Helgarpósturinn - 29.08.1985, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 29.08.1985, Blaðsíða 7
skiljanlegur ótti íbúa í friðsælu hverfi? Helgarpósturinn skoðar deilumólið í Laugarneshverfinu og ræðir við þc sem allt snýstum — fyrrum fanga og aðra heimilismenn í húsnæði Verndar eftir Guðmund Árna Stefónsson myndir Jim Smart Hvað er á seyði í Teigahverfinu? Er grunnt á fordómum í garð minnihlutahópa hjá okkur íslend- ingum, eða er ótti og andstaða íbúa Teigahverfis við flutning fyrrum fanga í hverfið af eðlileg- um toga spunninn? Þessar spurningar og fleiri hafa vaknað í kjölfar umræðna og blaðaskrifa, sem orðið hafa vegna þeirra áforma fangahjálparinnar Verndar að flytja skjólstæðinga sína í nýkeypt hús að Laugateigi 19. Vernd, sem undanfarin tæp fimm ár hefur rekið heimili fyrir fyrrum fanga og þá er eiga við áfengisvandamál að etja, að Rán- argötu og Skólavörðustíg, keypti fyrir skömmu hús við Laugateig- inn og hugðist flytja starfsemina ,úr fyrrgreindum tveimur húsum og færa undir sama þak í húsi nr. 19 við Laugateig. Húsakaupin eru um garð gengin. Kaupverðið var 9 milljónir. Flutningur er á döfinni. Hins vegar brugðust margir íbúar Teigahverfis hart við og mót- mæltu þessum áætlunum og sögðu það ófært að vista fyrrum fanga inni í miðju íbúðarhverfi. Gagnrýndu íbúarnir Vernd einnig fyrir að hafa ekki ráðgast við þá um þessi mál áður en gengið var frá kaupunum. Ýmislegt hefur borið á góma í þessari umræðu og málið fór fyrir borgarráð sl. þriðjudag, en það ákvað að leggja kauptilboð fyrir stjórn Verndar; kaupa húsið fyrir aðra starfsemi og gangast fyrir því, að annað húsnæði fengist fyr- ir heimili Verndar. Þessi mál eru ekki útkljáð enn- þá. Niðurstaða liggur ekki fyrir. Helgarpósturinn skoðar nokkra þætti þessa máls og þó einkanlega viðhorf þeirra manna sem helst er deilt um — heimilismanna í hús- næði Verndar. Stöðugur ótti í dreifibréfi sem nýlega var sent til íbúa í Laugarneshverfi sagði m.a.: „Það sem veldur okkur íbú- um hverfisins stórum áhyggjum er vera þessara manna hér við hús- vegginn hjá okkur. Reynslan sýnir að stór hluti þeirra ,,fellur“ aftur og aftur og þótt alltaf séu einhverj- ir sem komast á réttan kjöl er hættan mikil á að heimili þessu iylgi óþægindi — og þau af verri gerðinni — fyrir okkur íbúa Laug- arneshverfisins. Eiturlyf, innbrot, hávaði og ónaeði hvers konar.“ Og síðan segir: „í hverfinu búa margir aldnir sem nú eru gripnir miklum ótta við þessa nýju nágranna og það sem þeim fylgir. Ekki síður er óttinn mikill hjá barnafólkinu. Þótt Vernd ábyrgist að allur rekst- ur sé til fyrirmyndar og engin ástæða sé til að óttast eitt eða neitt er erfitt að kyngja slíkum fullyrð- ingum. Heimilið að Laugateigi 19 mun hafa örlagaríkar afleiðingar fyrir íbúa hverfisins og þeir munu lifa í stöðugum ótta við innbrot, áreitni og jafnvel árásir. Annað vandamál sem vert er að gefa gaum er það að íbúðir munu hér snarlækka í verði — ef einhver fæst þá til að kaupa þær. ..