Helgarpósturinn - 29.08.1985, Síða 20
af dagskrá og væntanlegum breytin
Það eru sveiflur innan
vegaja Siónvarpsins, þó
enn nafi pær tæplega
náð upp á yfirborðið
nema í formi handa-
banda og fundahalda
nýráðinna deildar-
stjóra með starfsmönn-
um. Þaðan af síður
hafa nýjar hugmyndir
fengið vænpi til að
svífa fram a skjái
landsmanna. En þess er
að vænta, og fyrr en
seinna. Það fer ekkert
milli mála, að Sjón-
varpið ætlar að beita
sér til fullnustu í þeirri
hörðu samkeppni sem
breyttir tímar aoða. Og
hvað hefur það í för
með sér? Vio leitumst
við að svara spurning-
unni í þvi sem á eftir
fer.
Hvað skipulag snertir, aðallega
þetta: Lista- og skemmtideild og
Frétta- og frœdsludeild heyra nú
sögunni til. Emil Björnsson lætur af
störfum sem deildarstjóri þeirrar
síðarnefndu. Hinrik Bjarnason
deildarstjóri þeirrar fyrrnefndu,
dregur pappíra sína fram úr hilium,
og flytur sig í annan enda stofnunar-
innar, um leið og hann tekur við
embætti deildarstjóra Innkaupa- og
markaösdeildar um mánaðamótin.
Með honum flytja sig um set Gud-
mundur Ingi Kristjánsson aðstoðar-
20 HELGARPÓSTURINN
deildarstjóri, Laufey Guöjónsdóttir
dagskrárfulltrúi, svo og ritari.
Ur tveimur fyrstnefndu deildun-
um spretta því þrjár: Innkaupa- og
markaösdeild, Innlend framleiöslu-
deild og Fréttastofa. Ljóst er að
Ingvi Hrafn Jónsson nýráðinn frétta-
stjóri hefur ákveðnar hugmyndir
um breytingar á fréttatíma Sjón-
'varps. Upp úr áramótum má vænta
þess að handbragðs Hrafns Gunn-
laugssonar deiidarstjóra Innlendu
framleiðsludeildarinnar fari að
gæta, og með tilkomu Innkaupa- og
markaðsdeildar verður að líkindum
stigið tímamótaskref í sögu stofnun-
arinnar.
Sjónvarpið opnar
myndbandaleigu
Auk þess sem deildin hefur veg og
vanda af öflun erlends efnis til sýn-
ingar í sjónvarpi, stendur nú meðal
annars til að hleypa myndbanda-
leigu af stokkunum. Er ráðgert að
hún opni um næstu áramót. Þar
verður á boðstólum hluti þess efnis
sem Sjónvarpið sýnir, erlent sem
innlent. Ekki síst er litið á þessa
þjónustu sem æskilega við ýmsar
stofnanir í landinu, svo sem
menntastofnanir, auk þess sem ætla
má að atvinnuvegirnir, áhafnir
skipa og einstaklingar njóti góðs af
nýbreytninni.
En áður en lengra er haldið skul-
um við líta á helstu liði innlendrar
dagskrár Sjónvarpsins fram að ára-
mótum, sem nú eru ljósar, og gætu
þá hugsanlega orðið til á mynd-
böndum þegar þar að kemur. Vetr-
ardagskrá hefst um miðjan október.
Kennir þar ýmissa grasa og nokk-
urra breytinga, en um áramót slepp-
ir Hinrik Bjarnason að fullu hendi af
gerð innlendrar dagskrár.
Hæst ber framhaldsþætti Eddu
Björgvinsdóttur og Helgu Thorberg.
„Fastir liöir" heita þessir leiknu,
hálftíma skemmtiþættir, og verða á
dagskrá sex laugardaga í röð frá 19.
október. Bryddað verður upp á
þeirri nýjung að endursýna þættina
næsta sunnudag á eftir hverri sýn-
ingu, og það sama gildir raunar um
innlent efni; fljótlega eftir frumsýn-
ingu má gera ráð fyrir endursýn-
ingu þar sem menn hafa tæplega
tíma til að fylgjast með öllu sem ger-
ist á skjánum, Gísli Rúnar Jónsson
leikstýrir „Föstum liðum", en með
aðalhlutverk fara Jóhann Siguröar-
son, Ragnheiöur Steinþórsdóttir,
Júlíus Brjánsson, Sigrún Edda
Björnsdóttir, Arnar Jónsson og
Hrönn Steingrímsdóttir.
„Nostalgia" og
„Bleikar slaufur"
Að öðru sérlega bitastæðu má
nefna minningardagskrá um Kjar-
val, sem Þrándur Thoroddsen og
Hrafnhildur Schram hafa unnið að.
