Helgarpósturinn - 12.04.1984, Blaðsíða 12

Helgarpósturinn - 12.04.1984, Blaðsíða 12
YFIRHEYRSLA nafn: Jónas Haralz heimilishagir: Ekkjumaður, 1 sonur staða Bankastjori Landsbankans heimili: Sunnubraut 23, Kópavogi fæddur: 6.10.1919 í Reykjavík bíll: Peugeot 505 árg. 1983 áhugamál: Hagfræði, þjóðfélagsfræði, stjórnmál, útivera, heilsurækt Bönkum sleppt lausum eftir Hallgrím Thorsteinsson myndir Jim Smart Ýmsar blikur eru nú á lofti í íslenska bankaheiminum eftir að bönkum var leyft að ákveða sjálfum vexti á innlánsfé. Bankamir keppust nú við að gefa nút nýja tegund af spariskírteinum í samkeppni um sparifé landsmanna. Landsbanki íslands reið á vaðið og aðrar lánastofnanir fylgdu í kjölfarið með eins skirteini. Dr. Jónas Haralz, bankastjori Landsbankans, er í yfirheyrslu i dag. Var ekki fremur klaufaiegt af Lands- bankanum að tilkynna sölu á nýjum spariskirteinum, rétt eins og um vertð- bréf væri að ræða, í stað þess að aug- lýsa að fólk gæti nú stofnað nýja reikn- inga? Tekjur af verðbréfum eru jú skatt- skyldar? ,3egja má að ekki hali verið nægilega vel að þessu gætt. En lögfræðingar okkar vont búnir að fara vandlega ofan i þetta mál og við vorum búnir að ræða það ítarlega við Seðlabankann og iögfræðinga hans. Lög- fræðingar beggja stofnana litu svo á að eng- ínn vafi væri á þvi að skírteinin jöfnuðust á við innistæður." Var þetta klaufalega orðalag ekki bara auglýsingabrella hjá bankanum til að fá fréttaumfjöllun um skírteinin? „Nei, nei, það var það ekki. Menn verða alltaf vitrir eftir á - en við hefðum átt að kynna ríkisskattstjóra þetta áður og fá álit hans og leiðbeiningar, eins og við gerðum síðar. En það var eindregið áiit Seðlabank- ans eins og okkar að líta bæri á skírteinin sem innistæðu sem þess vegna væri bindi- skyld. Þess vegna fannst okkur þetta ótví- rætt. Svo hvíldi mikil leynd yfir þessu. Við vorum að þróa nýja vöru út af fyrir okkur. Auðvitað sjáum við eítir þvi að hafa ekki ráðgast við ríkisskattstjóra fyrr. En nú er búið að útkljá þetta. Skirteinin eru í raun þau sömu, skilrnálarnir óbreyttir. Skírteinin geta gengið kaupum og sölum. Við gerum ráð fyrir að á þau komi markaðsverð hjá verðbréfasölum og teljum mikilvægt að svo verði. Við náðum þess vegna öllu fram,sem við ætluðum okkur þó að orðalagi væri breytt.“ Hvaða vonir gerið þið ykkur um að þessi skírteini skili ykkur auknu fé inn í bankann? „Við höfum engan grundvöll til þess að gera áætlanir um það. Við vissum að sjálf- sögðu, að aðrir bankar og sparisjóðir myndu fylgja í kjölfarið. Það var óhjá- kvæmilegt. En við erum ekki fyrst og fremst að ná peningum frá þeim. Það sem fyrir okkur vakir er að stuðla að auknum spam- aði í landinu, því að spamaður minnkaði mjög mikið sem hlutfall af þjóðarfram- leiðslu á verðbólgutímunum, einkum 1974- 1976. Þrátt fyrir verðtrygginguna sem kom nokkrum árum seinna, hefur hann ekki komist neitt nálægt því sem hann var áður.