“ í dreifibréfi íbúa Laugarnes- hverfis segir einnig að mikil „óánægja og reiði" sé ríkjandi meðal íbúanna í hverfinu vegna þess að engar spurnir bárust til þeirra fyrr en kaupin voru um garð gengin. Þá er lýst yfir efa- semdum með það, að vænlegt sé til árangurs í hjálparstarfi af þessu tagi að hrúga 20—25 manns sam- an í íbúðarhverfi. Minni einingar gefi betri raun. Það sýni reynslan erlendis frá. Reglur heimilanna strangar Jóna Gróa Sigurðardóttir, for- maður og framkvæmdastjóri Verndar, sagði í samtali við Helg- arpóstinn, að hún vonaðist til þess að málin fengju farsæla lausn. Hún kvað stjórn Verndar enga af- stöðu hafa tekið til tilboðs borgar- ráðs, enda það nýtilkomið. Jóna Gróa sagðist hins vegar dálítið undrandi yfir öllum þessum mála- rekstri og aðstandendum Verndar, sjálfboðaliðum sem vildu reyna að hjálpa föngum, fyrrum föngum og aðstandendum þeirra, eftir því sem kostur væri, hefði einfaldlega ekki komið það til hugar, að þetta yrði jafnmikið hitamál og raun bæri nú vitni um. Af þeim sökum og þeim einum hefði málið ekki verið sérstaklega kynnt fyrir íbú- um hverfisins, enda hefði starf- ræksla heimila Verndar að Ránar- götu og Skólavörðustíg gengið eins og í sögu um margra ára skeið. Jóna Gróa Sigurðardóttir sagði ennfremur að sú áhersla sem íbú- ar hverfisins og fleiri hefðu lagt á stærð heimilisins og fjölda heimil- ismanna væri ekkert aðalatriði. „Leikmenn jafnt sem fræðimenn greinir á um það, hvaða stærð heimila er heppilegust í þessu sambandi," sagði hún. „Hins veg- ar er margt sem mælir með um 20 heimilismönnum og í því sam- bandi er rétt að minna á, að nú þegar eru starfandi í bænum tvö heimili fyrir menn sem eiga við áfengisvandamál að stríða. Þau eru rekin af líknarfélögum með styrk frá borginni. Nágrannar þar hafa ekki kvartað og þar eru heim- ilismenn 23 á hvorum stað og þyk- ir henta ágætlega." Jóna Gróa vildi taka það skýrt fram að þessi heimili Verndar væru fyrir menn sem væru að vinna sig út úr vandanum og vildu það virkilega. Reglur heimilanna væru strangar og þar fengju menn ekki að vera, ef þeir stæðu sig ekki gagnvart áfenginu og ef þeir stunduðu ekki vinnu af krafti, svo aðeins tvær reglur væru tiigreind- ar. „Vona að úr rætist" „Vernd hefur verið í húsnæðis- hraki,“ sagði Jóna Gróa Sigurðar- dóttir. „Við erum að missa þau hús sem við höfum haft fram að þessu og eftir að hafa leitað í heilt ár að hentugu húsnæði duttum við nið- ur á húseignina Laugateig 19. Stjórn Verndar var sammála um að festa kaup á því húsi og fram- undan er mikil barátta sjálfboða- liða til að endar geti náð saman fjárhagslega í því dæmi, því kostn- aður við kaupin og rekstur Vernd- ar er mikill. Við höfum hins vegar notið stuðnings víða að, frá ein- staklingum, félögum og opinber- um aðilum og þannig hefur okkur tekist að halda úti víðtæku og blómlegu starfi til hjálpar okkar skjólstæðingum. Ég vona svo sannarlega að þjóðin standi áfram með okkur í þeim efnum, þótt leiðindaágreiningur hafi komið upp vegna þessa húss við Lauga- teiginn. Ég vona af heilum hug að úr þessu rætist, þannig að allir geti staðið upp ósárir á eftir,“ sagði Jóna Gróa. Sjá næstu síðu.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.