Helgarpósturinn - 03.10.1985, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 03.10.1985, Blaðsíða 10
'7 HP HELGARPÓSTURINN Ritstjórar: Ingólfur Margeirsson og Halldór Halldórsson Blaðamenn: Edda Andrésdóttir, Jóhanna Sveinsdóttir og Sigmundur Ernir Rúnarsson Útlit: Elín Edda Ljósmyndir: Jim Smart Handrit og prófarkir: Magnea Matthíasdóttir Útgefandi: Goðgá h/f Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson Auglýsingar: Steinþór Ólafsson Innheimta: Garðar Jensson Afgreiðsla: Guðrún Hasler Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 36, Reykjavík, sími 8-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa eru að Ármúla 36. Sími 8-15-11 Setning og umbrot: Leturval s/f Prentun: Blaðaprent h/f Auglýsingar eru mikið mál Auglýsingabransinn er í brennipunkti í Helgarpóstinum í dag. I úttekt blaðsins er gerð grein fyrir umfangi auglýsinga- markaðarins í íslensku við- skiptalífi, frammistöðu auglýs- ingastofanna og þeim kröfum, sem auglýsendur gera. Þótt erfitt sé að gera sér ná- kvæma grein fyrir stærð þessa markaðar á íslandi er slegið á, að í peningum talið sé hann um einn og hálfur milljarður króna á ári og ef til vill meira. Það vekur athygli, að sam- kvæmt grein blaðsins virðast auglýsendur ekki vera alls kost- ar ánægðir með þjónustu ís- lenskra auglýsingastofa. Ekki er efast um hæfni starfsmanna stofanna til þess að hanna og ganga frá snyrtilegum auglýs- ingum. Hins vegar setja sumir spurningarmerki við það, sem kalla mætti „víðfeðmi" þjón- ustunnar. Formælandi IBM ger- ir auðheyrilega miklar kröfur til auglýsingastofa og ætlast til þess, að þær séu færar um að leysa öll vandamál er lúta að auglýsingaþjónustu, einkum kvartar viðkomandi yfir því, að svo virðist sem stofurnar skorti svokallaða textamenn, vel máli farna og vel skrifandi höfunda þeirra skilaboða, sem auglýs- ingin á að flytja. Raunar er það kannski merkiiegast við þessa úttekt HP á auglýsingamarkaðnum, að svo virðist sem mjög lítil rækt hafi verið lögð við mikil- vægasta taekið í auglýsinga- I gerð, nefnilega málið og mál- ( farið. Þó mun þetta standa til ,| | bóta hjá mörgum auglýsinga- | j stofum. ! lega fyrir sér hvort þarna sé [ | ékki taept á máii, sem auglýs arnar, ættu að ræða af fuílri al- i vöru. Því er nefnilega ekkert að j | leyna, að málfar I auglýsingum er ósjaldan til mestu hneisu fyr- i j ir viðkomendur. Hér er átt við j hreinarmálvillur eða málleysur, i En jafnframt ber alltof mikið á j | einhverjum stöðluðum, „pleb- j eiískum frösum", sem eru að j verða gegnumgangandi í aug- j lýsingum frá hinum og þessum stofnunum. Hér eru á ferðinni smitþerar, sem síast síðan | hægt og rólega út í málið. Auglýsingar geta á sinn hátt verið listaverk. En ef textinn er a.m.k. ekki skammlaus, þá verður auglýsingin varla barn í brók. Og ef textinn er vondur, er auglýsingin til skaða. Annars væri gaman að vita hvernig þumalputtareglan um val á auglýsingamiðlum varð til og hvernig auglýsingastofurnar réttlæta dreifingu sína á blöðin. BRÉF TIL RITSTJÓRNAR Fáein orð um fiskrétti og lagmeti Ágœtu ritstjórar! „Þetta er nógu gott í Bretann," heyrðist sagt hér áður fyrr, þegar verið var að flytja út fisk. Vöruvönd- un í fiskiðnaði var og er áfátt, stór- lega áfátt. Ekki aðeins eru lélegar fiskafurðir aftur og aftur seldar úr landi, heldur hefur það einnig gerst, að innihald lagmetisdósa hefur reynst vera einkennilegt jukk, áður óþekkt efni sem menn báru ekki kennsl á. Eitt var víst, að hér var ekki um neinskonar matvæli að ræða. Vörusvik voru og eru e.t.v. enn stunduð. Ég á við svonefndan „sjólax". íslendingar stunda ekki laxveiðar úr sjó og vilja ekki að aðr- ir' geri það. Hér er heldur ekki um neinskonar lax að ræða, heldur ufsaflök, lituð í blekkingarskyni við neytendur, sem keyptu þessa vöru í þeirri trú