Helgarpósturinn - 18.07.1985, Qupperneq 22
Föstudagur
19. júlí 1985
19.25 S$gan af rebba. Þýðandi Kristín
ífíðntylá.
Ævintýri Berta. 1. þáttur. Nýr
. sænskur teiknimyndaflokkur.
| 19 jb Fréttaágrip á táknmáli.
2QLOO Fréttir og veður.
2Ö.30 Auglýsingar og dagskrá.
f 20.40 Skonrokk.
21.1 jHeiöaharmur. Bresk heimildamynd
f sem greinir frá þeim spjöllum sem
jf skosku heiðarnar hafa orðið fyrir af
manna völdum á síöustu áratugum.
22.05 Þrumufleygur og Lóttfeti. (Thund-
erbolt and Lightfoot). Bandarísk bíó-
mynd frá árinu 1974. Leikstjóri: Mich-
ael Cimino. Aðalhlutverk: Clint East-
wood, Jeff Bridges og George Kenne-
dy.
Harðsoðinn bankaræningi sleppur úr
fangelsi. Hann kynnist bílaþjófi nokkr-
um við sérkennilegar aðstæður. Þeir
félagar hyggjast endurheimta þýfi
bankaræningjans en ýmis Ijón verða á
vegi þeirra.
Þýðandi Óskar Ingimarsson.
23.55 Fréttir í dagskrárlok.
Laugardagur
20. júlí 1985
1$30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felix-
# son.
J?Í9J5 Kalli og sælgætisgerðin.
1#0. Fréttaágrip á táknmáli.
i.QP Fróttir og veður.
Augiýsingar og dagskrá.
j).35 Allt í hers höndum. (Allo, Allo!)
Annar þáttur. Breskur gaman-
myndaflokkur í átta þáttum.
21.00 Ævintýralandið. (Never Never
Land). Bresk sjónvarpsmynd frá 1984.
Leikstjóri: Paul Arnett. Aðalhlutverk:
Petula Clark, Cathleen Nesbitt, Anne
Seymour, Evelyn Laye og Roland Cul-
j* ver.
Átta ára stúlka er send í fóstur til
frænku sinnar vegna skilnaðar for-
eldra sinna. Þar kynnist hún litlum
frænda sínum og tekst með þeim góð
vinátta.
Þýðandi Ragna Ragnars.
Flótti Logans. (Logan's Run). Banda-
rísk bíómynd frá árinu 1976. Leikstjóri:
Michael Anderson. Aðalhlutverk:
Michael York, Richard Jordan, Jenny
Agutter, Farrah Fawcett-Majors og
Peter Ustinov.
Myndin gerist á 23. öld í samfélagi þar
sem mönnum er meinað að lifa lengur
en til þrítugs. Logan og Francis eru
lögreglumenn sem eiga að sjá til þess
að lögum þessum sé framfylgt.
Þýðandi Björn Baldursson.
00.25 Dagskrárlok.
y
22.30
Sunnudagur
21. júlí 1985
18.00 Sunnudagshugvekja. Séra Geir
Waage, Reykholti, flytur.
18.10 Halastjarnan. Bandarísk teikni-
Jrhynd, byggð á sögu eftir Jules Verne.
£ Þýðandi Eva Hallvarðsdóttir.
18,50 Hló.
19-50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fróttir og veður.
120.25 Auglýsingar og veður.
20.40 Sjónvarp næstu viku.
20.55 Samtímaskáldkonur. Fyrsti þátt-
ur: Svava Jakobsdóttir. Sjónvarps-
stöðvarnar á Norðurlöndum (Nordvis-
ion) hafa í samvinnu gert þáttaröðina
Samtímaskáldkonur og senda út
nú í vor og sumar. Gerir hver stöð tvo
þætti, annan um skáldkonu í heima-
• landinu og hinn um skáldkonu utan
Norðurlanda. Þættirnir eru því 10 tals-
ins. Myndaflokkurinn hefst á því, að
sýndur verður fyrri þáttur íslenska
Sjónvarpsins, sem er um Svövu
Jakobsdóttur, og lýkur í september-
lok með þeim síðari, en hann er um
írsku skáldkonuna Iris Murdoch og
j/tir tekinn í Bretlandi. Hver þáttur er
/um 40 mínútur að lengd.
Umsjónarmaður viö gerð íslensku
þáttanna var Steinunn Sigurðardóttir,
en upptöku stjórnaði Elín Þóra Frið-
finnsdóttir.
