Helgarpósturinn - 18.07.1985, Side 23
■ yrir nokkrum dögum var birt
mynd af nokkrum frumkvöðlum
flugs íslendinga til Lúxemborgar
fyrir 30 árum. Þetta voru merk
tímamót og merkir menn, sem að
stóðu. Hins vegar vantaði sárlega
einn mann á þessa mynd, en það
var Alfreð Elíasson, sjálfur for-
ystusauður Loftleiða og „landvinn-
inga“ þessara stórhuga frumherja ís-
lensks millilandaflugs. Því var skot-
ið að okkur hér á HP, að Flugleiðum
hefði láðst að bjóða Alfreð. Hann er
að vísu bundinn við hjólastól, en
ekki hefði þá verið óhæfilegt að
bjóða Kristjönu Millu Thor-
steinsson, eiginkonu Alfreðs og
stjórnarmanni í Flugleiðum, ef
Alfreð hefði ekki treyst sér í flug-
ferð. Sumir segja, að ástæða þess að
Alfreð var ekki boðið sé sú, að fyrir
síðustu jól kom út bókin Alfreðs
saga Elíassonar og Loftleiða. í þeirri
bók var skotið í ýmsar áttir...
| slendingar eru gífurlegir kross-
gátumenn, ef mið er tekið af blöð-
um, sem gefin eru út hérlendis. Öll
dagblöðin, HP og fleiri eru með
krossgátur í hverri viku, landslýð til
dægrastyttingar. Hins vegar hefur
HP komist á snoðir um þá merki-
legu félagslegu staðreynd, að ein-
hvers staðar í kringum 80% af kross-
gátuleysendum séu konur. Fyrir því
höfum við orð Ólafs Pálssonar út-
gefanda ritsins Heimiliskross-
gátur. Til þess að örva söluna
ákvað Ólafur að efna til keppni og
draga úr réttum krossgátuúrlausn-
um 25. júlí næstkomandi og sigur-
vegarinn mun hljóta sæmdarheitið
„Krossgátudrottning ársins
1985“. Nú er hins vegar alls óvíst
hvort sigurvegarinn verður kona,
en útgefandinn ætlar að standa við
sæmdarheitið, þótt það verði Jón
Jónsson, sem vinnur. Höfundur að
krossgátunum er Hjörtur Gunn-
arsson iðnskólakennari, bróðir
Geirs Gunnarssonar alþingis-
manns. . .
o
kkur er það ánægja að
skýra frá því, að á stjórnarfundi í
Flugleiðum þann 11. júní s.l. var Sig-
urði Heigasyni (yngri) veitt pró-
kúruumboð og getur hann nú skrif-
að út ávísanir í nafni félagsins
o.s.frv....
A
■^■Auglysingar a svonefndum
ACT-skóm hafa vakið töluverða at-
hygli. S.l. haust auglýstu Stein-
grímur Sigfússon alþingismaður
og Sverrir Hermannsson iðnað-
arráðherra ákveðna tegund af
skóm, og hafa þeir síðan verið
nefndir ráðherraskórnir. En nýjasta
auglýsingin á ACT-skónum hefur
eitthvað farið fyrir brjóstið á jafn-
réttiskonum. ACT-lakkskór liggja
ofan á nöktum konulíkama í „traðk-
stöðu“, eins og Þjóðviljinn kallar
það, og hefur auglýsingin verið
kærð fyrir jafnréttisráði. Til að full-
nægja öllu jafnrétti mun ætlunin að
birta auglýsingu með nöktum karl-
manni með ACT- skó ofan á sér. Þá
er staðan eitt, eitt...
jj^Sinhvern tíma í vetur sem leið
var Jónatan Þórmundsson pró-
fessor í lögum að kenna nemendum
sínum refsirétt og var í þessum tíma
fjallað sérstaklega um menn, sem
væru að fikta við kindur og ræddi
Jónatan lagabókstafi er vörðuðu
„anímalisma“, en spyr síðan beint
út: Undir hvaða grein heyrir svo
þetta? Og ekki stóð á svarinu utan
úr sal: „Er þetta ekki fjárdráttur?...