“ Spamaður jókst þó framyfir verð- bólgu í fyrra . . . „Það er rétt. Heildaraukning innlána í bönkum var rúmlega 80% 1983, en láns- kjaravísitala hækkaði þá um 73%. Þarna varð nokkur raunvemleg aukning." Þið segist vera að reyna að auka sparnað. Nú er Landsbankinn i geysi- miklum yfirdrætti hjá Seðlabankanum, hann skiptír hundruðum milljóna króna og vextir af slikum yfirdrætti eru geysiháir, allt upp i 35-40%. Eru þessir háu vextir ekki einmitt grundvöllurinn fyrir útgáfu svona skirteina, þannig að allt það fé sem bankinn halar inn á lægri vöxtum en þetta, kemur bankan- um til góða? „Það er of mikið sagt, að yfirdrátturinn sé geysimikili, en hann er of mikili. Einmitt þess vegna er ábati að því að ná inn meira sparifé ef hærri innlánsvextir kalla ekki á hækkun útiánsvaxta. Við megum heldur ekki hækka útlánsvexti. Það hefur aðeins verið leyft að hækka vexti af innlánsfé sem er bundið i sex mánuði eða lengur. Við getum staðið við að bjóða þessi góðu kjör í von um að geta rétt við stöðu okkar gagn- vart Seðlabankanum." En er þetta ekki svolítið skringilegur grundvöllur til að byggja svona spam- að á; að það er bankinn, sem er i vand- ræðum? „Það er ekki bara Landsbankinn sem er í erfiðri stöðu, heidur allir bankamir. Lausa- fjárstaða bankanna í heild um síðustu mán- aðamót var neikvæð um 1.100 milljónir króna. Af þeirri upphæð heyra Landsbank- anum til innan við 300 milljónir." En eftir að þetta yfirdráttardæmi bankanna við Seðlabankannfer að lag- ast, geta þeir þá boðið jafn há ávöxtun- arkjör og núna með þessum skírtein- um? „Þetta vitum við ekki. Það er margt sem kemur til greina. Það eru möguleikar á því að bæta rekstur bankans, draga úr kostn- aði, en erfitt að framkvæma það á stuttum tíma. Við erum einnig að leggja í mikla tæknivæðingu sem hefur kostnað í för með sér. Hún mun aftur á móti einnig ieiða til sparnaðar, en við vitum ekki nákvæmlega hvernig þetta dæmi kemur út. Þetta verður að koma í ijós. Við erum að sjálfsögðu ekki að segja, að við getum boðið 6% raunvexti um tíma og eilífð. Þetta eru mjög háir raun- vextir og það er eðlilegt að þeir séu háir, vegna þess að við erum að komast út úr þessu mikla verðbólguskeiði. Það er ennþá mikii eftirspurn eftir fjármagni og spamað- ur er ennþá lítill." Nú hafa flestir bankar strax farið að bjóða samskonar skírteini og þið. Lýsir þetta ekki hugmyndafátækt i banka- kerfinu í þessari umtöluðu samkeppni þeiiTa um sparífé landsmanna? „Ég veit ekki hvað hefur gerst hjá hinum bönkunum í þessum efnum, en skömmu eftir að auglýsingin um breyttar vaxtareglur birtist 20. janúar, settum við menn í það hér í bankanum að koma með hugmyndir. Álit þeirra lá fyrir um eða upp úr miðjum febrú- ar. Það var ýmislegt sem kom til greina. Skírteinin urðu ofan á. Þau voru taiin ein- földust og hagkvæmust bæði fyrir bankann og fyrir viðskiptavinina." Svo virðlst sem þið hafið komið að hinum bönkunum þegar þeir voru með buxumar á hælunum i þcssum málum? „Ég get ekkert um það sagt, hvað hinir bankarnir voru búnir að undirbúa, en mann grunar að þeir hafi raunverulega ekki verið búnir að gera mikið, vegna þess að þeir taka upp sama orðalag á skírteinunum og sömu tölurnar. Það eina sem þeir reyna að gera öðruvísi er að hafa lágmarkið lægra. Við erum með 10.000 krona lágmark. Þessi skírteini eiga sér erlenda fyrirmynd og hafa reyndar þekkst hér á landi