að dósin hefði að geyma það sem á henni stóð. Þokkaleg kynning fyrir íslenskan iðnað eða hvað? Á matseðlum veitingahúsa hef ég stundum séð héra, en jafnan hefur verið tekið fram að sá héri hafi verið svikinn og því hefur ekki verið um blekkingu við neytendur að ræða. Á sjólaxdósunum hefði því átt að taka fram, að laxinn væri framleiddur úr öðrum fiski og merkja dósirnar: „svikin vará' bæði á íslensku og tékknesku og jafnvel ensku líka. í Hafnarfirði var hafin framleiðsla á reyktum síldarflökum (kippers) undir erlendu vörumerki (íslensk vörumerki virðast ekki vera boð- leg). Fyrstu árin stóð varan undir hinu erlenda gæðamerki en svo hnignaði gæðunum. Neytendur fundu fyrir sérkennilegum kornum, hörðum undir tönn, flökin urðu líka of þurr og of reykt og bragðgæði minnkuðu. Það er illt ef vit og vilji hrekkur ekki til að skilja hvílíka firna áherslu Islendingar verða að leggja á vöru- vöndun til að þurfa ekki að styðja sig við erlenda hækju (vörumerki) og öðlast heimsfrægð meðal ann- arra þjóða fyrir frábærar vörur unn- ar úr fiski. Hvað á að framleiða? Álareykingastöðin í Hafnarfirði framleiddi góða og verðmæta vöru; hana þarf að endurreisa. Útflutning- ur á reyktum ál gæti hugsanlega staðið undir flugfrakt. Fiskræktin á efalaust mikla framtíð fyrir sér og opnar möguleika sem enn eru e.t.v. ekki að fullu kannaðir. Túnfiskveið- ar og -vinnsla eru líka ókannaður möguleiki. Hefja þarf tilraunir með gerð á fiskpylsum og tilbúning á margvíslegum fiskréttum, tilbúnum beint í ofninn eða á pönnuna. Þeim tilraunum ættu frægir matreiðslu- menn að hafa umsjón með. Full- komnasta eldhús á fslandi, eldhús Framkvæmdastofnunar, ætti að standa þeim til boða til tilraunanna. Slíkir smáréttir gætu verið niður- soðnir í dósir, eða þeim pakkað í öskjur og djúpfrystir. Djúpfrystir danskir smáréttir fást í verslunum hér. Hversvegna getum við ekki selt Dönum slíka rétti? Sé rétturinn nið- ursoðinn í dós mætti hugsa sér eins- konar aðaldós, í henni væri aðalrétt- urinn ásamt lítilli dós eða pakka með tilheyrandi sósu, sosumsósu t.d. Aðaldósin væri svo með tvöföld- um botni og þegar hún væri opnuð að neðan, kæmi viðeigandi græn- meti í Ijós. Mér var eitt sinn send blaðagrein frá Svíþjóð. Þar var greint frá því að kræklingarækt við strendur Sví- þjóðar væri mikil atvinnugrein þar. Grein þessa afhenti ég blaðamanni hjá Tímanum í þeirri von, að hann skrifaði eitthvað um þessa álitlegu atvinnugrein Svía, en greinin hafn- aði í pappírskörfunni. Við viljum engar nýjungar í sjávarútvegi, Mör- landarnir, ef þær eru gagnlegar, en séu þær nógu vitlausar er alltaf hægt að auðga með þeim skólakerf- ið, þar sem vitleysan og þenslan er nóg fyrir. Ef kræklingarækt og -vinnsla hæfist hér að einhverju marki, þyrftum við ekki að kaupa lengur Limafjarðar kræklinginn danska og gætum vafalaust flutt krækling út í einhverju magni. Eitt sinn gaf ég Bandaríkjamanni harð- fiskbita. Honum þótti bitinn góður, en taldi að erfitt yrði að selja hann í Bandaríkjunum, a.m.k. þyrfti að pakka honum í fallegar umbúðir áð- ur. Slíkan útflutning þyrfti að kanna. Markaður gæti fundist í einhverju blökkumannalýðveldi eða jafnvel í Frakklandi og á Spáni. Opnist flutn- ingaleið til Kína vegna álfram- leiðslu, væri hugsanlegt að þar opn- aðist stór markaður fyrir flestar sjávarafurðir og skreið. Kínverjar eru snillingar í að búa til mat og kássur gera þeir úr hverju sem er. Fisksölumál til Kína ætti að ræða samhliða álviðræðum við þá, því hér veltur allt á flutningskostnaði. Umbúðir Ósmekklegar umbúðir geta dreg- ið úr sölu en smekklegar aukið hana. Vörugæðin eru þó aðalatriði. Fólk, sem kaupir vonda vöru í smekklegum umbúðum, verður vonsvikið og ergilegt og kaupir vör- una aldrei aftur. Ef varan hefði verið í ósmekklegum umbúðum og ódýr hefðu vonbrigðin