Helgarpósturinn - 12.04.1984, Síða 13
111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111
GRÁSÍÐA
Hinn rétti fiskur
Hvar er hinn rétti fiskur?
spurði kennarinn. í sjónum, svar-
aði barnið á prófinu.
Það er óþarft að taka það fram
að barnið fékk tíu í einkunn.
En þegar þarf að flytja fiskinn
út og lifa á sölu hans, þá verður
hinn rétti fiskur að vera líka í fisk-
pökkunum, hvort sem hann er
frystur eða saltaður, óskemmd-
ur.
Hvar er fiskurinn gerður að
„drullu"? spyr almenningur. í
höndum þeirra sem handfjalla
hann,ætti að vera svarið. En hver
vill fá sitt sérstaka svar við sitt
hæfi, og þess vegna ónýtist fisk-
urinn með óskiljanlegum hætti.
Þeir sem flokka Scimt fiskinn
eru fiskmatsmennirnir, og þeir
eiga að vera jafn hlutlausir og
Ríkisútvarpið, svo allt verði rétt í
útsendingunni.
Eitt furðulegasta mál sem hér
hefur risið, og hið athyglisverð-
cista, er mál JónciScir Bjarnasonar
og þeirra sem færa hinn rétta fisk
í oft falskar umbúðir. Þarna eig-
ast við,annars vegar vísindin og
að fylgt sé reglum, en hins vegar
að fylgt sé hagsmunum og geð-
þótta.
Eflaust er Jónas Bjamason
fremur hægri- en vinstrisinnað-
ur, en hann er í hópi þeirra fjöl-
mörgu frjálsu hægrisinnuðu
manna sem setja vísindi og þekk-
ingu ofcU' öllu, vilja ekki leika að-
eins einn leik í tafli lífsins og láta
hina leikina svo ráðast, heldur
hugsa fram í tafltímann og forð-
ast að komast í tímahrak og beita
þá fumkenndum taflbrögðum,
eins og löngum hefur tíðkast í
þjóðlífi okkar.
Áður fyrr var föst vinnubrögð
eða boðun vinnubragða helst að
finna í hugarheimi vinstrimanna
og sósíalista, meðan hægra liðið
vildi leika endalaust cif fingrum
fram. Nú er öldin önnur. Ef vís-
indin eiga í höggi við hagsmuna-
aðilana, þá standa hægrimenn
fast með vísindunum en þeir
vinstri með hagsmunaaðilunum.
Mcrnni dettur því helst í hug að
vísindaiðkun hjá vinstrisinnum
hcifi aðeins verið huglæg ósk, og
því snúist þeir gegn henni þegar
henni er í raun og veru beitt.
Allir sem umgengist hafa fisk
vita að menn umgangast hinn
eina rétta fisk, sem hefst við að-
eins á íslandsmiðum, líkt og flór-
inn. Honum er mokað upp, troðið
er á honum.
Viðhorf manna til fisksins hafa
fylgt heimsmálunum á siðari tím-
um. Hann var söluvarningur sem
menn hættu lífi sínu til að selja á
stríðsárunum. Á tímum kcilda
stríðsins voru tvenns konar við-
horf til fisksins. Þau fóru eftir því
hvort hann átti að fara á Banda-
ríkjamarkað eða Rússamarkað.
Færi fiskurinn á Bandaríkjamark-
að var, sökum strangrar kröfu um
hreinlæti, farið fremur vel með
hann. Hins vegar var „allri drull-
unni" hent í Rússann.
Þegar kalda stríðinu lauk tók
krafa markaðsins við. Fólk sætti
sig ekki við að pólitískt viðhorf til
fisksins gilti ekki lengur: vönduð
vara í glæru bréfi til Bandaríkj-
anna, morkin drulla í smjör-
pappír til Rússlands. Markaður-
inn krefst aðeins gæða, sökum
samkeppninnar sem er æðsta
boðorð hans. Og eigi hinn eini
sanni fiskur að geta haldið sínu
sanna og góða eðli verður að
meðhöndla hann eftir því, strax
frá byrjun.
