Helgarpósturinn - 12.04.1984, Side 19
LEIKUST
eftir Heimi Pálsson og Reyni Antonsson
,,-Og gœja girnist pía...
u
Þjóðleikhúsið sýnir Gæja og píur, söng-
leik byggðan á sögu og persónum eftir
Damon Runyon.
Tónlist og söngtextar Frank Loesser.
Handrit: Jo Swerling ogAbe Burrows.
Þýðing: Flosi Ólafsson, lýsing: Kristinn
Daníelsson, hljómsveitarstjóri Terry
Davies, búningar: Una Collins, œfingastjóri
tónlistar: Agnes Löve, leikmyncL Sigurjón
Jóhannsson.
Dansahöfundur: Kenn Oldfield.
Leikstjórrv Kenn Oldfield og BenediktÁrna-
son.
Aðalhlutverk■ Sigríður Þorvaldsdóttir, Bessi
Bjarnason, Ragnheiður Steindórsdóttir,
Egill Ólafsson.
Seint hefði víst Bjami Thor orðað línuna
úr „Eldgömlu Ísaíold" eins og gert er hér í
fyrirsögninni. A því máli sem honum lék á
tungu hét það „og guma gimist mær“
(þannig í handriti Bjama). En það var líka
kveðið á annarri öld og í annarri borg en
Damon Runyon var að lýsa í „Guys cind
Dolls“. Scimt er ekki víst að kjaminn sé svo
ólíkur, þvf mannskepnan virðist nú alla
götu söm við sig.
Damon Runyon (1880-1946) var einn
ágætasti smásagnahöfundur amerískur á
sinni tíð. Heimur hans var undirheimur
stórborgarinnar, hann þekkti persónulega
fólkið sem hcinn Vcir að skrifa um, smá-
glæpamenn og stórbófa Nýju Jórvíkur, og
hann skapaði mjög persónulegan stíl - sem
raunar virðist næstum ógemingur að flytja
yfir á nokkra tungu aðra en þá slangurríku
ensku sem hann skrifaði. I kaldhæðnum
mcmnskilningi minnir hann ekki lítið á sam-
tíðarhöfunda sína Raymond Chandler
(1888-1959) og Dashiell Hammett (1894-
1961) (sá fyrmefndi skapaði ma. Philip
Marlove og sá síðamefndi skrifaði ,JVlöltu-
fálkann" ásamt miklu góðgæti öðm).
Eitt af því sem Runyon hafði sér til ágætis
var skopskyn meira en í meðallcigi. Sögur
hans úr undirheimunum verða því hvort
tveggja drepfyndnar og fuilar af manneskju-
legum tilfinningum - þó svo efnið sé oft
býsna soralegt. Að vísu er það rétt sem
segir í ieikskíá Þjóðleikhússins að menn
em ekki drepnir í smásögum Runyons, bara
kældir dálítið niður, en ofbeldið gengur nú
stundum býsna langt. Það var víst þetta sem
Jón Vídalín kallaði „að skemmta með hinn
óskemmtilegasta híut“ og hefur oft gefist
vel.
Því miður er söngleikurinn sem þeir
Loesser, Serling og Burrows gerðu eftir
smásögum Runyons sjaldan eins fyndinn
og sögurnar sjálfar, en margt verður til að
bæta það upp og í heild er músíkallinn
þeirra rækalli góður kall - ef menn á annað
borð hafa gaman af söng og dansi með
skemmtilegum leikfléttum inni á milli.
í heild er sýning Þjóðleikhússins ágæt-
lega heppnuð. Mestu sýnist mér þar skipta.
dans- og leikstjóm sem ég hygg að við eig-
um að þakka Kenn Oldfield og leiðir m.a. af
sér einhverjar cdlrcihressilegustu hópsenur
sem ég hef séð f íslensku leikhúsi. Þar verð-
ur varla nokkum tí'ma dauður punktur held-
ur líf og fjör um cillt sviðið - að vísu með
þeim afleiðingum að ýmislegt kann að fara
framhá áhorfandanum.
í öðm lagi er tónlistin flutt af hörkugóðu
bandi undir stjórn Terry Davies, og ber að
geta þess að hljómsveitin sú er raunar ekki
skipuð neinum aukvisum heldur em þar
saman komnir ýmsir af ágætustu djassist-
um okkar og frábært lið úr annars koncir
hljómsveitum.
Gæjarog píur-varla
nokkurn tíma dauður
punktur heldur líf og
fjör um allt sviðið.
Litríkur fyrirmyndarbær
Leikfélag Akureyrar:
Kardemommubærinn-
Höfundur: Thorbjörn Egner sem einnig
samdi tónlistina.
Þýðing: Hulda Valtýsdóttir og Kristján frá
Djúpalæk.
Leikmynd: Þráinn Karlsson.