ekki orðið jafn mikil, því að í fínum umbúðum verður að vera vönduð vara. Fyrir mörgum árum lenti á Kefla- víkurflugvelli flugvél með sölu- manni á heimleið til Bandaríkjanna. Engir íslendingar komu um borð nema nokkrir vallarstarfsmenn. Flugvélin hafði að geyma sölusýn- ingu á alls konar umbúðum, þ. á m. ýmiss konar dósum. Eftir stutta við- dvöl hóf vélin sig á loft og hvarf. Nokkrum árum síðar fóru að berast hingað dósir frá meginlandinu, sem voru þeirrar gerðar að ekki þurfti dósaopnara til að opna þær. Seinna var svo farið að nota slíkar dósir hér. Á svipuðum tíma kynnti ég mér lagmeti, sem á boðstólum var í stór- verslun einni í Reykjavík. Það var um nokkurt úrval að ræða, bæði innlent og erlent. Islenska lagmetið var með roði og sporði og sardínur auk þess með innyflum, samskonar erlent lagmeti var a.m.k. frá sumum framleiðendum roðlaust, sporðlaust og jafnvel sardínur án innyfla. ís- lenska lagmetið var allt í dósum og því ekki hægt að sjá innihaldið; erlenda lagmetið var sumt í glösum og gat því neytandinn séð hvað Um Ulricu í Grímudansleik Hr. ritstjóri. í mjög lofsamlegri umsögn Leifs Þórarinssonar um sýningu Þjóðleik- hússins á Grímudansleik Verdis, segir nia. „Sigríöur Ella Magnús- dóttir er auðvitað eini mezzósópr- aninn okkar, sem kom til greina í Ulricu, hina göldróttu spákonu, sem sér fyrir konungsmorðið og er ætl- að að skapa óhugnað og auka á eft- irvæntingu, þó hún hafi stuttan dansleiks aftur að hinni uppruna- legu hugmynd Verdis um morðið á Gústaf III Svíakohungi, verður að sjálfsögðu að taka öll efnisatriði upp til nýrrar prófunar, og þá ekki síst þau, sem í Bostonargerðinni gengu aidrei verulega upp — eins og hinar pólitísku forsendur morðsins og spásagnir hörundsdökkrar fordæðu í einhverjum þjóðsagnakenndum helli úr tengslum við hið raunsæi- lega sögusvið að öðru leyti. Ein fyrsta spurningin, sem leikstjóri og sú söngkona, sem túlka á Ulricu, spyr sig, hlýtur að vera: Er Ulrica fjölkunnug, gædd einhverjum yfir- náttúrulegum hæfileikum, sér hún raunverulega djöfulinn? Ulrica okkar Sigríðar Ellu gerir það ekki, hún er sígaunastúlka, sem hefur ofan af fyrir sér og félögum sínum og meðhjálparfólki með því að spá fyrir fólki, sem lætur blekkj- ast af hindurvitnum eða hefur skemmtun af því að láta hrella sig með því sem vekur ógn. Hvort tveggja ætti að vera nútímafólki jafn vel kunnugt og fordæðuskapur. Þessi Ulrica er hörkugreind og næm vel og gædd svo.ágætum leikhæfi- unar sinnar er hún næstum far verður að spandera trompi til að ná upp stemmnjngunni aftur: og nú þykist hún sjá sjálfan mykrahöfð- ingjann, sem faðmi sig. Hún er óbrotin alþýðukona og þegar Sil- vano birtist, fellur henni vel faisleysi hans og hispursleysi og hún ákveður að spá honum vel. Það eru því engar yfirnáttúrulegar efndir á spádómi, þó að konungur laumi í vasa sjó- mannsins þeim launum, sem Ulrica hefur heitið (og hefur í sjálfu sér engin ráð á); það vill bara svo til að konungur er í felum innan seilingar og það fellur inn í leikinn hjá hon- um, að láta eitthvað rætast í fyrstu, sem Ulrica spáir. Ulrica sendir allan hópinn út, þeg- ar Amelía hefur boðað komu sína og segir þar ekki alveg satt til um forsendur, en henni er ljóst, að þarna er hefðarkona á ferð, sem muni borga vel. Auðvitað trúir Ul- rica ekki á neina töfrajurt, en hún spennir bogann til hins ýtrasta til að kanna, hversu mikið Ámelía vill í sölurnar leggja, hræðir hana og huggar um leið: Amelía er nýkomin til Stokkhólms frá Finnlandi, þekkir fáa og á ekki í svo mörg hús að venda i veikur neö sínar ástarraunir (annar ikeerð- punktur í ,n Amelíc i vill allt til vinna, jafnvel að trúa á töfrajurtir og meir og akveður að hefna sin: þess vegna spáir hún konungi dauða og til að kóróna það, þegar hann hefur alla hennar spásögn í flimtingum, að