Helgarpósturinn - 03.10.1985, Blaðsíða 6

Helgarpósturinn - 03.10.1985, Blaðsíða 6
INNLEND YFIRSYN eftir Guðmund Árna Stefónsson Kosningar næsta sumar eða haust, ellegar að stokkað verði upp í ráðherraliði Sjálfstæð- isflokksins, þannig að Þorsteinn Pálsson for- maður flokksins og fleiri nýir menn skipti inn á fyrir einhverja þá ráðherra flokksins, sem fyrir sitja? Og þá mun stjórnin sitja út kjör- tímabilið. Þetta eru þeir tveir valkostir sem langflestir telja að séu efst á baugi hjá sjálf- stæðismönnum þessa dagana, þegar staða ríkisstjórnarinnar og hugsanlegt framhald stjórnarsamstarfsins ber á góma. Tafarlaus stjórnarslit vegna ágreinings um fjárlögin eru mjög ósennileg. I viðræðu við nokkra stjórnarliða úr bæði Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki kom mjög sterkt fram, að ekkert benti til þess að stjórnarslit væru framundan á næstu vikum og mánuðum, þótt vík væri á milli vina hvað varðar ýmis atriði fjárlagafrumvarpsins. „Mín tilfinning er sú, að það náist samstaða um enn eina tilraunina til að ná árangri í þessum efnum,“ sagði meðal annarra Ólafur G. Einarsson formaður þingflokks Sjálfstæð- isflokksins. Og efnislega voru skoðanir ann- arra mjög á hinn sama veg, enda þótt yfirlýs- ingar úr herbúðum sjálfstæðismanna siðustu daga bendi mjög ákveðið til þess að stjórnar- samstarfið verði sett á oddinn fyrir nýju og endurbættu frumvarpi til fjárlaga. Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins fundaði um síðustu helgi og niðurstaðan þar var mjög eindregið sú, að frumvarp það sem fjármálaráðherra er með í sínum fórum og hefur fengið blessun innan ríkisstjórnarinnar og ennfremur hjá þing- flokkum stjórnarflokkanna, sé langt í frá full- nægjandi. Næsta mánudag mun þingflokkur Sjálf- stæðisflokksins koma saman og ræða fjár- lagafrumvarpið og fleira, þ. á m. stöðu ríkis- stjórnarinnar og hugsanlega uppstokkun á ráðherraliðinu. Menn hafa dálítið velt vöng- um yfir ástæðum þess, að Sjálfstæðisflokk- urinn sneri svona snögglega við blaði í af- stöðunni til fjárlagafrumvarps Alberts, því víst hafði þingflokkurinn samþykkt drögin — með semingi þó. Hins vegar hefur óánægja ýmissa sterkra hagsmunaaðila og almenns flokksfólks með frumvarpið, þá sér- staklega viðskiptahallann, erlendu skulda- söfnunina og ekki síst skattahækkanir, leitt Matthíasarnir eru gífur- lega sterkir í kjördæm- um sínum, Mathiesen í Reykjanesi og Bjarnason á Vestfjörðum. Stormur í vatnsglasi eda stórtíðindi í farvatninu? til þess að ýmsir þingmenn fóru að endur- skoða sinn hug. Upp úr sauð svo á miðstjórn- arfundinum í Stykkishólmi á dögunum. En umræðan um fjárlagafrumvarpið er angi af stærra máli sem nú enn og aftur fær fljúgandi byr; nefnilega hugmyndir um nauðsynlega uppstokkun á ráðherraliði Sjálfstæðisflokksins og almenna úttekt á stjórnarsamstarfinu og vænlega tímasetn- ingu á nýjar kosningar. Aftur á móti veikir það talsvert þessa um- ræðu alla, að þrír af sex ráðherrum flokksins eru nú í útlöndum og sömuleiðis er Stein- grímur Hermannsson erlendis — á þingi frjálslyndra stjórnmálaflokka. Afstaða fram- sóknarmanna til hækkandi hitastigs í her- búðum sjálfstæðismanna er því óljós. Hins vegar lögðu menn á það áherslu að