Helgarpósturinn - 29.08.1985, Qupperneq 22
HELGARDAGSKRÁIN
Föstudagur
30. ágúst
19.15 Á döfinni. Umsjónarmaður Kari Sig-
tryggsson.
19.25 Taktu nú eftir, Simba.
19.50 Fróttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Skonrokk.
21.05 Heldri manna líf. (Aristocrats).
Fimmti þáttur.
22.00 Maðurinn á þakinu. (Mannen pá
taget). Sænsk bíómynd frá 1976. Lög-
regluforingi er myrtur og Martin Back
tekur þátt í leitinni að moröingjanum.
Hann finnst á húsþaki þar sem hann
reynist ekki auösóttur. Myndin er ekki
viö hæfi barna. Þýöandi Jóhanna Þrá-
insdóttir.
23.50 Fróttir í dagskrárlok.
Laugardagur 31. ágúst
17.00 Íþróttir.
19.10 Hver er hræddur viö storkinn? 3.
þáttur.
19.50 Fróttaágrip á táknmáli.
20.00 Fróttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Allt í hers höndum. Lokaþáttur.
20.05 Síöasti valsinn. (The Last Waltz).
Bandarísk tónlistarmynd frá síðustu
tónleikum hljómsveitarinnar „The
• Band" ásamt Bob Dylan árið 1976.
Ýmsir kunnir hljómlistarmenn tóku
þátt í þessum kveöjutónleikum, svo
sem Eric Clapton, Ringo Starr, Neil
Diamondo.fi.
23.00 Fjölskyldubönd. (Le clan des Sicili-
ens). Frönsk bíómynd frá 1970. Leik-
stjóri: Henri Verneuil. Aðalhlutverk:
Jean Gabin, Alain Delon, Lino Vent-
ura og Irina Demick. Söguhetjan á aö
baki rán og manndráp og hans bíður
þyngsta refsing. Honum tekst að
smjúga úr greipum lögreglunnar og
tekur að undirbúa mikið skartgriparán
með sikileyskum athafnamanni. Þýð-
andi Pálmi Jóhannesson.
01.05 Dagskrárlok.
Sunnudagur 1. september
18.00 Sunnudagshugvekja.
18.10 Blóa sumarið. Fjórði þáttur.
19.10 Hló.
19.50 Fróttaágrip ó táknmáli.
20.00 Fróttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskró.
20.35 Sjónvarp næstu viku.
20.50 Á ystu nöf — Eggjataka í Bjarnar-
ey.
21.40 Hitlersæskan. (Blut und Ehre). Loka-
þáttur.
22.40 Samtímaskáldkonur. 5. Eeva-Liisa
Manner. (Nordvision — Finnska
sjónvarpið).
23.30 Dagskrárlok.
0
Fimmtudagur
29. ágúst
09.05 Morgunstund barnanna: ,,Glatt
er í Glaumbæ" eftir Guðjón
Sveinsson.
09.20 Leikfimi.
10.00 Fréttir.
1045 Málefni aldraöra.
11.00 ,,Ég man þó tíð"
11.30 Lótt tónlist.
12.20 Fróttir.
14.00 ,,Nú brosir nóttin", æviminningar
Guðmundar Einarssonar.
14.30 Miödegistónleikar.
15.15 Af Austurlandi.
16.00 Fréttir.
16.20 Á frívaktinni.
17.00 Fróttir ó ensku.
17.05 Barnaútvarpið.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfróttir. Daglegt mál.
20.00 Leikrit: ,,Þegar stormurinn gnýr"
eftir Raymond Briggs.
21.35 Gestir í útvarpssal.
22.05 Tónleikar.
22.15 Fréttir.
22.35 Draugagangur í björtu.
23.00 Kvöldstund í dúr og moll.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Föstudagur 30. ágúst
07.00 Fréttir. Morgunútvarpiö. 7.20 Leik-
fimi.
07.55 Daglegt mál.
08.00 Fréttir.
09.00 Fréttir.
09.05 Morgunstund barnanna: ,,Glatt
er í Glaumbæ" eftir Guðjón
Sveinsson.
09.20 Leikfimi.
10.00 Fréttir.
10.45 ,,Það er svo margt að minnast á"
11.15 Morguntónleikar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fróttir.
14.00 ,,Nú brosir nóttin", æviminningar
Guðmundar Einarssonar.
