Helgarpósturinn - 18.07.1985, Blaðsíða 19
ÍÞRÓTTIR
Spartakíaöa:
Líkamsuppeldi og
þjódarvitund
Fyrir nokkru bauðst mér að
skreppa til Tékkóslóvakíu í 10
daga og fylgjast þar með svokall-
aðri Spartakíöðu, sem er nokkurs
konar fimleikaþjóðhátíð þarlend-
is, haldin á fimm ára fresti. í
íþróttapistli dagsins ætla ég að
rekja það helsta sem mér fannst
merkilegt í förinni, einkum það
sem snýr að því sem við getum
kallað líkamsuppeldi einnar þjóð-
ar-,
Áður en ég lagði af stað til Prag
hafði ég aðeins óljósa hugmynd
um það hvaða fyrirbæri Sparta-
kíaðan væri. Sem íþróttafrétta-
maður hafði ég heyrt um stórmót
með sama nafni í öðrum löndum
Austur-Evrópu. í Sovétríkjunum
og Austur-Þýskalandi er keppt í
fjöimörgum íþróttagreinum, fyrst í
smærri bæjum og héruðum, síðan
sýslum, þá landshlutum o.s.frv.,
uns allir bestu íþróttamennirnir
mæta til keppni í Moskvu eða
Austur-Berlín. Þarna vissi ég að
lægi ein af fjölmörgum skýringum
á afrekum Áustur-Evrópumanna í
íþróttum. Punktum basta.
Kynningarbæklingur á ensku
um Spartakíöðuna tékknesku jók
þekkingu mína snarlega. Þegar
flugvélin lenti á flugvellinum við
Prag gat ég a.m.k. þulið upp
nokkrar staðreyndir úr bæklingn-
um fyrir leiðsögumanninn sem
tók á móti mér. Þessar staðreynda-
þulur dugðu þó skammt þegar ég
reyndi að gera mér grein fyrir eðli
og áhrifum Spartakíöðunnar á líf
venjulegs borgara í Tékkóslóvak-
íu. Reyndar hygg ég að enn sé
skilningur minn yfirborðskennd-
ur, þó að þekkingin hafi aukist.
Ég dvaldist með hópi 40 blaða-
og fréttamanna, sem voru þarna í
boði ríkisins. Við urðum aðnjót-
andi ótrúlegrar gestrisni hvar sem
við komum. Matur og drykkur var
borinn í okkur í slíku magni að
einstaka menn tóku sér ,,átfrí“ og
félagi minn frá Zambíu hætti ekki
öldrykkjunni fyrr en mjöðurinn
var farinn að renna útum eyrun á
honum. Það er nú önnur saga. En
ég hygg að gestrisni og matarást
sé Tékkum (Tékkum og Slóvökum)
í blóð borin og þeir gefa sér ætíð
góðan tíma til þeirra hluta. Þetta
fór reyndar nokkuð í taugarnar á
japönskum blaðamanni, sem
þurfti að skrifa 5 greinar um að-
skiljanlegustu efni á þessum 10
dögum. „Helvítis kommarnir, þeir
segja bara jess, jess og halda síðan
að þeir geti keppt við okkur Jap-
ana á efnahagssviðinu." Tékk-
neskur fygldarmaður okkar sem
heyrði þetta sagði seinna við mig:
„Þannig hygg ég að
Spartaklaðan eigi drjúgan þátt
í að efla þjóðarvitundina og
slíkt er mikilvaegt hjá þjóð
sem lengi hefur átt undir
högg að sækja."
„Þeir eru alltaf svo uppteknir við
að nýta hverja sekúndu. Þessir
litlu púkar vinna tíu til tólf tíma á
dag, búa í örsmáum íbúðum með
færanlegum milliveggjum og svo
fá þeir eina viku í sumarfrí á ári. I
frívikunni fara þeir kannski í
hnattferð með Canon-myndavél-
ina á belgnum."
Áfram með Spartakíöðuna. Eftir
því sem mér skildist eru færustu
þjálfarar landsins fengnir til þess
að útbúa æfingar með mjög ná-
kvæmri lýsingu á útfærslunni.
