Helgarpósturinn - 29.08.1985, Side 21
varpsráði, og verða því teknir til
sýningar eftir því sem henta þykir.
þar er m.a. að finna töluvert af ít-
ölsku efni, sem ef að líkum lætur
verður dreift á næsta eina og hálfa
árið; 4 þættir um Mussolini, eftir
dagbókum Cianos greifa; „Quo
Vadis?" 8 þættir eftir sögu pólska
Nóbelshöfundarins Henryk Sienkei-
wicz og rómaðir þættir um Mafíuna
á Sikiley, „La Piovra". Pá er að geta
6 þátta um síðustu daga Pompei,
sem eru samvinnuverk Itala og Am-
eríkana, og Sjónvarpið hefur tryggt
sér sýningarrétt hjá IBM á „Cristo-
foro Colombo“ sem fjallar eins og
nafnið bendir til, um Kólumbus, sigl-
ingar hans og landafundi. „A Planet
for the Taking" er 8 þátta mynda-
flokkur frá CBS, og fjallar um ýmis-
legt á plánetu okkar með nýstárleg-
um hætti, og loks eru tveir barna-
þættir á dagskránni.
Af öðrum þáttum sem samþykktir
hafa verið í útvarpsráði má nefna
„Return to Ederí\ sem er ástralskur,
breska sakamálaflokkinn „Couer
her Face" „History of Television“
sem er heimildarflokkur frá sama
landi, og svo er einnig um „Sea of
Faith". Af sömu tegund er þýski
myndaflokkurinn „Die Deutsche in
zweite Weltkrieg" en bandaríski
framhaldsflokkurinn „The Winds of
War", er hinsvegar byggður á skáld-
sögu Herman Vok.
Hvenær þessir þættir verða á dag-
skrá er ekki hægt að segja til um
með fullri vissu hér og nú. En vel á
minnst; sýningum á „Dallas" lýkur
um áramót, og ómögulegt að spá
um framhald í þeim efnum. Hins
vegar tekur þá við nýr framhalds-
þáttur, „Hotel" sem ku ekki svipað-
ur að gerð, en er hins vegar eins og
„Dallas"; mældur í árum en ekki
þáttum. ,,Hotel“ er gerður eftir
handriti Arthur Haileys, þess sama
og skrifaði ,,Roots“.
Nýtt fólk og útboð
Við erum komin langt fram yfir
áramót í þessari upptalningu, en
nemum staðar við þau tímamörk.
Hrafn Gunnlaugsson tekur þá til
starfa, og þó hann muni þegar far-
inn að leggja línur, verður ekki haf-
ist handa í alvöru í deild innlendrar
framleiðslu fyrr en með fyrstu dög-
um nýs árs. Og við hverju má búast?
í fyrsta lagi verður starfsfólki
fjölgað. Meðal annars færast þangað
tveir dagskrárgerðarmenn, sem áð-
ur hafa starfað í Frétta- og fræðslu-
deild við gerð fræðsluefnis, sem hér
eftir tiiheyrir innlendu framleiðsl-
unni. Auk þeirra flytjast tvær
„skriftur" úr fyrrnefndu deildinni
yfir í þá síðarnefndu. Þetta táknar
því að þættir af svipuðum toga og
„Stiklur" eða „Heimsókn" heyra
undir Hrafn og deild hans.
Önnur stór breyting er ný staða
aðila, sem kemur til með að annast
f jármála- og rekstrarhlið deildarinn-
ar, auk þess sem ráðið verður í stöðu
ritara. Með þessu ætti tími deildar-
stjóra að rýmka, sem gerir honum
jafnframt kleift að sinna því sem
honum er ætlað; dagskrárgerð og
því sem að henni Iýtur.
Hrafn ætlar sér breytingar, enda
þekktur af öðru en lognmollu. Hins
vegar er tæplega raunhæft að þær
breytingar gangi í gegn á skemmri
tíma en sem nemur tveimur, þremur
árum. Til þess er áreiðanlegt að
hann leitar liðsinnis fyrrum starfs-
krafta Sjónvarps, sem hafa getið sér
orð úti á hinum „frjálsa markaði“,
enda Hrafn til þessa verið formaður
Sambands kvikmyndaframieið-
enda. Að öðrum ólöstuðum mætti
nefna Egil Edvarðsson kvikmynda-
gerðarmann og Snorri Þórisson
kvikmyndatökumann. Auk þessa er
búist við að Hrafn fari ekki troðnar
slóðir, og gefi nýju fólki með ferskar
hugmyndir möguleika á að starfa að
einstökum verkefnum.
Ljóst er að Hrafn hefur fullan hug
á miklum fjölbreytileika í dagskrá. I
þessu sambandi mun sú hugmynd
hafa skotið upp kollinum, að leigja
„stúdíó" Sjónvarpsins út; þar er all-
ur nauðsynlegur tæknibúnaður fyr-
ir hendi og starfsmenn með sér-
þekkingu.
Nýir þættir. . .
Lítum svo á einstaka dagskrárliði,
með skynsamlegum fyrirvara þó.