núver- andi ráðherrar Sjálfstæðisflokksins væru engir léttvigtarmenn, sem hægt væri að mjaka úr ráðherrastólum gegn vilja þeirra, án ófyrirséðra alvarlegra eftirkasta. Matthíasarnir eru gífurlega sterkir í kjör- dæmum sínum, Mathiesen á Reykjanesi og Bjarnason á Vestfjörðum. Albert hafa sjálf- stæðismenn ekki lagt í enn, þrátt fyrir mik- inn vilja í þá veru. A það var bent að stjórn- arslit á íslandi verða ekki ef ráðherraliðið í stjórnarflokkunum stendur saman gegn slík- um þreifingum. Og sú virðist staðan í dag, enda þótt Sverrir Hermannsson láti vaða eitt og eitt skeyti endrum og eins. Þótt ókleift sé að staðhæfa nokkuð um framvindu þessara mála, voru langflestir stjórnarliðar í hópi viðmælenda HP þeirrar skoðunar, að þessi hrina gengi yfir. Fjárlögin verða löguð, stjórnin situr áfram óbreytt þennan veturinn, er sennilegasta niður- staðan. En allt getur gerst. Á það bentu fleiri en einn úr hópi sjálfstæðismanna, að það jafngilti pólitísku sjálfsmorði af hálfu Þor- steins Pálssonar, ef hann léði máls á því að taka sæti í ríkisstjórninni nú. Fyrir það fyrsta yrði það að gerast með ákveðnum leiðind- um og sárindum þeirra, sem víkja munu og þeir hinir sömu munu hugsa Þorsteini þegj- andi þörfina, þótt síðar verði. í annan stað er málefnastaða ríkisstjórnarinnar veik og spurningin er hvort Þorsteini tækist að setja jákvætt mark á stjórnarsamstarfið á þeim stutta tíma sem eftir lifir af kjörtímabilinu. Samkvæmt „ritualinu" þá ber að efna til kosninga í apríl 1987. Það er ekki hefðbundinn kosningamánuður og bara af þeirri ástæðu einni er mjög sennilegt að kosningum verði flýtt og þær verði næsta haust. Og svo er önnur ástæða og ekki veigaminní: Margir sjálfstæðismenn reikna dæmið þannig, að Davíð Oddsson hali inn stórsigur í borgarstjórnarkosningunum næsta vor og því sé mjög heppilegur tími fyrir kosningar fljótlega í kjölfarið, á meðan sjálfstæðismenn eru í sigurhamnum og kjósendur mjög fýs- andi að vera í sigurliði. Einn úr forystuliði Framsóknar sagði hins vegar að framsóknar- menn væru ekkert sérstaklega spenntir fyrir því að spila þennan leik alfarið á nótum sjálf- stæðismanna. „Hins vegar getum við ekki komið í veg fyrir það, ef sjálfstæðismenn vilja nýjar kosningar á næsta sumri. Við getum hins vegar fylgt okkar eigin tímaplani og rofið stjórnina á heppilegum tímapunkti fyrir okkur — jafnvel fyrir næstu sveitar- stjórnakosningar. Við áttum okkur alveg á áætlun Sjálfstæðisflokksins og höfum mjög rætt það í okkar hópi hvernig beri að standa að nýjum kosningum hvað varðar málefni og ekki síður tímasetningu," sagði forystumað- ur Framsóknarflokksins. Og víst skiptir tímasetningin mikiu. Eða eins og Ólafur G. Einarsson orðaði það, þeg- ar spurt var um hugmyndir hans um nýjar kosningar: „Ég hef á tilfinningunni, að stjórnin muni sitja vel fram á næsta ár, a.m.k. fram yfir sveitarstjórnakosningar næsta vor. En ég vona að stjórnarflokkarnir hafi vit á því að efna til kosninga þegar vel stendur á hjá þeim, en ekki illa, eins og alltof algengt er hjá ríkisstjórnarflokkum. Það er vonandi að menn hafi eitthvað lært af fyrri mistökum í þeim efnum." ERLEND YFIRSYN Flugher ísraels á sér engan líka í ná- kvæmnisárásum. Sama leiknin og