Þessi prógrömm eru síðan send
hingað og þangað um landið,
ásamt blaði þar sem á stendur eitt-
hvað á þessa leið: Við þurfum að fá
500 þátttakendur frá héraðinu.
Síðan hefst undirbúningur heima í
héraði, farið er að æfa prógramm-
ið og síðan er keppt. Þeir 500
bestu í héraðinu (af t.d. 10.000 sem
stunduðu æfingar og kepptu) eru
valdir til þess að sýna í Prag. Sam-
kvæmt þeim upplýsingum sem
við fengum voru haldnar eitt þús-
und og fimm hundruð minniháttar
Spartakíöður um allt land að
þessu sinni. Þátttakendur þar voru
um 1.6 milljónir og um 3.5 milljón-
ir fylgdust með. Hins vegar voru
haldin um 20 þúsund mót í hinum
ýmsu íþróttagreinum í nafni
Spartakíöðunnar og í þeim tóku
þátt um 8 milljónir barna og full-
orðinna. Það má nærri geta hvort
Spartakíaðan snerti ekki líf ansi
margra Tékka.
En hér er ekki eingöngu um að
ræða íþróttahátíð. Hinar aðskilj-
anlegustu kúltúrsýningar tengjast
Spartakíöðunni, þar sem viðfangs-
efnin eru einatt með þjóðlegum
blæ. Þannig hygg ég að Spartakí-
aðan eigi drjúgan þátt í að efla
þjóðarvitundina og slíkt er mikil-
vægt hjá þjóð sem lengi hefur átt
undir högg að sækja. Margir við-
mælendur mínir í Tékkóslóvakíu
drógu enga dul á þennan tilgang.
Einn æðsti maðurinn í undirbún-
ingsnefnd Spartakíöðunnar, Rud-
olf Dusek, sagði þó: „Höfuðtil-
gangur Spartakíöðunnar er að
fylkja eins mörgum ungmennum
og mögulegt er undir merki
íþróttahreyfingarinnar og að fá
fram í sviðsljósið efnilega íþrótta-
menn sem síðan mynda landslið
Tékkóslóvakíu."
Fjöldasýningar í íþróttum eiga
sér ianga hefð í Tékkóslóvakíu.
Þjóðernishreyfingin „Sokol“ efndi
til sýninga fyrir aldamót, hinnar
fyrstu árið 1882. Verkalýðshreyf-
ingin sá að þarna var gott tækifæri
til þess að fylkja fjölda fólks undir
merki þjóðlegs sósíalisma og
íþrótta. Tékkum var og er hugleik-
ið nafn þrælsins Spartakusar (sem
stjórnaði uppreisn gegn Róm-
verjum) og árið 1921 var fyrsta
Spartakíaðan haldin. Svipaða
sögu má einnig rekja í ýmsum öðr-
um löndum. Síðan 1955 hafa Tékk-
ar haldið Spartakíöðu fimmta
hvert ár í þeirri mynd sem hún
þekkist nú.
„Ég er ekki viss um að Spartakí-
aðan efli þjóðernisvitund okkar
sérstaklega, samkenndin er öllu
mikilvægari. AUir eru glaðir þegar
Spartakíaðan stendur yfir, einnig
þeir sem ekki taka þátt í henni,“
sagði ungur tékkneskur meistari
og landsliðsmaður í köfun, Eva
Chýlova, við mig þegar talið barst
að Spartakíöðunni. Hún bætti við:
„Margir þeirra sem ekki iðka
íþróttir fá tækifæri til þess að
hreyfa sig skipulega þegar verið er
að æfa fyrir Spartakíöðuna. Hér í
landi er slíkt erfitt ef íþróttamenn
eru ekki meðlimir í félagi. Félögin
auka starfsemi sína mjög, bjóða
t.d. upp á skipulagt trimm og
keppni. Einnig er nokkur keppnis-
bragur á þessu öllu saman. Ibúar
þorpa og héraða keppa í sundi.