Hrafn hefur áhuga á að ýta úr vör
klukkustundar löngum þætti úr
daglega lífinu og menningunni, sem
yrði á dagskrá þrisvar í viku á eftir
fréttum. „Gott kvöld!" er eitt af þeim
heitum sem til greina koma á þátt-
inn. Hann yrði sendur út frá öllum
hugsanlegum stöðum, og í umsjá
einskonar ritstjórnar. Það er eitt af
markmiðum Hrafns, að leita meira
út fyrir veggi stofnunarinnar, og
nýta betur möguleika á beinni út-
sendingu.
Sjálfur hefur hann lýst yfir áhuga
á þáttum úr íslenskri menningu,
enda einn af stjórnarmeðlimum
Bandalags íslenskra listamanna. Til
greina koma heimildarmyndir um
íslenska listamenn, ekki síður
Bubba Morthens en Jón Nordal. Þá
hefur Hrafn á stefnuskrá að búa til
íslenskt Skonrokk, þátt sem ein-
göngu inniheldur innient tónlistar-
efni, og kvikmyndaþátt, þar sem
meðal annars yrðu sýnd atriði úr
þeim myndum, sem sýndar eru í
bíóhúsum borgarinnar á hverjum
tíma.
Hrafn ku hafa fullan hug á að auka
barna- og unglingaefni, og jafn-
framt hefur hann áhuga á að byggja
upp samvinnu meðal Norðurlanda-
þjóðanna um einstök verkefni. Sjálf-
ur segir hann: „Til þess að minn
draumur verði að veruleika, að búa
til góða dagskrá, þarf ég samvinnu
við gott fólk.“
Að amerískum hætti. . .
Ingvi Hrafn Jónsson tekur til
starfa sem fréttastjóri Sjónvarps 1.
nóvember, og vitað er að hann ætl-
ar sér miklar breytingar á 30 mín-
útna löngum fréttatíma, og miða
þær fyrst og fremst að því að gera
allan fréttaflutning hraðari, líflegri
og persónulegri. Fyrirmyndina sæk-
ir Ingvi Hrafn til Ameríku. Og menn
efast ekkert um það, að Ingvi Hrafn
stefnir að því, ásamt fréttamönnum
Sjónvarps, að veUa t.a.m. kollegun-
um á fréttastofu Útvarps harða sam-
keppni.
Sjálfur ætlar Ingvi Hrafn að taka
virkan þátt í flutningi fréttanna á
skjánum, ásamt ákveðnu fólki af
fréttastofunni. Og ef allt gengur upp,
tilheyrir það liðinni tíð að frétta-
menn horfi upp og niður; á blað og
í myndavél til skiptis. Með þar til
gerðum „græjum" verður þeim gert
kleift að horfa beint í myndavélina,
— til áhorfandans. Og þetta hafa
menn eflaust séð í útlöndum.
Umræðuþættir og fréttatengdir
þættir verða áfram í höndum frétta-
stofu, en eitt af stórum áhugamálum
Ingva Hrafns er að gera svokallaða
„reportage" að veruleika, þ.e. film-
aða fréttaskýringaþætti, 20 til 30
mínútur að lengd um mál ofarlega á
baugi hverju sinni. Sem viðfangs-
efni mætti til dæmis nefna átökin
milli sauðf járbænda og SÍS eða hval-
veiðistríðið. Til þess að gera vand-
aða þætti af því tagi, eru vonir
bundnar við að í framtíðinni geti
menn ætlað sér viku eða hálfan
mánuð til vinnslu þeirra.
Fái Ingvi Hrafn óskir sínar upp-
fylltar, verða tveir eða þrír menn
ráðnir til viðbótar á fréttastofu. Auk
þessa á eftir að fylla í stöður Ingólfs
Hannessonar og Boga Ágústssonar.
Þá er vitað að lngvi Hrafn vill hafa
sérstakan stjórnmálafréttamann
innan hópsins, sem jafnframt því að
vera þingfréttaritari, fylgist glöggt
með öllum pólitískum hræringum í
landinu.
Eins munu uppi hugmyndir um að
Bogi fréttamaður Ágústsson verði
meira á ferðinni í Evrópu, og leiti
sérstaklega eftir málum sem tengj-
ast okkur beint, í bland við fréttir
dagsins frá Skandinavíu. Sigrún
Stefúnsdóttir heldur innan tíðar til
Bandaríkjanna, og mun hún verða
virkur fréttamaður Sjónvarpsins
þar. Þá eru jafnframt þessu kannaðir
möguleikar á að þau tvö flytji fréttir
sínar beint í gegnum gervihnetti.
Það væri reyndar liður í því sem
menn gera sér vonir um að verði að
veruleika; beinar útsendingar það-
an sem hlutirnir eru að gerast.
Hvað sem öðru líður er ekki
reiknað með að þær breytingar sem
nú verður unnið að á fullu, birtist
sjónvarpsáhorfendum fyrr en undir
áramót. Áður mun Ingvi Hrafn
halda vestur um haf og til Englands
til þess að afla sér upplýsinga, og
væntanlega hugmynda, hjá stöðv-
um eins og CBS, ABC, ITV og BBC;
Þannig að við bíðum bara eftir því
að fréttamenn Sjónvarps álíti sig til-
búna til að senda út fréttir að amer-
ískri fyrirmynd, með pompi og
prakt, með það að leiðarljósi að
nýta sér til fulls þá tækni sem ein
sjónvarpsstöð getur boðið uppá.
HELGARPÓSTURINN 21