Helgarpósturinn - 03.10.1985, Qupperneq 3
Þessir eru tryggir í sessi:
Katrfn Fjeldsted
Vilhjálmur Vilhjálmsson
Davlð Oddsson
Magnús L. Sveinsson
ús L. Sveinsson, formaður VR og
lngibjörg Rafnar. Sömuleiðis er talið
að Albert hljóti að ná einu af fyrstu
átta sætum listans. Ef ekki, þá megi
líta á það sem hreint vantraust á Al-
bert í sæti fjármálaráðherra og ósk
reykvískra sjálfstæðismanna, að
hann hverfi úr íslenskum stjórnmál-
um fyrir flokkinn. Ftíll Gíslason
læknir er reyndur í borgarmálapóli-
tíkinni og þótt sumir telji að hans
tími sé liðinn og hann ætti að draga
sig í hlé aldurs vegna, þá nái hann
kosningu ef hann verður með. Einn-
ig telja kunnugir að mikill þrýsting-
ur verði á það meðal hinna sterku
manna í flokknum að Katrín Fjeld-
sted læknir nái góðri kosningu. Hún
var ekki með í síðasta prófkjöri, en
var stillt upp af kjörnefnd í baráttu-
sæti listans og auglýst þá mikið og
vel upp. Telja sjálfstæðismenn það
grundvallaratriði að sá frambjóð-
andi sem var hvað mest á oddinum
fyrir síðustu kosningar að undan-
skildum Davíð, hljóti að fá endur-
heimt traust bara vegna þess. Það
verði að vera samræmi í áróðri
flokksins frá einum kosningum til
annarra. Á móti benda margir á að
það blási ekki nægjanlega um
Katrínu Fjeldsted og hún eigi eftir
að sanna sig.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur
verið meira áberandi hvað varðar
stefnumótun hjá borgarstjórnar-
meirihluta Sjálfstæðisflokksins í
seinni tíð, sérstaklega eftir að Mark-
ús Örn Antonsson kvaddi borgar-
málefnin og sneri sér að Ríkisút-
varpinu. Er talið að Davíð borgar-
stjóri leggi talsvert upp úr því að
hafa hann áfram inni — hann sé
náin hjálparhella borgarstjóra við
„policy making".
En fleiri eru kallaðir. Þar á meðal
Ragnar Júlíusson skólastjóri, sem
hefur verið hvað mest áberandi í út-
gerðarmálunum og ekki síst vegna
fyrirhugaðrar sameiningar Bæjar-
útgerðar Reykjavíkur og ísbjarnar-
ins. Sagan segir að ef til þeirrar sam-
einingar komi, þá fái Ragnar stjórn-
arformennsku í hinu sameinaða
fyrirtæki og víki þá úr sæti borgar-
fulltrúa. En þessi hugsanlega sam-
eining á langt í land og því er það
ekki síst mikilvægt fyrir Ragnar að
styrkja stöðu sína með góðri út-
komu í prófkjörinu í nóvember.
Annar skólastjóri er einnig í borg-
arfulltrúaliði Sjálfstæðisflokksins.
Það er Sigurjón Fjeldsted. Hann hef-
ur verið lítt áberandi en þykir af
sjálfstæðismönnum traustur og úr-
ræðagóður.
Hilmar Gudlaugsson formaður
byggingarnefndar borgarinnar mun
einnig hyggja á góða kosningu í
prófkjörinu. Hann er úr verkalýðs-
arminum og það þykir nauðsynlegt
hjá öllum flokkum að hafa fram-
bjóðendur sem tengjast verkalýðs-
pólitíkinni. Hilmar uppfyllir þær
kröfur ásamt Magnúsi L. Sveinssyni.