14.30 Miödegistónleikar.
15.15 Lótt lög.
15.40 Tónleikar.
16. CK) Fréttir.
16.20 Á sautjándu stundu.
17. Ö0 Fróttir ó ensku.
17.05 Barnaútvarpið.
17.35 Frá A til B.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfróttir. Daglegt mál.
19.55 Lög unga fólksins.
20.35 Kvöldvaka.
21.25 Fró tónskóldum.
22.00 Hestar.
22.15 Fróttir.
22.35 Úr blöndukútnum.
23.15 Frá hátíðartónleikum í Bayreuth í
maí sl.
00.50 Dagskrárlok.
Laugardagur 31. ágúst
07.00 Fréttir. Tónleikar. 7.20 Leikfimi.
07,55 Daglegt mál.
08.00 Fréttir.
09.00 Fréttir.
09.30 óskalög sjúklinga.
10.00 Fréttir. Óskalög sjúklinga, frh.
11.00 Drög að dagbók vikunnar.
12.20 Fróttir.
14.00 Inn og út um gluggann.
14.20 Listagrip.
15.20 ,,Fagurt galaði fuglinn sá"
16.00 Fréttir.
16.20 Síðdegistónleikar.
17.00 Fróttir ó ensku.
17.05 Helgarútvarp barnanna. Stjórn-
andi: Vernharður Linnet.
17.50 Sfðdegis í garðinum.
19.00 Kvöldfróttir.
19.35 Þetta er þátturinn.
20.00 Harmoníkuþáttur.
20.30 Útilegumenn.
21.00 Kvöldtónleikar.
21.40 Er ástin snfkjuplanta?
22.15 Fréttir.
22.35 Náttfari.
23.35 Eldri dansarnir.
24.00 Fréttir.
00.05 Miönæturtónleikar.
00.55 Dagskrárlok. Næturútvarp frá rás 2
til kl. 03.00.
Sunnudagur 1. september
08.00 Morgunandakt.
08.10 Fréttir.
08.35 Lótt morgunlög.
09.00 Fréttir.
09.05 Morguntónleikar.
10.00 Fréttir.
10.25 Út og suður. Friðrik Páll Jónsson.
11.00 Messa í Hálskirkju í Fnjóskadal.
Hádegistónleikar.
12.20 Fróttir.
13.30 Sagnaskáldið Þórir Bergsson.
14.30 Miödegistónleikar.
15.10 Milli fjalls og fjöru.
16.00 Fréttir.
16.20 Þættir úr sögu fslenskrar mál-
hreinsunar.
Helgi Gudmundsson sölustjóri
hjá I. Pálmason
Það sem maður hörfir á í sjónvarpinu eru fréttir, íþróttir og ef það eru
góðar bíómyndir. Kannski horfir maður á þennan tónlistarþátt á laugar-
daginn og ef Ómar Ragnarsson hefði verið með þáttinn um Bjarnarey
þá hefði ég séð hann. I rás tvö heyrir maður aldrei nema á kvöldin og
um helgar. Þeir eru ágætir þessir kvöldþættir þar og ef ég er ennþá vak-
andi á föstudagskvöldið þá hef ég opið fyrir næturvaktina. Rásmarkið
er ágætur þáttur; gaman að fá svona beinar fréttir af íþróttaleikjum. Nú
umræðuþættir á rás tvö og reyndar allstaðar ráðast alveg af því hverjir
gestirnir eru.
Svo er það gamla gufuradíóið. Þar hlustar maður á morgunútvarpið
og síðan ekkert nema fréttir í hádeginu og á kvöldin. Hef ekki opið fyrir
útvarp í vinnunni enda skii ég ekki að maður myndi leggja eyrun mikið
við. Ég skil reyndar ekki hvers fóik sem ekki nær rás tvö á að gjalda, það
virðist vera búið að skipta þessu þannig upp að á rás eitt er helst að finna
þyngri þætti bæði í tali og tónum. Og allt léttmetið á rás tvö.
17.00 Fróttir á ensku.
17.05 Sfödegistónleikar.
18.00 Bókaspjall.
18.15 Tónleikar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfróttir.
19.35 Tylftarþraut — Spurningaþáttur.
20.00 Sumarútvarp unga fólksins.
21.00 Islenskir einsöngvarar og kórar
syngja.
