Helgarpósturinn - 18.07.1985, Qupperneq 24
kð undanförnu hafa sprottið
upp á síðum Lögbirtings alls kyns
fyrirtæki, sem virðast ætla að leggja
út á útvarps-, myndbanda- og sjón-
varpsmarkaðinn, fyrir svo utan öll
litlu kynningarfyrirtækin. í nýleg-
um Lögbirtingi rákumst við á nýtt
fyrirtæki, Frétta- og fræðsluþjón-
ustuna, sem hefur að tilgangi: fjöl-
miðlun, myndbandagerð og út-
gáfustarfsemi. Hér er á ferðinni
einkafyrirtæki Rafns nokkurs
Jónssonar flugmanns, sem áður
var fréttamaður á Útvarpinu og síð-
ar Sjónvarpinu. . .
Þ
essa dagana er innheimtu-
deild Ríkisútvarpsins að senda út til-
boð, þar sem fólki er boðið að gefa
upp óskrásett viðtæki og um leið
lofað að felld verði niður afnota-
gjöld, ef fólk taki þessu boði, og ein-
ungis verði krafist gjalds fyrir seinni
hluta árs. En þetta mun víst eitthvað
ganga á skjön við lög um Ríkisút-
varpið, þar sem gert er ráð fyrir
þungum viðurlögum vegna
óskráðra tækja og lagaskylda er um
upptöku þeirra. Hér virðist vera
komið athugunarefni fyrir Markús
Örn útvarpsstjóra, Theódór
Georgsson innheimtustjóra, sem
hlýtur að eiga frumkvæðið að
þessu, eða þá Eirík Tómasson,
hdl., sem gefur Útvarpinu lagaráð
gegn launum...
U
tvarpshópur BSRB mun
vera ævareiður þessa dagana. Eins
og við höfum áður skýrt frá í HP, er
undirbúningur að útvarpi launþega-
samtakanna, með BSRB og ASI í
fararbroddi, í fullum gangi. Fyrsti
fundur launþegahreyfinganna
tveggja var haldinn fyrir tveimur
vikum og voru málin reifuð vítt og
breitt. Meðal annars lagði starfshóp-
ur BSRB-manna fram ítarlegar áætl-
anir, hugmyndir og skipulagsdrætti
að hinni nýju útvarpsstöð. Einn af
fulltrúum ASÍ-hópsins sem hlustaði
með athygli á hugmyndir BSRB-
manna var Pröstur Ólafsson,
framkvæmdastjóri Dagsbrúnar.
Sama kvöld hrukku hins vegar
fundarmenn illilega við, og þó sér-
staklega BSRB-mennirnir sem
höfðu lagt hartnær árs undirbúning
í fyrirhugaða útvarpsstöð. í kvöld-
fréttum Utvarpsins hafði nefnilega
Ólafur E. Friðriksson ítarlegt við-
tal við Þröst Ólafsson, þar sem hann
skýrði frá hugmyndum sínum og fé-
24 HELGARPÓSTURINN
laga um útvarp launþegahreyfing-
arinnar. Mun BSRB forystan hafa
nær sturlast af reiði, og hafa síma-
línurnar verið logandi undanfarnar
tvær vikur. Eru uppi háværar raddir
í BSRB um að slíta samstarfinu við
ASÍ í útvarpsstöðvarmálinu og jafn-
vel kröfur á lofti um að Þresti Ólafs-
syni verði vikið úr sameiginlegri út-
varpsnefnd launþegahreyfingar-
innar. Enn hefur ekki verið haldinn
fundur eftir uppþotið, en menn bíða
spenntir eftir framhaldinu...