B^nn magnast sígarettustríðið
mikla. Nú hefur það tekið nýja
stefnu með því að ritstjóri tímarits-
ins Samúels, Ólafur Hauksson,
hefur verið kærður til ríkissaksókn-
ara fyrir að halda því fram í blaði
sínu að notendum Royale-sígarettna
sé hættara við astma en öðrum sem
reykja aðrar tegundir. í Samúel var
þetta haft eftir ónafngreindri stúlku
og ónafngreindum lækni. HP hefur
fregnað, að hinir frönsku framleið-
endur Royale-sígarettnanna hafi
orðið ævir af reiði vegna þessara
orða, sent skeyti í snatri til Islands,
þar sem Ágúst Kristmanns, stjórn-
arformaður Snyrtivara hf„ hafi
fengið fyrirmæli um að gera viðeig-
andi ráðstafanir þar sem hér væri
um hreinan róg að ræða. Framleið-
endurnir beindu því til innflytjand-
ans, að hann efndi strax til blaða-
mannafundar, leitaði réttar síns eftir
lagaleiðum og „gerði hvað sem til
þyrfti til þess að þessi ummæli féllu
dauð og ómerk“. Framleiðendurinr
eru reyndar franska ríkið og á sinn
hátt má segja, að það sé sárabót fyr-
ir Samúel að fá á sig kæru frá ekki
minni körlum!...
Sl_
ist vera komið í algjöra sjálfheldu.
Eins og lesendur HP hafa séð, snýst
málið um það, hvort
Reykjavíkurborg eigi að selja ríkinu
Hafnarbúðir og Landakot yfirtaki
starfsemina þar á bæ. Við höfum
áður sagt að tveir sjálfstæðismenn í
borgarstjórn, þeir Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson og Páll Gísiason
læknir, séu báðir alfarið á móti slíkri
sölu og hafi reyndar bókað afstöðu
sína á fundi með starfsfólki
Hafnarbúða. Davíð Oddsson er
kominn í mikinn vanda út af málinu,
því hann vill keyra málið í gegn á
sem skemmstum tíma og vonast til
að lyktir náist í júlímánuði. Ljóst er
orðið að ef borgarráð samþykkir
söluna, fer málið áfram til
borgarstjórnar og þar klofnar
íhaldið. Þar sem andstaðan stendur
sameinuð með stuðningi Vilhálms
og Páls, verður málið fellt. Hins
vegar mun oddamaðurinn vera
Kristján Benediktsson,
Framsókn, sem enn mun vera að
skoða hug sinn í málinu. I lokin má
segja frá því að þessa dagana er Páll
Gíslason læknir í sumarleyfi
erlendis, og mun andstaða
borgarmeirihlutans biðja þess í
hljóði að Davíð afgreiði ekki málið á
meðan. ..
l^-mur róstusamt mun vera í
menntamálaráðuneytinu þessa dag-
ana. Ástæðan er sú, að Ragnhildur
Helgadóttir menntamálaráðherra
hefur, eins og alþjóð er kunnugt, lof-
að stuðningi við Tjarnarskólann, og
reyndar Davíð Oddsson borgar-
stjóri einnig. Nú, þegar komið er að
afgreiðslu beinna fjárstyrkja og fyr-
irgreiðslna til Tjarnarskólans, vita
embættismennirnir í ráðuneytinu
ekki sitt rjúkandi ráð. Það liggur
nefnilega engin formleg samþykkt
fyrir, né heldur er þessa fjárveitingu
að finna í fjárlögum. Þar af leiðandi
hafa embættismennirnir enga
heimild né samþykktir að fara eftir
við útreikning og afgreiðslu fjárins.
Eftir stendur aðeins munnlegt lof-
orð Ragnhildar. Mun ráðherra og
hennar lið vera á miklum hlaupum
þessa dagana til að finna einhverja
lausn á málinu.. .
Samtök
aðstandenda
yímuefnasjúkra
Pósthólf
300 Akranesi
Gíró 63890-0
SAVES
Stoöiuð 9.5.’85
Áheita óskað
75% renna tíl annarra tíknarmála
FALCON CREST
Frábærir framhaldsmyndaþættir
2 nýir þættir koma á hverjum
fimmtudegi
Fást á öllum helstu myndbandaleigum landsins
Dreifing: MYNDBÖND HF.
Skeifunni 8. Símar 686545 — 687310.
RENNDU VIÐ EÐA HAFÐU SAMBAND
BYGGINGAVÖRUDEILD HRINGBRAUT 120 sími 28600 STÓRHÖFÐA sími 671100
BROTSTEINN Kr. 1.066 m2
J
___ SEXKANTA HELLUR kr. 448 m2
HTHl BYGGIMCflVORURl
LÁSSTEINN
22x18x34 kr. 125 stk.
KANTSTEINN
50x20x5 kr. 65 stk.
HELLUR
40x40 kr. 412 m2
20x40 kr. 437 m2
20x20 kr. 462 m2
HELGARPÓSTURINN 23