21.30 Útvarpssagan: „Sultur" eftir
Knut Hamsun.
22.00 ,,Ég sái Ijóði"
22.15 Fréttir.
22.35 íþróttaþáttur.
22.50 Djassþáttur.
23.35 Á sunnudagskvöldi. (24.00 Fréttir).
00.50 Dagskrárlok.
Fimmtudagur
29. ágúst
10:00-12:00 Morgunþáttur.
14:00-15:00 Dægurflugur.
15:00-16:00 Ótroðnar slóðir.
16:00-17:00 Jazzþáttur.
17:00-18:00 Gullöldin.
Þriggja mínútna fréttir sagðar klukkan:
11:00, 15:00, 16:00 og 17:00.
20:00-21:00 Vinsældalisti hlustenda
rásar 2.
21:00-22:00 Gestagangur.
22:00-23:00 Rökkurtónar.
23:00-24:00 Kvöldsýn.
Föstudagur 30. ágúst
10:00-12:00 Morgunþáttur.
14:00-16:00 Pósthólfið.
16:00-18:00 Lóttir sprettir.
Þriggja mínútna fréttir sagðar klukkan:
11:00, 15:00, 16:00 og 17:00.
20:00-21:00 Lög og lausnir.
21.00-22:00 Bögur.
22:00-23:00 Á svörtu nótunum.
23:00-03:00 Nætu rvaktin.
Rásirnar samtengdar að lokinni dag-
skrá rásar 1.
jff Laugardagur 31. ágúst
10:00-12:00 Morgunþáttur.
14:00-16:00 Viö rásmarkið.
16:00-17:00 Listapopp.
17.00-18:00 Hringboröiö.
Hlé.
20:00-21:00 Línur.
21:00-22:00 Milli stríða.
22:00-23:00 Bárujárn.
23:00-00:00 Svifflugur.
00:00-03:00 Næturvaktin.
Rásirnar samtengdar að lokinni dagskrá rás-
ar 1.
Sunnudagur 1. september
13:30-15:00 KrYdd f tilveruna.
15:00-16:00 Dæmalaus veröld.
16:00-18:00 Vinsældalisti hlustenda rás-
ar 2.
ÚTVARP^^^
• •
Ongvar messur...
eftir Bjarna Harðarson
SJÓNVARP
eftir Sigmund Erni Rúnarsson
Vinna, sjónvarp, svefn
Ég veit það náttúrlega ekki en reikna
samt með því að ég hafi ekki verið einn um
að bölva Ríkisútvarpinu á sunnudagsmorg-
uninn. Hvort sem allir hafa nú þorað að
gera það upphátt. Þann klukkutíma sem
einhver er á fótum fyrir hádegi á sunnu-
degi sendir Skúlagatan okkur gamla upp-
töku af messu úr einhverri kirkju úti á
landi. Alla sunnudaga ársins og hefur gert
langa lengi.
A lúterska kirkjan ein að hafa aðgang að Ríkisút-
varpinu?
Œ7
Nú kynnu margir að segja að það væri nú
gustuk að-leyfa svona eina messu í viku
meðan langflestir liggja hvort eð er í bæl-
inu eða dunda við sunnudagssteikina í ró-
legheitum. Kirkjan er í hugum okkar
flestra orðin einhverskonar þessháttar
grey að okkur finnst ljótt að vera að amast
við henni. Svo hlustar líka gamla fólkið
(vesalings gamla fólkið).
Hvað sem hæft er í því að gamla fólkið
hlusti á messur eða að kirkjan sé of brjóst-
umkennanleg til þess að eitthvað sé af
henni tekið þá skiptir það bara engu máli.
Ef kirkjan hefur áhuga á að koma sínum
boðskap á framfæri og forráðamenn út-
varpsstöðvar áhuga á að styðja hana í því
verður hún að gera það á sómasamlegan
hátt. Fyrir þá sem ennþá bera virðingu
fyrir messum er það nánast móðgun við
fyrirbærið að senda það hrátt og dautt í
gegnum útvarpið.
Það má vel vera að álitlegur hópur þjóð-
arinnar skynji ennþá heilagleikann sem
fylgir því að sækja messu, sjá kórinn syngja
og prestinn tóna í fullum skrúða. Víst fer
þeim fækkandi en athöfnin er óneitanlega
hátíðleg. Enda þegja líka allir kirkjugestir
og sitja kyrrir í sætum sínum.
