Helgarpósturinn - 18.07.1985, Qupperneq 15
USTAPOSTURIWN
*
Islensk kvikmyndastofnun í burðarliðnum? ^
FRAMKVÆMDASTJORI
KVIKMYNDASJÓÐS
RÁÐINNINNAN SKAMMS
# Mun annast Kvikmyndasafnið, sölu- og markaðsmál ís-
lenskra kvikmynda erlendis og framkvœmdastörf fyrir
Kvikmyndasjóð.
# „Lít á þetta sem uppsögn,“ segir Erlendur Sveinsson, for-
stöðumaður Kvikmyndasafnsins.
# „Erlendur víkur úr starfi að eigin ósk,“ segir Knátur Halls-
son ráðuneytisstjóri.
„Til efs að einn maður geti gegnt störf-
um bæði fyrir Kvikmyndasafnið og
Kvikmyndasjóð," segir Erlendur
Sveinsson.
Nœstu daga verður aug-
lýst eftir umsóknum um
starf framkvœmdastjóra
Kvikmyndasjóðs. Starf
þessa framkvœmdastjóra
verður œði viðamikið og
grundvallast á nýjum lög-
um, sem m.a. ná yfir Kvik-
myndasafn Islands. Nýi
framkvœmdastjórinn á að
annast safnið, auk þess
sem hann á að selja eða
koma íslenskum kvik-
myndum á framfœri er-
lendis. Þar að auki á hann
að sinna framkvœmda-
stjórastörfum fyrir Kvik-
myndasjóð, aðstoða um-
sækjendur við að semja
sínar umsóknir, gera áœtl-
anir o.fl. sem að fram-
leiðslu og sölu kvikmynda
lýtur. í raun er hér um að
ræða vísi að stofnun ís-
lenskrar kvikmyndastofn-
unar.
Knútur Hallsson ráðuneytisstjóri
sagði Helgarpóstinum að þessa dag-
ana væri verið að ganga frá væntan-
legri auglýsingu um starfið, ákvarða
launakjör væntanlegs starfsmanns
o.fl. sem að þessu starfi lýtur.
Hingað til hefur Erlendur Sveins-
son verið forstöðumaður Kvik-
myndasafns íslands og gegnt því
starfi í hálfri stöðu. „Samkomulag"
mun hafa náðst við Erlend um að
hann víki úr sínu starfi þann 1. febr-
úar 1986 og að þá taki nýr maður
við. „En Erlendur getur að sjálf-
sögðu sótt um nýja starfið eins og
aðrir,“ sagði Knútur Hallsson. Um-
sóknarfrestur um nýju stöðuna
verður veittur til 1. nóvember n.k.
og reiknað með að sá eða sú sem
ráðin verður muni njóta leiðsagnar
Erlends varðandi nýja starfið fyrstu
mánuðina, hvað varðar starfsemi
Kvikmyndasafnsins.
HP spurði Knút Hallsson hvort
einn starfsmaður fyrir sjóðinn og
safnið væri nóg — hvort nýi fram-
kvæmdastjórinn þyrfti ekki starfs-
lið.
„það verður nú bara einn maður
núna,“ sagði Knútur. „Það er í raun
um að ræða tvær hálfar stöður — og
Erlendur víkur úr starfi að eigin ósk.
í lögunum er gert ráð fyrir því að
einn af starfsmönnum sjóðsins ann-
ist málefni safnsins — þegar því vex
fiskur um hrygg og fjárveitingar
leyfa. Ætli við stefnum ekki að því
að það verði þá einhver maður laus-
ráðinn til þess að sjá um safnið."
Erlendur Sveinsson sagði að með
nýjum lögum um Kvikmyndasjóð
og safnið hlyti hann að víkja. „Þetta
svokallaða „samkomulag" er ekk-
ert annað en uppsögn," sagði Er-
lendur. „Mér er það reyndar til efs
^ð það finnist maður sem búi yfir
því sem þarf til að gegna störfum
jafnt fyrir sjóðinn og safnið,“ sagði
Erlendur, sem sagðist alfarið á móti
þessu nýja fyrirkomulagi. En nýju
lögin sem ná bæði yfir sjóðinn og
safnið voru keyrð í gegnum Alþingi
í fyrravor á methraða. „Eg lít svo á
að ekki hafi verið hugað að þörfum
safnsins sem skyldi þegar þessi nýju
iög voru sett," sagði Erlendur
Sveinsson, sem sagðist óttast að
safnið yrði útundan og vanrækt
með hinu nýja fyrirkomulagi. „Það
er mín skoðun að Kvikmyndasafnið
eigi að vera sjálfstæð stofnun og
stjórnað af eigin framkvæmda-
stjóra," sagði Erlendur.
— GG.
„SOLDIÐ
FRÆGUR
Kristján Markersen, stjarna úr
„Ottó Nashyrningi" — „hef
mestan áhuga á að verða
flugmaður."
I DANMORKU“
,,Ottó er nashyrningur“ heitir
dönsk kvikmynd sem sýnd var viö
miklar vinsœldir á kvikmyndahátíö
í vor. Myndin var gerð fyrir tveimur
árum og varö strax feikilega vinsœl
í Danmörku. Annaö aðalhlutverkiö
í myndinni lék tólfára strákur, hálf-
ur Islendingur og hálfur Dani,
Kristján Markersen að nafni. Móðir
Kristjáns er íslensk — og öll fjöl-
skyldan stödd hér á landi um þessar
mundir.
Kristján vildi lítið gera úr leikara-
ferli sínum, þegar HP-maður spjall-
aði við hann. Hann er orðinnn fjór-
tán ára og hefur engan sérstakan
áhuga á leiklist eða bíómyndum,
segir hann. En 1982, þegar myndin
var gerð, var hann valinn í hlutverk-
ið úr hópi 300 barna, sem áhuga
höfðu.
„Ætii ég hafi ekki verið valinn
vegna þess að ég var svo lítill eftir
aldri."
— Var þetta ekki skemmtileg
reynsla?
„Þetta var skemmtilegt og ekkert
erfitt. Kvikmyndatakan stóð yfir í
tvo og hálfan mánuð, allt tekið upp
í Kaupmannahöfn."
Kristján er fæddur og uppalinn í
Danmörku, talar enga íslensku og
sagði að sér fyndist skemmtilegt að
heimsækja ísland, „þrátt fyrir kuld-
ann.“
— Heldurðu að þú veröir leikari?"
„Nei.“
— Hvað œtlarðu að veröa?
„Flugmaður".
— Kafteinn hjá SAS?
„Já.“
— Hvers vegna?
„Held bara að það sé skemmti-
legt.“
— Skemmtilegt að fljúga — eða
skemmtilegt að vera í einkennisbún-
ingi?
„Hvort tveggja."
— Ertu ekki heimsfrægur maður í
Danmörku eftir leikinn í „Ottó nas-
hyrningi?"
„Soldið".
— En vilt ekki verða heimsfrœgur
leikari?
„Nei, flugmaður."
— Heimsfrœgur flugmaður
kannski?
„Það væri ekki verra."
Kristján sagði að honum hefði
ekki borist tilboð um frekari kvik-
myndaleik, enda hefði hann engan
áhuga á þannig störfum. Það sem
framundan væri, væri stærðfræði-
deild menntaskóla — flugnám — og
þó fyrst og fremst sumarfríið á ís-
landi. -GG
HELGARPÓSTURINN 15