Tilgangslaust er að þumbast
við hérna uppi á íslandi: fólkið í
heiminum vill einfaldlega ekki
lengur vondan mat. Ástandið er
þannig: annað hvort góðurmatur
eða enginn. Þjóðir sem hálfsvelta
hafa ekki efni á að kaupa hinn
eina sanna fisk marinn undan fót-
um sjómanna eða flakaðan úr
sinni kös. Og Hjálparstofnun kirkj-
unncir getur ekki breytt öllum
fiski í fisktöflur og keypt; Jón
Ormur er ekki nógu valdamikill
til þess. Og svo er hann eflaust
líka af flokki Ný-íslendinga sem
vilja gæðin í staðinn fyrir magnið,
vísindaiðkun í stað orðaflaums.
Oft er sárt að koma að kjarna
hvers máls og þægilegra að
sveima kringum það með „skoð-
unum“. Erfitt er að „ráðast á sjó-
menn“ og leiða þá með lagni að
betri vinnubrögðum, skírskota til
sjálfsvirðingar þeirra fremur en
hagnaðarins. En í lokin fer ætið
saman hagnaður og hugsun eða
handbragð, einnig í sjávarútvegi,
einkum á friðartímum.
Mál Jónasar Bjamasonar og
eigenda hins eina sanna fisks er
enn eitt dæmi um hvemig hinir
menntuðu nýhægrisinnar ís-
lenska þjóðfélagsins hcifa gerst
smám saman framsæknir leið-
togar þess, en vinstrisinnar hafa
helst úr lestinni og halda uppi
hróplegu lýðskurmi, deigir; þeir
sem áður vom leiðandi á öllum
sviðum: í listum, bókmenntum
og í almennri hugsun. Allt hefur
þetta nú orðið nýíhcddinu að
bráð.
Og jafnvel hinum gömlu
íhaldsættum vex á ný fiskur um
hrygg, svo manni dettur í hug að
innan tíðarverði allt einsogáður
var, en aðeins örlítið vísindalegra
í stað andatrúar.
Opnum kl.7
Komidog kaupid sjóóandi
heitog mjúk brauð med
morgunkaffinu
Opnum kl. 7.00 alla
virka daga
Opnum kl. 8.00 laugardaga
Opnum kl. 9.00 sunnudaga.
Bakariió Kringlan
STARMÝRI2 - S(MI 30580
Þeir sem versla fyrir kl. 10.00 fá
morgunbrauð með 50% afslætti.
Skírdag og annan í páskum, opið eins
og sunnudaga.
▼ VARTA
_ OFURKRAFTUR -
~ OTRULEG ENDiNG
: 11 *1S|
SAMAN
VERÐOG
í
Eyðiröu stórfé í rafhlöður?
Þá skiptir máli að velja þær
sem endast best.
Hefur þú reynt VARTA rafhlöður?
í flokki algengustu rafhlaðna,
leiðir verðkönnun
verðlagsstofnunar í Ijós
að VARTA rafhlöður
eru með þeim ódýrustu-
RÐKÖNNUN
Rafhlöður fyrir vasaljós,
útvörp, segulbönd, rafknúin
leikföng og fl. (R 20)
Varta
0)
B:
Varta super 21.35
Berec power 22.25
Wonder top1’ 23.00
Hellesens rauð . 25.00
National super .. 27.00
C:
Philips super .. 19.75
Varta high
performance21 25.10
Wonder super 26.40
Ray-O-Wac
heavy duty 27.00
Varta super dry 29.05
Berec power plus . .. 30.25
Hellesens gold .. 34.00
fll
Við erum óhræddir við samanburð -
VARTA vestur þýsk háþróuð framleiðsla
VARTA GÆÐI A GOÐU VERÐI
ávallt í leiðinni
HELGARPÓSTURINN 13