21.40 Demantstorg. (La Plaza del Diam-
ante). Annar þáttur. Spánskur fram-
haldsmyndaþáttur í fjórum þáttum,
gerður eftir samnefndri skáldsögu eft-
ir Merce Rodoreda.
22.35 Delta Rhythm Boys. Tónleikar
kvartettsins í kirkju í Helsinki.
23.25 Dagskrárlok.
0
Fimmtudagur 18. júlí
12.20 Fréttir.
14.00 ,,Úti í heimi", endurminningar dr.
Jóns Stefánssonar.
14.30 Miðdegistónleikar.
15.15 Af Austurlandi.
16.00 Fréttir.
16.20 Á frívaktinni.
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 Barnaútvarpið.
18.00 Tónleikar.
19.00 Kvöldfréttir. Daglegt mál.
20.00 Leikrit: ,,Gamlir menn á strönd"
eftir Jörg-Michael Koerbl.
20.50 Blásarakvintett eftir Carl Nielsen.
21.15 Langt gengið.
21.40 „Myndir á sýningu", tónverk eftir
Modest Mussorgský.
22.15 Fréttir.
22.35 Brot.
23.00 Kvöldstund í dúr og moll.
Föstudagur 19. júlí
07.00 Fréttir. Bæn. Morgunútvarpið. 07.20
Lfiikfimi.
07.55 Daglegt mál.
08.00 Fréttir. Morgunorð.
09.00 Fréttir.
09.05 Morgunstund barnanna:
,,ömmustelpa" eftir Ármann Kr.
Einarsson.
09.20 Leikfimi.
Val Benedikts Halldórssonar,
15 ára pilts úr Garöabæ
Maður hlustar náttúrlega á Rás 2. Ég kveiki alltaf á útvarpinu eftir
vinnu — og reyndar er tækið iðulega opið i vinnunni; einhver hefur tæki
með sér.
Rás 1? Eiginlega hlusta ég aldrei á gömlu rásina. Nema þá Lög unga
fólksins og Óskalög sjúklinga. Þegar ég hlusta á Lög unga fólksins hef
ég oft heyrnartól á höfðinu og sit og horfi á fréttirnar í Sjónvarpinu.
Sjónvarpið horfir maður á hvert kvöld. Þar mættu vera fleiri popp-
þættir. Ég er mikið fyrir músík, held að unglingar séu það almennt. Svo
fylgist maður með fréttum og ég horfi á breskar og bandarískar
bíómyndir. En svissnesk/franskar myndir finnst mér gjörsamlega
ferlega ómögulegar. Og Dallas — já, ég horfi stundum á það, sérstaklega /
ef J.R. er nógu mikill prakkari. Ég ætla svo að horfa á nýja '
framhaldsþáttinn sem byrjar á laugardaginn. Mér finnst annars að það
mætti vera meira um íslenskt efni í Sjónvarpinu.
10.00 Fréttir.
10.45 ,,Það er svo margt að minnast á".
11.15 Morguntónleikar.
12.20 Fréttir.
14.00 ,,Úti í heimi", endurminningar dr.
Jóns Stefánssonar.
14.30 Miðdegistónleikar.
15.15 Létt lög.
16.00 Frétjir.
16.20 4;öautjándu stundu.
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 Öarnaútvarpið.
17.35 Frá A til B. Létt spjall um umferðar-
f mál.
18É5 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfróttir. Daglegt mál.
19.55 Lög unga fólksins. Þóra Björk
Thoroddsen kynnir.
20.35 Kvöidvaka.
21.25 Frá tónskáldum.
22.00 Hestar.
22.15 Fréttir.
22.35 Úr blöndukútnum. — Sverrir Páll
Erlendsson. RÚVAK.
23.15 Frá tónleikum Evrópubandalags
útvarpsstöðva 1985.
00.50 Fréttir.
Nætprútvarp frá Rás 2 til kl. 03.00.
Laugardagur 20. júlí
0£00 Fréttir. Bæn. Tónleikar.
Qj7.55 Daglegt mál.
08.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð.
09.00 Fréttir.
09.30 óskalög sjúklinga.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
11.00 Drög að dagbók vikunnar. Um-
sjón: Páll Heiðar Jónsson.
12.20 Fróttir.
14.00 Inn og út um gluggann.
14.20 Listagrip.
15.20 ,,Fagurt galaði fuglinn sá".
16.00 Fréttir.
16.20 Síðdegistónleikar.
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 Helgarútvarp barnanna. Stjórn-
andi: Vernharður Linnet.
17.50 Síðdegis í garðinum með Hafsteini
Hafliðasyni.
