Helgarpósturinn - 12.04.1984, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 12.04.1984, Blaðsíða 24
SMARTMYNDIR Ólafur Jóhannesson alþingismaöur: „Já, ætli hann hafi ekki náö mér vel þarna, mildum og höröum, eftir atvikum.“ Sigurður Pálsson, skáld og leikstjóri: „Hann kemur fólki fyrir á sviöi þar sem það leikur sjálft sig, nær fram þessum dæmigerðu augnablikum fyrir viökomandi.“ Auður Bjarnadóttir baliettdansari: „Þaö er einmitt oft svona hálf drungalegt andrúmsloft á æfingum og mikil ein- beiting. Góö mynd, Ijósmyndalega séö, en stellingin heföi getað veriö betri." Gunnar Huseby: „Ég var hissa aö hann skyldi nota þessa mynd. Bakgrunnurinn var andstyggilegur, þessi þvottur var svo Ijótur. En myndin er óvenjulega sterk, ég er rosalegur þarna.“ : eftir Hallgrím Thorsteinsson Myndimar eiga að geta talað fyr- ir sig sjálfar, þær eiga ekki bara að vera uppbót á textann eða fyrir- sögnina," segir Jim Smart, ljós- myndari Helgarpóstsins síðcin 1980. Við erum að tala um mynd- irnar sem hann hefur tekið fyrir blaðið, sérstaklega portrett-mynd- irnar sem prýtt hafa opnuviðtöl. En eins og Jim segir sjálfur, þá eiga myndimar ekki að vera skraut, heldur standa sjálfar - segja það sem ekki er hægt að segja öðmvísi en með mynd. Það er al- kunna að ein mynd segir meira en 1000 orð, og myndir Jims segja okkur kannski jctfnmikið eða meira um fólkið í opnuviðtölunum held- ur er viðtölin sjálf, sem þó telja oft 3000 orð. „Hann hefur lag á því að ná fram hinu dæmigerða hjá fólki, ná þessu augnabliki, sem er dæmigert fyrir svo mörg augnablik hjá viðkom- andi. Hann leyfir viðfcingsefnum sínum að koma upp um sig,“ segir Sigurður Pálsson, skáld og leik- stjóri. Sigurður segir um opnuvið- talsportrett Jims af sér: „Fólki, sem hefur séð þessa mynd, finnst með ólíkindum hvemig honum hefur þarna tekist að portrettara innri manninn." Jim Smart fer oftast á vettvang með blaðamanninum sem tekur viðtalið og tekur myndir sínar af fólkinu í umhverfi þess. „Ég reyni að ná sambandi við viðkom- andi strax, fá hann eða hana til að brosa helst strax á 10 fyrstu sek- úndunum. Mynd er alltaf náinn og persónulegur hlutur og ég reyni að fá fólk til að gleyma mér og mynda- vélinni þann hálftíma sem ég er að snúast í kringum það,“ segir Jim. .Auðvitað væri best að geta haft meiri tíma, að fá að kynnast við- fangsefninu betur. Það er oft erfitt að þurfa að ryðjast skyndilega inn á fólk heima hjá því og horfa svo eins djúpt og maður getur í augun á einhverjum sem maður hefur aldrei séð áður. Það heppncist ekki alltaf að ná góðri mynd þannig," segir hann af meðfæddri hógværð. Hann er Englendingur, frá East Anglia, þar sem hann nam um skeið auglýsingagerð á listaskóla. Leiðin lá víða að loknu námi; hann stundaði ýmis störf í skemmtiiðn- aði Lundúnaborgar, var ökukenn- eni um skeið og vann á olíuborpöll- um. Hingað kom hann 1975 og tók myndir fyrir Vikuna áður en hann kom til HP. Hann segist ekki hafa tekið myndir að neinu marki fyrr en hann fór að starfa hjá Vikunni, en að fjölbreytileg störf fyrir þcinn tíma hafi veitt sér ómetanlega inn- sýn í mannlífið - verið betri skóli en eiginlegt ljósmyndanám. „Ég hef reynt að finna mér sjálf- stæðan stíl og halda mig við hann. Ég ramma myndirnar um leið og ég tek þær, sker þær sem minnst til eftirá, hef útlínurnar svartar og er óhræddur við að nota víðar iinsur. Ég vinn með það ljós sem gefst á hverjum stað því að ég þoli ekki flass. Ég tek 40-50 myndir af sama viðfangsefninu og vil ráða því sjálf- ur nvaða mynd er notuð í blaðinu. Og á þessu blaði fæ ég að ráða því í 99% tilvika. Hvers vegna skyldi ég ekki líka fá að ráða myndinni á Scima hátt og blaðamaðurinn ræð- ur hvað hann skrifar?" Jim segir að íslenskar blaðciljós- myndir séu yfirleitt mjög góðar og gæðin yfirleitt meiri en gengur og gerist í ensku pressunni til dæmis. „En eitt forðast ég þó eins og heitan eldinn," segir hann. ,J>að er íslenska sófasettsp>ortrettið.“ Portrettsafn Jim Smarts geymir myndir af hundruðum þjóðkunnra Islendinga. Örfáar þeirra birtast nú hér á ný í tilefni af fimm ára afmæli blaðsins. 28 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.