Búningar: Freygerður Magnúsdóttir, dýra-
gervi. Anna Torfadóttir.
Lýsing: Viðar Garðarsson.
Hljómsveit Tónlistarskóla Akureyrar leikur.
Stjórnandi tónlistan RoarKvam.
LeikstjórL Theodór Júlíusson.
Mikið óskaplega hlýtur að vera gaman að
búa a bæ á borð við Kardemommubæinn
hans Thorbjöms Egners. Þar ganga dýrin
um götumar frjáls og óhindmð af öllum
þessum mannasetningum sem sífellt er ver-
ið að karpa og kýta um, fólkið leysir öll sín
vandamáJ í friði og sátt, og sjálfur bæjar-
fógetinn telur það helstu skyldu sína að
vera blíður á mcmninn. Það eina sem angrar
fólkið í þessum fyrirmyndarbæ em ráns-
ferðir skálkanna þriggja sem em þó í raun-
inni bestu skinn, þó svo þeir hafi eilítið
villst af vegum hins rétta, og svo auðvitað
leiðindaskjóða staðarins hún Soffía frænka.
En jafnvel hún er svosem besta skinn inn
við beinið, og tekur meira að segja að sér
einn skúrkcinna í lokin, þó svo maður
öfundi nú strákgreyið ekki beinlínis af hlut-
skiptinu.
Það er þessi stöðugi undirtónn verka
Egners, að allir menn séu að upplagi góðir,
þrátt fyrir að þeir eigi það til að misstí'gasig,
sem á að líkindum stærstan þátt í því að
gera þau svo vinsæl að leikhúsin telja það
nánast skyldu sína að sýna þau á þetta tíu
ára fresti, og þessi boðskapur er sígildur og
öllum hollur. En fleira kemur hér til. Egner
hefur alveg sérstakt lag á því að koma þess-
um fagra boðskap til skila án þess að verk
hans verði nokkum tíma að leiðinlegum
siðaprédikunum eða væmni. Það er mikill
hraði og fjör í verkum hans, persónumar
oftast skýrt og skemmtilega mótaðar, og
ekki má gleyma tónlistinni sem hvert
mcinnsbarn þekkir. Það má eflaust finna
ýmsa galla á verkum Egners frá bókmennta-
legu sjóncirmiði. Til dæmis er bygging
þeirra stundum full losaraleg og mikið um
„billegar" lausnir. En kostimir yfirgnæfa
þessa galla, og umfram allt einlægni höf-
undar, samkennd hans og samúð með öllu
sem lífsanda dregur.
Og enn á ný er gestum Samkomuhússins
boðið upp á heimsókn til þessa makalausa
Kardemommubæjar; ungum, og vonandi
öldnum einnig, til ánægju og yndisauka.
Það er Theodór Júlíusson sem veg og vanda
hefur af þessari glaðvæm, litríku en
umfram allt geðþekku uppsetningu. Honum
hefur hér tekist einstaklega vel upp við
stærsta verkefni sitt á sviði leikstjómunar
til þessa, og hefur hann vafalaust mikið lært
af að vera aðstoðarmaður Þórhildar Þor-
leifsdóttur við hina frægu uppsetningu á ,My
Fair Lady" fyrr í vetur, og kemur þetta ekki
hvað síst fram í hópatriðunum sem em
einkar vel heppnuð, til dæmis götulífs-
myndin í upphafi sýningarinncir sem maður
Kasper, Jesper og
Jónatan á Akureyri
-fara allir á kostum.
I þriðja lagi fara margir leikarar og dans-
arar á kostum í sýningunni. Þar sýnist mér
sigur Sigríðar Þorvaldsdóttur vera einna
stærstur, en þar með raunar á engan hallað.
Flutningur Sigríðar á söngnum „Taktu þín
skinn“ (með góðri stoð „danspíanna") var
til að mynda frábær skemmtun bæði fyrir
auga og eyra.
Flosi Olafsson hefur tekið að sér það
vandaverk að íslenska texta leiksins og
verður ekki annað fundið en hann hafi leyst
það eins vel og hægt er að ætlast til. Ég hef
ekki lesið söngleikstextann, en áður er fram
komið að Runyon sjálfur er óþýðcindi með
öllu. Þegar við bætist að íslenskan er fjarska
fátæk af slangri því sem þarf að nota í leik-
ritinu sést að viðfangsefni Flosa er ekki á
færi neins meðalskussa. Sjálfur leikur hann
svo erfitt hlutverk í sýningunni, einskoncir
tengilið milli atriðanna, Næslí Næslí John-
son (því miður fylgir ekki sagan af Nicely
Nicely eins og Runyon sagði hana í .Tonely
Heart“, og grínaðist með konu sem hafði
drepið eiginmenn sína á færibandi!).