Ijá Bandalagi jafnaðar-
manna er fundað allnokkuð þessa
dagana og vikurnar og rýnt í grund-
vallarmálin. í blöðum hefur verið
talað um ágreining og/eða klofning
í BJ, en staðreyndin mun hins vegar
vera sú, að hin svokallaði „andófs-
hópur“ setur sig einkum upp á móti
málflutningi eins (eða tveggja) í
flokknum. Hér er átt við Kristófer
Mó Kristinsson, formann lands-
nefndar BJ, en ýmsir Bandalags-
menn hafa átt erfitt með að sætta
sig við greinar sem hann hefur skrif-
að í DV, einkum seinni hluta vetrar
og í vor. í þessum greinum þykir
Kristófer hafa lagt of ríka áhershi á
hugmyndir frá bernsku BJ um
stjórnsýsluna og farið í óþarfa stríð
við þingræðið. Þótt þingmennirnir
eigi inni einhverjar skammir hjá
„andófshónnum". svGkaiíaða, þá
múnu það vera veigalitlar athuga-
semdir undir sjónarhorni eilífðar-
innar. Annars mun þetta skýrast allt
saman í kvöld, fimmtudag, því þá
munu þau Guðmundur Einars-
son, Stefán Benediktsson, Kol-
brún Jónsdóttir og Kristín
Kvaran þingmenn flokksins hitta
hópinn að máli. Annars erum við
ekki frá því, að á fundinum ræði
menn og gleðjist aðallega yfir
fylgisaukningu BJ skv.
skoðanakönnun HP í dag...
V
ið heyrum stöðugt afreks-
sögur af yfirvöldum þessa lands. Sú
nýjasta er af framtakssemi stjórn-
valda varðandi fyrirgreiðslu til lax-
eldis á íslandi. Fiskeldisstöðin Laxa-
lón hefur verið rekin með miklum
sóma í áratugi. Einkum hefur stöðin
verið fræg fyrir svonefndan regn-
bogasilung, og hafa deilur staðið
um þann stofn. Menn muna eflaust
að árið iS77 fyrirskípaði veiðimála-
stjóri útrýmingu þessa stofns, þar
sem hann viðurkenndi fiskinn ekki
inn í íslenskt lífríki. Hins vegar var
stofninum ekki endanlega eytt. Nú
hefur forstöðumönnum Laxalóns
tekist að rækta upp stofninn að nýju
og hafa haft uppi áætlanir um að
flytja silung úr landi og drýgja gjald-
eyristekjur þjóðarinnar. I vor sáu
forstöðumenn Laxalóns fram á að
geta klakið út fyrirmyndarsilung úr
ca. 300 kílóum hrogna, en skorti
fjármagn til þessa. Þeir skrifuðu rík-
isstjórninni bréf, þar sem þeir bentu
m.a. á að með nauðsynlegum lán-
um tækist þeim að rækta söluvöru
sem tuttugufaldaði verð hrognanna
sem þeir höfðu þegar í höndum.
Jafnframt ítrekuðu forstöðumenn-
irnir að fyrirgreiðslan mætti ekki
berast síðar en 1. júní, ef hún ætti að
nýtast þeim. Ríkisstjórnin hunsaði
umleitan Laxalóns, og fór svo að for-
ráðamennirnir neydHMS* *■; sejja
nrogn sín úr landi. Söluverðið mun
hafa verið um hálf milljón. Hrognin
voru seld til Noregs og munu Norð-
mennirnir rækta silunginn í Norður-
Noregi í eitt ár, flytja hann síðan
flugleiðis til Bandaríkjanna og selja
þar á markaði sem bíður æstur eftir
þessum fræga silungastofni. Næsta
sumar geta því stjórnendur íslands
litið til lofts og séð norsku flugvél-
arnar fljúga yfir með íslenska sil-
unginn sem var fyrir ári 500 þúsund
króna virði sem hrogn á íslandi en
er nú orðinn norskur silungur að
söluverðmæti einn milljarður
króna. . .
HÁDEGI KOMDU íHÁDEGINU OG NJÓTTU ÞESS BESTA, ÞAÐ KOSTAR EKKI MEIRA EN HVERSDAGSLEG MÁLTÍÐ ANNARS STAÐAR. Skúli Hansen matreiöslumeistari
Hvort sem þú vilt ræða viðskipti yfir léttri máltíð eða eiga ánægjulega stund með vinnufélögum eða vinum, þá geturðu gengið að því sem vísu að á Arnarhóli sé maturinn fyrsta flokks og þjónustan ekki sfðri. Hvort sem þú velur þér tvíréttaða máltíð af matseðli dagsins fyrir 420 krónur eða dýrustu rétti af aðal-matseðli, þá veistu ávallt að við munum einungis bera þér það besta. C\ ARNARHÓLL j/L VEITINGAHÚS
Við sláum hvergl af kröfunum— Iftt-franska Ifnan á Arnarhóli — í hádeglnu. ^ —-— HverfisgötuH-IO Sími: 18833