lýsti sér í árásunum á kjarnorkustöð í Bagdad og loft- varnakerfi Sýrlendinga, lagði i rúst aðsetur PLO, Frelsissamtaka Palestínumanna, í út- jaðri Túnisborgar í fyrramorgun. Átta flug- vélar komu hverri sprengju og eldflaug i mark eftir 2400 kílómetra flug og eldsneytis- töku á lofti. Tilviljun ein réð því, að Jasser Arafat, foringi PLÓ, var ekki í tölu þeirra sex tuga manna sem biðu bana. Árásin er gerð á sjötta degi eftir að Palest- ínumenn myrtu þrjá ísraela um borð í skemmtibáti í höfninni í Larnaca á Kýpur, og ísraelsstjórn lýsir yfir að atlagan að höfuð- stöðvum PLO sé hefnd fyrir það hryðjuverk. Margfalt lengri tíma en tæpa viku tekur að undirbúa jafn vandasama hernaðaraðgerð og flugher ísraels hefur nú framkvæmt. Morðin í Larnaca urðu tilefni til að gera al- vöru úr áður frágenginni áætlun. Talsmaður PLO á Kýpur fordæmdi ódæðis- verkið i skemmtibátnum daginn sem það var framið. Morðingjarnir eru i höndum yfir- valda á eynni, og fyrir rétti kemur væntan- lega í ljós hverra erinda þeir ganga. Innrás ísraelshers í Líbanon, sem náði hámarki með því að PLO hörfaði frá Beirut til Túnis, var á sínum tíma kynnt af þáverandi Israelsstjórn sem hefndaraðgerð fyrir banatilræði við ísraelska sendiherrann í London. Eftirá reyndist morðinginn vera á snærum örgustu fjandmanna forustu PLO meðal Palestínu- manna. Sýrlandsstjórn gerir út Palestínumenn sem sagt hafa skilið við PLO vegna þeirrar stefnu Arafats og hans manna að leggja drög að friðargerð við ísrael. Hafa PLO-menn verið myrtir víða um lönd. Að hreyfingunni er þvi sótt úr tveim áttum, frá Sýrlandi og ísrael. Nánasti bandamaður samtakanna er hins vegar Hussein Jórdanskonungur. Hann hef- ur eins og Arafat komist að þeirri niðurstöðu, að brýnt sé að láta á reyna, hvort ísraels- stjórn fáist til að standa við þá stefnu að láta af hendi hertekið land fyrir frið. ísraelskt landnám á vesturbakka Jórdanar muni ella með tímanum útiloka málamiðlun á slíkum nótum. eftir Magnús Torfa Ólafsson Shimon Peres hyggst styrkja stöðu sína bæði gagnvart Jórdan og Likud. Margar flugur í einu höggi markmid árásar Israels á PLO Hussein og Arafat hafa leitast við að taka Reagan Bandaríkjaforseta á orðinu, eftir að hann lýsti yfir vilja til að beita áhrifum Bandaríkjanna til að stuðla að frekari friðar- gerð ísraels og nágrannaríkja í framhaldi af friðarsamningi ísraelsmanna og Egypta. En þrátt fyrir áralanga viðleitni rekur ekki né gengur. Bandaríkjastjórn neitar enn að ræða við sameiginlega sendinefnd Jórdansstjórn- ar og PLO, en slíkur fundur er hugsaður sem undanfari beinna samninga sömu aðila við Israel. Sömuleiðis vill Bandaríkjastjórn ekki fallast á kröfu Husseins að öll ríki í Öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna, þar á meðal Sovétríkin, taki þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um endanlega friðargerð fyrir botni Miðjarð- arhafs. Bandaríkjastjórn er samt umhugað um að halda Hussein Jórdanskonungi við efnið, og hefur Reagan forseti leitast við að fá þingið til að stöðva ekki sölu á vopnum fyrir millj- arð dollara til Jórdans. Var vopnasalan meg- inmál á síðasta fundi þeirra konungs og for- seta. Gerir Reagan sig líklegan til að tilkynna þinginu áform um