Enn er ógetið tveggja kvenna,
þeirra Huldu Valtýsdóttur og Jónu
Gróu Sigurðardóttur. Sú fyrrnefnda
hefur ekki verið mjög áberandi, þótt
hún hafi setið í borgarráði fyrir sjálf-
stæðismenn. Jóna Gróa hefur aftur
á móti notið þess síðustu vikurnar
að hafa setið á formannsstóli fanga-
hjálparinnar Verndar, sem eins og
kunnugt er hefur verið talsvert í um-
ræðunni vegna Teigahverfismálsins
svokailaða. Jóna Gróa lenti þar upp
á kant við borgarstjóra, sem vildi
aðrar lausnir en Vernd, en úr því
öllu virðist hafa ræst og allir standa
jafnheilir á eftir. Telja sumir að Jóna
Gróa geti notið þess í prófkjörinu,
að hún hafi sýnt og sannað í Teiga-
hverfismálinu að hún hafi bein í nef-
inu.
En það eru fleiri lysthafendur en
aðeins þeir sem nú þegar eru inni í
hitanum. Margir standa utan dyra
og knýja á. Meðal þeirra er Júlíus
Hafstein fyrrum formaður HSÍ og
núverandi formaður íþróttaráðs,
Anna K. Jónsdóttir sem hefur farið
með dagvistarmálin fyrir borgina,
Arni Sigfússon fyrrum leiðtogi
ungra sjálfstæðismanna, sem mun
vera sérlegur frambjóðandi unga
fólksins, eftir því sem heimildir HP
herma. Kolbeinn Pálsson formaður
Æskulýðsráðs þykir þó einna líkleg-
astur nýrra kandídata að ná inn, ef
hann lætur til leiðast að vera með í
prófkjörinu.
Það var yfirleitt rækilega undir-
strikað af heimildarmönnum HP, að
fyrirfram myndi það reynast nýlið-
um afskaplega erfitt að komast
langt í prófkjörinu. Ekki síst mun nú
gæta aukinnar hörku hjá þeim sem
fyrir eru, nú þegar „öruggu" sætun-
um fækkar. Þá verður ekkert gefið
eftir og engin sæti laus fyrir unga og
efnilega nýliða utan af götu.
Heimildir Helgarpóstsins herma,
að prófkjörsbaráttan sé ekki komin
í gang. Það muni þó gerast fljótlega.
Og allt virðist benda til þess að allir
12 borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins vilji eit.t af 7—8 efstu sætum list-
ans og muni berjast af alefli fyrir því
markmiði. Það mun því talsvert
ganga á innan Sjálfstæðisflokksins á
komandi vikum. Og jafnvel mun
harkan verða svo mikil og einstakl-
ingshyggjan, að engu meginmáli
mun skipta hvaða skoðanir borgar-
stjóri hefur á málunum. „í mörgu er
Davíð einráður, en á þessum vett-
vangi þýðir engin fjarstýring for-
ingjans. I þessu prófkjöri verður
hver sjálfum sér næstur,“ sagði einn
innanbúðarmaður í Sjálfstæðis-
flokknum við HP.
Að samanlögðu er nánast ókleift
að spá nokkru um hina endanlegu
röð listans og þarmeð útkomu próf-
kjörs. Ætla má þó að eftirtaldir séu
næsta öruggir sem kandídatar í
efstu átta sætin: Davíð Oddsson,
Ingibjörg Rafnar, Magnús L. Sveins-
son, Albert Guðmundsson, Katrín
Fjeldsted og Vilhjálmur Vilhjálms-
son. Gjörsamlega ómögulegt er hins
vegar að segja til um niðurstöður að
öðru leyti.
Banka uppá ...
Arni Sigfússon
Júllus Hafstein
Kolbeinn Pálsson
Eruð þið að missa
Hlaðvarpann?
Maríanna Traustadóttir
„Nei, við ætlum okkur ekki að missa hann og því hrópum við
á konur út um allt land að leggja okkur lið og sjálfum sér í leið-
inni vegna þess að þessi félags- og menningarmiðstöð er hugs-
uð sem aðstaða fyrir konur í öllum stéttum og öllum flokkum
til að sinna hugðarefnum sínum."
— Hvernig standa fjármálin núna?
„Okkur vantar milljón til að eiga fyrir annarri útborgun af hús-
unum nú 5. október."
— Hvernig hyggist þið bregðast við?