Það er alveg ótrúlegur fjöldi fólks
sem tengist Spartakíöðunni, beint
og óbeint, og hún smýgur in í líf
flests fólks hér í landi."
Þegar Spartakíöðudagarnir í
Prag nálgast, byrjar fólk að
streyma til borgarinnar. Ég heyrði
nefnt á blaðamannafundi, að um
hálf milljón manna kæmi sérstak-
lega til Prag til þess að fylgjast
með hátíðinni. Auðvitað koma
flestir frá hinum ýmsu héruðum
Tékkóslóvakíu, en einnig mörg
þúsund erlendir gestir og þátttak-
endur. Fimleikahátíðin verður til-
efni uppákoma af margvíslegu
tagi og er borgin eitt iðandi mann-
haf allan sólarhringinn. Þá eykst
víst til muna framboð af ýmsum
sjaldséðum vörum, eins og t.d.
banönum, sem eru annars einung-
is til sölu fyrir jól. „Þetta er svo-
sem ágætt, enda er ríkisstjórninni
í mun að sýna ykkur útlendingum
að við höfum allt hér sem hugur-
inn girnist," sagði einn viðmæl-
enda minna þegar ég spurði hann
um þetta atriði.
En það voru ýmsar aðrar spurn-
ingar sem vöknuðu varðandi tékk-
neskt íþróttalíf og Spartakíöðuna
á þessum 10 dögum í Prag. í næsta
íþróttapistli leita ég svara við þeim
og tíunda það sem fyrir augu bar
á Strahov-vellinum þar sem um
200 þúsund áhorfendur fylgdust
með sýningaratriðum.
löndum mun ekki vera sem bestur.
HP hefur frétt það frá starfsmönn-
um ferðaskrifstofu á Norðurlöndun-
um, að hóteleigendur í S-Evrópu frá-
biðji sér flestir hverjir að fá íslenska
„ferðamenn" vegna óhemjugangs,
fyllerís og skrílsiáta þeirra. Munu ís-
lensku ferðaskrifstofurnar vera
farnar að finna fyrir mótstöðu
hóteleigenda, en illa gengur að siða
landann, sérstaklega á suðrænum
ströndum þar sem náttúruöflin leys-
ast úr læðingi...
JU|
I Tleð haustinu er von á
nýrri plötu með gömlum guttum,
Ríó-tríóinu. Gunnar Þórðarson
topp-poppari sér um útsetningar, en
um efni plötunnar vitum við það
eitt, að það verða aðallega gamlar
lummur, enda þótt staðið hafi til
upphafiega að bjóða upp á nýtt
efni. . .
l^rs
I yrst við erum byrjuð að tala um
Gunna Þórdar, þá muna kannski
sumir eftir því, að hann varð fertug-
ur, sjáifur popparinn, í janúar í vet-
ur. í haust er ráðgert að fara af stað
með eins konar „Gunnars Þórðar-
sonar-sjó“, þar sem uppistaðan verð-
ur tónlist eftir afmælisbarnið. Málið
er á byrjunarstigi. . .
l slandsmethafinn í stjórnarfor-
mennsku stórra einkafyrirtækja,
Halldór H. Jónsson. hefur verið
endurkjörinn formaður Sameinaðra
verktaka hf., sem er samsuðufyrir-
tæki í verktöku fyrir Varnarliðið.
Þarna sitja saman í stjórn Thor Ó.
Thors (íslenskir aðalverktakar),
Axel Gíslason (SÍS) og fleiri góðir
menn...
Góð kaup
Nýr lax 325,- kr. pr.kg
Kjúklingar 230,- -
Nauta T.Bone 328,- -
Nautahakk 258,- -
Svínalæri 270,- -
Svínabógur 270,- -
Nautahamborgari 22,- kr. stk.
Roast-beef 475,- kr. pr.kg
Nauta-snitschel 499,- -
Nauta-gullasch 435,- -
Nautainnanlæri 575,- -
Nauta-fillet 647,- -
Sviðasulta 198,- -
KJÖTMIÐSTÖÐIN
LAUGALÆK. S. 686511
HELGARPÓSTURÍNN 19