19.00 Kvöldfréttir.
19.35 Sumarástir.
20.00 Harmonikuþáttur.
20.30 Útilegumenn.
21.00 Kvöldtónleikar.
21.40 Útvarpssagan: „Leigjandinn"
eftir Svövu Jakobsdóttur.
22.15 Fréttir.
22.35 Náttfari.
23.35 Eldri dansarnir.
24.00 Miðnæturtónleikar. Umsjón: Jón
örn Marinósson.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá Rás 2 til kl. 03.00.
Fimmtudagur 18. júlí
-21.00 Vinsældalisti hiustenda
R£sar 2.
ífí.00#.00 Gestagangur.
22.0#23.00 Rökkurtónar.
23.jfQ-00.00 Kvöldsýn.
Föstudagur 19. júlí
10.00-12.00 Morgunþáttur.
“ -4.00-16.00 Pósthólfið.
16.00-18.00 Léttir sprettir.
Þriggja mínútna fréttir sagðar klukkan:
11.00, 15.00, 16.00 og 17.00.
2,0.00-21.00 Lög og lausnir.
21.00-22.00 Bergmál.
22.00-23.00 Á svörtu nótunum.
23IÍO-03.00 Næturvaktin.
Laugardagur 20. júlí
0.00-12.00 Morgunþáttur.
4.00-16.00 Við rásmarkið.
16.00-17.00 Listapopp.
17.00-18.00 Hringborðið.
20.00-21.00 Línur.
21.00-22.00 Stund milli stríða.
22.00-23.00 Bárujárn.
23.00-00.00 Svifflugur.
00.00-03.00 Næturvaktin.
Sunnudagur 21. júlí
13.30-15.00 Krydd í tilveruna.
ip.00-16.00 Dæmalaus veröld.
0.00-18.00 Vinsældalisti hlustenda
Rásar 2.
ÖTVARP
eftir Magdalenu Schram
• •
„Oll þessi þjónusta“
SJÓNVARP
eftir Halldór Halldórsson
Djarft en vel heppnaö
„Útvarpið, Rás 1, sendir út í 16-17 klst. á
dag; Rás 2, sem enn er í uppbyggingu, út-
varpar í 6 klst. daglega og sjónvarpað er að
jafnaði 5 klst. á dag, sex daga vikunnar, ár-
ið um kring. Fyrsta landshlutaútvarpið tók
tii starfa á Akureyri 1. marz s.l. Afnotagjald
fyrir alla þessa þjónustu var tæpar 15 kr.
á dag fyrri hluta yfirstandandi árs. Til sam-
anburðar má geta þess að dagblað í lausa-
sölu kostar tvöfalda þessa upphæð." Svo
sagði í bréfi, sem Ríkisútvarpið sendi lands-
mönnum með vinsemd og virðingu undir
helgina. Og það er líklega það minnsta sem
hver maður getur gert til að standa við
bakið á útvarpinu sínu; að tilkynna afnotin
og borga gjöldin skilvíslega. En það var
kaldhæðnislegt að loknum lestrinum um
„alla þessa þjónustu" að heyra tilkynning-
una í útvarpinu þess efnis að Rás 2 myndi
detta út vegna skorts á tæknimönnum á
sunnudag. Af sömu sökum féll „fimmtu-
dagsumræðan" niður, sem að þessu sinni
átti að vera um fíkniefnamál. I staðinn voru
spilaðar plötur.
Laun starfsmanna Útvarps og Sjónvarps
greiðast úr ríkissjóði og eru háð samning-
um. Þó svo að Ríkisútvarpið hafi sjálfstæð-
an fjárhag að einhverju leyti og hlustendur
geti lappað upp á hann með því að standa
vel í skilum, eru kjör starfsfólksins þar
komin undir launastefnu ríkisstjórnarinnar
hverju sinni. Rétt eins og kjör kennara og
hjúkrunarfræðinga, svo tekið sé nærtækt
dæmi. Rúmin standa tóm á spítölum,
tæknideildir Ríkisútvarpsins eru að tæm-
ast líka. Tæknimennirnir, sem ekki voru til
staðar á Rás 2 um helgina, munu hafa um
20 þúsund krónur í grunnlaun. Til þess að
endar nái saman fara yfirvinnustundirnar
í allt að 120, jafnvel 190 á mánuði. Fyrir fólk
sem vill vera heima hjá sér, þótt ekki sé
nema öðru hvoru, jafnvel komast í sumar-
frí einu sinni á árinu, er þetta langur vinnu-
tími, sem ætti raunar að vera útilokað að
krefja nokkurn um. Svo ekki skal hér sak-
ast við vinnuþrælana, heldur þrælahald-
arana. í rauninni er það undarlegt að Ríkis-
útvarpið skuli enn standa upprétt! Á með-
an það kiknar í liðunum, þyrpist reynda
starfsfólkið inn á nýju og „frjálsu" fram-
tökin, hverra frelsi felst líklega einkum í því
að vera aðeins óbeint háð launastefnunni í
landinu.