hann muni falla fyrir hendi vinar síns. Hún, sem ekki hef- ur hugmynd um að hér er kóngur á ferð, en sér þó að ekki er hann sjó- maður, sem hann þykist vera, og trúlega aðalsmaður, sem ekki þarf að vinna hörðum höndum, sér þetta auðvitað ekki fyrir sér, heldur er hún að búa til dramatíska sögu, til að kenna þeim eins og öðrum að bera ótta og virðingu fyrir sér. Sú til- viljun að það verður hönd Renatos sem konungur nær að grípa, þegar Ulrica hefur sagt, að morðinginn verði sá, sem fyrstur taki í hönd konungs, hefur þó áhrif síðar í at- hann var að kaupa. Ég tók sérstaklega eftir lagmeti í glasi frá dönskum framleiðanda; hann hafði látið græna jurt eða blað í glasið til augnayndis, og gerði það vöruna margfalt girnilegri. Getum við lært af þessu? Mörgum árum síðar leit ég á lag- meti í stærstu verslun á Norðurlönd- um, að ég held, Magasin de Nord í Kaupmannahöfn. Þar var ekkert ís- lenskt lagmeti að fá, en grænienskt var þar að sjálfsögðu á boðstólum. Ef ekki væri hægt að fá íslenskt lag- meti í þessari stórverslun taldi ég ekki líklegt að ég sæi það annar- staðar. Hins vegar var hægt að fá danskt lagmeti og tertur í verslun- um í Reykjavík. Hvernig á að selja? Um sölutækni gilda Iögmál, sem ekki verður getið hér, en vikið að markaðsöflun og stiklað á stóru. Sjálfsagt er að afla markaða með hefðbundnum leiðum, svo sem þátt- töku í vörusýningum. Margir er- lendir iðnrekendur auglýsa í út- breiddum, vönduðum tímaritum. Þetta munu Flugleiðir hafa gert og Skotar auglýsa sitt whisky á þann hátt, en íslenska sjávarrétti hef ég aldrei séð auglýsta þar. Hins vegar hef ég séð auglýsingu frá þýskum framleiðanda sjávarrétta í víðlesnu tímariti. Sú auglýsing varð mér minnisstæð. Á blómum prýddu veisluborði voru girnilegir smáréttir á litlum fíngerðum, ferhyrndum bökkum, líklega úr postulíni. Teg- undir réttanna voru jafn margir og bakkarnir, ein tegund á hverjum bakka (að sumu leyti líktust þeir bökkum, sem notaðir eru í flugvél- um). Þegar bökkunum var raðað saman hlið við hlið mynduðu þeir lax, sem hafði sveigt til styrtluna á borðinu. Hver skál eða bakki var því hluti af stærra fati eða laxi úr postulíni í eðlilegum litum og glitti í silfurlitað hreistrið. Frábærlega vel gert. Gætum við ekki lært af þessu? Ekki man ég hvort þessir réttir voru kallaðir silfur eða gull hafsins, en í auglýsingatækni eru hlutir oft nefndir gullfallegum nöfnum, sem burðarásinni og spilar í undirmeð- vitundinni hjá Renato, þegar af- brýðin blindar hann; þannig verður Ulrica eftir sem áður örlagavaldur, en sálfræðilega og ekki yfirnáttúru- lega. Þegar leiknum er svo lokið segir konungur beinlínis við hana: Þú ert léleg spákona, þú gast hvorki séð hver ég raunverulega var né að þú sjálf varst í yfirvofandi hættu. En þó að Ulrica sjái slíkt ekki fyrir neina yfirnáttúrulega töfra, er hún dóms, lætur hvorki Imeppa hana í fjötra né hálshöggva, en fleygir í hana pyngju og segir henni að hypja gerst hefur, hún kastar grímunni og varar nú konung í einiægni við því, að setið sé á svikráðum við hann. Ég þykist hafa tekið eftir því, að ef hafinn er áróður uin nýja túlkun fyr- irfram í blöðum, taka gagnrýnendur stundum hrátt upp slíkar viljayfirlýs- ingar. Þannig var til dæmis þegar Sigríður Ella túlkaði Carmen í ann- að sinn. Þó að þessi afburða lista- kona hefði náttúrulega þroskast í list sinni þau ár sem í milli liðu, hef- ur hvorki mér né málsmetandi leik- hús- eða tóniistarfólki, sem ég hef rætt þetta við, tekist að sjá, að um grundvallarlegan skilningsmun hafi verið að ræða í þessi tvö skipti. Þetta er auðvitað engum til hnjóðs sagt, því öllum er kunnugt hversu frábær Carmen Sigríður Ella er. En persónulega hef ég aldrei getað fengið af mér, að gefa út slíkar yfir- 10 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.