áður. Lands- bankinn gaf út svokölluð „Viðtökuskirteini" fyrir löngu. En þetta form hefur ekki tfðk- ast hér á landi í langan tíma vegna verð- bólgunnar. Verðbólgan hefur í raun útilok- að alia þróun í þessum efnum, nema verð- trygginguna. Eriendis hafa þessi skírteini reynst afar hentug en þar eru þau fyrst og tremsl notuð iynr pa sem eiga mikið sparifé og seld í stórum einingum. Niður- staðan hjá okkur varð sú, að við fórum tii- tölulega lágt með mörkin, miðað við það sem tíðkast annars staðar. Við vildum koma til móts við almenna sparifjáreigendur. En það verður áð hafa það í huga að kostnað- urinn verður að tiltölu þvi meiri sem upp- hæð skírteincmna er lægri.“ í sambandi við kostnað. Nú er Ijóst að Landsbankinn hefur lagt út í ákveðinn kostnað þegar hann bauð verðtryggðu reikningana á sínum tíma. Er ekki hætt við því að nú verði tilflutningur af verð- tryggðu reikningunum yfir á nýju skír- teinin, og að fjárfesting bankanna í verðtryggðu reikningunum fari þannig fyrir lítið? .JÞetta hefur þegar gerst. Það hefur verið mikill tilflutningur af verðtíyggðum reikn- ingum yfir á almenna sparisjóðsreikninga. Nú verður að sjálfsögðu tilflutningur yfir á skírteinin, bæði af verðtryggðum reikning- um og almennum sparisjóðsreikningum.'1 Er það ekki að vissu leyti slæmt? ,Jú. Það er enginn vafi á þvi, að þessar sífelidu breytingar og þessi fjölgun á form- um og reikningum er dýr. Þetta er ein af afleiðingum verðbólgunnar. Það er mikið unnið við það, að stöðugieiki komist á og verðbólga haldist hófleg, 10-15%. eða þar um bil, einsog vonir standa til. Þá verður hægt að fækka þessum formum - vera t.d. með verðtryggða reikninga aðeins til veru- lega langs tíma.“ Nú tala menn um að aukin samkeppni milli bankanna sé til góðs. En eru bank- arnir of margir? „Erlendis hefur bönkum stórlega fækkað á siðustu tveimur áratugum. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar - og ég held áð flest- ir í bönkunum séu einnig jieirrar skoðunar - að hér séu of margir bankar. Ég held það væri heppilegra að hér væru t.d. tveir ríkis- bankar og tveir einkabankar, og um jætta liafa menn verið að ræða í hálfan annan áratug. Það hefur aldrei náðst pólitísk sam- staða um að breyta þessu og það sýnir best hvað svona ríkisrekstur er erfiður og íhaldssamur. Það sem mér finnst skemmti- legt og áhugavert núna er það, hvort jressi vísir áð samkeppni á milli bankanna heldur áfram að þróast í sömu átt og getur þá knúið fram þá breytingu, sem menn hafa ekki geta náð eftir pólitískum leiðum. Að markaðurinn geri það sjálfur. Það hefur ekki gerst áður hér á landi.“ Ekki virðist þessi samkeppni ætla að verða ýkja beysin ef við dæmum út frá þessum litla visi að henni núna, skír- teinunum, þar sem menn apa upp hver eftir öðrum eins og þeir hefðu ákveðið þetta í sameiningu í samstarfsnefnd bankanna? „Það hafa menn ekki gert. Það hefur ekk- ert samráð verið haft á milli bankanna. Það tekur tíma að átta sig á nýju umhverfi, og fyrir þá sem haía alist upp í þessu hænsna- búi tekur það eflaust sinn tíma að læra að fljúga frjálsir úti í náttúrunni." 12 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.