
en einn tékka.
UNDIRSKRIFT
Eurotékka ber að undirrita í viðurvist
starfsmanns.
GILDISTÍMI
Öll kort gilda til 31. des. þess árs, sem getið
er á kortinu. Athugið að kortið sé í gildi.
Samband viðskiptabanka
og sparísjóða
3 kassettur í pakka og þú sparc
3x90mín. 339.-
HAGKAUP
Skeifunni Akureyri Njarðvík