Myndin verður í svipuðum dúr og
þær um Ásgrím Jónsson og Nínu
Tryggvadóttur. Hún verður væntan-
lega sýnd að loknum hátíðarhöld-
um í tilefni afmælis Kjarvals, í kring-
um 20. október. Þá hefur Sjónvarpið
keypt mynd af íslenskum framleið-
endum um Tryggva Ólafsson mynd-
listarmann í Kaupmannahöfn. Bald-
ur Hrafnkell Jónsson kvikmynda-
tökumaður gerði myndina.
í sumar hafði Sveinbjörn I. Bald-
vinsson umsjón með gerð þáttar,
sem heitir „Tarkovský á íslandi", og
spjallaði m.a. við leikstjórann um
lífshlaup hans og feril. Er áætlað að
sýna þessa heimildarmynd á mánu-
dagskvöldi, og í kjölfarið fylgir svo
hvorki meira né minna en „Nostal-
gia" nýja mynd leikstjórans. Og
fyrst við erum að tala um Svein-
björn I. Baldvinsson, má geta þess
að Glugginn verður sennilega á dag-
skrá fram að áramótum, hins vegar
er óvíst hverjir verða umsjónar-
menn þáttarins.
I byrjun nóvember er vonast til að
unnt verði að frumflytja sinfóníu-
verk eftir Messíönu Þóröardóttur,
sem sérstaklega var samið fyrir
Sjónvarpið í tilefni tónlistarárs Evr-
ópu 1985. Af öðru tónlistarefni má
nefna síðasta þáttinn í þáttaröð ís-
lensku hljómsveitarinnar; á dagskrá
innan skamms nú á haustmánuð-
um.
Jólaleikrit Sjónvarpsins að þessu
sinni verður „Bleikar slaufur" eftir
Steinunni Siguröardóttur, leikstýrt
af Siguröi Pálssyni. Með aðalhlut-
verk fara Guölaug María Bjarna-
dóttir, Harald G. Haralds, Eggert
Þorleifsson og Edda Björgvinsdóttir.
5 íslenskar bíómyndir
og meira barnaefni
Sannarlega hefur verið gert átak í
samningsgerð um kaup á íslensk-
um, leiknum kvikmyndum. Fimm
slíkar verða sýndar á skjánum, sú
fyrsta, „Land og synir" um jólin.
Hinar myndirnar eru „Hvítir máv-
ar“ „Meö allt á hreinu" og „Nickel-
mountain" og loks „Jón Oddur og
Jón Bjarni". Gera menn sér vonir
um að Sjónvarpið verði myndarleg-
ur þátttakandi á þessu sviði í fram-
tíðinni.
Útsendingartími barnaefnis verð-
ur stórlega aukinn, og ekki ósenni-
legt að nú vænkist hagur Strympu
með tilkomu dagskrárfulltrúa sem
sinnir barnaefni í fullu starfi, Sigríö-
ar Rögnu Siguröardóttur.
„Stundin okkar" verður stytt —
sem er nú reyndar ekki í fullu sam-
ræmi við fyrri yfirlýsingu — en bíð-
um hæg; þess í stað verður barna-
og unglingaefni sýnt á hverjum
virkum dejgi á milli klukkan 19:00
og 19:50. I „Stundinni okkar", sem
verður 25—30 mínútur að lengd,
verður því eingöngu innlent efni,
m.a. léttir, leiknir framhaldsþættir
eftir Þorstein Marelsson.
Og þá erum við komin að erlend-
um framhaldsþáttum. Að loknum
þýska þættinum „Blut und Ehre“
hefjast sýningar á „Spyship" frá
BBC. Þetta er spennuþáttur og fjall-
ar um togarahvarf á norðurslóðum,
og verður á dagskrá sex sunnudags-
kvöld í röð.
Um miðjan október er vonast til
að unnt verði að sýna ítalskan fram-
haldsþátt um Verdi, ævi hans og
verk, þar sem margir af bestu
söngvurum heims koma fram.
Næstu spennuþættir á þriðjudags-
kvöldum verða „The Glory Boys" og
„Shroud for a Nightingale". Fyrri
þáttaröðin í 3 hlutum en sú síðari er
5 þættir, og hafa þeir notið mikilla
vinsælda þar sem þeir hafa verið
sýndir. Samþykkt hefur verið að
sýna hóflegar spennuseríur tvisvar í
viku, annars vegar á þriðjudögum,
hins vegar á föstudögum. Frá og
með 18. október guðar því gamall
kunningi á skjáinn á föstudags-
kvöldum, „Derrick" og verður þar
15 sömu kvöld á eftir.
„Dallas" hætfir —
„Hotel" í staðinn
Þegar líður á haustið verður svo
væntanlega byrjað að sýna vinsæla,
ameríska þætti; unglingaþáttinn
„Fame" og gamanmyndaþáttinn
„Cheers".
Þá skal getið annarra þátta, sem
þegar hafa verið samþykktir í út-