„Á mánudagskvöld hélt stjórn Hlaðvarpans fund þar sem
fram kom mikið af sniðugum hugmyndum um hvernig megi
nýta þessi yndislegu hús. Málið er að við þurfum að kynna okk-
ur betur, auglýsa okkur meira upp og því höfum við efnt til
kynningarfundar kl. 20.30 í kvöld, fimmtudag, í Kjallaraleik-
húsinu þar sem þessar hugmyndir verða reifaðar. Það hefur ver-
ið frekar hljótt um okkur í sumar vegna þess að allir hafa verið
í fríi og því er fullt af konum sem vita ekki að við erum til.
En undanfarið höfum við aftur á móti lagt okkar af mörk-
unum til Listahátíðar kvenna: í kjallara annars bakhússins
standa yfir leiksýningar á Reykjavíkursögum Ástu Sigurðar-
dóttur og við höfum líka innréttað lítið lystihús á lóðinni þar
sem upplýsingamiðstöð Listahátíðar kvenna er til húsa. Og hér
stendur líka yfir sýning á tillögum kvenna úr arkitektastétt um
það hvernig megi nýta þetta húsnæði og þar er jafnframt gerð
grein fyrir sögu þess. Og bráðum komast fundarherbergi í
gagnið svo það er smám saman að færast líf í starfsemi Hlað-
varpans."
— Hvernig hefur tekist að innheimta fyrir þau hluta-
bréf sem konur hafa skuldbundið sig til að kaupa?
„Það er einmitt það sem hefur ekki gengið nógu vel. I upp-
hafi ætluðum við að komast hjá því að senda út gíróseðla
vegna þess að það er svo kostnaðarsamt. En þar sem illa inn-'
heimtist neyddumst við til þess. í lok júlí sendum við út gíró-
seðla til þeirra sem höfðu skuldbundið sig til að greiða hluta-
bréf upp í afborgun 1. júlí og ennþá eru útistandandi um 85
þúsund krónur í gíróseðlum sem konur hafa ekki borgað.
Konur verða að gera sér grein fyrir því að ef þær skrifa sig
á lista um að kaupa hlutabréf, þá er það mjög bindandi loforð.
Núna eru útistandandi um 200 þúsund í gíróseðlum upp í
greiðsluna 5. okt. og eftir er að sjá hvernig það innheimtist."
— Hafa margir lagt hönd á plóg við að rýma og inn-
rétta þá kima húsanna sem þið hafið þegar tekið í notk-
un?
„Já, talsvert margir en þó hefur mesta vinnan lagst á sama
fólkið sem vinnur þetta allt í sjálfboðavinnu. Það var svo mikið
af gömlu drasli sem þurfti að henda í ágúst og september. Karl-
arnir í hreinsunardeildinni höfðu orð á því að þeir væru alitaf hjá
okkur. Þeir hafa keyrt í burtu heilu bílfarmana. Bakhúskjallarinn
þar sem leiksýningarnar fara fram var til dæmis kjaftfullur af
drasli og það var óhemjuátak að rýma hann. Annars er eigin-
lega allt húsnæðið enn í leigu fram til 1. desember."
— Hvar er þá eiginlega sýningin á sögu húsanna og
tillögum arkitektanna?
„Hún er hérna inni á skrjfstofunni hjá mér og er opin 1—8
virka dagaog 2—6 um helgar. Og ekki nóg með það, við seljum
líka kaffi hér í leiksýningarhléum. Það er ekkert pláss fyrir mig!
Síðast í morgun var ég að vélrita nokkra gíróseðla og ég kraup
á gólfinu við það. Ég er viss um að enginn karlmaður léti bjóða
sér þessa vinnuaðstöðu. Ég er með svo gamla og stóra ritvél
að hún veltur út af öllum stólum svo eina ráðið er að hafa hana
á gólfinu og krjúpa við hana. En hvað gerir maður ekki góðum
málefnum til framdráttar?"
Marlanna Traustadóttir er framkvæmdastjóri menningar- og félagsmið-
stöðvarinnar Hlaðvarpans. Eins og fólk rekur sjálfsagt minni til stofnaði
hópur kvenna hlutafélag sl. vor um kaup á þremur húsum að Vestur-
götu 3. Nú er komið að annarri afborgun af húsunum, þ.a 5. okt. nk.,
og þá bregður svo við að lítið hefur bæst við af nýjum hluthöfum.
HELGARPOSTURINN 3