Leikmynd Sigurjóns Jóhannssonar og
búningar Unu Colíins eiga mikinn þátt í
hressileika og „trúverðugleika" sýningcir-
innar. Sigurjón býður þama bæði upp á
íburðarmiklar götumyndir og sáraeinfaldcir
sviðslausnir og eru hvorar tveggja honum
til sóma.
Það yrði til að æra óstöðugan að reyna að
tí'unda leikara og dansara sýningarinnar,
enda í eðli sínu fráleitt að fara að gefa
einkunnir. Meginstyrkur Gæja og pía ligg-
ur í heildinni, og hún hefði ekki náðst nema
við fyrirmyndar samvinnu sem ég vona að
margir leikhússgestir eigi eftír að njóta á
næstu vikum. Þegar ríkisstofnanir úmennt
epj alþýðu þessa lands heldur til leiðinda er
huggun að því að ein þeirra skuli altént geta
skemmt manni. _^p
ber ósjálfrátt saman við samskonar götu-
senu í upphafi ,My Fair Lady“. Þá er notkun
sviðs og salar mjög skemmtileg. Einkar hag-
anleg leikmynd Þráins Karlssoncir áscimt
búningum Freygerðcir Magnúsdóttur, að
ógleymdum kostulegum dýragervum Önnu
Torfadóttur, sjá um að skapa litadýrð sem
oft á tíðum er unun á að horfa og lýsing
Viðars Garðarssonar er oftast með ágætum
en hefði að ósekju mátt vera dálítið áhrifa-
meiri í brunaatriðinu síðast í leiknum. Um
tónsprotann heldur Roar Kvam styrkri
hendi og er þar fagmennskan í fyrirrúmi svo
sem vænta mátti, útsetningar allar hinar
smekklegustu og flutningur allur með ágæt-
um, þó svo að söngur einstakra leikara hafi
verið svolítið misjafn eins og gengur.
Mikill fjöldi leikara kemur fram í sýningu
þessari og eru ekki tök á því að geta þeirra
allra hér. Bjöm Karlsson leikur hið blíða
yfirvald þeirra Kardemomminga, en ein-
hvern veginn finnst manni góðmennska
hans eitthvað litlaus og „gufuleg". Aftur á
móti er góðmennska spekingsins Tobiasar í
meðfömm Marinós Þorsteinssonar miklum
mun trúverðugri. Það gustar hressilega af
Sunnu Borg í hlutverki Soffíu frænku, leið-
indaskjóðunnar í plássinu. Þó fannst manni
ef til vill að hún ýkti persónuna ekki nóg,
einkum í samskiptunum við bæjarbúa, en
þetta kann að stafa af því að maður hugsar
alltaf til túlkunar Emilíu heitinnar Jónas-
dóttur á þessu hlutverki. Allavega skaðar
dálítill ofleikur ekkert í þessu tilfelli, nema
síður sé. Burðarás þessarar sýningar er svo
hið óborganlega þríeyki Kráinn Karlsson,
Gestur E. Jónasson og Bjami Ingvarsson í
hiutverkum ræningjanna þriggja, Kaspers,
Jespers og Jónatans. Þeir fara allir á kostum
bæði í leik og söng, og mynda einkar
skemmtilega heild þó svo þeir séu harla
ólíkir hver öðrum. Þá má nefna einkar at-
hyglisverðan leik hinnar ungu Höllu Jóns-
dóttur sem Kamillu.
Það er vor í lofti og sýning Leikfélags
Akureyrar á Kardemommubænum er sann-
kölluð vorsýning, full kátí'nu og hlýju, prýði-
legur endapunktur eftir sérlega velheppnað
leikár. Á þessu vori hafa friðarmál verið
óvenju mikið í sviðsljósinu hérlendis. Fyrir
Alþingi liggur nú þingsályktunartillaga um
friðarfræðslu, en eitthvað virðist það böggl-
ast fyrir mönnum að skilgreina hvað í slíkri
fræðslu felst. Ef til vill felst slík fræðsla ein-
mitt í leik á borð við Kardemommubæinn,
hver veit?
Að lokum: í leikskrá er greint nokkuð
frá störfum þess fólks sem stendur á
bakvið hverja leiksýningu, og er þetta hið
þarfasta framtak, ekki síst með tilliti til
ungra leikhúsgesta, en því miður voru
fyrirsagnimar á þessum kynningum dálítið
villandi, gáfu helst til kynna að verið væri
að rekja feril þessara starfsmanna. Þá láðist
að prenta formála Egners að verkinu í leik-
skránni eins og venja mun vera. En þetta er
víst óþarfa nöldur út af smáatriðum. Mestu
máli skiptir að hér er um að ræða hugljúfa
sýningu sem allir, líka fullorðnir, hafa ekki
nema gott af að sjá. Ekki síst á þessum tíma
kvóta og óuppfylltra fjárlagagata.
-RA
HELGARPÓSTURINN 23