En hver nær þessum heilagleika í gegn-
um útvarpstækið? Það vill til að stærstur
hluti landsmanna lifir í einhverskonar fjöl-
skyldu eða sambúð, þar sem helgarnar eru
ekki haldnar mjög hátíðlegar, í eðlilegum
skilningi þess orðs. Allra síst sunnudags-
morgnar. Þeir sem ná þessum hátíðleika
við viðtækið eru fyrir víst sjaldgæfir.
Hér verður ekki lagt mat á það hvort lút-
erska kirkjan eigi að hafa aðgang að út-
varpinu frekar en sú kaþólska eða bara Al-
þýðuflokkurinn. En ef hún hefur þann að-
gang er ekki nema sjálfsagt að hún lagi sig
að þeim fjölmiðli sem hún er að nota og
vandi lítið eitt til efnisins sem frá henni
kemur. Eða ætli einkastöðvarnar sætti sig
vð hráar messuupptökur úr óþekktum
kirkjum?
Vinna, sjónvarp, svefn. Og matur þess á
milli. Þetta virðist vera gangur lífsins ef
maður reynir á annað borð að átta sig á
þeim kröfum sem margir gera í rauninni til
sjónvarps. Þessar kröfur eru sumpart fárán-
legar, sumpart broslegar. Og sjálfsagt skilj-
anlegar.
Þær eru fáránlegar að því leyti hvað fóik
virðist vera eigingjarnt á dagskrána. Það
krefst þess að miðillinn a tarna sé alltaf að
þess skapi. Það vill geta reitt sig á sjónvarp-
ið. Því finnst eins og þetta tæki þarna úti í
horni megi ekki bregðast sér.
Þessar kröfur eru broslegar vegna þess
að fólk er hætt að gera ráð fyrir öðru en
það liggi flestar helgar og kvöld uppi í sóffa
og glápi. Sjónvarpið er að verða jafn snar
þáttur í lífi þess og svefn og matur. Það er
að verða eitt af garantíunum.
Ja, ætli ég horfi ekki bara á sjónvarpið!
Menn eru alltaf að láta svona út úr sér, þó
þeir séu sjálfsagt hættir að taka eftir því að
þessi fullyrðing er orðin jafn hversdagsleg
og þessi hérna í bítið á morgnana; „góðan-
daginn-hvernig-hefurðu-ða“.
Og þar sem sjónvarpsgláp er orðið eitt af
garantíum lífsins er vonlegt að menn vilja
fremur að það sé skemmtilegt en dapurt,
uppbyggilegt en niðurdrepandi, fræða'ndi
frekar en forheimskandi. Menn vilji að
sjónvarpið sé svona sjuddiralli, sjadabb-
ada.
Því fólki finnst svo voðalega leiðinlegt að
sitja kvöld eftir kvöld og kannski margar
helgar í þokkabót fyrir framan kassann og
hafa ekkert gaman af honum. Sitja samt
allan tímann, horfa, góna, enda ekkert
annað að gera. Engin leið að standa upp.
Þetta getur verið svona. Það koma stund-
um heilu mánuðirnir sem mönnum leiðist
öll kvöld. Barasta betra að lygna aftur aug-
unum en horfa framfyrir sig. Hugsa si
svona; hvaða mynd ætli þeir skelli á skjá-
inn í dagskrárlok? Kannski af Drangjökli,
Dyrfjöllum...?
Það er ekkert annað að gera. Altént
betra að sitja hérna í sóffanum og láta sig
dreyma um lokamyndina en lagfæra úti-
hurðina. Dyrfjöllin... já? Maður er hvort
eð er kominn í svoddan keng um þetta leyti
kvölds, að erfitt er að hafa sig í eitthvað
annað en að horfa.
Á sjónvarpið; einasta áhugamálið. Að
þeir hefðu nú bara haft svona þátt i kvöld
sem mér hafa alltaf þótt svo sniðugir í stað-
inn fyrir þetta ekkisens kjaftæði sem ég er
búinn að vera að horfa á í hátt á aðra stund.
Að þeir hefðu nú bara, bara í kvöld. ..
22 HELGARPÖSTURINN