vopnasöluna, sem nær fram að ganga nema þingið mótmæli form- lega innan tiltekins frests. Að undirlagi mál- svara ísraels í Washington hafa 79 af 100 öldungadeildarmönnum þegar lýst yfir, að þeir hyggist leggjast gegn vopnasölu til Jórdans! Enn flækist málið við það, að ísraelsstjórn er ósamstæð samsteypustjórn tveggja helstu • keppinauta í ísraelskum stjórnmálum. Verkamannaflokkurinn og Likudbandalagið hafa samið um að hvor leggi til forsætisráð- herra hálft kjörtímabil. Forsætisráðherra- skeið Shimon Peres, foringja Verkamanna- flokksins, er um það bil hálfnað. Skoðana- kannanir sýna að hann og Verkamanna- flokkurinn hafa forskot á Likudbandalagið og foringja þess, Shamir utanríkisráðherra. Bendir ýmislegt til að Peres vilji gjarnan láta stjórnina springa og efna til nýrra kosninga, áður en að því kemur að hann þurfi sam- kvæmt samningi að skila forsætisráðuneyt- inu í hendur Shamir. Kosningar myndu að verulegu leyti snú- ast um mismunandi afstöðu flokkanna tii her- numdu svæðanna. Likud vill í raun leggja þau til frambúðar undir Israel. Verkamanna- flokksforustan er fáanleg til að skila Jórdan yfirráðum að nafninu til á Vesturbakkanum, gegn því að ísraelsmenn haldi virkjum á hernaðarlega mikilvægum stöðum. Þessar aðstæður allar eru undirrótin til að Peres og flokksbróðir hans, Rabin landvarna- ráðherra, beittu sér fyrir ákvörðun um árásina á aðalstöðvar PLO. í fyrsta lagi stuðl- ar hún að því að stappa stálinu í þá menn á Bandaríkjaþingi, sem ákveðnastir eru að hindra áform Reagans um vopnasölu til Jórdans. í öðru lagi er girt fyrir að forusta PLO gefi fyrst um sinn frekar eftir en orðið er til að greiða fyrir fyrirhuguðum fundi fulltrúa hennar og Jórdans með bandarískum emb- ættismönnum. í þriðja lagi telja Peres og Rabin sig hafa sýnt Israelsmönnum, að for- ingjar Verkamannaflokksins séu ekki síður en Likud færir um að framkvæma skjótar og árangursríkar hernaðaraðgerðir. Eftir er að sjá, hversu lengi hönd verður höggi fegin í þetta skipti. Daginn eftir árásina á aðalstöðvar PLO létu áhrifamikil blöð í ísrael sér fátt um finnast, og töldu vafasamt að hún svaraði kostnaði af óhjákvæmilegum pólitískum og diplómatískum eftirköstum. Sá eini sem borið hefur blak af ísraels- stjórn er Reagan Bandaríkjaforseti, sem seg- ir hana vera í rétti og hafa valið rétt skot- mark fyrir árásina. Shultz utanríkisráðherra hans sagði hinsvegar samdægurs, að ekkert gæti réttlætt stigmögnun ofbeldisverka, hver sem í hlut ætti. Mubarak Egyptalandsforseti lýsir árás ísraelsmanna glæp og áfall fyrir friðarvið- leitni, sem hljóti að hafa áhrif á samskipti Egyptalands og ísraels. Efnahagsbandalag Evrópu hefur áfellst ísrael. Nýskeð hafði Margaret Thatcher ákveðið að bjóða sendi- nefnd Jórdans og PLO til London til við- ræðna við Howe utanríkisráðherra. Kvaðst hún gera það í því skyni að reka á eftir Reagan vini sínum að hætta að tvístíga og fara að sínu fordæmi til að þoka áfram friðar- viðleitni. Jasser Arafat segir fyrir sitt leyti, að fyrir ísraelsstjórn vaki að eyðileggja þann grund- völl sem verið hafi að myndast að friðargerð í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs. 6 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.