Á sunnudagskvöld sýndi Sjónvarpið síð-
ari hluta þáttar, sem bar yfirskriftina Saga
og samtíð í umsjón Harðar Erlingssonar
félagsfræðings. í þessum tveimur þáttum
,,renndi“ Hörður sér í gegnum mikið efni á
stuttum tíma og gerði það vel. Maðurinn o-
g híbýli hans frá landnámi til vorra daga er
efni í nokkrar bækur og því nokkuð djarft
uppátæki að ætla sér að afgreiða málið á
svo skömmum tíma. Tæknilega þóttu mér
þættirnir fremur flatir og myndmöguleikar
ekki nýttir til fulls þannig, að áhorfandinn
fengi sterkari tilfinningu fyrir efninu. En
mér skilst, að mannfæð hjá Sjónvarpinu
kunni að vera skýringin á því, að einhverju
leyti.
Á undanförnum árum hefur áhugi fólks
vaxið gífurlega á varðveizlu gamalla húsa.
Þessi varðveizluhugsun hefur, svo merki-
lega, sem það kann að hljóma, einskorðazt
nær eingöngu við dönsk timburhús með
bárujárni eða hömruðu járni, sem ein-
kenna gömlu bæjarhverfin í Reykjavík, Ak-
ureyri, Seyðisfirði og ísafirði, svo clæmi séu
tekin. Áhuginn hefur einskorðast við hús í
þéttbýli, sem eru íbúðarhæf fyrir bæjar- og
borgarbörn.
Með þáttum sínum hefur Hörður Erlings-
son vakið athygli á öðrum húsum, sem
ekki mega týnast og gleymast. Bóndinn að
Hofi í Öræfasveit var þess raunar meðvit-
aður, að rétt væri að varðveita eitthvað af
þessum gömlu húsum, „þau sem líta skást
út“, eins og hann orðaði það. Þannig töluðu
„háhýsamenn" í Reykjavík til skamms
tíma, sem vildu eiga sýnishorn af nokkrum
húsum en rífa restina. í sveitum landsins
horfir þetta öðru vísi við. Þar getur verið
mest ástæða til að varðveita einmitt hús-
kofana, sem hallast mest. Hörður Ágústs-
son fornhúsafræðingur (nýtt fræðingsheiti
í mínum eyrum) gerði vel grein fyrir ástæð-
um þessa í þáttunum tveimur. Hins vegar
fannst mér hann ganga einum of langt,
þegar hann bar saman og setti nánast
samasemmerki á milli Bókmenntaarfsins
og Húsagerðarlistarinnar.
f bókmenntaarfinum væri varðveittur
hugarheimur hins germanska menningar-
svæðis, og sama væri að segja um húsa-
gerðarlistina, þar sem sérstaða íslendinga
væri jafnvel enn meiri. En látum það liggja
á milli hiuta.
Þótt hugsunin með því að hverfa úr sveit-
inni á mölina og tengja þannig byggingar-
list til sveita og í þéttbýli saman sé rökræn,
þá þótti mér stökkið svolítið bratt í seinni
þættinum enda var tiltölulega lítið að
græða á samtali umsjónarmanns og Guð-
rúnar Jónsdóttur arkitekts um einkenni
húsbygginga í Reykjavík. En ef ég hefði
verið spurður spurningarinnar um það
hvað sagt yrði á 25. öldinni um byggingar-
listina t.d. í Reykjavík þessi árin, þá hefði ég
sagt, að hún fengi einkunnarorðin: villuráf-
andi kaos.
Ég vil að lokum hvetja Sjónvarpið til þess
að hafa fleiri þætti af þessum toga. Hins
vegar set ég spurningarmerki við útsend-
ingartímann. Ég leyfi mér að efast um, að
sjónvarpsstöð í samkeppni (sem er væntan-
leg) geti leyft sér að setja fræðsluþátt á
bezta útsendingartíma kvöldsins á bezta
útsendingarkvöldinu. Sjónvarpið ætti að
fara að laga sig að væntanlegri samkeppni
strax.
22 HELGARPÓSTURINN